Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 36
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is SIGUR Rós gefur út nýja plötu, Með suð í eyr- um við spilum endalaust, 23. júní næstkomandi. Í júníhefti hins víðlesna Q er að finna ítarlega greinargerð um upptökuferli plötunnar en höf- undur er Simon Goddard, eitt af þekktari nöfn- um breskrar rokkblaðamennsku. Stíll grein- arinnar er kirfilega í þessum sérbreska, kaldhæðna og „yfir þetta hafinn“ gír, en Godd- ard fylgdist með sveitinni í tvo mánuði og á milli lína má sjá að hann er grútspældur yfir því að hafa ekki verið hleypt nær hljómsveitinni en raunin varð. Honum verður því tíðrætt um hversu fjarlægir meðlimirnir eru, segir þá dónalega á einum stað og kallar þá afstyrmi („freaks“) á öðrum. hringsins“ að hanna fyrir sig og Goddard lýsir því vel hversu magnþrungin spennan var fyrir fundinn. Skera mátti loftið í sundur með hníf, en hugmyndir Ólafs fundu ekki farveg hjá Sigur Rósar-drengjum sem héldu krísufund í kjölfar- ið. Snilligáfa Ólafs og Sigur Rósar er óumdeild, en í þessu tiltekna efni a.m.k. náðu menn greini- lega ekki saman. Ljósmyndir Ryans McGin- leys, ungs og efnilegs ljósmyndara frá New York og rísandi stjörnu í ljósmyndalistinni, voru notaðar þess í stað. Q hefur þá einnig kveðið upp dóm um plötuna og gefur henni glimrandi góð meðmæli. Stjörn- urnar eru fjórar af fimm og sagt er að sveitin sé að kasta sér af fullu afli í meginstrauminn með plötunni, platan sé aðgengileg án þess þó að listræn tomma sé gefin eftir. Grein og dóm má nálgast á opinberri frétta- veitu Sigur Rósar. Hættu við Hugmyndir Ólafs fundu ekki farveg hjá Sigur Rósar-drengjum. Sigur Rós hafn- aði samstarfi við Ólaf Elíasson Breska tónlistartíma- ritið Q fjallar um mest „inn í sig“-hljómsveit heims í sjö síðna úttekt Funduðu Ólafur kynnti hugmyndir. www.sigur-ros.co.uk Það er munur að vera tónlistarblaðamaður á Bretlandi, en Goddard dvaldi með sveitinni á Ís- landi, í New York, London og Berlín en á síðast- nefnda staðnum fylgdi hann meðlimum á magn- aðan fund til sjálfs Ólafs Elíassonar, eins umtalaðasta myndlistarmanns samtímans. Meðlimir höfðu farið þess á leit við Ólaf að hann myndi hanna plötuumslag fyrir þá og einnig umgjörðina á væntanlegu tónleikaferðalagi sem hefst í Mexíkó á fimmtudaginn. Þetta er í fyrsta skipti sem sveitin hefur falið einhverjum „utan 36 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Ritdómur um símaskrána?Vafalaust tímamót í annarsýtarlegri bókmenntaum- fjöllun Morgunblaðsins. En símaskráin 2008 er líka engin venjuleg símaskrá. Nöfnin og núm- erin mynda umgjörð utan um rammíslenska hetjusögu um lítinn gutta úr borginni sem heillar trölls- dóttur (laundóttur þingmanns) og vegur ógurlegt skrímsli. Aldrei fyrr hefur símaskráin ver- ið svona skemmtileg lesning.    Og það er eins og saga Hugleiksdragi fram eitthvað alveg nýtt þegar hún er komin í þennan miðil sem fíngerðar og nánast endalausar síður símaskrárinnar eru. Væri auðvelt að byrja með hálist- rænar pælingar um þetta form og framsetninguna: Landslagssenurn- ar eru til dæmis miklu sterkari þeg- ar maður flettir og flettir og flettir gegnum hvern tindinn á fætur öðr- um. Strax eru hughrif farin af stað sem minna á útsýni lítils snáða úr aftursætinu þegar fjölskyldan fór á bílnum út í sveit. Ekkert að sjá nema fjöll og fleiri fjöll. Og litlir sögurammarnir, svo margir og knappir að næstum verð- ur úr hreyfimynd. Lesandinn gleymir sér í spennandi frásögninni og svo, skyndilega, þegar einni næfurþunnri síðunni er flett fyr- irhafnarlaust nær sagan kröftugum hápunkti, og við blasir risastór mynd af framandi ævintýraheim og ógurlegum skrímslum. Og hvað er þetta svo? Er saga Hugleiks Dagssonar í símaskránni list? Eða er þetta afþreying? Er Garðarshólmi Hugleiks skraut í annars líflausum runum af texta og tölum? Er þetta kannski tilraun til að ná til yngri lesendahóps sem á tímum netsins er löngu hættur að fletta upp númerum annars staðar en á netinu?    Hvað svo sem útgefendum síma-skrárinnar gengur til, þá má mín vegna alveg gera það að hefð að símaskránni fylgi hér eftir eitt- hvað í svipuðum dúr. Símaskráin gæti jafnvel orðið vettvangur fyrir upprennandi unghöfunda eða efni- legar listaspírur úr LHÍ. Þá verður símaskrárinnar beðið með óþreyju á mínu heimili. Hetjusögusímaskrá AF LISTUM Ásgeir Ingvarsson » Aldrei fyrr hefursímaskráin verið svona skemmtileg. Epík Innan um nöfn og númer Jóna og Gunna þessa lands og auglýsingar frá bönkum og innheimtufyrirtækjum leynist bráðskemmtilegt ævintýri Hugleiks. asgeiri@mbl.is SPURT hefur verið um launakjör starfsmanna Ríkisútvarpsins hér, eftir að því var breytt í hlutafélag. Í Bretlandi velta fjölmiðlar þessa dag- ana fyrir sér launakjörum þátta- stjórnenda og leikara hjá BBC. Í Daily Mail er fullyrt að um 40 stjörnur fái um eina milljón punda, ríflega 150 milljónir króna, á ári. Stjórnendur BBC vilja ekki gefa upp hverjar þessar stjörnur eru. Tíu þeirra hafa allt að tvær milljónir punda í laun á ári. Þar á meðal munu vera Simon Cowell og þeir Matt Lucas og David Walliams, stjörn- urnar úr þáttunum Litla Bretlandi. Í kjölfar fréttanna heyrast hávær- ar gagnrýnisraddir sem segja að greiðendur afnotagjalda eigi ekki að standa undir launum sem þessum. Ríkir Þeir Lucas og Walliams, stjörn- urnar í Litla-Bretlandi, eru vinsælir. Stjörnur BBC vel launaðar LEIKKONAN Kiera Knightley hyggst flytja til Frakklands. Ástæðan mun vera sú að hún vill vera nærri unnusta sín- um, leikaranum Rupert Friend, sem dvelur í Frakk- landi og leikur í kvikmynd ásamt Michelle Pfeiffer. Skötuhjúin hafa verið saman í fjögur ár og munu vera hamingjusöm núna, eftir erf- iðleikatímabil. Ástæðan fyrir því var sögð vera álag vegna þess hvað þau væru mikið aðskilin þar sem þau voru að leika hér og þar. Einhverjir hafa ýjað að því að Knightley vilji vera nærri kærastanum þegar hann leikur í ástarsenum með Pfeiffer. Knightley flytur nær Friend

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.