Morgunblaðið - 19.03.2008, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 19
SUÐURNES
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Viðgerðir Ráðist var í miklar viðgerðir á Útskálakirkju. Séra Björn Sveinn
Björnsson og Jón Hjálmarsson eru ánægðir með árangur vinnunnar.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Garður | „Söfnuðurinn stóð frammi
fyrir því að byggja nýjan helgidóm
eða að fara út í þessar miklu viðgerðir
á kirkjunni. Mönnum þykir vænt um
þessa kirkju og það er góð sátt um að
þetta skuli hafa verið gert,“ segir
Björn Sveinn Björnsson, sóknar-
prestur í Útskálaprestakalli. Út-
skálakirkja í Garði hefur verið tekin
rækilega í gegn, endurnýjuð að utan
jafnt sem innan. Kirkjan verður tekin
í notkun á ný við guðsþjónustu á skír-
dag.
Útskálakirkja var byggð árið 1861
úr timbri og járnvarin. Síðasta stóra
endurnýjunin á kirkjuhúsinu fór fram
í byrjun síðustu aldar en 1975 var
forkirkjan stækkuð og kirkjan máluð
og skreytt. Kirkjan var orðin illa farin
þegar þær framkvæmdir hófust sem
nú er að ljúka, að sögn Jóns Hjálm-
arssonar, formanns sóknarnefndar
Útskálasóknar.
Gott samstarf
Vorið 2005 var kirkjan tekin í gegn
að utan, skipt um járn á þaki og lag-
færingar gerðar á forkirkju og turni.
Í vetur hefur kirkjan verið lokuð á
meðan unnið hefur verið að endurbót-
um innan dyra. Klæðningin var orðin
gisin og hana þurfti að laga um leið og
öll kirkjan var einangruð. Skipt var
um gólf og reyndist það meiri fram-
kvæmd en reiknað var með því að
steypa þurfti betri undirstöður. Við
þá framkvæmd komu í ljós grafir og
mannabein sem fornleifafræðingar
rannsökuðu áður en gólfinu var lokað.
Kirkjan var öll máluð að innan og
meðal annars þurfti að láta smíða nýj-
ar stjörnur í hluta loftsins. Settir voru
nýir bekkir í kirkjuna, prédikunar-
stóllinn lagfærður og altaristaflan
hreinsuð, svo nokkuð sé nefnt. Bragi
Guðmundsson húsasmíðameistari í
Garði hafði yfirumsjón með verkinu.
Húsið er friðað og hefur því verið
náið samstarf við húsafriðunarnefnd.
Jón segir að erfitt sé að sameina
hagsmuni húsafriðunar og notkun
húsa í nútímanum en hann telur að
vel hafi tekist til í þessu tilviki og seg-
ir að samstarfið hafi gengið vel. Sumt
hefur verið fært til upprunalegs
horfs. Séra Björn og Jón eru ánægðir
með niðurstöðuna. Segja að kirkjan
sé mun bjartari og fallegri eftir end-
urbæturnar og þeir binda jafnframt
vonir við að hljómburður verði betri.
Jón telur að kostnaður við endur-
bætur Útskálakirkju verði nálægt 50
milljónum kr. Það er mikið fyrir litla
sókn. Jón segir að sóknarnefndin hafi
verið búin að safna í sjóði vegna við-
gerðanna og selt safnaðarheimili og
síðan fáist styrkir úr Jöfnunarsjóði
sókna og Húsafriðunarsjóði. Hann
segir þó að sóknin komi skuldug út úr
þessum framkvæmdum. „Þetta er
gríðarlegt átak fyrir litla sókn en við
búum að þessu næstu hundrað árin,“
segir séra Björn. Hann minnir á að
Útskálakirkja eigi sér langa og
merkilega sögu. Útskálaprestur hafi
þjónað fram á miðja síðustu öld því
svæði sem nú er Njarðvík, Keflavík,
Hafnir, Sandgerði og Garður. „Út-
skálakirkja hafði því ákveðna sér-
stöðu þar sem prestssetrið var á Út-
skálum. Þannig var staðurinn og
kirkjan sögulega séð táknræn sam-
eign Suðurnesjamanna og gegndi
veigamiklu hlutverki fyrir samfélag-
ið.“
Þótt framkvæmdum hafi ekki verið
lokið var barn skírt í Útskálakirkju á
pálmasunnudag. Það hefur sjálfsagt
verið við svipaðar aðstæður og á
byggingarári kirkjunnar en þá var
barn skírt áður en kirkjan var vígð.
Kirkjan verður formlega tekin í notk-
un á ný eftir endurbæturnar við guðs-
þjónustu á skírdag. Karl Sigur-
björnsson, biskup Íslands, prédikar
og séra Björn Sveinn þjónar fyrir alt-
ari.
