Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 21 MINNINGAR ✝ Bjarni JónasIngimarsson fæddist á Drangs- nesi við Steingríms- fjörð 31. desember 1952. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 6. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans eru Ingimar Elíasson og Ásta Vigdís Bjarnadóttir. Bjarni er elstur fimm systkina, hin eru Eyrún, Elías, Ástmar og Ingi Vífill. Bjarni kvæntist Söru Harð- ardóttur árið 1977. Þau eiga tvær dætur, Söru Ross, f. 1978, og Ástu Vigdísi, f. 1980. Sonur Söru Ross er Gabríel Orri Karls- son, f. 2003. Bjarni ólst upp á Drangsnesi en flutti í Bjarnafjörð um ferm- ingu. Hann lauk prófi frá Reykjaskóla í Hrútafirði árið 1972. Eftir það að- stoðaði hann for- eldra sína við bú- skap í Framnesi í Bjarnafirði, þar til þau Sara tóku við búi. Bjarni og Sara bjuggu í Framnesi árin 1977 til 1981 en fluttu þá til Njarðvíkur. Þar hafa þau haldið heimili síðan. Bjarni starfaði eftir þetta meira eða minna hjá launadeild varn- arliðsins til ársins 2006. Fyrr á þessu ári greindist Bjarni með ólæknandi krabba- mein. Hann barðist hetjulega til síðasta dags. Útför Bjarna fer fram frá Njarðvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Sonur okkar Bjarni lést 6. júlí síðastliðinn, eftir erfið og kvalar- full veikindi. Hann ólst upp á Drangsnesi fram að fermingu. Síð- an fluttum við að Klúkuskóla í Bjarnafirði og þar veiktist hann. Hann var síðan sendur á Land- spítala og dvaldi þar í um það bil ár og kom og kom heim með styttri fót. Þá hafði lærleggskúlan í mjaðmalið farið illa vegna ígerð- ar. Gvendalaug hins góða er við hliðina á skólanaum á Klúku. Þangað sótti Bjarni kjark og þor með æfingum og varð góður sund- maður. Hann bætti svo við kunn- áttu sína þegar hann dvaldi tvo vetur á héraðsskólanum á Reykj- um í Hrútafirði. Bjarni giftist Söru Harðardóttur sem reyndist honum framúrskar- andi eiginkona í blíðu og stríðu. Árin á Ströndum voru honum hug- leikin og fyrst og fremst Bjarna- fjörðurinn. Hér er sveitin góð og græn grund og leiti hlær við sólu. Ör og teit er valgrund væn Vöknuð heit af svefni njólu. Fljótt sinn galdur framhjá þustur Flýgur skvaldur tvítugs manns Furðukaldur feigðargustur Fer um aldinn vanga hans. (Steinn Steinarr.) Við kveðjum son okkar og bróð- ur systkina sinna og trúum að löng leið sé fyrir höndum hjá honum. Farðu vel í guðs nafni. Vertu sæll sonur kær. Faðir og móðir. Elsku besti bróðir minn. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Hafðu þökk fyrir allt. Þín systir, Eyrún. Genginn er á vit horfinna kyn- slóða Bjarni Jónas Ingimarsson, frændi minn og vinnufélagi til margra ára. Við Bjarni unnum saman hjá Varnarliðinu, hann í launadeildinni en ég í tölvudeild- inni. Vegna starfa okkar áttum við mikil samskipti. Bjarni var með af- brigðum glöggur á tölulegar mis- fellur og fljótur að bregðast við þeim sem kom sér vel í útreikningi launa. Hann var skemmtilegur og lifandi í samskiptum okkar, við gátum gantast og hlegið þótt eng- um öðrum væri skemmt og vorum sammála um að báðir hefðum við fengið í erfðir það sem við köll- uðum „hreytigen“. Hann sagði sig vera sunnan hnífapara en ég hins vegar norðan þeirra úr Árnes- hreppnum og þekkti þar af leið- andi lítt til slíkra hluta. Á þessum nótum voru okkar samskipti. Svo var hann Strandamaður af hjarta og sál og talaði oft um árin í Bjarnarfirðinum. Stundum