Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 7
Sumarfríið hefst í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Í verslunum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar færðu allt sem þú þarft fyrir ferðalagið: Sólarvörn,
myndavél, strandtösku, sólgleraugu, stuttbuxur, i-Pod, tímarit og ekki má gleyma gjald-
eyrinum. Njóttu þess að gera góð kaup í upphafi ferðarinnar og vertu klár á ströndina um
leið og þú lendir á áfangastað.
www.airport.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
E
40
91
7
06
.2
00
8
ÍSLENSKIR fjárfestar, Ólafur Örn
Karlsson og Gunnar Björn Hinz,
hafa fest kaup á Toraco Finmek-
anik, dönsku fyrirtæki sem sérhæfir
sig í framleiðslu á málmhlutum fyrir
ýmiskonar iðnað. Fyrirtækið, sem er
í Lundby í Danmörku, á rætur að
rekja til ársins 1956 og hefur frá
upphafi verið í eigu sömu fjöskyld-
unnar. Helstu viðskiptavinir Toraco
eru vélaframleiðendur í Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi.
Framleiðslan er að mestu leyti mið-
uð við sérhæfða þjónustu og fram-
leiðslu á fíngerðum og flóknum
málmhlutum fyrir viðskiptavini sem
framleiða til að mynda tann-
læknastóla, öndunarvélar, gasloka
og ýmiss konar vökvakerfi. Hjá fyr-
irtækinu starfa 14 manns og er unn-
ið á vöktum allan sólarhringinn.
Kaupverð er trúnaðarmál, en
VBS fjárfestingarbanki hf. hafði
milligöngu um kaupin á fyrirtækinu
og sá um samninga við Danske Bank
sem fjármagnaði kaupin.
Íslendingar
kaupa danskt
fyrirtæki
Framleiða fíngerða
og flókna smáhluti
ELDSNEYTISVERÐ snarhækkaði í gær og
hafði aldrei orðið svo hátt.
Lítrinn af bensíni hækkaði um sex krónur á einu
bretti hjá Olís í gærdag og var algengt verð í
sjálfsafgreiðslu um 180,90 krónur á lítra. Þá
hækkaði lítrinn af díselolíu um 7,50 krónur og
kostaði um 199,80 krónur í sjálfsafgreiðslu.
Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri
vörustýringarsviðs Olís, sagði skýringar hækkan-
ana vera þær að verð á heimsmarkaði hefði hækk-
að talsvert á fimmtudag og enn meira á föstudag.
Eldsneytisverðið lækkaði svo aftur um 4 krónur
seinna í gær hjá Olís og sagði Samúel að það hefði
komið til vegna þess að keppinautarnir hefðu ekki
fylgt heimsmarkaðsverðinu. „Keppinautar töldu
ekki þörf á svona mikilli hækkun og því lækkuðum
við verðið aftur enda stefna okkar að bjóða kúnn-
um upp á samkeppnishæft verð og góða þjónustu.
Það breytir því samt ekki að það var þörf á að
hækka um sex krónur.“ haa@mbl.is
Eldsneytisverð hækkar
Lítrinn varð 6 krónum dýrari hjá Olís í gær í samræmi við hækkun á heims-
markaðsverði Verðið lækkað aftur um 4 krónur til að fylgja keppinautum
Í HNOTSKURN
»Eldsneytisverð helduráfram að hækka og hækk-
aði um sex krónur hjá Olís í
gær.
»Dísilolía hækkaði um 7,5krónur á lítrann.
»Skýringin er hækkun áheimsmarkaðsverði enda
krafan sú að verð hér end-
urspegli það.
»Keppinautar Olís hækkuðuþó ekki jafnmikið og því
var verðið þar lækkað aftur
um 4 krónur.
Bensín Eldsneytisverð snarhækkaði í gær.
SÍMINN hefur komið upp sjö nýj-
um farsímasendum á hálendinu að
undanförnu. Í tilkynningu frá fyr-
irtækinu kemur
fram að nú sé
komið farsíma-
samband á sunn-
anverðum Kjal-
vegi langt
norður að
Hveravöllum, á
helstu ferða-
mannastöðum
norðan Vatna-
jökuls, Möðrudalsöræfum, í Bárð-
ardal frá Goðafossi inn á Sprengi-
sand og á Arnarvatnsheiði.
Í kjölfar þess að tilkynning
barst frá Símanum, sendi Voda-
fone frá sér tilkynningu um miðj-
an dag í gær. Þar kemur fram að
Vodafone hafi orðið fyrst fjar-
skiptafyrirtækja til að bjóða upp á
GSM þjónustu á hálendinu. Sendar
Vodafone eru í rekstri á tólf stöð-
um á hálendinu; á Bláfelli við Kjal-
veg, í Kerlingarfjöllum, á Hvera-
völlum, fjallinu Strúti í
Borgarfirði, Áfangafelli norðan
Langjökuls, Þrándarhlíðarfjalli í
Skagafirði, Skrokköldu og Fjórð-
ungsöldu á Sprengisandi, Vaðöldu
norðan Vatnajökuls, Slórfelli á
Möðrudalsöræfum, Vatnsfelli og
Búrfelli.
Bæði fyrirtækin keppast við að
bæta GSM þjónustu sína um land
allt – og raunar fjarskiptafyr-
irtækið Nova einnig – og verða
fleiri sendar settir upp í ár.
andri@mbl.is
Samkeppni
um senda
á hálendinu