Morgunblaðið - 19.03.2008, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008 37
Skipulags- og byggingarfulltrúi Sveitarfélagsins Ölfuss.
Aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss, 2002-2014,
tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Ölfuss 2002-2014, virkjanasvæði við Hvera-
hlíð og Bitru, línulagnir, tvöföldun Suðurlandsvegar og mislæg gatnamót.
Bæjarstjórn Ölfuss heimilar auglýsingu á aðalskipulagsbreytingu er nær til breytinga á
aðalskipulaginu við Hverahlíð, Bitru og á þjóðvegi nr. 1, samkvæmt 18. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, m.s.br. Auglýsingin er skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdráttur
og umhverfisskýrsla ásamt athugasemdum sem Skipulagsstofnun lagði fram með bréfi
4. mars 2008.
Breytingartillagan tekur til:
285 ha opnu, óbyggðu svæði á Bitru/Ölkelduhálsi sem að hluta er á náttúruminjaskrá
og einnig skilgreint sem grannsvæði vatnsverndar, er breytt í iðnaðarsvæði (I2) fyrir
jarðgufuvirkjun.
320 ha opnu, óbyggðu svæði við Hverahlíð, sem að hluta er skilgreint sem hverfisverndar-
svæði og jafnframt sem fjarsvæði vatnsverndar, er breytt í iðnaðarsvæði (I18) fyrir
jarðgufuvirkjun.
Landnotkunarbreytingin gerir að felld er niður vatnsvernd, grann- og fjarsvæði á 4160 ha
svæði og hverfisvernd á um 320 ha svæði.
Vegna jarðgufuvirkjunarinnar er gert ráð fyrir nýjum háspennulínu/jarðstrengjum; Bitrulína
1 og 2 (220 kV jarðstrengir frá Bitru að tengivirki á Hellisheiði) Hverahlíðarlínur 1og 2 (220
kV jarðstrengir frá Hverahlíð að tengivirki á Hellisheiði) og Hellisheiðarlína 2 (220 kV) frá
tengivirki á Hellisheiði að Kolviðarhóli . Núverandi Búrfellslína 2 mun verða endurbyggð
að hluta frá tengivirki á Hellisheiði að Kolviðarhóli og mun heita Hellisheiðarlína 1 á þeirri
leið. Frá tengivirki á Kolviðarhóli mun Kolviðarhólslína 1 (220 kV sem er gamla Búrfellslína
3 frá Kolviðarhól að Geithálsi samsíða Búrfellslínu 3) verða endurbyggð og Kolviðarhóls-
lína 2 (220 kV samsíða Búrfellslínu 3 frá Kolviðarhóli að Sandskeiði) verður reist í línustæði
Sogslínu 2. Jafnframt verður Sogslína 2 felld niður (fjarlægð).
Gert er ráð fyrir tvöföldun (2+2) Suðurlandsvegar, þjóðvegar nr. 1, í núverandi legu frá
sveitarfélagsmörkum að vestan og austur að vesturmörkum Hveragerðis.
Gert er ráð fyrir þremur nýjum mislægum gatnamótum og fjórum til fimm undirgöngum
fyrir gangandi og/eða ríðandi umferð. Eldri tengingar verða felldar niður, þannig að aðeins
verða tengingar við mislægu gatnamótin. Mislæg gatnamót verða gegnt Bolöldum, við
Hamragilsveg og austan Gígahnúksvegar auk Þrengslavegamóta sem þegar eru komin.
Undirgöng verða við gatnamót Bolöldu, við gatnamót Hamragilsvegar, við gatnamót
Gígahnúksvegar auk reiðganga við Ölkelduhálsveg.
Niðurrennslissvæði vestan Þrengslavegar er fellt niður og niðurrennslissvæði milli
Suðurlandsvegar og Þrengslavegar minnkar, í heild er minnkun frá 49,8 ha í 38,2 ha.
Skipulagstillagan með greinargerð hefur tekið tillit til athugasemda umsagnaraðila.
