Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 26
✝ Jón Bjarni Þórð-arson fæddist á Akranesi 19. febrúar 1932. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 25. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þórður Bjarnason kaupmaður, f. 25.5. 1901, d. 11.3. 1972 og Guðrún Jóns- dóttir, f. 26.6. 1906, d. 16.12. 1992. Jón Bjarni átti tvö systk- ini: Guðmund Alfreð vélstjóra, f. 29.6. 1934, maki Mál- fríður Björnsdóttir, f. 20.12. 1939 og Jóhannu Maríu ljósmóður, f. 8.11. 1941, maki Steingrímur Ingv- arsson, f. 13.11. 1939. Jón Bjarni kvæntist 5.11. 1953 Áslaugu Bernhöft, f. 16.4. 1933. Synir þeirra eru: a) Ólafur Þór, f. 13.3. 1954, maki Þórey Björk Þor- steinsdóttir, f. 1.5. 1954. Börn þeirra eru Hilda Björk, f. 29.2. 1972, d. 17.3. 1973, Laufey Björk, f. 29.7. 1976, maki Jakob Hall- dórsson, Jón Orri, f. 11.3. 1985, Ás- laug Eik, f. 13.6. 1994, Jökull Steinn, f. 13.6. 1994. b) Þórður, f. 22.11. 1960, sonur hans og Að- alheiðar Þorbergsdóttur er Jón Bjarni, f. 29.4. 1994. Jón Bjarni fór 13 ára gamall á síld- arbát á vertíð, tók síðan gagnfræðapróf og starfaði í verslun föður síns. 17 ára fór hann í millilandasigl- ingar, lengst af á Tröllafossi. Eftir að í land var komið hóf hann störf í versl- uninni Þrótti í Sam- túni. Eignaðist hann þá verslun síðar. Svo lá leiðin í Kjöt- miðstöðina á Lauga- læk og þvínæst í Heimakjör í Sól- heimum og endaði hann sína kaupmennsku í Breiðholtskjöri í Breiðholtinu. Hann var virkur í fé- lagsmálum eins og Lionshreyfing- unni og Kaupmannasamtökunum og starfaði með Frímúrurum. Eins var hann alla tíð ákafur stuðnings- maður Skagamanna í fótboltanum. Stundaði hann útiveru eins og golf ásamt Áslaugu konu sinni, og einn- ig var hann slyngur veiðimaður á sjóstöng og í laxveiði. Hjónin Jón Bjarni og Áslaug áttu sitt annað heimili í Flórída. Útför Jóns Bjarna fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Bálför fer fram síðar. Jón Bjarni mágur minn hafði mik- inn áhuga á ferðalögum og hafði ferðast vítt og breitt um heiminn. Sem ungur maður var hann sjómaður á millilandaskipum og hafið togaði alltaf í hann. Á seinni hluta lífsins sigldi hann sem farþegi á farþega- skipum um suðræn höf. Nú er hann enn einu sinni farinn í ferðalag, en þessi ferð var ekki fyrirhuguð. Hann fór óvænt og með farseðil aðeins aðra leið. Í litlu fjölskyldunni okkar skildi hann eftir tómarúm og við sem eftir sitjum fáum ekki að vita hvernig ferð- in heppnaðist og hvort lygnt hafi ver- ið í sjóinn og golfvellir séu á nýja staðnum. Hann ólst upp á Akranesi og það leyndi sér ekki þegar Skagamenn kepptu í fótbolta að í hjarta sínu var hann Skagamaður. Faðir hans rak matvöruverslun á Akranesi og eftir að Jón Bjarni kom í land gerðist hann einnig kaupmaður. Hann hóf sinn kaupmannsferil sem kaupmaðurinn á horninu, fyrst í lítilli verslun í Sam- túni í Reykjavík en síðan færði hann sig milli hverfa í stærri og stærri verslanir og endaði í Breiðholtinu sem þá var að byggjast upp. Hann vann sitt starf af miklum dugnaði, seiglu og útsjónarsemi og var braut- ryðjandi í verslunarrekstri á mörgum sviðum. Þegar hann á efri árum settist í helgan stein þá sat hann aldrei auðum höndum og sama eljan og útsjónar- semin einkenndi hann. Það gustaði af honum hvert sem hann fór og þegar hann var ekki að spila golf þá var hann ævinlega eitthvað að spá og spekúlera. Hann fylgdist vel með nýj- ungum á sviði tækninnar, var dugleg- ur við að skoða og spá í ný hús, nýja bíla, eða að leita á netinu að spenn- andi ferðamöguleikum. Ég þakka mági mínum samfylgdina í 55 ár, aldrei bar skugga á þau samskipti. Ég óska honum góðrar ferðar og vona að ferðin verði