Morgunblaðið - 15.07.2008, Side 1

Morgunblaðið - 15.07.2008, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 5. J Ú L Í 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 192. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er DAGLEGTLÍF HVERNIG ER BEST AÐ VELJA MÁLASKÓLA? REYKJAVÍKREYKJAVÍK Geimvera talar forn-íslensku        GEIR H. Haarde forsætisráðherra segir að hugmynd sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hefur viðrað, um að Íslendingar taki upp evru án þess að ganga í Evrópu- sambandið, sé eitt af því sem Evr- ópunefnd ríkisstjórnarinnar eigi að taka til skoðunar. Sjálfur hafi hann sagt að hún sé ólíkleg til að skila árangri en hann hafi aldrei slegið hana algerlega út af borðinu. „Nú, ef menn telja að hún geti hins vegar gert það, þá náttúrlega mun það bara koma í ljós í nefndarstarfinu,“ segir Geir. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra segir að ummæli Björns og yfirlýsingar sem fram hafi komið frá samtökum í atvinnu- lífinu sýni að meiri þungi sé að fær- ast í þessa umræðu. Hins vegar telji hún þá leið að fara beint í myntsamstarfið án þess að ganga í sambandið ekki færa. Öll 27 aðildarríki ESB yrðu að sam- þykkja aðild Íslands að myntbanda- laginu og ólíklegt sé að það myndi gerast. Mikilvægt sé að Evrópu- nefndin einhendi sér í að meta hvort ESB-aðild henti Íslending- um.| 8-9 Hugmyndir um aðild að evru án inngöngu í ESB Telja möguleikana litla Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Geir H. Haarde FRAMKVÆMDIR við Mýrargötu eru í fullum gangi og í gær var unnið að niðurrifi þriggja húsa sem við götuna standa. Stóðu þau á lóð sem rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni hefur verið úthlutað, en líkt og greint hefur verið frá stendur til að byggja þar timburkirkju í rússneskum stíl. Ráðgert er að kirkjan, sem standa mun við Mýrargötu 20, verði um tuttugu metrar á hæð og allt að eitt þúsund fermetrar að flatarmáli. Rýmt fyrir rétttrúnaðarkirkju Morgunblaðið/G.Rúnar Eftir Baldur Arnarson og Andra Karl YFIRMENN hjá Landhelgisgæslu Íslands (LHG) eru átaldir í harð- orðri skýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa um flugatvik sem átti sér stað 1. október 2004, þegar bún- aður við nefhjól TF-SYN, Fokker- vélar Gæslunnar, brotnaði í lend- ingu á flugvellinum í Vágum í Fær- eyjum. Ströngustu öryggiskröfum var ekki fylgt, ónothæfum varahlut hafði verið komið fyrir í lending- arbúnaði og framlenging fyrir leyfi búnaðarins við nefhjólið var út- runninn. Í skýrslunni er flugvirkjum Gæslunnar hrósað fyrir að neita að setja ólögmæta búnaðinn í flugvél- ina, en yfirmenn gagnrýndir fyrir að hafa gert það engu að síður. Jafnframt kemur fram gagnrýni á dómsmálaráðuneytið og það talið hafa brugðist Gæslunni með ófull- nægjandi fjárframlögum. 2004 og 2008 ekki sambærileg Björn Bjarnason, dómsmálaráð- herra og æðsti yfirmaður Gæslunn- ar, sagðist í bréfi sínu til Morg- unblaðsins ekki hafa farið í saumana á skýrslunni og því vilji hann lítið tjá sig, enda langt um lið- ið og margt breyst síðan. Hann tók þó fram að ekki væri unnt að bera saman stöðu flugdeildar Gæslunnar á þessum tíma og núna, og að því leyti væri skýrslan sögulegt gagn. „Í flugrekstri LHG hefur margt breyst á mjög skömmum tíma og vonandi allt til batnaðar,“ sagði ráðherrann og einnig að að hans viti ljúki málinu með skýrslu RNF. Gæslan virti ekki reglur Rannsóknarnefnd flugslysa setur fram harða gagnrýni í skýrslu sinni vegna flugatviks hjá Landhelgisgæslunni Í HNOTSKURN»Atvikið átti sér stað íoktóber 2004 og hefur því tekið tæp fjögur ár fyrir RNF að vinna að málinu. »Bragi Baldursson, að-stoðarforstöðumaður RNF, segir það óásætt- anlegt, en margt hafi spilað inn í. »Meðal annars hafi veriðbreytingar á nefndinni auk þess sem rannsóknin hafi verið flókin.  Send óflughæf | 6  Makríll er mikil búbót fyrir út- gerðir landsins, en hann er utan kvóta. Verði gerðir samningar um makrílveiðar við aðrar þjóðir má búast við að veiðireynsla verði met- in útgerðum til tekna við kvótaút- hlutun. Góð síld- og makrílveiði hefur verið síðustu daga austur af land- inu. Til skamms tíma var makríll- inn meðafli með síldinni en nú er hann oft 80-90% aflans í trollinu. | 4 Makríllinn er oft 80-90% aflans í trollinu Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Fyrsta löndunin Landað úr Sigurði VE á Þórshöfn í gær.  Starfsmenn DTU Aqua- stofnunarinnar dönsku eru nú að þróa dýptarmæla sem verða svo ná- kvæmir að hægt verður að greina bæði stærð og tegund fiskanna í djúpinu. Segir Jyllandsposten að með tækinu verði hægt að fara bet- ur með veiðistofna og draga úr brottkasti, hlífa megi smáfiski og of- veiddum tegundum. Minnst fimm ár munu líða áður en hægt verður að taka tækin í notkun á fiskiskipum. kjon@mbl.is Byltingarkenndir dýptarmælar í þróun  Gsm-sendum hefur verið komið fyrir á 13 ám frá bænum Húsavík á Ströndum og senda þeir sms-skeyti með upplýsingum um staðsetningu ánna. Tilgangurinn er sá að rann- saka tengsl kinda í sumarbeit. Kunnugir segja að mögulegt væri að venja ær við að snúa heim þegar þær heyra ákveðið hljóðmerki og að hægt væri að senda sms-skeyti til að koma slíku hljóði af stað. | 4 Sms í stað smalamennsku?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.