Morgunblaðið - 19.03.2008, Qupperneq 44
Meistarinn væntanlegur
Bob Dylan Fjórmenningarnir sem rætt var við eiga það allir sameiginlegt
að vera miklir aðdáendur og stefna þeir allir að því að mæta á tónleikana.
Það hefur trúlega ekki farið framhjá mörgum að Bob Dylan er væntanlegur hingað til lands, en hann
heldur tónleika í Egilshöllinni mánudagskvöldið 26. maí næstkomandi. Af því tilefni hafði Morg-
unblaðið samband við fjóra vel valda einstaklinga og fékk þá til að segja sitt álit á kappanum.
„Hann kom ekki
bara með rödd sem
tjáði hugsun hnatt-
arins, unga fólksins
á þeim tíma, heldur
breytti hann líka
varanlega popp-
bransanum og
gerði hann að alvar-
legu listformi þegar
best lætur,“ segir tónlistarmaðurinn
Bubbi Morthens um Dylan, en hann
hitaði upp fyrir hann á tónleikunum
1990. Dylan sé sá tónlistarmaður sem
hafi haft hvað víðtækust áhrif á dæg-
urtónlist fyrr og síðar. „Ég hvet allt
ungt fólk til að fara því það getur sagt
eftir 40 ár: „Ég sá Bob Dylan“. Það er
bara svipað og að segja: „Ég sá Moz-
art“ og þá burtséð frá því hvort fólki
hugnast söngstíll Dylans, músík eða
rödd.“
Bubbi segir menn ekki gera sér al-
mennt grein fyrir því hvers konar risi
Dylan sé. „Hann mótaði æsku mína,
mótaði unglingsárin og það er vegna
hans sem Árni Johnsen segir að ég
geti ekki stjórnað fjöldasöng,“ segir
Bubbi og hlær. Spurður að því hvort
hann hafi verið beðinn um að hita upp
fyrir Dylan á tónleikunum í Egilshöll
svarar Bubbi því að svo sé ekki, en
hann sé sannarlega til í það.
„Ég sá Bob Dylan“
Bregður mönnum í
brún þegar Lars kynnir
kynlífsdúkku sem unnustu
sína … 51
»
reykjavíkreykjavík
LEIKRIT Hrafnhildar Hagalín, Ég
er meistarinn, verður sýnt í franskri
þýðingu á leiklistarhátíðinni í Avig-
non í Frakklandi í sumar undir heit-
inu Maestro. Dóttir leikkonunnar
Romy Schneider, Sarah Biasini, fer
með aðalkvenhlutverkið í uppsetn-
ingunni og í aðalhlutverki karla er
leikarinn Jean-Pierre Bouvier, sem
lék m.a. í þriðju kvikmyndinni um
Emmanuelle, Good-bye, Emm-
anuelle. Hrafnhildur segir uppfærsl-
una hafa verið lengi í bígerð og
vissulega gaman að eiga verk á virtri
leiklistarhátíð á borð við þá í Avig-
non. Yngri leikarinn í verkinu,
Thomas Joussier, hafi lengi viljað
setja verkið upp, allt frá því hann las
leikritið fyrst. Maestro verður sýnt í
Avignon 27. júlí. Í stuttu máli fjallar
verkið um Þór og Hildi sem eru
klassískir gítarleikarar að stíga sín
fyrstu spor sem atvinnumenn.
Meistarinn, frægur gítarleikari og
fyrrverandi kennari þeirra, bankar
skyndilega upp á og flytur inn til
þeirra í nokkra daga og veldur usla.
Leikfélag Reykjavíkur setti verkið
upp árið 1990 og hefur það verið þýtt
á fjölda tungumála. Hrafnhildur
segir leikhópinn stefna að því að fara
víðar með verkið um Evrópu.
Á leiklistarhátíðina í Avignon
Biasini Veggspjald sýningarinnar
með ljósmynd af dóttur Schneider.
Skipuleggjendur
Vetrarhátíðar
2009 hafa ákveðið
í ljósi þess hversu
hressilega blés á
Vetrarhátíð í ár
að hætta að líta á
vindinn sem vandamál og líta þess í
stað á hann sem samstarfsaðila.
Þemað fyrir næstu Vetrarhátíð
mun því tengjast vindum með ein-
um eða öðrum hætti og er verið að
setja í gang nokkur verkefni sem
tengjast vindi, m.a. vindorgel,
vindhanaslag og vindknúinn kólf
fyrir sérstaka vetrarhátíðarklukku.
Þeir sem luma á hugmyndum fyrir
næstu Vetrarhátíð eru hvattir til að
senda póst til Höfuðborgarstofu á
netfangið vetrarhatid@vetr-
arhatid.is. Vonandi að blási byrlega
í þeirri hugmyndavinnu og að menn
fái það sem kallað er á ensku „bra-
instorm“, og þýða mætti sem hug-
hviðu. Um að gera að gefast ekki
upp þó á móti blási, líkt og hjól-
reiðamaðurinn á myndinni.
Vindurinn samstarfs-
aðili Vetrarhátíðar
Söngkonan Regína Ósk sendi í gær
frá sér nýtt lag og tónlistar-
myndband í tilefni af 20 ára afmæli
ABC hjálparstarfs. Lagið ber tit-
ilinn „Colors of Love“ og flytja það
með henni söngvarar úr Gospelkór
Reykjavíkur og þjóðþekktir tónlist-
armenn sjá um hljóðfæraleik. For-
maður ABC, Guðrún Margrét Páls-
dóttir, stefnir að því að framfleyta
10.000 börnum til viðbótar við það
sem nú er og leitar stuðnings Ís-
lendinga. Frekari upplýsingar má
finna á abc.is en lag Regínu er að
finna á vefsíðu Bylgjunnar.
