Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is VEL hefur aflast af makríl og norsk-íslenskri síld austur af land- inu síðustu daga. Í gær voru skipin að veiðum í Seyðisfjarðardýpi, en um helgina var góðan afla að hafa í færeyskri lögsögu. Makríllinn er mikil búbót fyrir útgerðirnar, en hann er utan kvóta. Reikna má með að veiðireynsla á makríl verði metin útgerðum til tekna við kvóta- úthlutun verði gerðir samningar við aðrar þjóðir um makrílveiðar. Skipunum beint í makrílinn Um 20 skip eru nú á veiðum á makríl og síld. Til skamms tíma var makríllinn meðafli með síldinni, oft 20-30% af farmi, en í fyrra og á þessu ári hefur dæmið snúist við, makríllinn er oft nánast hreinn í trollinu, um 80-90%. Skipunum hef- ur verið beint í makrílinn, en hans hefur orðið vart á stóru svæði. Ísfélagið í Vestmannaeyjum, Vinnslustöðin, HB Grandi, Sam- herji, Síldarvinnslan, Eskja og Huginn eru meðal þeirra útgerða sem stunda veiðar á makríl og norsk-íslensku síldinni. Yfir 20 skip eru með kvóta í síldinni og hafa þau flest stundað veiðar með tví- buratroll í sumar. Þá er hægt að hafa betri stjórn á trollinu nálægt yfirborðinu. Mest af aflanum fer í bræðslu, en makríllinn fer einnig í beitu og til manneldis. Um borð í vinnslu- skipinu Guðmundi VE er makríll- inn hausskorinn og slógdreginn, þannig losna menn við átu, sem mikið er af í bæði makrílnum og síldinni. Síldin er aftur á móti flök- uð og fryst. Veiðireynsla væntanlega metin Allt að fimmfalt hærra verð fæst fyrir aflann sem fer til manneldis. Gott verð fæst einnig fyrir mjöl og lýsi um þessar mundir og segir á heimasíðu Eskju á Eskifirði að verð fyrir þessar afurðir sé í sögu- legu hámarki. Makríllinn sem hefur veiðst undanfarið er mjög feitur. Ægir Páll Friðbertsson, fram- kvæmdastjóri Ísfélags Vestmanna- eyja, segir að útgerðin reyni að sækja í makrílinn eins og mögulegt er. „Við erum með fjóra báta á síld og makríl: Álsey, Þorstein, Júpiter og Guðmund. Ísfélagið er með rúm- lega 20% af kvótanum í norsk- íslensku síldinni og við veiddum um þriðjung af um 30 þúsund tonna makrílafla Íslendinga í fyrra,“ segir Ægir Páll. Hann segir að væntanlega verði veiðireynsla á makríl metin ef og þegar makrílveiðar verði kvótasett- ar. Makríllinn sé mikil lyftistöng fyrir fyrirtækið, en það sem ekki er unnið til manneldis um borð í Guð- mundi hefur til þessa farið í bræðslu í verksmiðjunni á Þórs- höfn. Makríllinn fyrr á ferðinni Til skamms tíma var makríll flækingsfiskur á Íslandsmiðum, en telst nú til nytjastofna. Aflinn hefur tífaldast á tveimur árum og má fastlega reikna með að metið frá í fyrra, þegar yfir þrjátíu þúsund tonn veiddust í íslenskri lögsögu, verði slegið í ár, þar sem makríll- inn er nokkru fyrr á ferðinni en í fyrra. Makríllinn mikil búbót  Veiðireynsla á makríl væntanlega metin við kvótasetningu  Makríllinn var áður flækingur og fékkst sem meðafli með síld  Verð fyrir mjöl og lýsi í hámarki Morgunblaðið/Líney Á Þórshöfn Þeir báru sig vel löndunarkarlarnir Þorsteinn Ægir Egilsson, Einar Valur Einarsson og Elías Siggeirsson í makríl- og síldarkösinni um borð í Júpiter í hádeginu í gær. Í baksýn má sjá kúfiskskipið Fossá, en vinnsla á kúfiski er nú í fullum gangi á Þórshöfn. NEAFC, Norðaustur-Atlantshafs- fiskveiðinefndin, fer með stjórn veiða á NA-Atlantshafi á tegund- um eins og úthafskarfa, síld, kol- munna og makríl. Í nokkur ár hefur á þessum vettvangi verið í gildi samkomulag um stjórn makríl- veiða. Hin meintu strandríki, Dan- mörk f.h. Færeyja og Grænlands, Noregur og Evrópusambandið, hafa ekki viðurkennt strandríkja- rétt Íslands hvað makríl áhrærir. Á grundvelli þess hefur Ísland mót- mælt veiðistjórnun á makríl sem við erum þá ekki bundin af. Krafa Íslendinga verður væntanlega næst til umræðu á aðalfundi NEAFC í nóvember og á fundi hinna meintu strandríkja sem veiða makríl í aðdraganda aðal- fundarins. Staða Íslands styrkist með hverju árinu með auknum makrílgöngum norður á bóginn og auknum veiðum. Sjónarmið Íslendinga ekki viðurkennd GUÐMUNDUR Þóroddsson, fyrrverandi for- stjóri Orkuveitu