Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 44
Ljósmynd/Sævar Logi
Opnuðust Djúpar sprungur opnuðust í Reykja-
fjalli fyrir ofan Hveragerði. Svæðið er varasamt.
NÝ sprunga myndaðist í Reykjafjalli ofan Hvera-
gerðis í jarðskjálftunum fyrir síðustu helgi. Hið nýja
sprungusvæði er um 800 metra langt. Tveggja metra
jarðsig hefur víða orðið og allt að þriggja metra breið-
ar sprungur opnast. Svæðið er rétt ofan nýja leir-
hversins sem varð til í skjálftunum og tilheyrir sömu
jarðhræringum.
Að sögn Zophaníasar Friðriks Gunnarssonar, for-
manns Hjálparsveitar skáta í Hveragerði, hafa hjálp-
arsveitarmenn metið sprungurnar og er mælst til
þess að fólk fari ekki mikið um svæðið að svo stöddu.
Sprungurnar eru frá einum upp í fjóra metra á dýpt
og á tveimur stöðum hafa opnast svonefnd augu, síval-
ar holur í jörðinni sem eru um metri í þvermál og allt
að fimm metra djúpar.
Almannavarnir vara fólk enn við því að vera við
hlíðar Ingólfsfjalls og nálægra fjalla. | onundur@mbl.is
Nýtt 800 metra sprungubelti
Sprungur ofan Hveragerðis allt að þriggja metra breiðar
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 155. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Ritstjóraskipti á
Morgunblaðinu
Ólafur Þ. Stephensen tók í gær við
ritstjórn Morgunblaðsins af Styrmi
Gunnarssyni sem hafði gegnt starfi
ritstjóra í 36 ár. Styrmir segir að í
ritstjórnartíð sinni og Matthíasar
Jóhannessen hafi Morgunblaðinu
verið breytt úr málgagni hinna ráð-
andi afla á Íslandi í málsvara al-
mannahagsmuna. »14-15
Biðlistar í bæjarvinnu
Umsóknum 17-18 ára unglinga um
sumarvinnu hjá sveitarfélögum hef-
ur fjölgað mjög í ár og biðlistar eru
lengri en áður. Um 400 eru á biðlista
í Reykjavík, um 100 í Kópavogi og í
Hafnarfirði voru um 150 á biðlista
fyrir tveimur vikum. »2
Una sér við latínunám
Latína er ekki það fyrsta sem
kemur upp í hugann sem skemmti-
legt tómstundagaman en hún er það
sannarlega hjá þremur forn-
vinkonum sem hafa undanfarna tvo
vetur hist einu sinni í mánuði til að
hressa upp á latínukunnáttuna. »19
Hætta á atgervisflótta
Heyra má á starfsmönnum Orku-
veitu Reykjavíkur að þeir hafi fengið
nóg af afskiptum stjórnmálamanna
af fyrirtækinu og hætta skapast á at-
gervisflótta frá því ef stefnan í mál-
efnum þess skýrist ekki. »Forsíða
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hvalveiðar og
Öryggisráðið
Forystugreinar: Starf Styrmis
Ljósvakinn: Sögupersóna lifnar
UMRÆÐAN»
Ingólfstorg í uppnámi
Hvenær vorar í skógrækt á Íslandi?
B. Fischer sterkasti skákmaður …
Nýtt ævintýri um augastein
3 3
3 3
3 3
4$&5 '. +&
6 3 3
3 3 3 3 -7#1 '
3 3 3 3 3
3
3
89::;<=
'>?<:=@6'AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@'7 7<D@;
@9<'7 7<D@;
'E@'7 7<D@;
'2=''@ F<;@7=
G;A;@'7> G?@
'8<
?2<;
6?@6='2+'=>;:;
Heitast 18 °C | Kaldast 10 °C
NA 5-10 m/s. Skýjað
og sums staðar dálítil
súld f. norðan og aust-
an. Annars bjart, rign-
ir í kvöld f. sunnan. » 10
Rúmlega sex þúsund
manns sáu Beðmál í
borginni um helgina
en fleiri sáu þó Indi-
ana Jones í nýja
ævintýrinu. » 38
KVIKMYNDIR»
Stúlkurnar
sterkar
TÓNLIST»
McCartney kynnir nýju
kærustuna. » 38
Samkvæmt tímarit-
inu Q höfnuðu pilt-
arnir í Sigur Rós til-
lögum Ólafs Elías-
sonar að verki utan á
nýju plötuna. » 36
TÓNLIST»
Verki Ólafs
hafnað
KVIKMYNDIR»
Vinsælustu verðlaun
stjarnanna. » 40
TÓNLIST»
Hljómar frá Keflavík
hafa þagnað. » 41
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Drengur sem Hollywoodmynd …
2. T. O’Neal staðin að kókaínkaupum
3. Ísland getur ekki mætt Spáni …
4. Snarpur kippur á Hellisheiði
Íslenska krónan veiktist um 1,5%
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
„ÞAÐ ER vilji til að byggja grá-
sleppusafn heima á Drangsnesi og við
ákváðum einfaldlega að halda áfram
með þá hugmynd, hanna og teikna
húsið og skipuleggja allt,“ sögðu Inga
Hermannsdóttir og Sandra Dögg
Guðmundsdóttir, nemendur í Grunn-
skóla Drangsness, glaðar í bragði um
hugmynd sína að grásleppusafni á
Drangsnesi. Tillaga þeirra deildi
fyrsta og öðru sætinu með Grunnskól-
anum í Hofgarði í verðlaunasam-
keppninni Heimabyggðin mín sem
haldin er í grunnskólum af samtökum
Landsbyggðarvina Reykjavíkur og
nágrennis.