Litir ástarinnar
Miðasala á tónleika Johns Fo-
gerty í Laugardalshöllinni hinn 21.
maí hófst í gær, og fór mjög vel af
stað. Þannig hafði um helmingur
þeirra 4.000 miða sem í boði eru á
tónleikana selst undir kvöld í gær.
Forsprakki CCR virðist því njóta
meiri vinsælda en nokkru sinni
fyrr, a.m.k. hér á landi.
Fogerty trekkir að
Andrea Jónsdóttir,
dagskrárgerð-
armaður og tónlist-
arspekúlant, fór á
tónleikana með
Dylan í Laugar-
dalshöll 1990. „Mér
fannst mjög gaman.
Og líka af því að það
skemmtilega við
hann er líka að hann er svoddan ólík-
indatól,“ segir Andrea. Jafnaldrar
hennar hafi reyndar hagað sér dálítið
illa margir hverjir, viðbrögð þeirra
hafi minnt hana á viðbrögð áheyr-
enda þegar Dylan kom fyrst fram raf-
magnaður á þjóðlagahátíð.
„Hann er náttúrlega bara sérviturt
séní og gerir það sem hann vill. Þess
vegna eru nú listamenn listamenn, af
því þeir eiga að leiða pöpulinn en ekki
öfugt.“
Andrea segir Dylan enn frábæran
tónlistarmann og hún ætli svo sann-
arlega á tónleikana í Egilshöll. Engin
leið sé að vita á hverju sé von frá
kappanum. „Mér finnst nóg að það sé
Bob Dylan, maður á bara að vera
ánægður með að hafa séð hann.“
Sérviturt séní
Í KVÖLD hefst kveðjuhátíð á Gauki
á Stöng sem stendur til 23. mars.
Gaukurinn var fyrsti tónleikapöbb
landsins og spannar tónleikasaga
hans um aldarfjórðung. Í tilkynn-
ingu frá tónleikahöldurum segir að
þeir kveðji staðinn með lúðrablæstri
enda Gaukurinn sem gamall vinur.
Í kvöld koma fram Sign, Ultra
Mega Teknóbandið Stefán, Sverrir
Bergmann og Hraun. Hinn 21. halda
gleðilætin áfram með Noise, Wulf-
gang, Cliff Clavin og Johnny And
The Rest. 22. koma fram Brain Po-
lice, Deep Jimi & The Zep Creams,
Jan Mayen og Music Zoo. Hinn 23.
koma fram Mood og Tena Palmer.
Gaukurinn kvaddur
Morgunblaðið/Frikki
Bless, Gaukur Hljómsveitin Sign
er ein margra sem kveðja Gaukinn.
„Það eru liðin yfir
fimmtíu ár síðan
Bob Dylan steig
fyrst á svið,“ segir
Bergur Ebbi
Benediktsson, tón-
listarmaður í
Sprengjuhöllinni.
„Þá flutti hann
ameríska rokk-
slagara á píanó og var púaður nið-
ur af samnemendum sínum sem
héldu flestir að hann væri að grín-
ast. Honum var nákvæmlega sama.
Síðan þá hefur hann flutt lög sín
fyrir milljónir manna sem hafa
kallað hann spámann og snilling.
Honum er sama,“ útskýrir Bergur
sem hefur lengi verið aðdáandi
Dylans og segir að hann hafi haft
mikil áhrif á sína tónlist. „Bob Dyl-
an er maður sem hefur í verkum
sínum aldrei reynt að vera hnyttinn
eða kaldhæðinn og hefur aldrei lát-
ið aðra stjórna sér. Hann er bara
strákur frá Minnesota sem lýsir
heiminum eins og hann sér hann og
hann gerir það af einlægni og
krafti, en ekki síður smekklegri
þrautseigju.“
Aðspurður segist Bergur ætla á
tónleikana í Egilshöllinni. „En ég
verð örugglega pirraður eins og
síðast þegar ég sá hann flytja text-
ana sína í einbylju undir hallær-
islegu dixíland-undirspili. Það verða
örugglega allir pirraðir. Allir nema
Bob Dylan. Honum er sama.“
Einlægni og kraftur
„Bob Dylan er
stórmerkilegur
músíkant sem hef-
ur haft mikil áhrif á
mig, og reyndar
alla sem ég þekki
til í kringum mig,“
segir Björn Jör-
undur Friðbjörns-
son tónlistarmaður.
„Hann er einn af þessum bestu
sem maður lítur til og er algjör risi.“
Björn segir erfitt að nefna sína
uppáhaldsplötu með Dylan. „Það er
nú meira og minna bara allur kata-
lógurinn framan af. Maður hefur
kannski ekki legið eins mikið yfir
nýjustu plötunum hans, einfaldlega
vegna þess að maður liggur svo lítið
yfir hlutunum nú til dags,“ segir
Björn sem var svo heppinn að sjá
Dylan á tónleikum hans í Laug-
ardalshöll árið 1990. „Mér fannst
hann fínn, en hann var að vísu ekki
alveg eins og ég hafði vonað að hann
yrði. En ég hugsa að ég fari að sjá
hann núna og ég vona að annaðhvort
hafi ég elst til að kunna betur að
meta hann eða þá að hann verði með
betri tónleika. Hann hefur verið
lengi með þessa sveit sem hann er
með, þannig að það er líklegt að
þetta verði mikil veisla og góðir tón-
leikar.“
Einn af þessum bestu