Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 197. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Aðhald ein orsök óhapps  Þrýstingur um fjárhagslegt að- hald var á meðal orsakaþátta í flug- óhappi Fokker-vélar Landhelgis- gæslunnar þegar búnaður við nef- hjólið brotnaði í Færeyjum 2004. Ströngustu kröfum var ekki fylgt og ónothæfum varahlut komið fyrir í lendingarbúnaði. » Forsíða Rætt í Evrópunefnd  Forsætisráðherra segir að hug- myndir um að Ísland taki upp evru án þess að ganga í Evrópusam- bandið séu eitt af því sem eigi að taka fyrir í Evrópunefnd ríkisstjórn- arinnar. Utanríkisráðherra telur hins vegar afar ósennilegt að öll 27 ríki ESB myndu samþykkja aðild Ís- lands að myntsamstarfinu. » 8 Ósáttir við samninga  Kjarasamningur sem undirritaður var fyrir helgi tryggir læknum 4,14% hækkun og fyrir nýútskrif- aðan lækni þýðir það 12.000 króna hækkun. Formaður Félags ungra lækna segir að leiðrétting á kjörum ungra lækna fyrir tveimur árum hafi orðið verðbólgunni að bráð. » 6 Allt að 60 útigangsmenn  Þrjú heimili fyrir útigangsfólk eru nú rekin í Reykjavík og geta þau þjónustað 24 einstaklinga í einu. Hins vegar er gert ráð fyrir að fjöldi útigangsmanna í borginni sé 40-60 manns á hverjum tíma. » Miðopna SKOÐANIR» Staksteinar: Þjóðarfjöll, lúpína, kamrar Forystugrein: Ófær evruleið Ljósvaki: Góðar endursýningar UMRÆÐAN» Stórtíðindi – Jón Bjarnason ekki á móti í dag Ljósmóðir – forréttindi eða … Róttækar aðgerðir og mótmælendur    2 2 2  2 3 & !4# - * ! 5       2 2 2  2 , 6 (0 #    2 2 2  2 2 7899:;< #=>;9<?5#@A?7 6:?:7:7899:;< 7B?#66;C?: ?8;#66;C?: #D?#66;C?: #1<##?E;:?6< F:@:?#6=F>? #7; >1;: 5>?5<#1*#<=:9: Heitast 15°C | Kaldast 7°C  Norðan og norð- vestan 8-15 metrar á sekúndu og dálítil rigning norðan til. Bjart sunnan til. » 10 Booker-verðlauna- hafinn DBC Pierre skrifar plötudóm um nýjustu plötu Sigur Rósar og gefur fullt hús stiga. » 29 TÓNLIST» Mögnuð hljómfegurð KVIKMYNDIR» Mamma Mia! og Hellboy II í toppsætum. » 30 „Dapurlegt að horfa á frábæra skemmti- krafta Murphys gjörsamlega van- nýtta,“ segir í dómi um Meet Dave. » 33 KVIKMYNDIR» Illa nýttur grínleikari AF LISTUM» Pönkurum borgað til að pönkast á kerfinu. » 32 TÓNLIST» Hera fer í tónleikaferð um Ísland. » 28 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Ragnar Kjartansson látinn 2. Britney blómstrar 3. Eldsneytisverð snarhækkar 4. Fótbrotnaði á báðum fótum  Íslenska krónan veiktist um 0,1% H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 08 -0 08 0 NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is ANDRÉS Önd er í fyrsta skipti kominn í efsta sæti á bóksölulista hérlendis. Það er vegleg sérútgáfa af Syrpu-bók sem selst svona vel yfir sumarið en bókin er tvöfalt lengri en venjuleg Syrpa og er með sögum sem hafa ekki áður komið fyrir augu íslenskra lesenda. Liðin eru 28 ár síðan Andrés Önd kom fyrst út á íslensku og að sögn út- gefanda er ekkert lát á vinsældum andarinnar geðstirðu. | 31 Andrés í efsta sæti „MAÐUR