Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA kauphallarinnar
lækkaði um 1% í gær og hefur nú
lækkað um 25,6% frá áramótum.
Bréf Straums-Burðaráss lækkuðu
um 2,2% en þó nokkrar lækkanir
voru einnig á aðallista utan vísitölu,
s.s. á Atlantic Airwaves, Atlantic
Petroleum og Föroya banka. Eik
banki hækkaði mest, eða um 2,3%.
Mest viðskipti voru með hlutabréf
viðskiptabankanna þriggja, sam-
anlagt fyrir 2,4 milljarða. Í heild nam
hlutabréfavelta þremur milljörðum
króna en skuldabréfavelta 26,4
milljörðum króna.
Vísitalan niður um 1%
● HLUTABRÉF breska bankans Brad-
ford & Bingley hrundu um fjórðung í
gær þegar bankinn tilkynnti endur-
skoðun á útgáfu nýs hlutafjár og nýj-
an 23% hluthafa, Texas Pacific
Group Capital, sem kaupir hlutafé að
verðmæti 324,9 milljónir punda. Þá
spáði bankinn auknum vanskilum
og lækkandi vaxtaálagi.
Aðrir breskir bankar lækkuðu í
verði í kjölfar yfirlýsingarinnar og bú-
ist er við erfiðri viku í fjármálageiran-
um, að því er fram kemur í Financial
Times. Í heild mun B&B safna um
400 milljónum punda, um 59 millj-
örðum króna, með nýju hlutafé.
Erfið vika í vændum
hjá breskum bönkum
BRÁTT lýkur sögu lokaðra fjárfest-
ingasjóða sem starfa utan lögfestra
fjárfestingareglna. Þetta er mat
meirihluta utan ríkisstjórnarinnar á
danska þinginu, sem þrýstir á rík-
isstjórnina að leggja til ESB reglur
um fjárfestingasjóði, fyrir 1. október
nk. Sósíaldemókratinn Svend Auk-
en, segir mikilvægt að sjóðirnir
framfylgi sömu upplýsingaskyldu og
önnur félög og telur „stórundarlegt
að ríkisstjórnin vilji ekki vera með.“
Ríkisstjórnarflokkarnir taka und-
ir að þörf sé á auknu gagnsæi fjár-
festingasjóða en hafa áhyggjur af því
að standa einir innan ESB og segja
mikilvægt að Danmörk og Evrópa
verði aðlaðandi fjárfestingarkostir.
Svend Auken telur að gagnsæið
hljóti að vera í þágu geirans. Al-
þjóðavæðing slíkra reglna þyrfti þó
njóta frumkvæðis ESB, Danmörk
geti ekki ein staðið undir því.
Innan samtaka fjárfestingasjóða í
Danmörku eru margir ekki hrifnir af
ákvörðun meirihlutans og segja slík-
ar aðgerðir geta verið samkeppnis-
hindrandi. | halldorath@mbl.is
Vilja ný lög um sjóði
Eftir Guðmund Sverri Þór
og Halldóru Þórsdóttur
TIL þess að koma í veg fyrir að bólur
af þeirri gerð sem þöndust út á hér-
lendum fasteignamarkaði undanfarin
ár myndist á ný mættu stjórnvöld
íhuga að færa Seðlabanka Íslands
reglugerðarvald til þess að takmarka
veðhlutföll. Þetta er álit Arnórs Sig-
hvatssonar, aðalhagfræðings Seðla-
bankans, sem í gær hélt erindi á mál-
stofu hagfræðideildar Háskóla
Íslands undir yfirskriftinni „Ræður
Seðlabankinn við verðbólguna?“
Margoft hefur komið fram í um-
ræðunni um efnahagsmál að undan-
förnu að hendur bankans séu bundn-
ar í baráttunni við verðbólgu því hann
hefur aðeins eitt stjórntæki til ráð-
stöfunar, stýrivexti. Í erindinu sagði
Arnór að hafi stjórnvöld áhyggjur af
því að of fá vopn séu í vopnabúri
Seðlabankans gætu þau íhugað að
færa honum fleiri vopn í hendur.