fann maður fyrir söknuði og angurværð yfir því sem eitt sinn var. Hann fékk slæma sýkingu í fótinn um fimmtán ára aldurinn og gekk við hækju alla tíð síðan. Ekki var að sjá að það háði honum að ráði, hann lagðist undir bíla til að gera við og taldi það ekki eftir sér, enda harðduglegur og sinnti öllu sínu af alúð eins og hann hafði ættir til. Manni finnst lífið ekki alltaf réttlátt og ekki fékk hann bráð- ungur maðurinn lengi að njóta samvistanna við augasteininn sinn, afastrákinn. Söru, dætrum og fjölskyldu Bjarna votta ég innilega samúð. Blessuð sé minning góðs drengs. Theodór Magnússon. Þegar Sara, systir og mágkona, kynnti Bjarna í fyrsta sinn fyrir fjölskyldu sinni sagði hún: „Látið ykkur ekki bregða, hann er bæði haltur og tannlaus.“ Tennurnar voru síðar lagaðar, en verr gekk að laga heltina, sem háði honum alla tíð. Sara og dætur þeirra hjóna, Sara Ross og Ásta Vigdís, skiptu hann öllu og gerði hann sitt besta til að þeim liði vel. Vegna veikinda var hann meira heima við en marg- ir feður á þeim tíma og fylgdist ná- ið með uppvexti dætranna sem hann var ákaflega stoltur af. Barnabarnið, Gabríel Orri, sem hann eignaðist fyrir 5 árum var einnig í miklu uppáhaldi og hafði hann mjög gaman af að segja frá nýjustu uppátækjum hans. Bjarni fylgdist vel með flestu í fjölmiðlum og var vel að sér í hin- um ýmsu málefnum. Hann átti því ekki erfitt með að halda uppi sam- ræðum um tækni og vísindi, stjórnmál, bæði íslensk og alþjóð- leg, dægurmál og flest það sem fólki dettur í hug að ræða um. Þegar umræðan komst á hærra plan var Bjarni oftar en ekki með staðreyndirnar á hreinu. Bjarni var okkur ávallt góður vinur og sérlega hjálpsamur. Þó mátti aldrei neitt fyrir honum hafa. Hann reyndist okkur drjúgur með ráðgjöf og aðstoð í tengslum við rekstur fyrirtækja og launamál, að ekki sé talað um ýmsa misgóða bílgarma sem við höfum átt í gegn- um tíðina. Við þökkum Bjarna samfylgdina og vottum hans nánustu samúð okkar. Hans er sárt saknað. Katrín Harðardóttir og Kristján Jónasson. Þegar ég kynntist Bjarna, vissi ég ósköp lítið um sveitalíf á Íslandi. Þegar Sara systir kynnti okkur fyr- ir honum, opnaðist nýr heimur, sem var afskekkt sveit á Ströndum og íslensk bændamenning. Margt var þar framandi og gat Bjarni oft hlegið að ýmsu sem maður sagði sem þótti óviðeigandi í sveitinni og sýndi fávisku manns. Ekki hæddist hann þó að manni. Bjarni kenndi mér að þótt landafræðin gæti lokað mann inni, þá gæti hugurinn alltaf verið frjáls og opinn fyrir nýjung- um og hinum stóra heimi. Þau hjónin voru af mjög ólíkum uppruna, en náðu samt að sameina þessa tvo heima á skemmtilegan hátt. Þau voru mjög samrýnd og sjálfum sér nóg frá upphafi, sem kom sér vel á löngum og erfiðum vetrum í Bjarnafirði. Ég dáðist að dugnaði Bjarna, því líkami hans olli honum bæði erf- iðleikum og sársauka. Ég votta systur minni, börnum þeirra og barnabarni, foreldrum hans og öðrum ættingjum innilega samúð mína og veit að við munum öll sakna hans. Jóhanna Harðardóttir. Þann 5. júlí barst mér sú fregn að samstarfsmaður minn til margra ára, Bjarni Ingimarsson, væri lát- inn. Hann hafði að vísu tjáð mér að hann hefði greinst með alvarlegan sjúkdóm, og ekki væri víst hver framvinda hans yrði. Maður von- aðist samt eftir að þróunin yrði ekki eins hröð og raun varð á, og að hlutirnir færu betur en á horfð- ist . Bjarni var mikill baráttumaður