Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 33
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 6 - 8 LEYFÐ
WANTED kl. 8 B.i. 16 ára
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5:40 B.i. 7 ára
MAMMA MIA kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
MEET DAVE kl. 8 B.i. 7 ára
HANCOCK kl. 10 B.i. 12 ára
MAMMA MIA kl. 8 - 10:20 LEYFÐ
KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 8 LEYFÐ
HANCOCK kl. 10:10 B.i. 12 ára
AKUREYRI, OG KEFLAVÍK
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
JACK BLACK SANNAR AF HVERJU HANN ERTALINN
EINN AF FYNDNUSTU GRÍNLEIKURUNUM Í HEIMINUM Í DAG.
HEITASTA BÍÓMYNDIN Í SUMAR ER KOMIN!
SVALASTA BÍÓMYND SÍÐAN THE MATRIX
,,Mörg hasaratriðin eru afar vel útfærð og
leynast inn á milli góð gamanatriði...”
- V.J.V., topp5.is/Fréttablaðið
eee
,,Brjálaður hasar, brútal ofbeldi,
skemmtilegir leikarar og góður húmor.
Þarf meira?”
- Tommi, kvikmyndir.is
eee
AKUREYRI
SÝND Í KRINGLUNNI, ÁLFABAKKA,
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA
,SAFARÍK KVIKMYND, BYGGÐ Á SANNSÖGULEGU
BANKARÁNI SEM KEMUR SÍFELLT Á ÓVART...,,
- Rolling stones
eee
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
,,Ljúfir endurfundir”
- Þ.Þ., DV
JOSH Martinez var í hópi ungra
bleiknefja sem ólust upp við hipp-
hopp og fannst eðlilegra að kaupa sér
hljóðsmala frekar en rafgítar þegar
þeir sneru sér að músík. Hann vakti
fyrst verulega athygli fyrir lagið
„Deny“ þar sem hann rappar um
fjöldamorð Þjóðverja á Gyðingum á
fjórða og fimmta áratugnum, en í
laginu bregður hann sér í hlutverk
hermanns sem berst í seinni heims-
styrjöldinni og er einn af þeim sem
kemur í Auschwitz-útrýmingar- og
þrælkunarbúðirnar.
„Deny“ kom fyrst út sem stutt-
skífa en síðan á plötu fyrir sex árum,
en Martinez hefur verið virkur í
hipphoppi í um áratug, bæði sem
rappari og líka upptökustjóri hjá öðr-
um aukinheldur sem hann hefur rek-
ið plötufyrirtæki, einn og með öðr-
um.
Í upphafi „Deny“ segir Martinez
lítillega frá tilurð lagsins og segir að
það sé tónlist til að fá fólk til að
hugsa. Í raun má líta á það sem eins-
konar stefnuyfirlýsingu hans sem
tónlistarmanns, varpa ég fram í sam-
tali við þann þar sem hann er á leið í
Bláa lónið.
„Það verður náttúrlega að líta til
þess að ég var bara unglingur á þess-
um tíma,“ segir Martinez, „og ekki
að ráðast á garðinn þar sem hann er
lægstur. Að því sögðu þá vona ég að
menn skynji í laginu barnslega ein-
lægni, en ekki hroka, því ég vil alls
ekki koma fram af hroka, hvorki þá
né nú. Ég hef þó reynt að fara aðra
leið til að koma skoðunum mínum á
framfæri í tónlist og núna gerði ég
það með kímni og reyni að nota til
þess lagasmíðatækni og hugmyndir
úr poppi. Ég reyni að ná til fólks með
grípandi laglínum og skemmtilegu
viðmóti og vonast svo til þess að eitt-
hvað af því sem ég er að gera síist
inn, að það átti sig kannski á því
seinna að viðlagið sem var svo gríp-
andi er líka þrungið merkingu.“
220 tónleikar á ári
Tíu ár eru síðan Josh Martinez tók
upp hljóðnemann og byrjaði að rappa
og því væri skiljanlegt ef hann væri
eitthvað farinn að slaka á. Hann seg-
ir þó að því sé öðru nær, undanfarin
7-8 ár hafi hann troðið upp á um 220
tónleikum á ári hverju og ekkert lát
á. „Ég er einmitt í miklu stuði um
þessar mundir og ætla að vera næstu
ár, ætla að koma miklu efni frá mér,
en svo fer ég kannski að slaka á,“
segir hann en sem stendur rekur
hann fjögur fyrirtæki í Portland í
Oregon-fylki, þar sem hann hefur
búið síðustu ár, og segist vera með
það marga í vinnu hjá sér að hann
verði að gefa því stússi meiri tíma.
„Það er ekki hlaupið að því að reka
fyrirtæki þegar maður er svona mik-
ið á ferðinni og einhvernveginn er
það svo að það er sama hvað hlutirnir
eru komnir í fastar skorður þegar ég
fer í hverja tónleikaferð, það er allt í
flækju þegar ég sný aftur heim,“ seg-
ir Martinez og skellir upp úr.