var fjandi þreyttur eftir gönguna. Ég hugsa í það minnsta að ég hefði ekki treyst mér strax í aðra,“ segir hinn 68 ára gamli Stur- laugur Eyjólfsson léttur í bragði. Hann gekk Glerárdalshringinn svo- nefnda síðastliðinn laugardag á 26 klukkutímum og er sá elsti sem far- ið hefur alla leiðina. Gangan er um 50 kílómetra löng og samanlögð hækkun í henni um 4.000 metrar. Í göngunni er farið yfir allan fjallgarðinn sem myndar Glerárdal í Eyjafirði. 24 fjallstindar eru sigraðir á leiðinni. Aðspurður segist Sturlaugur ekki hafa búið sig sérstaklega und- ir gönguna. „Ég hef bara reynt að ganga mikið síðustu ár og þá sér- staklega á sumrin. Við hjónin ætl- um til dæmis að skella okkur næstu helgi í Hornstrandagöngu.“ Hann segir jafnframt að gangan hafi gengið vel en hún hafi verið ansi erfið á köflum. „Vegalengdin jafnast á við tvær ferðir á Hvanna- dalshnjúk. Þessi ganga er þó mun erfiðari en þangað upp. Svo þreyt- ist maður líka meira en aðrir þegar maður er orðinn löggiltur vesaling- ur,“ segir Sturlaugur og hlær. Hæsta fjallið í Glerárdalsgöng- unni er Kerling, sem er um 1.538 metra há. Það lægsta er Hlíðar- hryggur, sem nær um 1.100 metra yfir sjávarmál. 10 af þessum 24 fjöllum eru hærri en 1.400 metrar og fjallshryggjum er fylgt eins og kostur er í göngunni. 62 fóru alla leið af þeim 94 sem upphaflega voru skráðir. haa@mbl.is 68 ára göngugarpur gekk Glerárdalshringinn Lagði 24 tinda að velli Í HNOTSKURN »Glerárdalsgangan var núhaldin í fjórða sinn og þótti heppnast mjög vel. »Gangan þykir mjög erfiðenda er farið yfir 11 af 100 hæstu tindum Íslands á leið- inni. Samtals eru 24 tindar sigraðir á um það bil sólar- hring. »Vegalengdin er um 50kílómetrar og samanlögð hækkun er um 4.000 metrar. » Afrek Sturlaugs er mikið.Hann mun vera sá elsti sem lokið hefur göngunni. Ljósmynd/Konráð Gunnarsson Erfið Sturlaugur Eyjólfsson með ferðafélögum sínum við Steinsfjall. Leiðin lá yfir 24 fjallstinda. RAPPARINN Josh Martinez kemur fram á tónleikum á Organ í kvöld með fyrrverandi heimsmeistara plötusnúða, Dj Flip. Martinez vakti fyrst athygli fyrir lagið „Deny“ þar sem hann rappaði um fjöldamorð Þjóðverja á gyðingum í seinni heimsstyrjöldinni. Martinez hefur verið virkur í hipphoppi í um áratug sem rappari og upptökustjóri, hefur troðið upp á um 220 tónleikum á ári seinustu sjö til átta árin og rekur fjögur fyr- irtæki í Bandaríkjunum. Árni Matth- íasson ræddi við þennan merkilega listamann sem segist vilja rappa um hluti sem skipta máli. | 33 Dj Flip og Josh Martinez Hlutir sem skipta máli „VIÐUREIGNIN var ógurleg, enda báðir vanir sem voru hvor á sínum endanum!“ segir Þórarinn Sigþórs- son, en hann veiddi sannkallað tröll, 20 kílóa lax, í Yokanga-ánni í Rússlandi nýlega. Laxinn tók fluguna Cascade, númer sex. Þórarinn upplýsir að leiðsögumenn í ánni segi þennan lax þann stærsta sem veiðst hafi á flugu í ánni. Þórarinn moldveiddi í ferðinni, alls 64 laxa. | 11 Risalax í Rússlandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.