ánægjuleg. Systur minni, sonum þeirra, tengdadóttur og barnabörnum votta ég mína innileg- ustu samúð. Blessuð sé minning Jóns Bjarna Þórðarsonar. Birgir Bernhöft. Elsku bróðir, mér datt það ekki í hug að það kæmi í minn hlut að skrifa um þig minningargrein. Það eru ekki nema tveir mánuðir síðan þú og Ás- laug buðuð okkur í matarveislu í Perl- una í tilefni 75 ára afmælis Áslaugar. Og þar varst þú að vanda hrókur alls fagnaðar, líka vegna þess að lyfja- meðferðin gekk vel og þú varst bjart- sýnn. Þar sem tvö ár voru á milli okk- ar áttir þú þína félaga og ég mína. Þó er eitt atvik sem ég man vel eftir sem skeði að hausti til. Við fórum niður á bryggju að veiða og ég sat fyrir aftan þig og hélt á færinu en þú varst veiði- maðurinn. Ákafinn við veiðarnar var svo mikill að að endingu dast þú í sjó- inn. Ég skynjaði hvað var að ske og öskraði á hjálp og rétt þar hjá var ver- ið að vinna í sláturhúsi og menn þar heyrðu köllin og það sem bjargaði var að þú hélst um færið og öngullinn stakkst í höndina, þangað til hjálp barst. Þú varst sendur í sveit í tvö sumur, en það blessaðist ekki, endirinn var sá að þú varðst sendill í búðinni hjá pabba. Og vorið eftir var þér komið fyrir hjá Njáli Þórðarsyni á línuveið- Jón Bjarni Þórðarson aranum Ólafi Bjarnasyni sem hjálp-arkokkur og þar varstu næstu tvö sumur. Að þessu loknu þegar þú varst um 17 ára komst þú að hjá Eimskipi á m/s Tröllafossi og þar varstu næstu árin. Á milli túra í stoppunum heima var aðeins eitt hús sem þú heimsóttir, það var húsið Hvítanes, sem er nú horfið, þar hittir þú Þórð Þ vin þinn og fleiri. Þú sigldir einnig á m/s Fjall- fossi í nokkur ár, að því loknu stofn- aðir þú þitt eigið fyrirtæki, sem var verslunin Þróttur í Samtúni, alkom- inn í land. Að reka verslun þá var eng- inn leikur og þá var oft lögð nótt við dag til að dæmið gengi upp, og þar með var þín lífsbraut mörkuð sem endaði í Breiðholtskjörum. Þú varst gæfumaður í þínu lífi með eiginkonu þinni Áslaugu. Þú varst alltaf Skagamaður og fórst á flesta fótboltaleiki hjá ÍA. Að lokum vil ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína. Ég sendi Áslaugu, sonum og barnabörnum mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Guðmundur og Fríða. Í örfáum orðum langar mig að kveðja frænda minn Jón Bjarna Þórðarson. Nonni frændi greindist með krabbamein fyrir örfáum vikum og var að hefja meðferð við því þegar kallið kom. Honum hrakaði hratt og um kvöldmatarleytið hinn 25. maí, á afmælisdegi föður síns, ákvað hann að kveðja. Ef svo illa að orði mætti kom- ast þá var það ekki hans „stíll“ að vera veikur, hann var maður athafna og gerða og þannig vil ég minnast hans: að vera að fara eitthvað og gera eitt- hvað. Ófáar gleðistundir í Stigahlíð- inni, Breiðholtskjör, í bústaðnum við Þingvallavatn, bátsferð, allt eru eru þetta góðar minningar mínar frá barnæsku. Seinna er ég flutti austur á Fljóts- dalshérað komu Áslaug og Nonni í heimsókn til mín, það þótti mér vænt um og eins á ég eftir að sakna símtal- anna frá þér, frændi, er þú hringdir á haustin og spurðir mig hvort ég gæti nú ekki útvegað þér rjúpur eða hrein- dýr. Ég kveð þig hér með sálm sem hún amma kenndi mér og eflaust þér ein- hvern tímann Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Elsku Áslaug, Óli, Þórey, Doddi, barnabörn, Mummi, mamma og aðrir ættingjar og vinir, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Ykkar Linda Björk og fjölskylda. Góður, gamall vinur minn, Jón Bjarni Þórðarson, er látinn 76 ára að aldri. Hann var ákaflega lífsglaður maður og datt mér ekki annað í hug en maðurinn með ljáinn væri víðs fjarri. Reyndin varð hins vegar önnur og þurfti hann