Hækkun hlutfalla kynti undir
„Þróun á íbúðamarkaði gegndi lyk-
ilhlutverki í þeirri einkaneyslu- og
lánabylgju sem hér hefur ríkt und-
anfarin ár. Hækkun hámarkslána og
veðhlutfalla áttu ásamt lágum alþjóð-
legum vöxtum ríkan þátt í að kynda
undir henni. Vilji stjórnvöld læra af
reynslunni gætu þau íhugað að fela
Seðlabankanum reglugerðarvald til
þess að takmarka veðhlutföll, ekki
bara Íbúðalánasjóðs heldur banka-
kerfisins í heild, líkt og gert hefur ver-
ið í Hong Kong og S-Kóreu. Þá hefði
Seðlabankinn væntanlega lækkað
veðhlutföll þegar stjórnvöld og bank-
arnir ákváðu að hækka þau,“ sagði
Arnór en færa má rök fyrir því að
með slíkum aðgerðum hefði a.m.k.
mátt draga töluvert úr þensluhraða
eignaverðsbólunnar. Taka ber fram
að í erindi sínu lagði Arnór mikla
áherslu á að um hans eigin skoðanir
væri að ræða en ekki Seðlabankans.
Sótt verður í reynslu Arnórs
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra segir ekki tímabært að taka
afstöðu til einstakra hugmynda á
þessu sviði. Heildstæð endurskoðun
muni þó fara fram á peninga- og
gjaldmiðilsmálum þegar þetta sam-
dráttarskeið verði yfirstaðið. Málefni
Seðlabankans verði þar einnig skoð-
uð, hvað megi betur gera til að styrkja
bankann og fjölga í vopnabúri hans.
Þá hljóti að verða sótt í reynslu-
brunn Arnórs, sem og annarra sér-
fræðinga innan Seðlabankans.
Á Seðlabanki að
ákvarða veðhlutföll?
Ekki á döfinni en endurskoða á málefni SÍ segir ráðherra
Vald yfir veðhlutföllum Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabank-
ans, nefndi S-Kóreu og Hong Kong sem dæmi máli sínu til stuðnings.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Í HNOTSKURN
» Verðbólgumarkmiðið er2,5% verðbólga á ári með
1,5% vikmörkum.
» Síðan verðbólgumark-mið Seðlabankans var
tekið upp í lok mars 2001
hefur verðbólga að meðaltali
verið 4,9%. Á sama tímabili
hefur hún sveiflast á bilinu
1-12%.
» Þessi árangur er óvið-unandi að sögn Arnórs
Sighvatssonar.
WORLD Class
Seagull Interna-
tional hefur bæst
á First North
markað Nasdaq
OMX, sem rekur
m.a. kauphöllina
hér á landi. Félag-
ið á rætur að rekja
til Svíþjóðar og
sér um World
Class vörumerkið í heilsuræktargeir-
anum í níu Evrópulöndum með 43
starfsstöðvar, ekki þó á Íslandi.
„Við keyptum World Class nafnið
af þeim árið 1985,“ segir Björn Leifs-
son, eigandi World Class Iceland,
sem rekur heilsuræktarstöðvar hér-
lendis og í Danmörku. Aðspurður
segir Björn ekki stefnt að skráningu á
markað. Björn segir sameiginlega
nafnið ekki vera til trafala, aðgrein-
ingin felist m.a. í nafnbótinni Iceland
sem og ólíku lógói.
Fyrirtækin eru að mestu ótengd,
en viðskiptavinir hvors fyrir sig geta
þó nýtt sér aðstöðu hins í hálfan mán-
uð í senn, svo sem ef þeir eru á ferða-
lagi erlendis. | halldorath@mbl.is
Stefna ekki
á skráningu
Björn Leifsson
-! /0 1
/02345! 6"78 0:
5*, ,5
!
" #
$% &" '(" )
*+," )
- .'
