Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Nú tala náttúruverndarsinnarmest lítið um annað en álver og virkjanir. Og Árni Finnsson er and- vaka yfir því að hvalveiðar Íslend- inga hafi aukið skrifræðið í Brussel.     Ámeðan streyma ferðamenn tillandsins í hundruðum þúsunda. Hvað skyldi hafa mest áhrif á við- horf þeirra til Íslands sem ferða- mannastaðar?     Þess erskemmst að minnast að á þriðja hundrað ferðamanna þurfti að ganga örna sinna út um grjótið og melana við Dettifoss. Ástæðan var sú að fimm kamrar höfðu verið lokaðir í viku.     Það gerði daginn eftirminnilegan!     Kannski er þó betri tími í vændum.Loksins er búið að bjóða út veg- inn að Dettifossi vestan Jökulsár. Þá skapast rekstrargrundvöllur fyrir þjónustumiðstöð þar, sambærilegri þeirri sem er við Gullfoss.     Menn sjá í góðu árferði eins ognúna hversu víða lúpínan hefur fest rætur og sumstaðar er hún orð- in að þéttum breiðum. Yfir þær kemst enginn nema fuglinn fljúg- andi.     Malar- og grjótnám meiðir augaðá viðkvæmum og fallegum stöðum, eins og í friðlandinu á Mal- arrifi. Svo hafa sum fjöll sterkari ímynd en önnur í huga fólks, eru nokkurs konar þjóðarfjöll, eins og Ingólfsfjall. Þar blasa skemmdirnar við.     Fyrir orðspor Íslands sem ferða-mannalands skiptir mestu hvern- ig ásýnd þess og almenn umgengni er í augum ferðamannsins. Nefni- lega þjóðarfjöll, lúpínur og kamrar!! Þjóðarfjöll, lúpína, kamrar                      ! " #$    %&'  (  )                 *(!  + ,- .  & / 0    + -                12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (               !  "     :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?                                            *$BC                       *! $$ B *! #$  % & $ & '  (& ")( <2 <! <2 <! <2 #'&%  * ! +, (-  D2E                  *  !   "    #$   <7       !   "     %&'   %(    '    )    #$  *      8    +     !        , %$     #$    ./ (00  (&"1 ( "(* ! Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is HVERFAGÆSLA í Kópavogi verð- ur boðin út á næstu dögum en gerð útboðsgagna hófst í gær, að sögn Þórs Jónssonar, upplýsingafulltrúa Kópavogsbæjar. Bæjarráð Kópavogs samþykkti í síðustu viku tillögu Gunnars I. Birg- issonar bæjarstjóra um að hverfa- gæsla í bænum verði boðin út til reynslu til eins árs. Það er gert til að sporna gegn innbrotum og skemmd- arverkum. Tillagan var samþykkt með þremur atkvæðum gegn einu og einn sat hjá. Þór sagði að Kópavogs- bær hafi fyrirmyndina frá Seltjarn- arnesi. Þar var stofnað til til- raunaverkefnis í samvinnu við lögreglu og dómsmálaráðuneyti 2005. Þór sagði að bæjaryfirvöld í Kópavogi hafi ekki rætt beint við dómsmálaráðuneyti eða lögreglu við undirbúning gæslunnar. Hins vegar hafi þau verið í sambandi við lög- reglustjóra höfuðborgarsvæðisins því þau telji að dregið hafi úr nær- þjónustu og eins hafi þau gagnrýnt að lögreglustöðin í Kópavogi sé nú lokuð á nóttinni og um helgar. Hverfagæslunni er ætlað að hafa fælingarmátt en ekki að koma í stað löggæslu. „Það er enn lögð áhersla á nærþjónustu lögreglunnar og að lög- reglustöðin verði opin allan sólar- hringinn alla daga, þótt gripið sé til þessa ráðs til reynslu,“ sagði Þór. Ánægja með hverfagæslu Hverfagæsla á Seltjarnarnesi hófst eftir bylgju innbrota og skemmdarverka. Hún skilaði þegar góðum árangri, að sögn Jónmundar Guðmarssonar, bæjarstjóra á Sel- tjarnarnesi. Hann sagði 96% bæj- arbúa hafa lýst ánægju með hverfa- gæsluna í tveimur þjónustukönnunum og viljað halda henni áfram. „Við lítum á þetta sem stuðning við almenna löggæslu. Þessu er ekki beint gegn lögreglunni heldur litið á þetta sem samstarfs- verkefni.