Morgunblaðið - 03.06.2008, Qupperneq 21
SKÓLI, píanótími, fót-
boltaæfing … Er hver
mínúta skipulögð hjá
barninu þínu? Hefur það
kannski engan tíma til að
leika sér? Þá er illt í efni
því ýmiss konar „eftirlits-
laust“ dundur er börnum
mikilvægt, að sögn barna-
læknis hjá bandarísku
sjúkrastofnuninni
MayoClinic og eins höf-
unda rannsóknar frá
árinu 2006 sem sýndi
fram á þetta.
Börn taka út þroska í
leiktímanum því þá fá
þau tækifæri til að læra,
rökræða, taka ákvarðanir
og að nota ímyndunar-
aflið sem og gefa og þiggja, án þess að fullorðnir séu til staðar til að
leiðbeina þeim. Afleiðingar gjörða þeirra láta heldur ekki á sér standa
og það er lærdómsríkt. Börn með yfirbókaða daga og þau sem eru
stanslaust undir eftirliti fullorðna fólksins ná ekki að efla sköp-
unarhæfileika sína eins og ella né að læra eins af jafnöldrum sínum. Á
vefsíðu MayoClinic er tekið dæmi um ávinning barna af því að fara í
fótbolta. Þrátt fyrir að þau séu ekki alltaf sátt í leiknum geri þau sér
grein fyrir að þau verði að leysa ágreining ef leikurinn eigi að halda
áfram.
Foreldrum er ráðlagt að lesa fyrir börn til að þau njóti sín sem best í
leiktíma sínum. Einföld leikföng ýti líka undir ímyndunarafl þeirra og
börn eigi að fá að leika sér við það sem þau langar til, innan skyn-
samlegra marka. Ekki sé loku fyrir það skotið að sjónvarpsáhorf eða
tölvuleikir geti verið heilbrigður leiktími hjá börnum.
Þroskandi Mikilvægt hverju barni er að fá
tíma til að leika sér á meðal jafningja.
„Yfirbókuð“ börn ná
ekki að leika sér
Morgunblaðið/Golli
Associated Press
Sæl og tannlaus Kona þessi hefur ærna ástæðu til að gleðjast. Hún á fínustu
gervitennur og er þar af leiðandi líkleg til að eiga fjöldann allan af börnum.
BANDARÍSK rannsókn bendir til
þess að hvert barn sem kona fæðir
geti kostað hana eina eða fleiri
tönn. Eftir því sem börnin verða
fleiri missa mæðurnar fleiri tenn-
ur. Þetta kemur fram á vefmiðli
Reuters.
Tannheilsa tæpra þrjú þúsund
kvenna á aldrinum 18-64 ára var
skoðuð út frá barneignum og efna-
hagslegri stöðu mæðra. Þegar
hópur efnuðustu kvennanna var
kannaður kom í ljós að barnlausar
konur vantaði að meðaltali minna
en eina tönn, þær sem áttu eitt
barn höfðu misst um tvær tennur
og konur sem áttu fjögur eða fleiri
börn höfðu misst um fimm tennur.
Meðal efnaminnstu kvennanna
höfðu barnlausar konur misst að
meðaltali tvær tennur og mæður
með eitt barn vantaði þrjár tenn-
ur. Mæður fjögurra eða fleiri
barna misstu meira en átta tenn-
ur.
Tengsl virðast því milli barn-
eigna og tannmissis.
„Fólk gæti haldið að ástæða
þessa sé slakur efnahagur barn-
margra mæðra í lægri stéttum, en
rannsóknin sýnir hins vegar svip-
aðar niðurstöður í öllum stigum
samfélagsins,“ hefur Reuters eftir
dr. Stefanie Russell, prófessor í
tannlækningum hjá New York-
háskóla.
Þessar rannsóknir eru fyrstar
sinnar tegundar í Bandaríkjunum
en sambærilegar rannsóknir í
Skandínavíu sýna svipaðar nið-
urstöður.
Ástæðurnar telur dr. Russell
vera nokkrar: Óléttar konur séu
viðkvæmari og eigi til að fá tann-
holdsbólgur. Sömuleiðis séu ólétt-
ar konur ólíklegri en aðrar til að
leita til tannlæknis. Konur sem
eigi mörg börn eigi einnig til að
láta eigin tannhirðu sitja á hak-
anum.
Fleiri börn –
færri tennur
Tannheilsa rúmlega 3.000 kvenna
könnuð út frá barneignum þeirra
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 21
Uppskerutími skólastarfsins er á
vorin. Hver skóli hefur sína siði og
venjur við útskrift og skólalok.
Prúðbúnir nemendur og foreldrar
mæta til þess að fagna með þeim
sem eru að ljúka sínum áfanga á
skólagöngunni en síðan bíður
nemendanna sumarið og frelsið
sem þeir fagna á sinn hátt fyrst
um sinn. Síðan líður ekki á löngu
þar til börnin fara að hlakka til að
taka að nýju til við skólabæk-
urnar. Tónlistarskóli Grund-
arfjarðar reið á vaðið og útskrifaði
sína nemendur með glæsibrag og
góðum tónleikum sunnudaginn 18.
maí. Næst var komið að Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga að út-
skrifa sína stúdenta hinn 23. maí.
