Morgunblaðið - 03.06.2008, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 03.06.2008, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Atvinnuauglýsingar Stýrimann/vélavörð Stýrimann, vélavörð og tvo háseta vana netaveiðum vantar á MB Mörtu Ágústsdóttur, til netaveiða frá Grindavík. Stopp frá 20. júlí - 15. september. Upplýsingar í síma 426-8286 og 894-2013. Málmiðnaðarmenn Við leitum að starfskröftum í málmsmíði. Teknís ehf er framsækið málmiðnaðarfyrirtæki sem starfar við nýsmíði og viðhald mannvirkja og vélbúnaðar. Ef þú ert tilbúinn að ganga til liðs við samhentan hóp og takast á við spen- nandi verkefni, kíktu þá á heimasíðu okkar www.tekn.is og sendu inn starfsumsókn. Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Knattspyrnufélagið Víkingur Aðalfundur knattspyrnufélagsins Víkings verður haldinn í Víkinni mánudaginn 9. júní kl. 20.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillögur til lagabreytinga. 3. Önnur mál. Stjórnin. Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum - Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats- skyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.  Dettifossvegur 2. og 3. áfangi, breyting á veglínu og efnistöku, Norðurþing  Snjóflóðavarnagarður við Hornbrekku, Ólafsfirði, Fjallabyggð  Rannsóknaborun ÞG-06 á Þeistareykjum, Aðaldælahreppi Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær eru einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofnun- ar: www.skipulag.is Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um- hverfisráðherra og er kærufrestur til 2. júlí 2008. Skipulagsstofnun. Félagslíf Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur Síðumúla 31, s. 588 6060 Miðlarnir, spámiðlarnir og huglæknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen talnaspekingur og spámiðill, Anna Carla Ingvadóttir, Símon Bacon Ragnhildur Filippusdóttir, og Guðríður Hannesdóttir kris- talsheilari auk annarra, starfa talsheilari auk annarra, starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, starfsemi þess, rann- sóknir og útgáfur, einkatíma og tímapantanir eru alla virka daga ársins frá kl. 13-18. auk þess oft á kvöldin og um helgar. SRFR Uppboð Endurbirt vegna villu í fyrri auglýsingu: Uppboð munu byrja í skrifstofu embættisins Aðalstræti 12, Bolungarvík, á eftirfarandi fasteignum í Bolungarvík miðvikudaginn 4. júní nk. kl. 15:00: Hafnargata 56-58, fastanr. 225-0737, þingl. eig. Djúpmar ehf., gerðarbeiðandi Byggðastofnun. Hafnargata 7, fastanr. 212-1202, þingl. eig. Alin Jean Garrbé, gerðarbeiðendur Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og sýslumaðurinn í Bolungarvík. Holtastígur 11, fastanr, 212-1446, þingl. eig. Kristín Ketilsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og sýslumaðurinn í Bolungarvík. Stigahlíð 2, fastanr. 212-1612, þingl. eig Sveinn Fannar Jónsson og JFE-verslun ehf., samkv. kaupsamningi, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Stigahlíð 4, fastanr. 212-1619, þingl. eig. Elías Hallsteinn Ketilsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Vitastígur 19, fastanr. 212-1704, þingl. eig. Pálína Vagnsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf., Sparisjóður Rvíkur og nágr., útibú og Sparisjóður Vestfirðinga. Þjóðólfsvegur 14, fastanr. 212-1760, þingl. eig. Útrétt hönd ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Þjóðólfsvegur 14, fastanr. 212-1761, þingl. eig. Útrétt hönd ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Þjóðólfsvegur 14, fastanr. 212-1763, þingl. eig. Útrétt hönd ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Þjóðólfsvegur 14, fastanr. 212-1764, þingl. eig. Útrétt hönd ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Þjóðólfsvegur 16, fastanr. 212-1765, þingl. eig. Útrétt hönd ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Þjóðólfsvegur 16, fastanr. 212-1766, þingl. eig. Útrétt hönd ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Þjóðólfsvegur 16, fastanr. 212-1767, þingl. eig. Útrétt hönd ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Þjóðólfsvegur 16, fastanr. 212-1768, þingl. eig. Útrétt hönd ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður. Sýslumaðurinn í Bolungarvík, 30. maí 2008. Nauðungarsala Atvinnuauglýsingar augl@mbl.is æfingu var hann að æfa mig í vörn og lyfti ég hendinni örlítið of hátt frá síðunni, sá gamli var fljótur að refsa mér og gaf hann mér létt högg í síðuna. Við höggið missti ég and- ann og hneig niður á hnén, afi Guð- mundur brosti til mín og sagði: „Kjarri, nú hefur þú lært að gera þetta ekki aftur.