að lúta í lægra haldi í vonlausri viðureign við skelfilegan sjúkdóm sem varð honum að fjörtjóni á örskömmum tíma. Jón Bjarni var Skagamaður og sem ungur drengur var hann til sjós á bát- um frá Akranesi. Aðeins 17 ára gam- all réð hann sig á Tröllafoss, í eigu Eimskips. Það var litið upp til þeirra manna, sem voru í siglingum í þá daga, enda höfðu þeir frá mörgu að segja, sem okkur hinum var fram- andi. Jón giftist eiginkonu sinni, myndarlegri Reykjavíkurmær, Ás- laugu Bernhöft, árið 1953. Hún var og er víðsýn, vinsæl og skemmtileg kona. Eitthvað voru foreldrar Ás- laugar í vafa um að pilturinn, Jón Bjarni, væri samboðinn dótturinni og því hringdi amman í fjölskyldunni í vinkonu sína uppi á Skaga til að spyrj- ast fyrir um um foreldra Jóns. Svarið var, að þau væru sómafólk og faðirinn einhver mesti „gentlemaður“ á Skag- anum. Foreldrar brúðarinnar lögðu því blessun sína yfir ráðahaginn. Árið 1956 tók líf Jóns Bjarna allt aðra stefnu. Hann hefur ályktað sem svo að framtíð hans og fjölskyldunnar væri betur borgið á öðrum vettvangi og því réð hann sig árið 1955 sem af- greiðslumann í verslunina Þrótt í Höfðaborginni. Ekki liðu nema örfáir mánuðir þar til hann hafði keypt verslunina af þáverandi eiganda. Á þessum tímapunkti hófst viðskipta- ferill hans fyrir alvöru. Jón Bjarni var alla sína tíð ákaflega vinnusamur, hafði fágaða framkomu, sem varð til þess að hann var einstaklega vinsæll og afhaldinn meðal viðskiptavina sinna. Ágrip af viðskiptasögu Jóns Bjarna: Hann rak og átti Kjötmið- stöðina, stofnaði, ásamt æskufélaga sínum, Jóhanni Gunnlaugssyni, versl- unina Heimakjör 1960. Leiðir þeirra skildi þegar Jón byggði og hóf versl- unarrekstur í Breiðholtskjöri, sem var ein af fyrstu kjörbúðum hér á landi, stór, rúmgóð og markaði þann- ig tímamót í sögu matvöruverslana á Íslandi. Jón Bjarni átti hlutdeild í ýmsum fyrirtækjum, t.d. í kjötvinnslu og heildsölu, sem flutti inn sérhæft vöruval fyrir matvöruverslanir. Kynni mín af Jóni Bjarna hófust árið 1969 á Majorca. Það sem ég tók fyrst eftir í fari hans var hugmynda- flugið, sem hann hafði í ríkum mæli, og hversu auðvelt hann átti með að koma viðmælendum á sömu skoðun og hann hafði myndað sér. Ef til vill hefur það verið kaupmaðurinn í hon- um eða einhvers konar markaðs- hyggja, sem hann hefur fengið í vöggugjöf. Hann var opinn fyrir nýj- ungum í verslunarrekstri og ætíð í takt við nýja tíma og síðast en ekki síst snyrtimenni fram í fingurgóma. Á Flórída, þar sem við bjuggum tímabundið hlið við hlið, áttum við hjónin ógleymanlegar stundir með Áslaugu og Jóni, nutum tilverunnar og spiluðum golf saman. Kynni okkar af þeim hjónum hafa varað í 40 ár og tel ég það til forréttinda að hafa notið vináttu þeirra í öll þessi ár. Við höfum átt fjölmargar ánægjustundir saman, heima og erlendis, ljúfar minningar, sem ekki verða frá okkar teknar. Jón Bjarni var góður drengur, eig- inmaður og faðir og var fjölskyldan honum eitt og allt. Það er trú mín að vel verði tekið á móti honum í nýjum heimkynnum. Guð blessi minningu Jóns Bjarna Þórðarsonar. Reynir Jónasson. Meira: mbl.is/minningar Í dag kveð ég elskulegan vin minn Jón Bjarna Þórðarson. Við Jón höfum átt samleið frá árinu 1970 þegar ég keypti af honum verslunina Heima- kjör og seinna opnuðum við saman verslun í Hafnarfirði. Það var ynd- islegt að fá að kynnast Jóni og hans elskulegu konu, Áslaugu. Í augum okkar Katrínar voru þau ávallt eins og eitt, samhent og samstiga í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Við Katrín ferðuðumst nokkrum sinnum með Jóni og Áslaugu og voru allar þær ferðir mjög ánægjulegar og svo var ekki síður skemmtilegt að heimsækja þau í