Morgunblaðið - 03.06.2008, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
HEILDARFJÖLDI húsa sem talin eru óíbúð-
arhæf eða ónothæf vegna jarðskjálftanna á Suð-
urlandi er nú komin í 24. Þau hús sem mest
skemmdust eru mörg komin nokkuð til ára sinna.
Flest þeirra eru í Ölfusi, 16 talsins á 11 bæjum,
bæði íbúðarhús og útihús, að sögn Ólafs Helga
Kjartanssonar, sýslumanns á Selfossi. Þá er eitt
hús í Hveragerði óíbúðarhæft, fimm á Selfossi og
tvö á Eyrarbakka. Starfsmenn Viðlagatryggingar
Íslands munu á næstu dögum meta skemmdir á
fasteignum en Viðlagatrygging bætir einnig
skemmdir á brunatryggðu lausafé.
Ólafur Helgi segir starf almannavarna í föstum
farvegi. Verið sé að safna upplýsingum um ástand
fólks og eigna þess, en enn heyri hann af fólki sem
ekki hefur fengið viðunandi aðstoð eða úrlausn
vandamála eftir skjálftana. Verið sé að reyna að
ná utan um þau tilfelli eins fljótt og auðið er.
Um 30 björgunarsveitarmenn voru við störf á
skjálftasvæðinu í gær, skv. tilkynningu frá Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg, við að girða af hin
skemmdu hús, dreifa vatni og aðstoða íbúa. Mikið
var um að aðstoða þyrfti eldra fólk við að koma
þungum húsmunum aftur á sinn stað.
Íbúafundur ráðgerður í Hveragerði
Enn er í gildi aðvörun almannavarna til fólks
um að vera ekki við eða í hlíðum Ingólfsfjalls eða
annarra fjalla á skjálftasvæðinu, enda getur lítið
þurft til svo að grjóthrun verði. Að sögn Helgu
Kristjánsdóttur, staðgengils bæjarstjóra í Hvera-
gerði, hefur grjóthrun verið nokkuð ofan Hvera-
gerðis undanfarna daga. Enn sé þar hætta á ferð-
um. Þá mælast bæjaryfirvöld í Hveragerði til
þess að íbúar sjóði allt drykkjarvatn sitt enn um
sinn, á meðan rannsóknir á því fara fram, en hægt
er að nálgast drykkjarhæft vatn í flöskum við
þjónustumiðstöðvar Rauða krossins. Íbúafundur
verður í Hveragerði næsta fimmtudag á Hótel
Örk kl. 20.
Þótt viðmælendur séu sammála um að fólk sé
enn í hálfgerðu losti eftir skjálftana eru hjól at-
vinnulífsins farin að snúast á svo til venjulegum
hraða á Selfossi og í Hveragerði. Þó er bókasafn
Hveragerðis enn lokað vegna skemmda og sund-
laugin sömuleiðis vegna viðhaldsvinnu. Á Selfossi
eru allar stofnanir starfandi nema Sundhöllin þar
sem verið er að huga að búnaði. Að sögn var mikið
að gera hjá bæjarstarfsmönnum í Árborg í gær
við margs konar viðgerðir á eigum sveitarfé-
lagsins.
24 ónothæf hús girt af
Enn dæmi um fólk sem ekki hefur fengið viðunandi aðstoð eftir jarðskjálftana
Þó að margir séu enn í hálfgerðu losti eru hjól atvinnulífsins farin að snúast
BÆJARLÍFIÐ í öllum sínum margbreytileika
getur birst eina örskotsstund í gluggum verslana
sem endurspegla ólík svipbrigði og manngerðir
á degi hverjum. Gína í búðarglugga sinnir þögul
hlutverki sínu og vegfarendur hugsa sitt um leið
og þeir ganga framhjá.