Sögufrægt guðshús tekið
í notkun eftir viðgerð
Altari Öll kirkjan var máluð og alt-
aristaflan hreinsuð og lagfærð.
Ísafjörður | Skíðavikan 2008 verður
formlega sett á Silfurtorgi í miðbæ
Ísafjarðar í dag, miðvikudag, og af
því tilefni verða þar ýmsar uppá-
komur, t.d. sprettgöngukeppni í
Hafnarstræti. Skíðavikan á sér
langa sögu því hún var fyrst haldin
í páskavikunni 1935 og hefur síðan
verið árlegur viðburður í bæjarlífi
Ísfirðinga.
Fjöldi gesta kemur vestur á þess-
um tíma og er stundum haft á orði
að íbúafjöldi Ísafjarðar tvöfaldist í
dymbilvikunni.
Anna Sigríður Ólafsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Skíðavikunnar 2008,
segir að það hafi alltaf verið mark-
mið Skíðavikunnar að bjóða upp á
fjölbreytta dagskrá sem henti öll-
um en ekki bara þeim sem stunda
skíði. „Ég held að mér sé óhætt að
segja að dagskrá Skíðavikunnar í
ár sé ein sú glæsilegasta sem boðið
hefur verið upp á og í reynd sann-
kölluð menningarhátíð.“ Dag-
skrána má skoða á skidavikan.is.
Tónlist hefur alltaf skipað stóran
sess á Skíðavikunni og segir Anna
Sigríður enga breytingu þar á,
nema hvað hún sé jafnvel meiri og
fjölbreyttari en áður. Fjöldi tónlist-
armanna, jafnt ísfirskir sem að-
komnir, hefur troðið upp á Skíða-
viku í gegnum tíðina og eiga
margir sinn fasta sess á dagskrá
vikunnar. Stærstu tónleikarnir eru
hins vegar rokkhátíðin „Aldrei fór
ég suður“ sem verður nú haldin í
fimmta sinn.
Stór hluti Skíðavikudagskrár-
innar fer fram á skíðasvæði Ísfirð-
inga á dölunum tveimur, Tungudal
og Seljalandsdal. Að sögn Önnu
Sigríðar eru aðstæður þar nú eins
og best getur orðið, nægur snjór og
frábært færi. „Allt stefnir í að
Skíðavikan beri nafn með rentu
þetta árið og er mikill hugur í
starfsmönnum skíðasvæðisins sem
hafa að undanförnu unnið við að
troða brautir fyrir Skíðavikuna. “
Þegar skíðavikustýran er spurð
hvað hún ætli að gera á Skíðavik-
unni hlær hún og segist fyrst og
fremst ætla að reyna að sjá til þess
að allt fari vel fram og samkvæmt
áætlun. „Ég legg mig fram um að
vera á sem flestum stöðum og bara
njóta lífsins. Skíðavikunni fylgir
ótrúlega skemmtilegt andrúmsloft
sem lýsa má sem heimilislegri
heimsborgarstemningu. Og hér er
ekkert verið að þykjast, þetta er
einfaldlega rosaflott. Það segir sig
líka sjálft að Skíðavikan hefði ekki
verið við lýði svona lengi ef svo
væri ekki,“ segir Anna Sigríður
Ólafsdóttir.
Morgunblaðið/Guðfinna M. Hreiðarsdóttir
Tungudalur Aðstæður eru nú eins og best verður á kosið á skíðasvæðinu í
Tungudal í Skutulsfirði. Þar fara margir í sína fyrstu skíðabrekku.
Skíðavikan ber
nafn með rentu
LANDIÐ
WW
W.VIL
DARKLUBBUR.IS
AÐ MEIRA EN
40.000 MANNS FLJÚGA
Á HVERJU ÁRI MEÐ
ICELANDAIR FYRIR
VILDARPUNKTA?
VISSIR ÞÚ …
HJÁ VILDARFYRIRTÆKJUM
VISA OG ICELANDAIR
Handhafar Vildarkorts VISA og Icelandair safna
Vildarpunktum hraðar með því að beina viðskiptum
sínum til Vildarfyrirtækja Vildarklúbbsins.
Frá 17. mars til 1. apríl fá þeir tvöfaldan afslátt í formi
Vildarpunkta þegar þeir greiða með kortinu sínu.
Meðal Vildarfyrirtækjanna eru:
VERSLUNIN EINAR ÓLAFSSON, Skagabraut 9–11, Akranesi
MELABÚÐIN, Þín verslun, Hagamel 39
MIÐBÚÐIN, Þín verslun, Seljabraut 54
KOSTUR, Þín verslun, Holtsgötu 24
KASSINN, Þín verslun, Norðurtanga 1, Keflavík
TVÖFALDIR
VILDAR-
PUNKTAR
TIl 1. APRÍL
Vildarklúbbur
WWW.VILDARKLUBBUR
.IS
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.IS
IC
E
41526
03
/08