Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 23
Elskulegi sonur minn. Það er svo sárt að kveðja þig. Þú hefð- ir orðið 67 ára í dag. Þú varst góður drengur, þú varst einstakur, viljugur og alltaf tilbúinn að hjálpa. Þú varst sterkur en þó svo viðkvæm- ur. Þú hafðir meiri áhyggjur af öðrum en sjálfum þér. Þú varst ekki gamall elsku drengurinn minn þegar þú veiktist í mjöðm, aðeins 5 ára og lást í gifsi í rúmt ár á Sjúkrahúsinu í Vest- mannaeyjum og gekkst síðan með göngugrind í rúmt ár. En þú kvart- aðir aldrei. Á sjúkrahúsinu lást þú í stórri stofu (Salnum) með mörgum eldri mönnum, þar á meðal var Fær- eyingur sem þú gast svo vorkennt vegna þess að hann hafði rifið jakk- ann sinn. Þú varst að hugga hann, sagðir að þetta væri allt í lagi, hún mamma getur alveg gert við þetta fyrir þig. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. Hann hressir sál mína, leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns. Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig. Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum, þú smyr höfuð mitt með olíu, bikar minn er barmafullur. Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (23. Davíðssálmur.) Algóður Guð, ég bið þig að blessa Ágústu konu hans, sem er búin að vera svo lengi veik og hann hefur ann- ast svo vel ásamt fjölskyldunni, Svövu, Öldu Láru og tengdasyninum Halldóri. Þau voru öll svo samhent. Sævari þótti svo undurvænt um afa- börnin sín. Sævar var mikill blóma- karl, það sést best á ræktun þeirra Jóhannes Sævar Jóhannesson ✝ Jóhannes SævarJóhannesson fæddist í Vest- mannaeyjum 15. júlí 1941. Hann lést 20. mars síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Há- teigskirkju 3. apríl. Ágústu við sumarbústað þeirra. Þar var þeirra sælureitur enda bústað- urinn nefndur Unaðs- hóll. Þar voru gróður- settar rósir sem hann hafði mikla elsku á og einnig trjáplöntur enda leit reiturinn þeirra út eins og skógur. Þangað lá leiðin á skírdagsmorg- un til að dvelja yfir hátíð- ina en Sævar komst ekki nema á pallinn – þar hné hann niður. Ég sé hann í anda ganga í stuttbuxum um reitinn sinn, og sjá vítt til allra átta og gæla við hverja plöntu. Smávinir fagrir, foldarskart, fífill í haga, rauð og blá brekkusóley, við mættum margt muna hvort öðru að segja frá. Prýðið þér lengi landið það, sem lifandi guð hefur fundið stað ástarsælan, því ástin hans allstaðar fyllir þarfir manns. Faðir og vinur alls, sem er, annastu þennan græna reit. Blessaðu, faðir, blómin hér, blessaðu þau í hverri sveit. Vesalings sóley, sérðu mig? Sofðu nú vært og byrgðu þig. Hægur er dúr á daggarnótt. Dreymi þig ljósið, sofðu rótt! (Jónas Hallgrímsson.) Góður drengur er fallinn frá svo snöggt. Elsku Gústa, Svava, Jóhanna María, Alda Lára og fjölskylda og hjartkær börnin mín og fjölskyldur, Guð gefi ykkur styrk í sorginni. „Son- ur minn sofðu í ró.“ Ég þakka þér allt. Guð geymi þig. Hinsta kveðja. Mamma. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 23 urslausa og harðduglega mann, og vin eins og hann reyndist okkur hjónum. Okkur er það ljúft að minnast þín og allra þeirra góðu stunda sem við höf- um átt saman í ára tugi, í laxveiði, jeppaferðum, skötuveislum og grill- veislum, já og þeirri síðustu í sum- arbústað þínum fáeinum dögum áður en þú kvaddir þennan heim. Við mun- um seint gleyma þeirri frábæru stund með ykkur Höbbý. Það er svo margs að minnast þegar sest er niður og litið er til baka yfir æviferil Magnúsar Jenssonar, þær minningar munum við geyma með okkur,en hvar sem hann fór gustaði af honum, það komst enginn hjá því að sjá að þarna fór maður sem vissi hvað hann vildi, maður sem þoldi ekki slóðaskap eða leti, bara ganga í verkið og klára það. Þar var engin lognmolla eða hálfkák, hann gat líka sagt mönn- um til syndanna ef honum líkaði ekki við þá eða þeirra gerðir. Maggi var mikil félagsvera og hafði gaman af að bjóða til stórra samkvæma enda hafði hann listakokk og eiginkonu sér við hlíð, hana Höbbý og yndislegt heimili. Kæri vinur Maggi, ég þykist vita að þú sért þegar farinn að reisa hús, og hafðu það af þeirri stærð sem þér sæmir. Við þökkum fyrir að hafa fengið að vera þér samferða og kveðjum þig með söknuði og virðingu. Eiginkonu og fjölskyldunni allri sendum við okkar samúðarkveðjur. Á. Inga og Hafsteinn Reykjalín. Í dag er kvaddur góður félagi og vinur, Magnús G. Jensson. Leiðir okkar Magnúsar lágu fyrst saman á námskeiði fyrir meirapróf bifreiðastjóra á haustdögum árið 1955. Þar vakti hann athygli með góðri frammistöðu og skeleggum at- hugasemdum settum fram með hárri raust, sem einkenndi