“ Jónmundur sagði að innbrotum hafi fækkað, án þess að hægt sé að fullyrða að það sé vegna hverfagæsl- unnar einnar. Farnar eru eftirlits- ferðir um bæinn nokkrum sinnum á sólarhring og hefur gæslufólkið oft komið íbúum til hjálpar, að sögn Jónmundar. Hann nefndi t.d. að gert hafi verið viðvart um opnar dyr, lykla sem gleymst hafa í skrám o.fl. Vildu styrkja eftirlit úti við Geir Jón Þórisson, yfirlög- regluþjónn almennrar löggæslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði að hverfagæslumenn á Sel- tjarnarnesi geri lögreglu viðvart sjái þeir eitthvað grunsamlegt, líkt og al- mennir borgarar geri. Hann sagði að lögreglan hefði ekkert út á það að setja þótt bæjarfélög eða fyrirtæki kaupi eftirlitsþjónustu. Varðandi þjónustu lögreglu í Kópavogi sagði Geir Jón að ekki hafi verið talin þörf á að hafa lögreglu- stöðina þar opna á nóttunni. Menn hafi fremur viljað styrkja eftirlitið úti við en inni á stöðvunum. Bætt hafi verið við hverfislögreglumanni í Kópavogi og sama fyrirkomulag sé á eftirliti í hverfum bæjarins nú og var áður. Hverfagæsla boðin út Hverfagæsla á Seltjarnarnesi hefur skilað góðum árangri frá því hún hófst 2005 og mælst vel fyrir meðal bæjarbúa, að sögn Jónmundar Guðmarssonar bæjarstjóra Morgunblaðið/Þorkell Eftirlit Með hverfagæslu í Kópavogi er ætlunin að sporna gegn innbrotum og spellvirkjum, líkt og gert hefur verið á Seltjarnarnesi frá árinu 2005. Í HNOTSKURN »Kópavogsbær mun bjóðaút hverfagæslu á næst- unni. Það er gert til að sporna gegn innbrotum og spell- virkjum. Gera á tilraun með hverfaeftirlit í eitt ár. »Seltjarnarnesbær hóf til-raunaverkefni um hverfa- gæslu árið 2005. Hverfa- gæslan þar hefur mælst mjög vel fyrir meðal íbúa, að sögn bæjarstjórans. »Sérmerktir bílar Securitasaka um á Seltjarnarnesi eftir ákveðnu kerfi og líta starfsmenn eftir eignum bæj- arbúa. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra kveðst ekki hafa á móti því að sveitarfélög geri sérstakar ráð- stafanir til að auka öryggi íbúa sinna og segir að reynslan frá Sel- tjarnarnesi sé mjög góð. Mörg þeirra verkefna, sem þarna er um að ræða, falla ekki undir verksvið lögreglu að mati Björns, þótt þau stuðli að auknu öryggi hins al- menna borgara. „Að mínu frumkvæði er nú hafin endurskoðun á lögreglulögum. Eitt af því, sem þar er skoðað er inntak lögreglumannsstarfsins. Ég tel, að skýra þurfi inntak þess betur en áður í lögum, meðal annars með vísan til aukins einkaframtaks á sviði öryggisgæslu í þágu borg- aranna. Jafnframt þarf að huga að löggjöf um einkafyrirtæki á þessu sviði, hvort henni skuli breytt. Loks skipta menntun og þjálfun einnig máli í þessu samhengi. Ég lít hvorki á það sem van- traust á lög- reglu né til marks um, að lögregla leggi ekki nægilega mikla alúð við störf sín, að einkafyrirtæki láti hér meira að sér kveða á þessu sviði. Það er rétt, að starfsmenn þeirra hafa ekki sömu heimildir og lögreglumenn, enda eru þeir ekki að sinna sömu verk- efnum. Hvers kyns forvarnarstarf hefur mikið gildi, þótt aðrir sinni því en lögreglan. Ég tek ekki ákvarðanir fyrir hönd lögreglu um samstarf hennar við sveitarfélögin. Á hinn bóginn er það stefna mín, að þetta samstarf sé náið og gott.“ Ekki vantraust á lögregluna Björn Bjarnason STAKSTEINAR Eftir Guðlaug Albertsson Dýrafjörður | Nýtt vík- ingaskip var sjósett á Dýrafjarðardögum sem nú voru haldnir í sjöunda sinn. Skipinu var gefið nafnið Vé- steinn. Það var sjósett við mikinn fögnuð við- staddra. Á Dýrafjarð- ardögum var opnuð myndlistarsýning Dagrúnar Matthías- dóttur og útgáfu- tónleikar sálma- disksins „Lofgjörð til þín“. Fyrir yngra fólkið var boðið upp á sund- laugardiskó í íþrótta- miðstöðinni. Margt var í boði á hátíðinni, t.d. morgunganga í Haukadal, þar sem farið var um söguslóðir Gísla Súrssonar, og keppt var í strandblaki. Sú nýjung var í ár, að gestum og gangandi gafst kostur á að sækja íbúa heim í sérmerkt hús þar sem boðið var upp á súpu. Gestir völdu svo í leiðinni fallegasta garðinn. Sölutjöld voru á víkingasvæðinu, þar sem andi víkinganna sveif yfir vötnum og grillað var að víkingasið. Sýnd var búlgarska leiksýningin Chick with a trick, keppt var í kassabílaralli á heimatilbúnum kassabílum og boðið var upp á kaffihlaðborð að Hótel Núpi. Myndlistarsýningarnar Vestfirskir einfarar og Gísla saga Súrssonar í myndum var í Haukadal auk leiksýningarinnar Aðrir sálmar. Víkingar Valdimar Elíasson sá um smíði víkinga- skipsins Vésteins sem sjósett var í Dýrafirði. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Nýtt víkingaskip sjósett á Dýrafirði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.