Morgunblaðið - 02.06.2008, Qupperneq 28
28 MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur Brautarinnar
Aðalfundur Brautarinnar - bindindisfélags
ökumanna verður haldinn miðvikudaginn
4. júní nk. kl. 17.30 í Forvarnahúsinu,
Kringlunni 1-3, Reykjavík.
Dagskrá fundarins verður skv. ákvæðum
4. greinar laga félagsins.
Félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöld hafa
atkvæðisrétt á fundinum.
Stjórn Brautarinnar -
bindindisfélags ökumanna.
Húsnæði óskast
Seltirningar á heimleið
Óska eftir húsnæði til kaups eða leigu á
Seltjarnarnesi. Einbýli, raðhúð/parhús eða
sérhæð. Fjögur svefnherbergi. Upplýsingar
sendist í tölvupósti til: fridrik.kr@simnet.is
Tilkynningar
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú
getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem
þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag.
Besta aukavinna sem þú getur fundið
og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna og sæktu um
í síma 569 1440 eða á mbl.is!
Sæktu um blaðberastarf
– alvörupeningar í boði!
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
ÞÓRUNN Sigurðardóttir, fyrrver-
andi listrænn stjórnandi Listahá-
tíðar í Reykjavík, hefur tekið við
stjórnarformennsku í UNICEF á
Íslandi. Hún tekur við starfinu af
Einari Benediktssyni, fyrrverandi
sendiherra sem því hefur gegnt
frá stofnun UNICEF hér á landi
árið 2004.
Fóru stjórnarformannsskiptin
fram á aðalfundi íslenskrar lands-
nefndar UNICEF miðvikudaginn
21. maí sl.
Hlutverk landsnefndarinnar er
að afla fjár meðal almennings og
fyrirtækja á Íslandi til styrktar
þróunarverkefnum UNICEF fyrir
börn.
Í máli Stef-
áns Inga
Stefánssonar,
fram-
kvæmda-
stjóra UNI-
CEF á
Íslandi, kom
fram að á síð-
asta ári hefði
231 milljón
króna verið
send til verk-
efna UNI-
CEF í þróunarlöndunum og þar af
hefði 92 milljónum verið ráðstafað
til uppbyggingar menntunar og
heilsugæslu barna í Vestur-
Afríkuríkinu Gíneu-Bissá. Eins og
undanfarin ár eru heimsforeldrar
stærsti styrktaraðili UNICEF á
Íslandi. Í lok árs 2007 voru heims-
foreldrar orðnir 13.700 talsins og
námu framlög þeirra samtals 158
milljónum.
Einari Benediktssyni voru á
fundinum þökkuð góð störf. Sagði
Stefán Ingi Einar „hornsteininn að
árangri og vexti UNICEF á Ís-
landi.“
Þær breytingar urðu einnig inn-
an stjórnarinnar að Júlíus Vífill
Ingvarsson hættir en inn koma
Eiður Guðnason sendiherra og
Kristín Jóhannesdóttir fram-
kvæmdastjóri.
Nýr formaður UNICEF á Íslandi
Þórunn
Sigurðardóttir
SÍMINN hefur lokið við uppsetn-
ingu á 3G-sendum í stærstu þétt-
býliskjörnum Suðurlands. Þeir
staðir sem nú ná 3G-þjónustu Sím-
ans á þessu landsvæði eru Vest-
mannaeyjar, Hveragerði, Selfoss,
Eyrarbakki, Stokkseyri, Hvols-
völlur og Þorlákshöfn.
Auk þess næst 3G-samband víðs
vegar á sumarbústaðasvæðinu í
Grímsnesi, Landsveit og Bisk-
upstungum. Þetta þýðir meðal ann-
ars að viðskiptavinir með Netlykil
Símans ná nú háhraðanetsambandi
á þessum stöðum.
Aukin þjónusta
Símans
á Suðurlandi
BENEDIKT Helgason verkfræð-
ingur varði doktorsritgerð sína frá
verkfræðideild Háskóla Íslands 9.
apríl sl. Ritgerðin
ber heitið „Ein-
staklingsbundin
greining á beinum
með eininga-
aðferðinni með
sérstaka áherslu
á tengingu gervi-
fótar við lær-
legg“, en hún
fjallar m.a. um
einstaklings-
bundna hermun á tengingu gervifót-
ar við bein.
