Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 20
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Chanel gaf konum frelsi. [Yves] Saint Laurentveitti þeim völd,“ sagði Pierre Berge, í viðtalivið France-Info útvarpsstöðina í kjölfar látsþessa gamla vinar síns og viðskiptafélaga á
sunnudag. Það eru líklega engar ýkjur að Yves Saint
Laurent, sem var 71 árs er hann lést eftir veikindi síðustu
árin, var með áhrifamestu hönnuðum 20. aldarinnar. En
líkt og þau Christian Dior og Coco Chanel tilheyrði hann
þeirri kynslóð hönnuða sem gerði París að höfuðborg
tískuheimsins.
Yves Saint Laurent átti líka stóran þátt í að breyta því
hvernig konur samtímans klæða sig. Hann gerði ráð fyrir
að konur klæddust buxum jafnt að degi sem kvöldi –
nokkuð sem þótti ekki sjálfsagðara en svo að konum
klæddum buxnadrögtum hans var stundum synjað um
aðgang að veitingastöðum og hótelum í New York og
London. Aðrar flíkur úr fataskáp karlmannsins fóru
sömu leið – tvíhnepptir ullarjakkar, rykfrakkinn og svo
smókinginn, sem fyrst leit dagsins ljós í kvenlegri útgáfu
1966 og er nú orðin það samofinn nafni Saint Laurent að
ný útgáfa fylgdi hverri línu sem hönnuðurinn sendi frá
sér. Með smókingnum og síðar aðsniðnum jakkafötum
sýndi hann líka að jakkaföt gátu verið tískufatnaður fyrir
bæði kynin. Konur gátu klæðst karlmanns-
fötum og ef þau voru sniðin að kvenlík-
amanum voru þau táknmynd kvenleikans.
Yves Henri Donat Mathieu Saint Laurent,
eins og hann hét fullu nafni, fæddist 1. ágúst
1936 í strandbænum Oran í Alsír, sem þá til-
heyrði Frakklandi. Hann var feimið barn og
einrænt, en hugfanginn af fötum og hafði kom-
ið sér upp miklu safni fataskissa áður en hann
flutti til Parísar 17 ára gamall. Hann hætti eft-
ir stutt tískunám við Chambre Syndical de la
Couture, en var skömmu síðar ráðinn aðstoð-
armaður Christian Diors eftir að hafa hlotið
fyrstu verðlaun í hönnunarkeppni. Er Dior
lést síðan skyndilega 1957 var Yves Saint
Laurent gerður að yfirhönnuði tískuhússins,
21 árs gamall. Fyrsta lína hans í nýja starfinu
var sýnd í janúar árið eftir og vakti mikla at-
hygli. Hana byggði Saint Laurent á trapisu
þar sem gengið var út frá aðsniðnum öxlum,
háu mitti og útvíðum faldi. Athygli tísku-
heimsins beindist þá strax að Saint Laurent
og hélst þar nokkuð vel þar til hönnuðurinn
hætti störfum 2002, þó vissulega einkenndust
verk hans hin síðari ár ekki af sama frumleika.
Buxnadragtirnar, tvíhnepptu ullarjakkarnir og svo
rúllukragapeysur undir karlmannsjökkum hafa fyrir
löngu skipað sér fastan sess. Safaríjakkarnir skjóta
sömuleiðis upp kollinum aftur og aftur og meira að segja
hlébarðamynstrið og evrópski bændastíllinn birtast
reglulega á sýningarpöllum tískuhúsanna.
Bítnikk-línan frá 1960, með leðurjakka og rúllukraga-
peysur í aðalhlutverki, var síðasta lína Saint Laurent fyr-
ir Dior. Hún vakti ekki síður deilur en kvenlegu buxna-
dragtirnar áttu eftir að gera, enda þótti töluvert mál að
karlmenn köstuðu skyrtunni.
Og í mörg ár eftir að Yves Saint Laurent stofnaði sitt
eigið tískuhús 1962 beið tískuheimurinn í ofvæni eftir að
sjá hvað hvað hann sendi frá sér. Lína byggð á strang-
flatalist hollenska listamannsins Mondrianis frá 1965, er
að mati New York Times enn eitt dæmið um verulega vel
heppnaða hönnun, sem og munúðarfulli bændastíllinn
sem hann kynnti fyrir árið 1976. Sú sýning vakti raunar
svo mikla athygli í París að hún var sett upp aftur í New
York.
Fréttastofan AP hefur eftir Berge að Saint Laurent
hafi verið „alvöru sköpuður“ sem hafi farið út fyrir mörk
fagurfræðinnar til að gefa samfélagslegar yfirlýsingar.
„Að þessu leyti var hann frjálshyggjumaður, anarkisti
sem varpaði sprengjum að rótum samfélagsins. Þannig
breytti hann samfélaginu og þannig breytti hann konum.“
Blómlegur Sumarkjóll úr
vor- og sumarlínunni 2001.
Breytti því hvernig
konur klæða sig
AP
Reuters
Smóking Vakti mikið um-
tal sem kvenfatnaður.
Sá tvíhneppti Ullarjakk-
inn hentaði konum vel.
Yves Saint Laurent Með teikningu af
kjólnum sem vakti athygli Dior.
Litríkur Hátískufatnaður úr ýmsum línum Saint Laur-
ent sýndur er hönnuðurinn hætti störfum 2002.
Trapisan Grannar axlir,
hátt mitti og útvítt pils.
Flatstrangastíll Mondrian
línan þykir vel heppnuð.
Safarí-andinn Yves Saint Laurent með vinkonum sínum
Betty Catroux og Loulou de la Falaise í safarí-línunni.
tíska
20 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
!
! !
"
! !
!
!
!
! #! $
% &
'
!
%
( (
!
'' %!"
' '
!
(' )
'
'
% !
*'% % '
+
,
-
' .
!
''
'
'% % /
!
%!"
'
(
"
''
!'
&
(
0123#40,*#5 67 899
!
:,20;
<''
! " ''
6=
>>>7
- kemur þér við
Sérblað um bíla
fylgir blaðinu í dag
Skyrgámar á Selfossi
fóru í klessu
Sala á farsímum
hrynur í kreppunni
Fyrirtæki í útrás ekki
betur stödd en hin
Síðustu hljómar
Hljóma í Liverpool
Jakob Frímann berst
fyrir Iceland Airwaves
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?