Morgunblaðið - 11.06.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 31
Tilkynningar
Vopnafjarðarhreppur
Aðalskipulag
Vopnafjarðarhrepps 2006-2026
Aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps 2006-2026.
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps auglýsir
hér með tillögu að Aðalskipulagi Vopna-
fjarðarhrepps 2006-2026 ásamt umhverfis-
skýrslu skv. 18. gr. skipulags- ogbyggingar-
laga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Tillagan sem nær til alls sveitarfélagsins er
sett fram í umhverfisskýrslu, aðalskipulags-
greinargerð, þéttbýlisuppdrætti í mælikvarða
1:10.000 og sveitarfélagsuppdrætti í
mælikvarða 1:100.000.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Vopna-
fjarðarhrepps, Hamrahlíð 15, frá kl. 8.00 til
16.00 alla virka daga frá 11. júní 2008 til 23.
júlí 2008. Jafnframt er tillagan til sýnis hjá
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík.
Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu
hafa borist sveitarstjóra Vopnafjarðarhrepps
eigi síðar en kl. 16.00 miðvikudaginn 23. júlí
2008.
Hægt verður að nálgast texta greinargerðar-
innar og uppdrátt aðalskipulagsins á
heimasíðu Vopnafjarðarhrepps,
www.vopnafjardarhreppur.is – frá og
með 11. júní 2008.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps.
Fjölbrautaskólinn
í Garðabæ
Innritun lýkur 11. júní
www.fg.is
Skoðið heimasíðuna!
Félagsfræðabraut
Náttúrufræðibraut
Málabraut
Viðskipta- og hagfræðibraut
Fata- og textílhönnun
Myndlist
Íþróttabraut
Almenn námsbraut
HG-hópur:
Hópur – Hraði – Gæði. Hægt er að ljúka
stúdentsprófi á þremur árum.
Nemendur í HG-hóp eru undanþegnir
skólagjöldum fyrsta skólaárið.
Afreksíþróttasvið:
Góð leið fyrir þá sem vilja leggja mikið á sig í
námi og íþróttaþjálfun.
Fjarnám:
Ódýr og góð þjónusta.
Góð aðstaða til náms!
Fullkominn kennslubúnaður, s.s. öflugar tölvur,
góð lesaðstaða, netkaffi o.fl.
Skrifstofa skólans er opin virka
daga kl. 8–15.
Aðstoð við innritun.
www.fg.is
Skólameistari.
Fjölbrautaskólinn
í Garðabæ
Innritun fyrir haustönn 2008 er hafin
Skrifstofa skólans er opin virka daga kl. 8-15
Innnritun lýkur 11. júní
Námsframboð
Bóknám til stúdentsprófs:
Félagsfræðabraut
Málabraut
Náttúrufræðibraut
Viðskipta- og hagfræðibraut
Listnám:
Fata- og textílhönnun
Myndlist
Unnt er að bæta við áföngum til stúdentsprófs. Hægt er að fá tónlist og listdans sem 45 eininga
kjörsvið á listnámsbraut. Skólinn er í mjög góðum tengslum við marga erlenda listaháskóla.
Starfsnám:
Íþróttabraut
Unnt er að bæta við áföngum til stúdentsprófs. Íþróttabraut býr nemendur undir nám og störf
að íþrótta- og félagsmálum.
Almennt nám:
Almenn námsbraut
Almenn námsbraut er fyrir nemendur sem eru óákveðnir eða uppfylla ekki inntökuskilyrði inn
á aðrar brautir.
HG-hópur
Skólinn býður upp á sérstaka þjónustu fyrir
nemendur með góðar einkunnir úr 10. bekk. HG – nemendur halda hópinn í mörgum greinum,
fá sérstaka þjónustu á ýmsum sviðum og geta auk þess flýtt námi sínu og lokið stúdentsprófi á
þremur árum. Þjónustan er byggð á meginhugmyndinni Hópur – Hraði – Gæði.
Nemendur í HG-hóp eru undanþegnir skólagjöldum fyrsta skólaárið.
Afreksíþróttasvið
Afreksíþróttasvið er fyrir þá sem vilja ná langt í sinni íþróttagrein og eru tilbúnir að leggja mik-
ið á sig í námi og þjálfun. Sækja þarf sérstaklega um þetta nám og eru veittar einingar fyrir
góðan árangur.
Ýmsir séráfangar
Í boði eru ýmsir gagnlegir séráfangar, s.s. í hestamennsku, fjölmiðlun, leiklist, kór, margmiðlun,
upplýsingatækni, hönnun, fatatísku o.fl.
Fjarnám í FG
Boðið er upp á fjarnám í bóklegum greinum. Innritun fyrir haustönn 2008 lýkur 30. ágúst nk.
Allar nánari upplýsingar um áfanga í boði, verðskrá o.fl. eru á heimasíðu skólans:
http://www.fg.is og hjá fjarkennslustjóra:
svavarb@fg.is
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu skólans.
Tölvubúnaður
Nemendur fá greiðan aðgang að nýjum og fullkomnum tölvubúnaði í skólanum. Tölvu- og
upplýsingatækni er nýtt í sífellt meira mæli í kennslu og námi. Í skólanum er stórt netkaffi með
nýjum og fullkomnum tölvum.
Góð aðstaða til náms!
Í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ eru rúmlega 700 nemendur og um 70 starfsmenn. Skólinn
er í glæsilegu húsnæði. Góðir kennarar sinna starfi sínu af metnaði. Boðið er upp á fullkominn
kennslubúnað, s.s. öflugar tölvur og góða lesaðstöðu.
Aðstoð við innritun.
Nemendur, sem ljúka 10. bekk í vor, innrita sig rafrænt. Tenging við Menntagáttt er inni á
heimasíðu FG: www.fg.is
Eldri nemendur geta valið um hvort þeir sækja um rafrænt eða fá umsóknareyðublöð á heima-
síðu skólans.
Nemendur með nám úr öðrum framhaldsskólum þurfa að staðfesta það með viðurkenndum
prófgögnum.
Námsráðgjafar og stjórnendur eru til viðtals og aðstoða nemendur við námsval.
Aðstoð við rafræna innritun fer fram á skrifstofutíma, kl. 8-15.
Sérstök aðstoð verður veitt dagana 9. 10. og 11. júní.
Upplýsingar um inntökuskilyrði á einstökum brautum eru á heimasíðu skólans.
Athugið! Nemendur í Garðabæ og á Álftanesi njóta einungis forgangs ef þeir sækja
um FG sem fyrsta val !
Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 8.00–15.00.
Símanúmerið er 520 1600.
Netfang: fg@fg.is
Skólameistari.
Félagslíf
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar 569 1100