Morgunblaðið/Golli
Hugsa sitt í erli dagsins
FRÉTTASKÝRING
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
21 ÍSLENSKUR íþróttamaður hef-
ur tryggt sér þátttökurétt á
Ólympíuleikunum í Peking í Kína í
sumar. Þar munar mestu um 14
liðsmenn íslenska karlaliðsins í
handbolta, sem vann sér rétt til
þátttöku eftir sigur á Svíum í
fyrradag. Hinir sem taka þátt í
leikunum keppa í badminton, sundi
og frjálsum íþróttum.
Ekki er öll von úti enn fyrir
íþróttamenn sem vilja til Peking
því í greinum á borð við sund og
frjálsar íþróttir hafa íþróttamenn
enn möguleika á að reyna að ná til-
settum lágmörkum. Lokaskráning
á leikana er 23. júlí í sumar, hálfum
mánuði fyrir setningu leikanna. Því
er ljóst að mikil spenna ríkir hjá
sumum vongóðum íþróttamönnum
allt fram á síðustu stundu. „Það
kæmi ekki á óvart þótt íslensku
þátttakendurnir verði um 25 tals-
ins. Ég er viss um að fleiri eiga eft-
ir að ná lágmörkunum,“ segir
Andri Stefánsson hjá Íþrótta-
sambandi Íslands en hann er að-
alfararstjóri íslenska liðsins.
Íslensku keppendurnir fara ekki
einir utan. Þeim fylgir fjöldi fylgd-
armanna en í þeim hópi eru þjálf-
arar, nuddarar, liðsstjórar, sál-
fræðingur, læknir og sjúkraþjálf-
ari. Alls verða Íslendingarnir sem
halda til Peking í sumar því um 40
talsins. Andri segir að takmörk séu
fyrir því hversu margir fylgdar-
menn fylgi íslensku keppendunum.
Alþjóðaólympíunefndin setji reglur
um fjöldann.
Það er ekki ókeypis að senda
íþróttafólk á Ólympíuleika.
Uppihald og gisting í ólympíu-
þorpinu er greitt af Alþjóðaólymp-
íunefndinni. ÍSÍ stendur hins vegar
straum af því að koma keppendum
til Kína. Þá hefur ÍSÍ stutt marga
íþróttamenn við að reyna að ná lág-
mörkunum fyrir leikana. „Ég tel að
þátttaka eins og þessi kosti um 25-
30 milljónir,“ segir Andri.
Vissulega hafi það áhrif á kostn-
aðinn þegar heilt handboltalandslið
bætist við þátttakendalistann. „En
það hefur líka áhrif á stærð Íslands
í alþjóðlegum íþróttasamanburði til
framtíðar. Miðað við höfðatölu er
mjög gott hjá okkur að vera komin
með yfir 20 íþróttamenn á eina
leika,“ segir hann. Þjóðir sem við
berum okkur saman við, á borð við
Lúxemborg, sendi um 4-5 kepp-
endur á Ólympíuleika.
Þau tímamót eru í þátttöku Ís-
lendinga á Ólympíuleikum í ár að
öld er liðin frá því fyrstu Íslending-
arnir kepptu á þeim. Það var í
London 1908.
Á árunum fyrir seinni heims-
styrjöld sendu Íslendingar ekki
alltaf þátttakendur á leikana, en
frá stríðslokum hefur Ísland ávallt
átt fulltrúa á þeim, mismarga í
hvert sinn þó. Undanfarna leika
hafa Íslendingar yfirleitt sent í
kringum 20 keppendur til leiks.
25 gætu keppt í Peking
Þegar hefur 21 Íslendingur tryggt sér þátttökurétt á ÓL í Kína Keppt í hand-
bolta, sundi, frjálsum og badminton 100 ár frá því Ísland tók fyrst þátt í ÓL
Vilhjálmur Einarsson
Fyrsti Íslendingurinn
sem vann til verð-
launa á Ólympíu-
leikunum. Í Mel-
bourne í Ástralíu árið
1956 vann hann silf-
urverðlaun í þrí-
stökki.