“ Einn af okkar bestu dögum var þegar ég bar upp tillögu á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins 1999 um að ólympískir hnefaleikar skyldu leyfðir að nýju og var sú tillaga samþykkt og á endanum samþykkti Alþingi að aflétta banninu og iðkun hnefaleika var leyfð á ný. Það var lengi draumur hans að ólympískir hnefaleikar skyldu leyfðir að nýju og að fá að upplyfa það með honum að Alþingi skyldi sjá að sér og heim- ila íþróttina aftur er einn af þeim dögum sem maður gleymir aldrei enda skipti þetta hann miklu máli. Fjölskyldan var númer eitt hjá afa Guðmundi og ömmu Rannveigu og stofnaði hann Guðmund Arason ehf. til að geta veitt fjölskyldu sinni atvinnu og höfum við mörg í fjöl- skyldunni unnið þar frá upphafi. Fyrir mig, sem er að stíga mín fyrstu skref í fyrirtækjarekstri, er gott að geta staldrað við og hugsað „hvað hefði afi Guðmundur gert?“ enda var hann hagsýnn og góður fyrirtækiseigandi og mun fyrirtæki hans bera vott um hugsjón hans og útsjónarsemi um ókomin ár. Elsku afi Guðmundur, þér á ég mikið að þakka og þakka ég Guði fyrir öll þau ár sem ég hafði aðgang að þér. Nú hefur þú tekið þína síð- ustu lotu og ert kominn á stað þar sem þér líður vel. Ótal minningar um þig munu í framtíðinni koma upp í hugann þegar ég hugsa til þín, þú varst einstakur og einn sá besti sem hægt var að kynnast og mun ég varðveita minningar um þig um ókomna tíð. Guð geymi þig og takk fyrir allt. Þinn Kjartan Vídó. Guðmundur Arason var athafna- skáld sem eftir var tekið. Sjálf- bjarga höfðingi sem vildi ekki skulda neinum neitt eða að menn ættu neitt inni hjá honum. Ungum veittist mér sá heiður að vera boðið starf á skrifstofu hans stönduga fyr- irtækis sem var þá eins og æ síðan í örum og öruggum vexti. Á skrifstof- unni voru fyrir heiðursmennirnir og öðlingarnir Ari sonur hans og Kári tengdasonur hans, minn kæri mág- ur. Hóf ég störf hjá þeim illa skól- aður og óreyndur í mánuðinum sem ég varð tvítugur og varð sannarlega reynslunni ríkari. Guðmundur tók mér alla tíð mjög vel og urðum við strax hinir mestu mátar. Hann var umhyggjusamur, uppörvandi og hvetjandi og hafði áhuga á mér og mínum viðfangs- efnum utan vinnu og spurði reglu- lega út í þau. Hann treysti mér fljót- lega fyrir ábyrgðarfullum verkefnum m.a. að vera prókúruhafi og sjá um daglegan rekstur fyrir- tækisins í tvær, þrjár vikur á sumri á meðan fjölskyldan brá sér í sum- arleyfi til útlanda. Guðmundur var sannur höfðingi og það var ungum manni góður skóli að fá að starfa hjá honum í fullu starfi 1984 – 1988 og í hálfu starfi meðfram öðrum verk- efnum til ársins 1991. Þegar ég til- kynnti honum að ég hyggðist hætta störfum hjá honum alfarið til að geta einbeitt mér að öðrum verk- efnum þá sýndi hann mér dýrmæt- an stuðning, sagðist skilja mig vel og hvatti mig til dáða og góðra verka. Guðmundur var góður vinnuveit- andi, sanngjarn og sveigjanlegur þótt hann væri vissulega áræðinn og einbeittur keppnismaður. Rausnar- legur var hann og kom umhyggja hans og Rannveigar hans góðu konu fram við mína ungu fjölskyldu með margvíslegum hætti, sem við kunn- um sannarlega að meta og hér skal þakkað. Hann sýndi mér áhuga og stuðning löngu eftir að ég lét af störfum hjá honum, tók mér ætíð fagnandi, nánast eins og syni og spurði mig út í viðfangsefni mín á hverjum tíma með uppörvun og hvetjandi hætti. Tíu árum eftir að ég lét af störfum hjá fyrirtæki hans 1991 hóf Laufey konan mín störf í fyrirtæki hans, þ.e. árið 2001, með mágkonu sinni, Önnu Jóhönnu, dótt- ur Guðmundar og hefur hún starfað þar allt fram á þennan dag. Við hjónin erum þeim Rannveigu og Guðmundi Arasyni þakklát fyrir umhyggju alla fyrr og síðar. Biðjum við þér, Rannveig mín, sem og Önnu og Kára, Ara og Elínu Önnu og fjöl- skyldum þeirra blessunar Guðs um ókomna tíma. Minningin um góðan eiginmann, umhyggjusaman föður, tengdaföður og afa sem elskaði og lifði fyrir fjölskyldu sína umfram allt annað mun lifa. Ég bið þig góði Jesús að vera hjá mér í nótt, gef ég heyri orð þín: Vinur, sofðu rótt. Til þín er gott að flýja, þú gefur mér krafta nýja, svo hjarta mitt fái tifað og orð þitt í mér lifað. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Laufey Geirlaugsdóttir, og Sigurbjörn Þorkelsson. Okkur félögum Guðmundar Ara- sonar í Rótarýklúbbi Kópavogs er efst í huga þakklæti og virðing við fráfall þessa mæta manns. Það fór ekki hjá því að þessi vörpulegi mað- ur vakti athygli hvar sem hann kom fyrir glæsilega framkomu og hátt- semi. Hann æfði íþróttir af kappi og talaði gjarnan fyrir mikilvægi íþróttaiðkunar. Áhugi hans á jafn ólíkum íþróttum og hnefaleikum og skák var okkur vel kunnur og fræddi hann okkur um þessi áhuga- mál sín á fundum, svo og um önnur þau fjölmörgu svið sem hann lét sig varða. Guðmundur var forseti klúbbsins okkar starfsárið 1974 til 1975 og Poul Harris-félagi sem er æðsta viðurkenning Rótarýfélaga. Ræktarsemi hans við klúbbinn var mikil og mætingar hans á fundi öðr- um til eftirbreytni meðan heilsan leyfði. Þannig minnumst við þessa mæta félaga með þakklæti og virð- ingu. Við sendum eiginkonu hans, börnum og öðrum aðstendendum innilegar samúðarkveðjur. F.h. Rótarýklúbbs Kópavogs, Sveinn Hjörtur Hjartarson. Guðmundur Arason  Fleiri minningargreinar um Guð- mundArason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.