Skipulagsgreinargerð, skipulagsuppdráttur og umhverfisskýrsla hefur verið til umsagnar
hjá Skipulagsstofnun. Með bréfi dagsettu 4. mars 2008, er Skipulagsstofnun með 13
ábendingar um skipulagsgreinargerðina, 5 ábendingar við skipulagsuppdrátt og 19
ábendingar við umhverfisskýrsluna.
Skipulagsgögn hafa verið lagfærð.
Aðalskipulagstillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofum Ölfuss að Hafnarbergi 1,
815 Þorlákshöfn, og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík, frá og með
21. mars 2008 til 18. apríl 2008. Skipulagsgögn má sjá á heimasíðu www.landmotun.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar
athugasemdir við aðalskipulagið. Frestur til þess að skila þeim inn er til 2. maí 2008.
Sigurður Jónsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
Óska eftir verktaka
eða húsasmíðameistara. Gamalt timburhús,
byggt 1906. Staðsett í Hafnarfirði. Viðbygging
og endurbætur á húsi.
Upplýsingar í síma 693 3878.
leitar eftir
sérfræðingi
Meginverkefni starfsins felast í að móta og
reka verkefni um vottun ábyrgra fiskveiða,
kynna íslenska fiskveiðistjórnun og sjávarútveg
á erlendum vettvangi auk annarra verkefna
sem stjórnin felur honum.
Leitað er eftir metnaðarfullum og
áhugasömum aðila, en mikil áhersla er lögð á
frumkvæði og sjálfstæði í starfi og góða sam-
skiptahæfni. Gerð er krafa um háskóla-
menntun. Starfsreynsla eða framhalds-
menntun er kostur, en ekki skilyrði.
Umsóknir sendist fyrir lok föstudagsins 4. apríl
nk. í pósti merkt, “Sérfræðingur Fiskifélags
Íslands, b/t Kristjáns Þórarinssonar, Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna, Borgartúni 35,
105 Reykjavík.” Nánari upplýsingar um starfið
veitir Kristján Þórarinsson, í síma 591 0300.
Um er að ræða framtíðarstarf á vettvangi
sjávarútvegsins en Fiskifélagið er sameiginleg-
ur samstarfsvettvangur samtaka í sjávarútvegi
með það að markmiði að efla hag greinarinnar
og stuðla að framförum í íslenskum
sjávarútvegi.
GR-veitingar og
þjónusta ehf
Golfs. í Grafarholti
óskar eftir sumarstarfsfólki í afgreiðslu og
þjónustu. Vandað fólk með góða þjónustulund.
Skemmtilegur vinnustaður í fallegu umhverfi.
Umsóknir sendist á netfang, ht@xnet.is
Endurskoðunarstofa í Reykjavík
Bókhald
Endurskoðunarstofa í Reykjavík óskar eftir
starfsmanni í fullt starf. Leitað er að stafsmanni
með reynslu í vinnslu bókhalds.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. á
box@mbl.is mertkar: ,,B - 21330” fyrir 26. mars.
Raðauglýsingar 569 1100
Félagslíf
I.O.O.F. 7. 18831971/2
M.A.*
I.O.O.F. 18 1883198 Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Vegurinn, Smiðjuvegi 5,
Kópavogi.
Páskamót Vegarins
Skírdag samkoma kl. 10:00
Gunnar Wiencke predikar.
Kl. 14:00 Thomas Jonsson predi-
kar. Kl 18:00 Ashley Schmierer
predikar.
Föstudagurinn langi kl. 10:00
Johannes Amritzer
Kl. 14:00 Ashley Schmierer
Kl. 18:00 Johannes Amritzer
TÓNLEIKAR kl. 22:00
Laugardaginn kl. 14:00 Ruth
Schmierer.
Lokasamkoma kl 18:00 Thomas
Jonsson.
www.paskamot.com
Atvinnuauglýsingar
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Gullsmárabrids
Úrslit 17.3. Spilað á 13 borðum.
