Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 18
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„KÓRSÖNGSFERILL minn er nú
ekki langur, ég er sautján ára. Ég
byrjaði að syngja í haust í Kór
Menntaskólans við Hamrahlíð. Fyrir
það hafði ég mest verið í rokk-
böndum,“ segir Kolbeinn Tumi Bald-
ursson, sem tekur nú í fyrsta skipti
virkan þátt í Kórastefnu í Mývatns-
sveit, sem haldin verður um helgina.
Kolbeinn Tumi fer þó ekki með MH-
kórnum, heldur Samkór Kópavogs,
kórnum sem pabbi hans, Baldur
Tumi Baldursson, syngur líka með.
„Við erum reyndar ekki í þessum
kór, heldur æfum bara með honum
fyrir Kórastefnuna,“ segir Kolbeinn
Tumi. Það Carmina burana eftir
Carl Orff sem er stóra aðdráttaraflið
á Kórastefnu nú. En hvað er svona
skemmtilegt við það að syngja í kór?
„Það er bara eitthvað svo góð upp-
lifun. Það er gaman og eiginlega
ólýsanlegt. Það er líka mjög gaman
að syngja með pabba í kór, eins og
við séum bara vinir að syngja.“
Feðgarnir eru tenórar, og þegar
blaðamaður spyr – ja hvað eigum við
að segja, – í svolítilli meinfýsni, hvort
það sé ekki ávísun á stanslausan ríg
og kapp um það hvor sé meiri og
merkilegri tenór, sýnir Kolbeinn
Tumi dæmalausa hógværð: „Ég er
nú svo ungur, og segi að hann sé
meiri tenór – allavega núna. Hann er
með þroskaðri rödd og búinn að
syngja mun lengur en ég.“
Langar að læra söng
Það gæti farið svo að saman drægi
með feðgunum, því Kolbeinn Tumi
hyggur á söngnám í haust, ef hann
getur. En hvernig er að koma í
englakórinn hennar Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur í Hamrahlíðinni og eiga
sér fortíð í rokkinu? „Það er allt
öðruvísi söngstíll. Ég kunni voða lítið
að syngja þegar ég kom í kórinn og
hafði litla kórrödd, var með harða
rödd og ekki nógu fíngerða. En svo
þroskast maður. Þorgerður er mjög
fín, og rosalega góður kórstjóri.“
Kolbeinn Tumi hefur alltaf mætt á
Kórastefnu við Mývatn. „Ég hef allt-
af farið til að hlusta, þótt það hafi
verið gegn mínum vilja. Á þeim tíma
hafði ég engan áhuga á þessari tón-
list, en það fór að breytast þegar ég
byrjaði í kórnum í Hamrahlíðinni.
Núna hlakka ég mjög mikið til; þetta
er risastór kór, flott hljómsveit og
góður stjórnandi.“
Þá er það spurning hvort ungi
maðurinn hyggist líka syngja „Fjár-
lögin“, öðru nafni Íslenskt söngva-
safn sem Sigfús Einarsson gaf út á
sínum tíma, og öll þjóðin söng langt
fram eftir síðustu öld; það er nefni-
lega hefð fyrir því að Fjárlögin séu
sungin á Kórastefnu: Frjálst er í
fjallasal, Nú blika við sólarlag …
„Já, ég held það – ég kann þau
allavega. Þau eru alltaf sungin þegar
ættin mín kemur saman,“ segir Kol-
beinn Tumi Baldursson og segir það
muna „þvílíkt miklu“ að vera alinn
upp í músíkalskri fjölskyldu.
Smit fyrir lífstíð
„Allavega núna“ er Baldur Tumi
Baldursson betri tenórinn, að sögn
sonarins. Baldur Tumi er læknir, og
er í miðjum klíðum við stjórn lækna-
ráðstefnu á Hótel Hilton Nordica
þegar yfirheyrslan um kórreynslu
hans hefst. Liggur ekki beinast við
Baldur Tumi: Söngurinn þroskar fólk og gaman er að vera partur af stóru hljóðfæri
Kolbeinn Tumi: Ég hef alltaf farið til að hlusta, þótt það hafi verið gegn mínum vilja
„Pabbi er meiri tenór“
Morgunblaðið/G. Rúnar
Feðgar „Það er mjög gaman að syngja með pabba í kór; eins og við séum bara vinir að syngja saman,“ segir Kolbeinn Tumi Baldursson.
að spyrja lækninn hvort kórsöngur
sé ólæknandi baktería?
„Jú, hann er það, þetta er smit fyr-
ir lífstíð,“ segir læknirinn, og grunur
leikur á að hann hafi ekki frekar en
sonurinn nokkurn áhuga á lækningu,
allavega ekki í bráð.