Reykjavíkur, skilaði á sunnu- dag Hjörleifi Kvaran forstjóra umdeildum gögnum sem hann hafði tekið með sér þegar hann lét af störfum í lok maí. Guðmundur hefur áður gefið til kynna að hann hafi litið á gögnin sem sín persónulegu skjöl, en þau fékk hann sem forstjóri á stjórn- arfundum. Hann hyggst aftur á móti ekki skila nýrri Toyota Land Cruiser- bifreið, sem hann hafði til afnota sem forstjóri og lögfræðingar Orkuveitunnar hafa gert kröfu um að hann skili. Guðmundur telur jeppann falla undir starfslokasamn- ing sinn og hyggst ráða sér lög- mann til að verja það mál fyrir sig. andresth@mbl.is Skilar gögn- um en ekki bíl Guðmundur Þóroddsson ÓVENJULEG rannsókn fer nú fram í Húsavík á Ströndum. Staðsetning- arbúnaði og gsm-sendi hefur verið komið fyrir á þrettán ám og sendir hann nú sms daglega með upplýs- ingum um staðsetningu. Tilgang- urinn er að rannsaka tengsl kinda á frjálsri sumarbeit. Um er að ræða framhald á rann- sókn, sem gerð var árin 2005-6 á ættartengslum sauðfjár. Sú rann- sókn var meistaraprófsverkefni Hafdísar Sturlaugsdóttur í Húsavík. Að sögn Matthíasar Lýðssonar hjá Náttúrustofu Vestfjarða er til- gangurinn að kanna hvort skyldar ær haldi saman í frjálsri beit. Þetta hafi nokkuð verið skoðað erlendis en þar þekkist hins vegar frjáls beit sauðfjár lítið enda sé fénu að mestu haldið í lokuðum beitarhólfum. Nákvæmt eftirlit Ærnar þrettán eru í þremur ætt- arhópum. Þær bera hálskraga með GPS-staðsetningarbúnaði og sendi. Hver kragi sendir frá sér eitt sms á dag með staðsetningu á þriggja tíma fresti eða 8 staðsetningar í hverju skeyti. Ef ærin er kyrr í þrjá tíma sendir kraginn frá sér aðvörun um að dýrið sé hugsanlega veikt eða dautt. Hægt er að fylgjast með hve mik- ið ærnar færa sig á sólarhring, hvort þær eru mikið á ferðinni á beitilandinu, hvort veður skipti máli og einnig hvort ær úr sömu fjöl- skyldu séu á sama svæði. Fram kemur á vefsíðunni strandir.is, að kragarnir nái að senda frá sér skeyti flesta daga en annars bíður búnaðurinn þar til ærin kemst næst í gsm-samband. Slíkt samband hef- ur batnað til muna á Ströndum. „Komdu heim, Doppa mín!“ Gárungarnir hafa látið hafa eftir sér að hugsanlega verði einn daginn hægt að senda ánum sms-skeyti og skipa þeim aftur heim. Þessar vangaveltur eru kannski ekki svo galnar enda ætti, að sögn kunn- ugra, að vera mögulegt að venja ærnar við ákveðið hljóðmerki. Hægt væri að senda skeyti í gsm- sendi ánna sem þá myndi gefa frá sér hljóð. Ærnar væru þá skilyrtar til að hlaupa aftur heim er þær næmu hljóðmerkið. Hvort slíkt væri hagkvæmt er hins vegar önnur saga. haa@mbl.is Ærnar með gsm-sendi um háls- inn og senda sms af heiðunum Gemsi Sms-skeytin frá ánum þykja iðulega hnitmiðuð og upplýsandi. Þrett- án ær hafa nú gsm-sendi meðferðis á heiðunum. BETUR fór en á horfðist þegar sjö ára drengur hjólaði í veg fyrir bif- reið við gatnamót Þórunnarstrætis og Þingvallastrætis á Akureyri í gær. Drengurinn hlaut skrámur í andliti og marðist lítillega en slapp að öðru leyti vel. Að sögn lögreglunnar á Akureyri var drengurinn á talsverðri ferð þegar hann kom út á götuna, en mildi þykir að ökumaðurinn ók hægt og var með athyglisgáfuna í lagi. Ökumaðurinn snarhemlaði en kom þó ekki í veg fyrir árekstur. Lögregla segir æskilegt að grípa til aðgerða á staðnum en þéttur gróður er við stíginn og ökumenn sjá því ekki inn á hann, eins geta vegfarendur ekki séð út á götuna. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem óhapp verður á þessum stað. Ungur dreng- ur hjólaði á bíl en slapp vel ÖKUMAÐUR og farþegi lítillar vespu voru fluttir á slysadeild Landspítala eftir að ekið var aft- an á vespuna þar sem henni var ekið austur Miklubraut á ellefta tímanum í gærmorgun. Við höggið kastaðist fólkið, tvær ungar stúlkur, í götuna en að sögn lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu sluppu þær með minniháttar meiðsli. Öku- maður bifreiðarinnar slapp ómeiddur. Stúlkurnar voru ágætlega bún- ar og bjargaði búnaðurinn miklu. Ekið aftan á litla vespu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.