og hafði oft áður glímt við erfiða sjúkdóma, og haft betur, þó hann bæri þeirra alltaf merki. En dauðinn er hluti af lífinu og það er sárt þegar góðir vinir hverfa, maður finnur fyrir van- mætti og skilur ekki af hverju það þarf að gerast, einkum þegar um er að ræða góðan vin og samstarfs- mann á besta aldri. Manni finnst það ekki réttlátt. Það veit samt enginn hvað við tekur. Ef til vill er dauðinn ekki einn af neikvæðu hlutum lífssins. Hver veit? Við Bjarni kynntumst fyrst þeg- ar hann hóf störf hjá launadeild Varnarliðsins en hann hafði orðið að hætta búskap vegna bæklunar og flutti frá Bjarnarfirði á Strönd- um til Njarðvíkur. Það var mikill fengur að fá Bjarna í starfshópinn því alltaf var hægt að treysta á að hann leysti af kostgæfni öll þau verkefni, sem honum voru falin. Hann var ábyrgur í starfi, fljótur að tileinka sér nýjungar og átti auðvelt með að umgangast fólk, sem kom sér vel á okkar vinnustað því samskipti við starfsmenn Varn- arliðsins voru mikil. Fjölskylda Bjarna á um sárt að binda og hans verður saknað af öll- um þeim, sem þekktu hann. Ég vil biðja Söru, dætrum þeirra Bjarna, dóttursyni og foreldrum Bjarna blessunar í framtíðinni og færa þeim og öllum aðstandendum mínar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Rúnar Már Vagnsson. Bjarni Jónas Ingimarsson Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTJÁN GUÐMUNDSSON, Hrafnhólum, Melási 2, Garðabæ, varð bráðkvaddur á heimili sínu laugardaginn 12. júlí. Rakel Jónsdóttir, Valgerður Kristjánsdóttir, Árni Sverrisson, Ragnheiður H. Kristjánsdóttir, Ingólfur Flygenring, Kristján R. Kristjánsson, Jóhanna Guðmundsdóttir, Hjalti Þór Kristjánsson, Ásthildur Kristjánsdóttir, Baldur Grétarsson og afabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, EGILL JÓNSSON bóndi og fyrrverandi alþingismaður, Seljavöllum, lést á Heilbrigðisstofnun Suð-Austurlands laugar- daginn 12. júlí. Hann verður jarðsunginn frá Bjarnaneskirkju föstudaginn 18. júlí kl. 14.00. Halldóra Hjaltadóttir, Anna Egilsdóttir, Ari G. Hannesson, Valgerður Egilsdóttir, Ásgeir N. Ágústsson, Hjalti Egilsson, Birna Jensdóttir, Eiríkur Egilsson, Elín Oddleifsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda- móðir og tengdadóttir, SIGURBJÖRG ELÍASDÓTTIR, Fossvegi 11, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar laugardaginn 12. júlí. Útförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 19. júlí kl. 14.00. Friðfinnur Hauksson, Elías Bjarni Ísfjörð, Guðný Friðfinnsdóttir, Daði Már Guðmundsson, Aðalheiður Jonna Friðfinnsdóttir, Þórey Vala Friðfinnsdóttir, Guðný Friðfinnsdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, MAGNÞÓRA J. ÞÓRARINSDÓTTIR, Didda, Kirkjuvegi 1, Keflavík, áður Húsatóftum Garði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 11. júlí. Útför hennar fer fram frá Útskálakirkju fimmtudag- inn 17. júlí kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Þórarinn S. Guðbergsson, Ingunn Pálsdóttir, Bergþóra Guðbergsdóttir, Ólafur Sigurjónsson, Jens Sævar Guðbergsson, Ólöf Hallsdóttir, Theodór Guðbergsson, Jóna Halla Hallsdóttir, Rafn Guðbergsson, Rósbjörg Karlsdóttir Olsen, Reynir Guðbergsson, Salvör Gunnarsdóttir, Anna Guðbergsdóttir, Kristján Gestsson, Ævar Ingi Guðbergsson, Svava G. Sigurðardóttir, ömmu-, langömmu- og langalangömmubörn. MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.