Morgunblaðið - 03.06.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 13
FRÉTTIR
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞAU SKREF sem stigin hafa verið í
átt til markaðsvæðingar breska heil-
brigðiskerfisins á síðasta aldarfjórð-
ungi eða svo hafa ekki skilað þeim ár-
angri sem vænst var til, hvort sem
litið er til gæða þjónustunnar, skil-
virkni hennar eða hagkvæmni ellegar
til nýsköpunar innan kerfisins.
Reynsla Breta ætti því að vera víti
til varnaðar nú þegar stjórnvöld hér
íhuga að innleiða í frekari mæli verk-
takaþjónustu á þessu sviði.
Þetta er mat Allyson Pollock, pró-
fessors í heilbrigðisfræðum við Edin-
borgarháskóla og höfundar bóka um
breska heilbrigðiskerfið, en hún
kynnti fyrir helgi niðurstöður grein-
ingar sinnar á opnum fundi hjá
Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
(BSRB) og fyrir sérfræðingum innan
íslenska heilbrigðiskerfisins.
Pollock segir að einkavæðing
bresku heilbrigðisþjónustunnar
(NHS) hafi gerst í fimm skrefum og
að það fimmta standi nú yfir. Fyrsta
skrefið hafi verið stigið árið 1979 í tíð
Margaretar Thatcher sem forsætis-
ráðherra, þegar leitað hafi verið til
einkaaðila um leiðir til að auka skil-
virkni þjónustunnar, sem ráðgjafar
Thatcher hafi þá talið líða fyrir yfir-
byggingu. Þessari stefnubreytingu
hafi fylgt mannabreytingar og sér-
fræðingar vikið fyrir aðilum með sér-
menntun í stjórnunarfræðum eða
með aðra viðskiptamenntun að baki.
Næsta skref hafi verið þegar
Thatcher hafi þegið ráð um myndun
markaðar um heilbrigðisþjónustuna í
Bretlandi, hugmyndir sem hafi verið
teknar til framkvæmda árið 1991.
Stenst ekki skoðun tímans
Hún andmælir því að ofangreindar
breytingar hafi verið réttar í ljósi
þeirra aðstæðna sem uppi voru.
„Nei, það skorti upp á greininguna
hjá Thatcher,“ segir Pollock. „Hún
brást við einkennum fjárskorts. Hún
taldi þörf á að leita til markaðs-
aflanna fremur en hreinlega beita sér
fyrir nauðsynlegri fjárfestingu. Mörg
sjúkrahúsanna voru frá nítjándu öld
og þar hafði skort á fjárfestingu í þrjá
til fjóra áratugi.“
Pollock telur einnig að ekki hafi
verið sterkar vísbendingar um mikla
skriffinnskuyfirbyggingu í heilbrigð-
iskerfinu og vísar til þess að 6% út-
gjalda til málaflokksins hafi runnið til
rekstrar og stjórnsýslu, þegar Thatc-
her leitaði leiða til hagræðingar.
Flest bendi til að eftir að komið
hefði verið á innri markaði hefði þessi
kostnaður tvöfaldast í 12% og stefni
nú á að fara nærri 25-30%.
Bresk stjórnvöld hafi ekki birt
gögn um þann umframkostnað sem
markaðsvæðingin hafi haft í för með
sér. Einnig fari mikið af fjármunum
sem nú renni til heilbrigðiskerfisins
ekki í þjónustu heldur í ytri kostnað,
svo sem markaðssetningu.
Þriðja skrefið (1992) hafi að hluta
verið stigið samhliða öðru skrefinu í
átt til markaðsvæðingar, þegar
stjórnvöld hafi stofnað fyrirtæki um
rekstur sjúkrahúsa, skref sem einnig
fól í sér innleiðingu endurskoðunar-
aðferða úr atvinnulífinu. Hún segir
fjórða skrefið hafa verið stigið árið
2000 og að það fimmta sé nú í und-
irbúningi, í framhaldi af hinum.
Pollock segir markaðsvæðingu
heilbrigðisþjónustunnar fela í sér að
einkaaðilar meti hversu mikla áhættu
þeir séu tilbúnir að taka í rekstrinum.
Með því að stofna fyrirtæki um heil-
brigðisþjónustu sé verið að koma á
nýju umhverfi þar sem megin-
áherslan sé á arðsemi. Meðaltími for-
stjóra í slíkum stöðum sé 3-4 ár.