Flórída. Þótt Jón dveldi langtímum saman í Flórída fylgdist hann vel með því sem var að gerast hér heima. Hann hringdi oft í mig til að fá fréttir og eins spjölluðum við saman á netinu í seinni tíð. Hann hafði engan áhuga á tölvum fyrr en hann áttaði sig á því hvað hægt var að ná í mikinn fróðleik á netinu og þá var hann fljótur að til- einka sér það sem þurfti til að ná tök- um á þeirri tækni. Jón hafði mjög gaman af að veiða og fórum við oft saman í veiðiferðir og langoftast í Haffjarðará sem var hans uppáhaldsveiðiá. Þar áttum við marg- ar ánægjulegar samverustundir. Jón var einstaklega passasamur og fór vel með alla hluti og fyrirhyggjan var ætíð í fyrirrúmi hjá honum. Hún kom til að mynda fram í því hvernig hann brást við í veiðitúrum þegar einhver var með bilað veiðihjól eða brotna stöng. Þá sagði Jón: „Strákar mínir þetta er ekkert mál, ég er alltaf með tvennt af öllu.“ Jón var mikill áhugamaður um golf og spiluðum við oft saman. Í fjölda- mörg ár höfum við leikið saman í frí- múraragolfmótinu á Hellu, sem er alltaf haldið um eða upp úr mánaða- mótunum maí/júní. Í fyrstu viku nú í maí skráði ég okkur Jón í mótið eins og ég hef alltaf gert undanfarin ár. En ekkert varð úr því að við lékjum saman að þessu sinni því kallið kom miklu fyrr en ég hafði gert mér grein fyrir. Árið 1979 gekk Jón í frímúrara- regluna sem hann stundaði af áhuga og kostgæfni. Hann hafði mikið dá- læti á reglustarfinu og þar áttum við saman margar góðar stundir. Um leið og ég þakka vináttu hans og góðvild alla bið ég hinn hæsta höf- uðsmið að fylgja vini mínum á þeirri leið sem hann hefur nú lagt út á. Við sendum Áslaugu, Ólafi, Þórði og allri fjölskyldunni okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Hákon og Katrín. Jón Bjarni Þórðarson kaupmaður er látinn. Fyrir tæpum mánuði síðan sátum við Jón saman sem oftar á fundi í húsakynnum Kaupmannasam- taka Íslands þar sem hann tjáði okk- ur fundarmönnum að hann gengi með illvígan sjúkdóm og væri undir lækn- ishendi. Okkur sem fundinn sátum fannst útlit hans ekki bera þess merki og vorum frekar bjartsýnir um bata. Þess vegna kom andlát hans okkur á óvart en enginn veit sína ævina fyrr en öll er. Jón var þægilegur maður í viðmóti, jákvæður og vinsæll kaupmaður. Hann var ávallt hrókur alls fagnaðar í vinahópi. Jón rak verslun við Samtún, síðar við Laugalæk, þar næst Versl- unina Heimakjör og síðast Breið- holtskjör, en rekstri þeirrar síðast- nefndu hætti hann fyrir nokkrum árum. Þessar verslanir rak Jón af myndarbrag og þær voru honum til sóma. Tímarnir breytast, smásölu- verslunin fer nú á færri hendur og einingarnar verða stærri. Því miður fer þessum mönnum fækkandi og því um leið því hlutverki sem kaupmað- urinn á horninu hefur haft sem sér- svið, nefnilega mannleg samskipti fólks á milli. Það fólk sem komið er til vits og ára og man þennan þátt í okk- ar sögu og ólst upp með því mun sakna þess tíma. Við kaupmenn munum minnast Jóns Bjarna Þórðarsonar með hlýhug í hjarta. Í þessum fáu kveðjuorðum langar mig að geta þess í lokin að fyr- ir ekki löngu síðan heimsóttum við hjónin ásamt syni okkar og tengda- dóttur þau hjón Áslaugu og Jón á heimili þeirra í Flórída. Sú heimsókn var ljúf og lifir í minningunni. Ég og mín fjölskylda kveðjum góðan vin með söknuði og vottum Áslaugu, son- um þeirra og öðrum ástvinum okkar dýpstu samúð. Gunnar Snorrason. 26 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR                          SENDUM MYNDALISTA Steinsmiðja • Viðarhöfða 1 • 110 Reykjavík •  566 7878 • Netfang: rein@rein.is • Vönduð vinna REIN Legsteinar í miklu úrvali MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.