„Þetta er alltaf jafngefandi og
skemmtilegt, þótt maður leggi
stundum af stað tregum skrefum.
Maður hefur nóg að gera, það tekur
tíma að komast norður, og talsvert
mál er að hafa sig af stað. En þetta
er þess virði. Söngurinn þroskar
fólk, og það er gaman að vera partur
af svona stóru hljóðfæri,“ segir Bald-
ur Tumi. Hann leggur áherslu á að
kórstarf sé bæði listræn og félagsleg
upplifun. „Það að taka þátt í að
syngja í stóru verki breytir því verki
fyrir lífstíð fyrir viðkomandi. Hann
fær tíu sinnum meira út úr því að
hlusta á það, þekkir alla innviði þess
og upplifunin við að hlusta á það er
allt önnur en ella væri. Við höfum
sungið Messías, Sköpunina og fleira,
og það er ólíkt skemmtilegra að um-
gangast verkin eftir að hafa sungið
þau.“
Í Sameinaða sýslukórnum
Kórlíf Baldurs Tuma hófst á sama
hátt og hjá syni hans; í Kór Mennta-
skólans við Hamrahlíð. Í kórnum var
líka tilvonandi eiginkona hans, Sól-
veig Anna Bóasdóttir guðfræðingur.
Þetta er í fyrsta skipti sem hún
syngur ekki á Kórastefnunni; hún er
afsökuð, því hún verður systur sinni,
Margréti Bóasdóttur, listrænum
stjórnanda Kórastefnunnar, til halds
og trausts í skipulagningunni.
„Við syngjum mikið saman,“ held-
ur Baldur Tumi áfram. „Það er mikil
sönghefð í tengdafjölskyldu minni.
„Annars er ég svosem alltaf í Sam-
einaða sýslukórnum, eins og sagt
er,“ segir hann og hlær; þetta er fína
nafnið á fjölskyldukórnum.
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
KÓRASTEFNAN við Mývatn hefst á fimmtudag með tónleikum Skjól-
brekku kl. 20.30. Kór Reykjahlíðarkirkju syngur undir stjórn Jóns
Stefánssonar. Samkór þingeyskra kirkjukóra syngur einnig ýmis kór-
verk og loks verða „Fjárlögin“ æfð og sungin. Miðnætursöngur verð-
ur í Jarðböðunum við Mývatn. Á föstudagskvöld kl. 20.30 verða tón-
leikar allra kóranna í hraunhvelfingu Laxárvirkjunar.
Á sunnudag kl. 15 verða hátíðartónleikar í Íþróttahúsinu í Reykja-
hlíð. Þar flytja um 230 manns Carmina Burana, ásamt einsöngvurum
og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Kór Flensborgarskóla og karla-
kórar syngja einnig. Stjórnendur eru Hrafnhildur Blomsterberg,
Guðmundur Óli Gunnarsson og norski verðlaunakórstjórinn Thomas
Caplin. Aðrir kórar á stefnunni eru Åkersberga Kammarkör frá
Stokkhólmi, Samkór Kópavogs, Lögreglukórinn í Reykjavík, Karla-
kór Keflavíkur og Barnakór Hafralækjarskóla.
Kórastefnan
LJÓSMYNDIR af öldruðum
Hafnfirðingum þekja nú veggi
Hafnarborgar, en þar stendur
yfir sýning á ljósmyndum Árna
Gunnlaugssonar.
Sýningin samanstendur af
440 svart-hvítum ljósmyndum
sem teknar voru á tímabilinu
frá 1960 til 1992 af öldruðum
Hafnfirðingum sem Árni rakst
á á förnum vegi.
Við hverja mynd eru skráðar
upplýsingar um fólkið sem Árni myndaði, m.a.
fæðingar- og dánarár.
Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga frá
11 til 17 og á fimmtudögum er opið til 21. Stendur
sýningin yfir til 21. júlí. | begga@mbl.is
Myndlist
Myndir af öldruðu
fólki á förnum vegi
Árni
Gunnlaugsson
FORLÁTA söðulklæði,
sjaldséðar þvottaklemmur
og gríðarstór askur eru
meðal þess sem berja má
augum á sýningunni Yfir
hafið og heim.
Sýningin verður opnuð í
Þjóðminjasafninu á
fimmtudag, í Bogasalnum.
Samanstendur sýningin
af íslenskum munum sem áður voru geymdir í
Nordiska Museet í Stokkhólmi, en mununum var
safnað á Íslandi í lok 19. aldar.