Triangle Productions, plötufyrir-
tæki í eigu listamannanna Rain og
Beatmakin Troopa, fékk Josh Mart-
inez hingað til lands sem aðalnúmer
á tónleikum á Organ í kvöld, en einn-
ig koma fram Dj Flip frá Írlandi,
fyrrverandi heimsmeistari plötu-
snúða, og íslensku listamennirnir
Introbeats, Arkir og Mælginn. Húsið
verður opnað klukkan 21.00.
arnim@mbl.is
Tónlist sem fær mann til að hugsa
Josh Martinez rappar um hluti sem
skipta máli á Organ í kvöld
Árvakur/Júlíus
Hipphopp Josh Martinez og Dj Flip, fyrrverandi heimsmeistari plötusnúða.
Í LJÓSI þess að
Josh Martinez
er að koma
hingað í fyrsta
sinn má gera
ráð fyrir að
menn þyrsti
fyrst og fremst
í að heyra
eldra efni frá
honum, fái skammt af vinsælustu
lögum hans.
Spurður um þetta játar Martinez
því en bendir á að rétt sé að hafa
gæsalappir utan um „vinsælustu“ í
setningunni, enda hafi hann ekki
beinlínis notið vinsælda.
„Alla jafna er dagskráin hjá mér
þannig um þessar mundir að 40%
hverra tónleika eru eldra efni, „vin-
sælustu“ lögin ef þú vilt kalla það
svo, 40% eru síðan lög af vænt-
anlegri breiðskífu, The World
Famous Sex Buffet, og restin (20%
fyrir þá sem nenna ekki að reikna)
er lög sem ég hef tekið upp með
rokkbandinu mínu, POW, Pissed
Off Wild, lög sem eiga eflaust eftir
að koma mönnum á óvart, enda er
það kraftmikið rokk sem brýtur
dagskrána skemmtilega upp.
Undanfarið hef ég verið að reyna
að syngja, en ég hef það seint á dag-
skránni þegar ég er orðinn vel
mjúkur.“
40+40+20
The World Famous
Sex Buffet
EDDIE Murphy skellur til jarðar í orðsins fyllstu
merkingu í sumargríninu, hinni vísindaskáldsögulegu
Meet Dave, sem er reyndar mjög takmarkað grín þegar
upp er staðið. Murphy er í tvöföldu hlutverki geimver-
unnar Nr. 1. og geimskips sem lendir í í New York, nán-
ast í faðmi Frelsisstyttunnar. Ástæðan fyrir harkalegum
lendingarstaðnum er sú að geimverurnar koma frá plán-
etu sem er á síðustu orkudropunum og því er gripið til
örþrifaráða, að ræna orkubú jarðar.
Glórulaus gamanmynd sem státar að vísu af Murphy í
aðalhlutverki, en það er ófyndið og asnalegt gauf geim-
skipsins“ um götur New York, þar sem Nr.1. verður að
hafa uppi á kúlu sem var send til jarðar, hún á að hlaða í
sig orkuna. Dave kynnist mæðginum og lendir í klóm
réttvísinnar en þetta framandi vélmenni nær ekki teng-
ingu við áhorfandann frekar en jarðarbúa.
Dapurlegt að horfa upp á frábæra skemmtikrafta
Murphys gjörsamlega vannýtta, hann þarf ekki annað en
að geifla sig til að fá mann til að hlæja og einu ljósu
punktarnir eru fettur og brettur leikarans. En áhorfand-
inn þarf á talsvert meiru að halda en grettum í 90 mín-
útur, til þess eins að halda meðvitundinni. Ágætar brell-
ur en ónýtt handrit og ein slappasta mynd sumarsins til
þessa er brotlent á Liberty Island.
Maðurinn
sem hlunkaðist
til jarðar
Dapurlegur Skemmtikraftar Murphys eru gjörsamlega
vannýttir í kvikmyndinni Meet Dave, að mati gagnrýn-
anda Morgunblaðsins.
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYND
Sambíóin, Smárabíó, Regnboginn
Leikstjóri: Brian Robbins. Aðalleikarar: Eddie Murphy, Elizabeth
Banks, Gabrielle Union, Scott Caan. 90 mín. Bandaríkin 2008.
Meet Dave
bmnnn
RAPPARINN
óþekki, Snoop Dogg,
hefur lokið við end-
urhljóðblöndun á sí-
gildum Johnny Cash
slagara sem gefinn
verður út á plötu.
Slagarinn er enginn
annar en „I Walk the
Line“, eitthvert
þekktasta lag Cash.
Plötuna framleiðir
sonur Cash, John
Carter Cash, og
kemur hún til með
að heita Johnny
Cash Remixed.
Sonur Cash segir
engan efa á því að
faðir sinn hefði orðið
hrifinn af endur-
hljóðblöndununum.
Hann hafi fylgt hefð-
um í tónlistinni en þó
verið byltingar-
kenndur og það eigi
við um plötuna.
Platan kemur út
14. október í Banda-
ríkjunum.
Snoop hljóðblandar Cash
Snoop Dogg Hvernig skyldi „I Walk the Line“
hljóma í endurútgáfu rapparans? Forvitnilegt.