! )# (" )
/ ,"
0
123
0 % 4 5 6 #
7,8%
9
;):%&
:;<
",+
" + = 8
" +
, ",%
" '
> 8 *+," )+
3?, 6
0
7 8''' %55
@"5
06<
, 8"%%
$ )
$ %56
$&= ,&
@5
) ' 7"#5A" ) 'B
- 0 "
CD :CE<DD
;ED;E:D
4
;E;:CDC:
E:EE
:EF:
E:D;FE
FDFCFC<D
FCD;DED
C<<; CDF: ;:DDDD
DF;ECC
C<:
<D:
C<DCF;:
CD;;C;<
C<:<
4
<C<;F
4
4
4
4
4
FE:;D
CC;:D
4
;GE;
:CGC<
DGD;
4
GD<
CDG<D
CDG<D
;EGDD
CGED
FG;D
G;
GD
:GC
FGCD
GC
;GFD
CDGDD
<C<GDD
:DGDD
4
<EGDD
4
4
4
4
4
<<FDGDD
DGDD
<GDD
;GF<
:CG;<
DG ;G;D
G CDGD
CDG;<
DGDD
CGFD
F<G G;;
GDE
:GC
FGED
GCF
;GF:
CDGDD
<DGDD
:EGDD
DGFD
;G<D
GDD
EGDD
4
4
EG<D
<;:<GDD
4
;GDD
6")
5
;
4
:
<D
<
;
:D
E
C
<
F
4
4
4
4
4
4
4
H ', 5 , 5
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
:D<CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
C;CDDE
CD<CDDE
C;CDDE
D:CDDE
E<CDDE
;<CDDE
;CCDD
CCECDD
C;CDDE
C;CDDE
:CDDE
7
7
7
7
7
%
2/I 2/I
J
J
2/I 2I
J
J
H=K,
3 ) L
J
J
70
HI
J
J
2/I 2/I
J
J
BJÖRGVIN G.
Sigurðsson, við-
skiptaráðherra,
segir erfitt að taka
afstöðu til hug-
mynda um að-
skilnað á starf-
semi viðskipta-
banka og fjárfest-
ingabanka að óat-
huguðu máli.
Hagfræðingurinn
Robert Z. Aliber leggur til slíkar að-
gerðir, að bankarnir myndu setja á
laggirnar „nýtt sjálfstætt hlutafélag
sem gegndi hefðbundnum banka-
rekstri innanlands“, í grein sinni í
Morgunblaðinu í gær. Í Bandaríkjun-
um voru sett lög um slíkt árið 1933.
Lögin þóttu ekki nógu farsæl og voru
því felld úr gildi árið 1999.
Björgvin kveðst ekki vita til þess að
lagaaðskilnaður af þessu tagi sé ann-
ars staðar og ekki sé litið til hans sem
neinnar töfralausnar.
„Fjárfestingastarfsemi er oft ekki
síður til hagsbóta fyrir viðskipta-
bankahliðina. Þó er sjálfsagt að taka
tillit til ábendinga og skoða okkar lög-
gjöf, enda stutt síðan viðskiptalífið
gekk í gegnum miklar breytingar,
m.a. með einkavæðingu bankanna,“
segir Björgvin. | halldorath@mbl.is
Aðskilnaður
ekki talinn
töfralausn
Björgvin G.
Sigurðsson
● VERSLUN Hans Petersen í Firð-
inum, Hafnarfirði, hefur verið lokað
og móttaka þaðan, þ.m.t. ósóttar
vinnslur, flust í Farsímalagerinn
Smáralind. Þetta er meðal hagræð-
inga hjá HP Farsímalagernum ehf. í
kjölfar mikils samdráttar í sölu.
Áður hefur komið fram í Morgun-
blaðinu að verslun Farsímalagersins
í Garðabæ hefur lokað, Farsíma-
lagerinn á Laugavegi hefur flust inn í
verslun Hans Petersen í sama hús-
næði og loks hefur Hans Petersen í
Smáralind færst í Farsímalagerinn
þar. Starfsfólki fækkar nokkuð
vegna þessa, þar af eru sjö fastráðn-
ir starfsmenn.
Hættir í Hafnarfirði
ÞINGLÝSTIR kaupsamningar á
höfuðborgarsvæðinu voru 77 talsins í
nýliðinni viku, 23. til 29. maí, sam-
kvæmt tölum frá Fasteignamati rík-
isins. Frá því eftir páska hefur með-
altalið verið 64 samningar á viku.
Vikurnar tvær á undan var fjöldinn
49 og 45 og því um nokkra fjölgun að
ræða. Í lokaviku maí í fyrra var fjöld-
inn 200, og 297 í vikunni þar á undan.
Heildarvelta síðustu viku nam 2,3
milljörðum króna en var 2,1 milljarð-
ur að meðaltali síðustu tólf vikur.
Meðalupphæð á samning lækkaði úr
30,4 milljónum í 29,2, en hver samn-
ingur getur þó verið um fleiri en eina
eign. Í Vegvísi Landsbankans er
bent á að fasteignaverð hafi lækkað
um 1,7% í maí og sé nú 3% lægra en
fyrir hálfu ári. Vísitala fasteigna-
verðs fyrir maí verður gefin út
12.júní nk. | halldorath@mbl.is
Fleiri fast-
eignir í maílok