Einingalíkön sem nota má til þess
að herma streitu- og spennuástand í
beinum gætu nýst vel í lækn-
isfræðilegum tilgangi. Þau myndu
t.d. henta við að hanna tengingu
gervifótar í bein og við mat á brot-
hættu hjá einstaklingum með bein-
þynningu. Rúmfræði og efniseig-
inleikar eru lykilatriði þegar gera á
einstaklingsbundin líkön af beinum.
Nákvæmar upplýsingar um útlínur
beina má lesa úr sneiðmyndum og
þannig útbúa rúmfræðilega nákvæm
líkön. Þá hefur verið sýnt fram á að
það sé því sem næst línulegt sam-
band á milli röntgensneiðmyndagilda
og eðlismassa. Ennfremur hefur vís-
indamönnum tekist að tengja eðl-
ismassa við efniseiginleika beina. Af
þeim sökum er líkanagerð sem byggð
er á röntgensneiðmyndum (CT) sú
aðferð sem mest er notuð þegar búa
á til einstaklingsbundin einingalíkön.
Þrátt fyrir að einstaklingsbundinni
greiningu sé beitt í auknum mæli,
bæði í læknisfræðilegum tilgangi og í
rannsóknum, heldur leitin að betri
aðferðum til að búa til þessi líkön
áfram. Ástæðan er sú að enn vantar
nokkuð upp á að nákvæmni þessara
líkana hafi verið sannreynd með til-
raunum. Þar fyrir utan eru þær að-
ferðir sem hafa verið þróaðar tíma-
frekar, sem rýrir möguleikana á
útbreiddri notkun þeirra.
Í þeirri vinnu sem þessi ritgerð
greinir frá voru þróaðar og sann-
reyndar mismunandi aðferðir til þess
að tengja efniseiginleika beina við
einingalíkön. Sérstök áhersla var
lögð á að rannsaka áhrif mismunandi
sambanda á milli eðlismassa og stífni
á niðurstöðurnar.
Þá voru einnig þróaðar aðferðir til
þess að herma mekaníska svörun á
milli beina og ígræðlinga og að lokum
voru þær aðferðir sem þróaðar voru í
verkefninu notaðar við einstaklings-
bundna hermun á tengingu gervifót-
ar við bein.
Meiri nákvæmni náðist í hermun á
mældum yfirborðsstreitum með
þeim aðferðum sem þróaðar voru í
þessu verkefni en áður hefur náðst í
svipuðum rannsóknum. Niðurstöð-
urnar sýndu hins vegar líka að að-
ferðirnar má enn bæta. Hermun á
mekanískri svörun á milli beins og íg-
ræðlings sýndi að fyrir gefna til-
raunaniðurstöðu þá væri líkan byggt
á vexti beins inn í holrými yfirborðs
ígræðlings líklegra til þess að lýsa til-
raunaniðurstöðunni en líkan sem
byggist á forspennu og núningi.
Megin niðurstaðan úr ein-
staklingsbundnu greiningunni á
tengingu gervifótar við bein er sú að
sennilegast megi nota ígræðlinga
með holum yfirborðum í þessa teng-
ingu. Það yrði þó gert með svipuðum
takmörkunum á álagi og eru til stað-
ar fyrir þessar tengingar í dag, en
fram að þessu hafa ígræðlingar með
skrúfgangi verið notaðir til þess að
tryggja kraftyfirfærslu á milli beina-
grindar og gerviútlims.
Benedikt Helgason er fæddur árið
1969. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1989.
Árið 1993 útskrifaðist hann með
lokapróf í byggingarverkfræði frá
Háskóla Íslands og með Civil Ingeni-
ør gráðu frá Danmarks Tekniske
Universitet árið 1996. Á árunum
1996-2001 starfaði Benedikt sem ráð-
gjafi, lengstum hjá Rambøll í Virum í
Danmörku. Frá árinu 2001 hefur
Benedikt synt rannsóknum og
kennslu við Véla- og iðnaðarverk-
fræðiskor Háskóla Íslands.
Maki Benedikts er Ragnheiður
Ásta Einarsdóttir sjúkraþjálfari.
Doktor í véla-
verkfræði
Benedikt Helgason