Morgunblaðið - 03.06.2008, Síða 1

Morgunblaðið - 03.06.2008, Síða 1
„ÉG kem ekki til með að sjá þetta aftur,“ segir Guðbjörn Magnússon sem rak upp stór augu þegar honum varð litið á tjörn rétt hjá Ólafs- vík. Álftin sem honum sýndist í fyrstu bera dúsk sem höfuðfat reynd- ist synda um sallaróleg með kríu sem farþega. Krían sat sem fastast í dágóða stund og virtist álftinni vel líka. | 12 Ljósmynd/Guðbjörn Magnússon ÁLFTIN FÆR SÉR KRÍU Amaðist ekki við laumufarþeganum Þ R I Ð J U D A G U R 3. J Ú N Í 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 150. tölublað 96. árgangur MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er DAGLEGTLÍF YVES SAINT LAURENT BREYTTI KONUM REYKJAVÍKREYKJAVÍK Gutti og skrímsli í símaskránni TAKTU ÞÁTT! 7. JÚNÍ 2008 SJÓVÁ KVENNAHLAUP ÍSÍ Magnaðar stundir í leikhúsinu WMU >> 37 Leikhúsin í landinu Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is RUNÓLFUR Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda, segir að upptaka kolefnisskatts á bílaeldsneyti geti gert eyðslufreka bíla nánast óselj- anlega, nema verðið á þeim verði lækkað mikið. Starfshópur fjármálaráðherra leggur til að skattlagn- ing á bíla og eldsneyti verði tengd við losun á koltvísýr- ingi (CO2). Þannig komi kolefnisskattur á eldsneytið og miðað við að gengi evru sé 120 kr. yrði hann 5,57 kr. á lítra af bensíni og 6,45 kr. á lítra af dísilolíu. Í stað vöru- gjalds á bíla komi gjald á losun CO2 á ekinn kílómetra. Bifreiðagjald miðist við losun CO2 en ekki þyngd bílsins. Runólfur segir að aðstæður hafi gjörbreyst frá því að starfshópurinn var skipaður og taka verði tillit til þess við ákvarðanir um skattlagningu. | 8 Tillögur um kolefnisskatta frá starfshópi fjármálaráðherra Bensínhákar óseljanlegir? Morgunblaðið/Ómar EKKI var gerður starfslokasamningur við Guðmund Þóroddsson heldur samkomulag um að fara eftir ráðn- ingarsamningi sem gerður var við hann í tíð R-listans 2002. Þar er kveðið á um 12 mánaða uppsagnarfrest, en Guðmundur hafði um 2,6 milljónir í laun eða rúmar 30 milljónir á ári. Hann var í leyfi frá OR frá hausti 2007 og gegndi stöðu forstjóra REI. Hjörleifur B. Kvaran tók við sem forstjóri OR og verður svo „enn um sinn“, samkvæmt samþykkt stjórnar OR. „Gengið verður frá þeim málum bráðlega,“ að sögn stjórnarformanns OR. 30 milljóna starfslok Guðmundur Þóroddsson Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is HÆTTA skapast á atgervisflótta frá Orkuveitu Reykjavíkur ef stefna í málefnum fyrirtækisins skýrist ekki. Heyra má á starfsmönnum að þeir hafi fengið nóg af afskiptum stjórn- málamanna. „Ég held að þetta sé pólitískasta fyrirtæki landsins,“ mátti heyra á einum þeirra í gær. „Enginn nennir að vinna með póli- tíkusum lengur. Það er ekki hægt að vinna undir þessum formerkjum, en vonandi förum við að sjá til lands.“ Á fundi starfsmanna í gær var ályktað að lýsa yfir „undrun og von- brigðum“ með þá ákvörðun að víkja forstjóranum Guðmundi Þórodds- syni úr starfi. Jafnframt er stjórn OR átalin fyrir „algjöran skort á upplýsingum um gang mála og lýst eftir skýrri stefnu í málefnum [fyr- irtækisins]“. Starfsmenn í útrás? Kvartað var yfir því að tilkynning hefði ekki borist starfsmönnum um brotthvarf Guðmundar á föstudag, en tilkynning var þó sett á innra net OR áður en hún var gerð opinber. „Það er viss hætta á að það verði atgervisflótti, starfsmenn fari í útrás og skilji fyrirtækið eftir,“ segir Ósk- ar Bergsson, borgarfulltrúi Fram- sóknar. Kjartan Magnússon, stjórn- arformaður OR, tekur ekki undir það. „Ég tel svo ekki vera ef starfs- fólk lítur svo á að framtíð sé í verk- efnum félagsins. Og við stefnum að því að láta þau halda áfram.“ Guðmundur lætur ekkert uppi um hvort hann fari í samkeppni eða hvort starfsmenn fylgi honum, en heimildir eru fyrir því að sam- keppnisákvæðum hafi verið bætt inn í ráðningarsamning við hann og fleiri stjórnendur í fyrra eftir að aðstoðarforstjórinn Ásgeir Mar- geirsson fór yfir til GGE og varð for- stjóri þar. Nennum ekki að vinna með pólitíkusum  Hætta á atgervisflótta frá OR  „Pólitískasta fyrirtæki landsins“ Í HNOTSKURN »Unnið er að stefnumótunhjá REI, útrásararmi OR. »Starfsmenn og stjórn-endur vinna saman að „lausn“ og binda vonir við „já- kvæða niðurstöðu“. »Óráðið er hver tekur viðsem forstjóri REI og mun framkvæmdastjórn halda utan um reksturinn á meðan svo er.  Fréttaskýring | 22 Skemmdir á Stöng  BÆJARRÚSTIRNAR á Stöng í Þjórsárdal koma óvenjuilla undan vetri. Fremri skálarústin er eins og svað yfir að líta og steinarnir í eld- stæðunum eru flestir komnir á hlið- ina. Deildarstjóri hjá Fornleifavernd ríkisins segir að gengið hafi verið um skálana á viðkvæmum tíma í vet- ur þegar gólfin voru blaut. »6 Hvalkjötið enn ekki tollafgreitt í Japan  GRÆNFRIÐUNGAR gagnrýna þá yfirlýsingu Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf., í íslenskum fjöl- miðlum að allt hvalkjöt sem unnið hafi verið úr langreyðum hér á landi hafi verið selt til Japans en ekki enn verið tollafgreitt og því komist það ekki á markað strax. „Þetta virðist vera tilraun til að komast að því hvort japönsk yfir- völd leyfi innflutning á hvalkjöti,“ sagði Frode Pleym, talsmaður grænfriðunga í Noregi. Hann sagði það „fáránlegt“ að íslenskir og norskir hvalveiðimenn skyldu reyna að flytja út hvalkjöt til Jap- ans því enginn markaður væri fyrir það þar. »12 Ráðlagt að borða skordýr  SKORDÝR á borð við engisprett- ur eru holl og hvetja ætti Vestur- landabúa til að borða meira af þeim, að sögn vísindamanna. Þeir segja að skordýr séu rík af prótínum og sumum steinefnum auk þess sem þau innihaldi minna af fitu og kólesteróli en nauta- og svínakjöt. „Skordýr eru gagnlegustu, van- nýttustu og ljúffengustu dýr í heim- inum,“ sagði náttúrufræðingurinn David George Gordon. Um 1.700 tegundir skordýra eru borðaðar í 113 löndum. | bogi@mbl.is Engisprettur á útimarkaði í Mexíkó.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.