Með samkeppninni er krökkunum
gert kleift að koma hugmyndum sín-
um um bætta heimabyggð á framfæri
og var hún nú haldin í fimmta skipti.
Hin sigurtillagan kom frá Lydíu
Angelíku Guðmundsdóttur og Svan-
hvíti Helgu Jóhannsdóttur, nem-
endum 8. bekkjar Grunnskólans í Hof-
garði. Þeirra tillaga var um kaffihús
og „lifandi“ safn í Sandfelli á Öræfum
þar sem eitt sinn var prestssetur og
kirkja.
„Við vorum með þá hugmynd að þar
myndi fólk vinna við ýmis forn störf
klætt í þjóðbúninga og þannig væri
hægt að kynnast gömlum siðum. Safn-
ið yrði byggt í gömlum stíl og þar væri
einnig starfrækt kaffihús sem nefnt
yrði Þorgerðarkaffi eftir Þorgerði
landnámskonu,“ útskýrðu þær og aug-
ljóst er að tillagan er þaulhugsuð. Víði-
staðaskóli í Hafnarfirði hlaut þriðju
verðlaun fyrir tillögu að skautasvelli á
Thorsplani í miðbæ Hafnarfjarðar.
Hanna grásleppusafn
Grunnskólanemar
skipuleggja
heimabyggð sína
HUGMYND nemenda 8. og 9. bekkjar Grunnskóla
Drangsness að grásleppusafni deildi fyrsta og öðru
sætinu með tillögu nemenda 8. bekkjar Grunnskól-
ans í Hofgarði á Hornafirði um „lifandi“ safn í verð-
launasamkeppninni Heimabyggðin mín. Í þriðja sæti
lentu nemendur Víðistaðaskóla í Hafnarfirði en þeir
lögðu til að útbúið yrði skautasvell á Thorsplani í
miðbæ Hafnarfjarðar.
Sigurvegarar samkeppninnar fá vonandi að sjá
ávöxt erfiðis síns en stefnt er að því að opna áður-
nefnt grásleppusafn á Drangsnesi á sjómannadaginn
árið 2010. Við verðlaunaafhendinguna í Ásmundar-
safni í gær sagði Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri
Hafnarfjarðar, að hugmynd nemenda Víðistaðaskóla
yrði nú tekin til athugunar hjá bæjarstjórn og
kannað hvort hún væri tæknilega framkvæmanleg.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti lýðveld-
isins, ávarpaði einnig samkomuna en hún gegnir
hlutverki sérstaks verndara heildarsamtaka Lands-
byggðarvina.
Fá að sjá ávöxt erfiðis síns
Morgunblaðið/Valdís Thor
Hugmyndasmiðir Lydía Angelíka, Inga, Svanhvít og Sandra voru ánægðar að verðlaunaafhendingu lokinni.
„EKKI er hægt að segja að
þessir tónleikar hafi verið
einn af hápunktum listahá-
tíðarinnar. Ónei, ónei,“ skrif-
ar Jónas Sen tónlistar-
gagnrýnandi í umsögn sinni
um söngtónleika Denyce
Graves. Fer hann hörðum
orðum um frammistöðu
Graves, sem kynnt hefur ver-
ið sem „ein skærasta stjarna
söngheimsins“. Segir Jónas að söngstíll hennar
hafi verið grófur og tilgerðarlegur og „túlk-
unin almennt yfirborðsleg og ósannfærandi“.
Ekki fær meðleikarinn betri umsögn, en hann
sat „við píanóið eins og loðfíll og bauð áheyr-
endum upp á endalausa flatneskju“. | 37
Frammistaðan
sögð hneyksli
Denyce Graves