Hluthafar geti þrýst á um að að-
eins hagkvæm þjónusta sé veitt, þjón-
usta á borð við mjaðmaaðgerðir.
Einkaaðilar vilji hins vegar ekki sjúk-
linga með flóknari þarfir, með þeim
afleiðingum að eldri borgarar með
langvinna sjúkdóma séu ekki álitnir
fýsilegir viðskiptavinir, því sérþarfir
þeirra og líkur á að fá sjúkdóma séu
oft ófyrirsjáanlegar. Sama eigi al-
mennt við um geðsjúkdóma.
Reynsla Breta víti til varnaðar
Morgunblaðið/Valdís Thor
Sérfræðingur Allyson Pollock flytur erindi á fundi hjá BSRB. Hún hefur ritað bækur um bresk heilbrigðismál.
Misjafn árangur af markaðsvæðingu heilbrigðisþjónustu
Prófessor segir einkaaðila forðast geðsjúka og aldraða
Í HNOTSKURN
»Pollock segir dæmi umað gögn um biðlista hafi
verið fölsuð í því skyni að
aðlaga þau rekstrarmark-
miðum.
»Bresk stjórnvöld haldiekki til haga gögnum um
sjúkrarúm og geti því ekki
notað rúmin í greiningu á
skilvirkri þjónustu við sjúk-
linga, né fari nógu vel yfir
meðferð þeirra.
»Heilbrigðisstarfsmennþori nú síður að leggja
fram gagnrýni á þjónustuna.
»Að samanlögðu muniBretar í æ ríkari mæli
upplifa vandamálin sem
Bandaríkjamenn hafa staðið
frammi fyrir í heilbrigðis-
þjónustu.
»Hún segir gögn benda tilað heilbrigðisþjónustu
efnaminni sjúklinga í Bret-
landi hafi hrakað hin síðari
ár.
SIMON STEVENS var einn helsti arki-
tektinn að stefnu ríkisstjórnar Tonys
Blair í heilbrigðismálum en er nú í for-
svari fyrir UnitedHealth, risafyrirtæki
á sviði heilbrigðisþjónustu í Bandaríkj-
unum. Við fyrstu sýn virðast heilbrigð-
iskerfi ríkjanna tveggja býsna ólík en
ef fram heldur sem horfir mun breska
kerfinu svipa æ meira til þess banda-
ríska í ýmsum atriðum, að mati Allyson
Pollock. Hún telur tengsl ráðherra
breska Verkamannaflokksins í tíð
Tonys Blair forsætisráðherra (1997-
2007) hafa verið óvenjunáin miðað við
sögu flokksins og að margir þessara
sömu stjórnmálamanna hafi gengið í
stöður hjá einkafyrirtækjum. Um geysi-
lega fjármuni sé að tefla. Velferðarþjónusta sé hin „mikla óopnaða ostra fjár-
festa“, enda renni allt að sem svarar fimmtungi vergrar þjóðarframleiðslu til
menntunar og heilsugæslu á Vesturlöndum.
Til marks um hverju sé eftir að slægjast fyrir einkaaðila bendir Pollock á
að William McGuire, forstjóri UnitedHealth, hafi á árinu 2004 fengið sem
svarar 9.231 milljón krónur á núverandi gengi. Almennt hafi bandarísk stór-
fyrirtæki á þessu sviði stefnt að sókn inn á nýja heilbrigðismarkaði.
Velferðarkerfið hin mikla
„óopnaða ostra“ fjárfesta
Simon StevensTony Blair
Nánir samstarfsmenn
Stevens var einn af arkitektum
þeirra breytinga sem stjórn Blairs
gerði á breska heilbrigðiskerfinu.
-hágæðaheimilistæki
Magimix kaffivél
nú með flóunarkönnu
Verð kr.:
37.900
Njótið þess að fá rjúkandi kaffi, cappuccino eða caffe latte
á innan við mínútu heima í eldhúsi. Magimix kaffivélarnar
nota einungis Nespressó kaffi af bestu gerð.
Verið velkomin í verslanir Eirvíkur á Akureyri og í
Reykjavík og kynnið ykkur Magimix kaffivélarnar.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200
Kaffihúsið
heim í eldhús
www.eirvik.is