hann alla tíð. Árið 1964 var fyrsti Kiwanisklúbb- urinn á Íslandi, Hekla, stofnaður og árið 1966 gekk Magnús til liðs við okkur og var virkur félagi til æviloka. Gegndi hann tvisvar embætti forseta klúbbsins og sinnti fjölmörgum stjórnar- og nefndastörfum auk þess að eiga stóran þátt í að bygging Kiw- anishússins við Engjateig varð að veruleika. Þegar ég hóf byggingu sumarhúss við Meðalfellsvatn í Kjós árið 1968 þá var Magnús þar fyrir og lentum við fljótlega í stjórn Félags bústaðaeig- enda og í framhaldi af því urðu sam- skipti okkar mikil. Báðir höfðum við mikla ánægju af laxveiðum og fórum margar skemmtilegar veiðiferðir vítt um landið. Nú hin seinni ár fórum við haustferðir í Veiðivötn á Landmanna- afrétti og var slík ferð í undirbúningi í næsta mánuði. Auk áhuga á veiðum hafði Magnús yndi af ferðalögum al- mennt og voru þau hjónin samhent í því. Hann hafði áhuga á akstri og átti bíla sem hentuðu vel til ferðalaga og útilegu jafnt í byggðum sem og á öræfum. Fyrir nokkrum árum seldu þau hjónin sumarhús sitt við Meðalfells- vatn og keyptu sér annað á bökkum Ytri-Rangár í landi Ægissíðu. Þar undu þau hag sínum vel, enda var Höbbý þar komin á sínar heimaslóðir. Magnús lærði trésmíði og var um- svifamikill húsasmíðameistari árum saman. Rak hann ásamt félögum sín- um byggingafélögin Miðás og Miðafl, sem byggðu og seldu íbúðir meðal annars í Breiðholti. Eftir slit þessara félaga byggði hann sjálfur nokkur hús í Grafarvogi. Ég naut liðveizlu Magnúsar við byggingu annars sumarhúss míns á erfiðum tímum í Kjósinni svo og við- byggingu við hús mitt í Byggðarenda, sem Magnús sá um árin 2002-3 og mun hafa verið hans síðasta stóra verkefni. Að lokum vil ég þakka Magnúsi G. Jenssyni fyrir langa og góða samveru og sendi Höbbýju og ættingjum öllum innilegar samúðarkveðjur frá mér og fjöl- skyldu minni. Blessuð sé minning hans. Ólafur G. Karlsson.  Fleiri minningargreinar um Magnús G. Jensson bíða birting- ar og munu birtast í blaðinu næstu daga. SENDUM MYNDALISTA ✝ Ástkær afi okkar, tengdafaðir og langafi, SVERRIR HERMANNSSON húsasmíðameistari, áður til heimilis í Aðalstræti 38, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð laugardaginn 12. júlí. Auður Elva Jónsdóttir, Snæbjörn Magnússon, Guðrún Lilja Jónsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Sverrir Már Jónsson, Jón Ásmundsson, Sigrún Gunnarsdóttir, Birkir Már, Katrín og Nói. ✝ Eiginmaður minn elskulegur, GÚSTAF JÓHANNESSON organisti, er látinn. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd aðstandenda, Solveig M. Björling. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, RAGNAR KJARTANSSON, lést laugardaginn 12. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 18. júlí kl. 11.00. Helga Thomsen, Ragnheiður Sif Ragnarsdóttir, Birgir Arnarson, Regína Hrönn Ragnarsdóttir, Jóhann Friðrik Ragnarsson, Ragnheiður Pétursdóttir, Ragnar Örn Birgisson, Anna Helga Jóhannsdóttir og Sunna María Jóhannsdóttir. ✝ Ástkær frænka mín, HELGA KRISTJÁNSDÓTTIR, Brekkustíg 14, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 18. júlí kl. 13.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Hlíf Thors Arnlaugsdóttir. ✝ Okkar ástkæra systir og frænka, MARGRÉT ÁGÚSTA ÁGÚSTSDÓTTIR, Gústa, áður til heimilis á Leifsgötu 10, Reykjavík, lést á dvalarheimilinu Grund 11. júlí. Útförin verður auglýst síðar. Aðstandendur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, tengdasonur, afi, langafi og bróðir, ÞRÁINN PÁLSSON, Heiðarbrún 67, lést á heimili sínu fimmtudaginn 10. júlí. Útför hans fer fram frá Hveragerðiskirkju laugar- daginn 19. júlí kl. 14.00. Auður Aðalsteinsdóttir, Andrea Margrét Þráinsdóttir, Guðjón Sigurðsson, Aðalsteinn Dagsson, Selma D. Ásmundsdóttir, Ómar Geirsson, Aksonesuda Sangmee, Emma Geirsdóttir, Kristján V. Grétarsson, Andrea Margrét Þorvaldsdóttir, afabörn, langafabörn og systkini. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR ÞORSTEINN EINARSSON, Freyvangi 17, Hellu, lést á Landspítala Fossvogi sunnudaginn 13. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Helgi Bjarni Óskarsson, Guðrún Arndís Eiríksdóttir, Sigríður Ósk Helgadóttir, Þrúður Helgadóttir, Óskar Helgason, Jens Bjarni Sigurðsson. ✝ Elskulegur bróðir okkar, KNÚTUR HAFSTEINN MATTHÍASSON frá Hólmavík, lést á dvalarheimilinu Uppsölum, Fáskrúðsfirði, miðvikudaginn 10. júlí. Útförin fer fram frá Heydalakirkju laugardaginn 19. júlí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á dvalarheimilið Uppsali. Fyrir hönd systranna, Þuríður Matthíasdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.