Þar með voru liðin fyrstu fjögur
námsár í tilvist skólans sem svo
sannarlega hefur sett mark sitt á
líf og tilveru samfélagsins á Snæ-
fellsnesi en skólinn hefur einnig
sannað sig með nýja kennsluhætti
og skólafyrirkomulag.
Leikskólinn Sólvellir hefur einnig
verið að gera athyglisverða hluti.
Síðastliðin fjögur ár hefur verið í
gangi sérstakt tilraunaverkefni
með gerð ferilmöppu leik-
skólanemans. Sólvellir hafa hlotið
til þessa metnaðarfulla verkefnis
sértaka styrki frá Mennta-
málaráðuneyti og fékk nú í vor til-
nefningu til foreldraverðlauna
Heimilis og skóla. Þeir nemendur
sem útskrifuðust af leikskólanum
föstudaginn 29. maí fengu við það
tilefni afhentar möppur sínar en í
þær hefur verið safnað myndum
og upplýsingum í gegnum leik-
skólaferilinn hjá hverjum og ein-
um.
Byggðastofnun úthlutaði fyrir
skömmu sérstökum styrkjum til
fyrirtækja á landsbyggðinni með
skírskotun í þá kvótaskerðingu
sem mörg sjávarútvegssveit-
arfélög urðu fyrir sl. haust. Í
Grundarfjörð kom einn styrkur til
Reykofnsins ehf. en á vegum þess
fyrirtækis hefur verið unnið
merkilegt brautryðjandastarf í
veiðum, verkun og sölu á Sæbjúg-
um. Á heimasíðu Grundarfjarð-
arbæjar er vikið að þessari út-
hlutun og þar segir: „Nokkrar
aðrar umsóknir fóru frá Grund-
arfirði sem ekki fengu náð fyrir
augum úthlutunaraðila. Sama var
upp á teningnum þegar úthlutað
var úr sambærilegum sjóði vegna
styrkja til ferðaþjónustuverkefna.
Nokkrar góðar og metnaðarfullar
umsóknir voru sendar. Sumar
fengu góða úrlausn, aðrar enga.
Þegar skoðað er hvernig staðið
hefur verið að málum í þessum
mótvægisaðgerðum öllum má
spyrja í fullri vinsemd: Staðir sem
hafa á milli 40 og 50% atvinnu-
þátttöku í fiskveiðum og vinnslu
virðast ekkert sérstaklega vera
taldir koma til greina við þessar
úthlutanir umfram aðra og hvers
vegna er þá verið kenna þessar
úthlutanir við mótvægisaðgerðir
vegna skerðingar á þorskaflaheim-
ildum?“ Er nema von að spurt sé.
Sjómannadagurinn sem verið hef-
ur hátíðardagur mikill á Grund-
arfirði var að þessu sinni án hefð-
bundinna hátíðarhalda sem var
aflýst vegna skyndilegs og ótíma-
bærs andláts félaga úr sjó-
mannastétt. Á stað eins og á
Grundarfirði verða allir áþreif-
anlega varir við og taka þátt í
sorg og gleði hvers annars og
sýna það á viðeigandi hátt. Í til-
kynningu frá aðstandendum sjó-
manndagshátíðarhaldanna sem
borin var í hvert hús er þess þó
getið að sjómannamessan yrði á
sínum stað kl. 14 í Grundarfjarð-
arkirkju og fólk hvatt til þess að
fjölmenna til messunnar og sýna
þannig samhug í verki.
GRUNDARFJÖRÐUR
Gunnar Kristjánsson fréttaritari
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Útskrifuð Fyrstu börnin stolt með ferilmöppurnar sínar ásamt leik-
skólastjórunum Matthildi S. Guðmundsdóttur t.v. og Sigríði H. Pálsdóttur
t.h. auk Kolbrúnar D. Jónsdóttur leikskólakennara.
Exista hf. birti í gær, mánudaginn 2. júní 2008, lýsingu á ensku undir heitinu „Prospectus”.
Lýsingin er gefin út á rafrænu formi á heimasíðu félagsins, www.exista.com, en einnig er
hægt að nálgast bundin eintök á skrifstofu félagsins, að Ármúla 3 í Reykjavík.
OMX Nordic Exchange Iceland hf. hefur samþykkt lýsinguna. Lýsingin er gefin út í því
skyni að fá 2,813,675,174 nýja hluti í Exista hf. tekna til viðskipta á Aðalmarkað OMX
Nordic Exchange Iceland hf. þar sem viðskipti eiga sér stað með hluti félagsins undir
auðkenninu „EXISTA". Nýju hlutirnir verða teknir til viðskipta í dag, þriðjudaginn 3. júní 2008.
Nýju hlutirnir eru í sama flokki og aðrir þegar útgefnir hlutir Exista hf. Nýju hlutirnir eru
afhentir á genginu 10,1 króna hver hlutur sem endurgjald fyrir hlutabréf í Skiptum hf.
Lýsingin samanstendur af þremur skjölum, samantekt, verðbréfalýsingu og útgefanda-
lýsingu. Skjölin eru gefin út á ensku undir heitunum „Summary”, „Share Securities Note”
og „Share registration document”.
Útgáfudagur lýsingarinnar og birtingadagur er 2. júní 2008. Lýsingin er í gildi næstu tólf
mánuði frá útgáfudegi.
Reykjavík, 3. júní 2008
EXISTA hf. · Ármúla 3 · 108 Reykjavík · Íslandi · kt. 610601-2350