N/S
Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 340
Hrafnhildur Skúlad.– Þórður Jörundss. 326
Guðm. Magnúss. – Leifur Kr. Jóhanness. 311
Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 311
A/V
Dagný Gunnarsd. – Steindór Árnason 323
Haukur Guðbjartsson – Jón Jóhannss. 305
Kristján Þorlákss. – Haukur Guðmss. 289
Ruth Pálsd. – Viggó M. Sigurðsson 275
Spilað verður næst fimmtudaginn
27. mars. Bridsdeild eldri borgara í
Kópavogi óskar félagsmönnum
gleðilegra páska.
Súgfirðingaskálin
Staðan eftir 4 lotur í keppni um
Súgfirðingaskálina er svohljóðandi.
Arnar Barðason – Hlynur Antonss. 620
Gróa Guðnad. – Guðrún K. Jóhannesd. 565
Guðni Ólafss. – Ásgeir Sölvason 516
Eðvarð Sturlus. – Þorleifur Hallbertss. 514
Björn Guðbjörnss. – Gunnar Ármannss. 513
Einar Ólafss. – Þorsteinn Þorsteinss. 511
Meðalskor er 520 stig.
Handhafar Súgfirðingaskálarinnar,
Arnar og Hlynur eru í mjög góðum
málum fyrir lokaumferðina en slak-
asta skori er hent út. Því geta orðið
óvæntar sviptingar um verðlaunasæt-
in.
Úrslit í fjórðu lotu, meðalskor 130.
Arnar Barðason – Hlynur Antonsson 168
Guðni Ólafsson – Ásgeir Sölvason 160
Sveinbj. Jónss. – Karl J. Þorsteinss. 151
Finnb. Finnbogas. – Jón Óskar Carlss. 142
Skor Arnars og Hlyns er 65% sem
er býsna gott. Gömlu kempurnar
Guðni og Ásgeir veittu þeim þó harða
keppni.
Lokaumferðin verður spiluð mánu-
dagskvöldið 21. apríl.
Bridsfélag Hreyfils
Það var spilaður eins kvölds
páskatvímenningur sl. mánudags-
kvöld. Daníel Halldórsson og Ágúst
Benediktsson sigruðu eftir hörku-
keppni, hlutu 130 stig. Birgir Kjart-
ansson og Jón Sigtryggsson fengu
125, Rúnar Gunnarsson og Hilmar
Hallbjörnsson 122 og Eyvindur
Magnússon og Þorsteinn Kristinsson
117.
Síðasta keppni vetrarins hefst 31.
mars nk. Það verður fimm kvölda tví-
menningur.
Spilað er í sal sendibílstjóranna í
Sundahöfn og hefst spilamennskan kl.
19.30.
Þrjátíu pör í páskamóti
Sjálfsbjargar
Úrslit í opna páskamóti Sjálfsbjarg-
ar og Prentmets urðu:
Gunnar Guðmss. – Sveinn Sveinsson 417
Berglj. Aðalsteinsd. – Björgvin Kjartanss. 410
Lúðvík Ólafss. – Ólafur Lárusson 408
Jón Jóhannss. – Steingr. Þorgeirsson 401
Sigríður Einarsd. – Ásmundur Guðmss. 389
Alls tóku 30 pör þátt í mótinu.
Stjórnandi var Ómar Olgeirsson.
Næst verður spilað hjá Sjálfsbjörg
mánudaginn 31. mars.
Stuð á Guðlaugi Bessasyni og fé-
lögum í Kópavogi
Þriggja kvölda hraðsveitakeppni
lauk með öruggum sigri sveitar Guð-
laugs Bessasonar. Með honum spiluðu
Jón Steinar Ingólfsson, Júlíus Snorra-
son, Eiður M. Júlíusson og Guðlaugur
Sveinsson.
Lokastaðan:
Guðlaugur Bessason 1702
Vinir 1639
Svala Pálsdóttir 1635
Loftur Pétursson 1623
Fimmtudaginn 27. marz hefst
þriggja kvölda tvímenningur, þ.e.a.s.
spilað verður 27. marz, 3. apríl, og 17.
apríl. 10. apríl verður sk. nýliðakvöld,
en þá koma nemendur úr MK sem eru
á bridsnámskeiði í skólanum, í heim-
sókn til okkar.