Alls eru um 800 gripir á sýningunni, jafnt
hversdagsmunir og gersemar. Snorri Freyr Hilm-
arsson hannaði sýninguna og Lilja Árnadóttir er
sýningarhöfundur. | begga@mbl.is
Þjóðmenning
Forvitnilegir hvers-
dagsmunir og djásn
Lok af trafaöskju
frá 17. öld.
SÖNGKONAN fagra Gasp-
arína þarf sökum fátæktar að
þiggja uppihald og gjafir frá
Don Pelagio. Til sögunnar
koma hin ráðríka Appolína og
Don Ettore sem keppir við
Don Pelagio um hylli Gasp-
arínu og fer þá allt á flug.
Þannig hljómar söguþráður
gamanóperu Haydns La
Canterina sem framhalds-
nemendur við Tónlistarskólann í Kópavogi sýna í
Salnum.
Anna Júlíana Sveinsdóttir leikstýrir og Kryst-
yna Cortes leikur á píanó.
Sýningar verða kl. 18 á miðvikudag og kl. 20 á
fimmtudag. Aðgangur er ókeypis. | begga@mbl.is
Tónlist
Ástir og átök
Gasparínu í Salnum
Joseph Haydn
Á SUNNUDAG lauk stærstu bóka-
kaupstefnu Bandaríkjanna, sem
haldin er árlega í Los Angeles.
Rafbókin
Kindle frá Ama-
zon var áberandi
umræðuefni á
kaupstefnunni og í
umfjöllun New
York Times segir
blaðamaðurinn
Edward Wyatt að
bókaútgefendur
séu órólegir vegna
mikils vaxtar í
sölu Kindle sem gæti í framtíðinni
komið Amazon í slíka aðstöðu á
markaði að vefbúðin vinsæla gæti
farið að þvinga niður verð frá útgef-
endum.
Selja á undirverði
Nú þegar selur Amazon raftexta
fyrir Kindle á lægra verði en versl-
unin greiðir útgefendum og í fyr-
irlestri á kaupstefnunni sagði Jeffrey
Bezos, stofnandi og framkvæmda-
stjóri Amazon að í dag væru sex pró-
sent af bókasölu fyrirtækisins fyrir
Kindle.
Hjá flestum stærstu útgáfufyr-
irtækjum virðist annars sem rafræn
útgáfa vaxi mjög hratt milli ára og til
dæmis seldi Penguin útgáfurisinn
fleiri bækur á rafrænu formi fyrstu
fjóra mánuði þessa árs en á öllu síð-
asta ári. | begga@mbl.is
Óttast
Kindle
Bandarískir útgef-
endur á kaupstefnu
Jeff Bezos
PÓLÝFÓNFÉLAGIÐ minnist þess
um þessar mundir að nú eru 50 ár
liðin frá stofnun Pólýfónkórsins.
Stofnandi kórsins
og kórstjóri var
Ingólfur Guð-
brandsson. Kór-
inn starfaði í rúm
30 ár og hélt
fjölda tónleika
innan lands sem
utan, frumflutti
fjölda íslenskra
verka og var í far-
arbroddi í flutn-
ingi erlendra
meistaraverka kórtónlistarinnar á
Íslandi. Þegar fyrir lá að starfsemi
yrði ekki lengur haldið áfram með
sama hætti, var lögð áhersla á að
gefa út upptökur sem til eru með
söng kórsins. Pólýfónfélagið var
stofnað til þess að standa vörð um þá
arfleifð sem starf Pólýfónkórsins
skilur eftir sig. Ingólfur Guðbrands-
son átti hugmynd að stofnun Tón-
menntasjóðs, sem standa ætti
straum af kostnaði við Pólýfónútgáf-
una. Stofnun sjóðsins er enn í burð-
arliðnum, en aðstandendur hans
efndu nýverið til happdrættis til
styrktar sjóðnum. Dregið var í
happdrættinu á afmælisdegi kórs-
ins, 8. apríl, en vinningsupphæð var
ein milljón.
Eigandi vinningsmiðans gaf sig
fram og sagðist vilja styrkja þessa
menningarstarfsemi og leggja vinn-
inginn til Tónmenntasjóðsins og
áframhaldandi útgáfu á efni í flutn-
ingi Pólýfónkórsins. | begga@mbl.is
Vinningshafi
gaf vinninginn
Ingólfur
Guðbrandsson
Pólýfónfélagið
LAXÁ Á REFASVEIT
Það var að losna holl 21.-23. júlí
Eigum laust: 2 holl í júlí · 1 holl í ágúst · 4 holl í september
Upplýsingar veitir Stefán í síma 898-3440