Komust á verðlaunapall á Ólympíuleikum
PÓLVERJI sem grunaður er um
mannrán, morð og aðild að skipu-
lögðum glæpasamtökum í Póllandi
var í gær framseldur til Póllands.
Dómsmálaráðherra ákvað að verða
við framsalsbeiðni pólskra yfir-
valda í apríl og staðfesti Hæstirétt-
ur þá ákvörðun.
Maðurinn, sem heitir Przemysl-
aw Plank var handtekinn 14. apríl
og hefur setið í gæsluvarðhaldi síð-
an. Í gær fluttu lögreglufulltrúar
ríkislögreglustjóra Plank til Kefla-
víkurflugvallar og létu hann í
hendur þriggja pólskra lögreglu-
manna sem fluttu hann áleiðis til
Póllands. | orsi@mbl.is
Framseldur
til Póllands
ÁRLEG ljósmyndasamkeppni
mbl.is hefst í dag í samstarfi við
Nýherja. Keppnin fer þannig fram
að þátttakendur senda myndir inn í
gegnum vefsíðu. Myndirnar birtast
jafnharðan á vefsíðu keppninnar en
síðan velur sérstök dómnefnd sig-
urmyndir í lok hennar, og höfundar
þeirra hljóta stafrænar myndavélar
í verðlaun eða ljósmyndaprentara.
Hægt er að taka þátt í keppninni
með því að smella á viðeigandi
hnapp á forsíðu mbl.is og mega
þátttakendur senda inn eins marg-
ar myndir og þeim sýnist. Í hverri
viku verður valin mynd vikunnar
og höfundur hennar fær gjafabréf
á framköllun á stafrænum mynd-
um.
Ljósmyndasamkeppnin stendur
til 31. ágúst. | ingvar@mbl.is
Myndavél-
arnar á loft!
Vann Sigurmyndin frá því í fyrra.
TVEIR menn komust undan á flótta
eftir að hafa brotið tvær rúður í
verslun á Laugaveginum í gær.
Maður nokkur sá til skemmdar-
varganna og truflaði þá við iðju
sína. Kom styggð að þeim og létu
þeir sig hverfa.
Lögreglan tók skýrslu af vitninu
og hefur tekið málið til nánari
rannsóknar. | orsi@mbl.is
Flúðu eftir
rúðubrot
Bjarni Friðriksson
Júdómaðurinn kom
þjóðinni skemmtilega
á óvart þegar hann
komst á verðlauna-
pall á Ólympíu-
leikunum í Los Angel-
es árið 1984. Þar
hlaut hann brons.
Vala Flosadóttir
Vann hug og hjörtu
landsmanna á leik-
unum í Sydney í Ástr-
alíu árið 2000. Þar
stóð hún sig með
prýði og vann til
bronsverðlauna í
stangarstökki.
„ÉG vissi það ekki fyrr en í dag
[gær] að ég ætti að sjóða allt vatn-
ið eða sækja mér vatn til Rauða
krossins,“ segir íbúi í Hveragerði
sem gagnrýnir að bæjarbúar hafi
ekki verið varaðir nægjanlega við
því að vatn þeirra væri ekki
drykkjarhæft. Dreifimiði með
þessum upplýsingum hafi komið í
hús í Hveragerði fyrst í gær-
kvöldi. Hann segist hafa heyrt
ávæning af því á laugardaginn að
hann hefði þurft að varast vatnið
en ekki fundið neitt um það í fjöl-
miðlum, fólk hafi líka haft nóg
fyrir stafni við að laga til á heim-
ilum sínum. „Ef vatn er mengað af
gerlum, og það liggur fyrir hjá al-
mannavörnum, á það ekki að fara
framhjá neinum í 2.000 manna
bæjarfélagi.“ | thuridur@mbl.is
Vissi fyrst í
gær að vatnið
væri mengað