Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 2
2 TUESDAY 15. JULY 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud- laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is BÆJARRÁÐ Kópavogs lagði til á fundi síðastliðinn fimmtudag að framtíðarskipulag Kársness, sem kynnt var íbúum þann 8. júlí, yrði auglýst og sett í skipulagsferli. Þetta eru íbúar í Kársnesi ákaflega ósáttir við. Tillagan verður tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar í dag. Íbúasamtökin Betri byggð telja bæjaryfirvöld hafa svikið loforð við íbúana um samráð við þá um skipu- lagið. Miklar deilur hafa staðið um framtíðarskipulagið, frá fyrstu til- lögum árið 2006, enda telja íbúar það vega mjög að lífsgæðum sínum. Arna Harðardóttir, formaður Betri byggðar, segir nýja skipulagið um- fangsmeira en hið fyrra. „Okkur finnst mjög alvarlegt að bærinn haldi því nú fram að dregið hafi verið úr fyrri skipulagstillögum. Þetta skipulag er umsvifameira en það sem birt var í mars 2007 og við mótmæltum síðasta sumar. Bærinn miðar tölurnar nú við fyrstu tillög- una frá 2006 til að hljóma betur.“ Hún segir íbúa jafnframt mjög ósátta við að ekki hafi verið haft samráð við samtökin um skipulagið líkt og lofað hafi verið. „Það er greinilegt að það á að kýla þetta í gegn sama hvað tautar og raular og íbúar eru slegnir yfir þessum vinnu- brögðum. Fyrirspurnir voru ekki leyfðar á kynningarfundinum og svo samþykkti bæjarráð tveimur dögum seinna að auglýsa skipulagið.“ Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri, segir að komið hafi verið til móts við öll sjónarmið íbúanna. „Ég veit ekki til þess að skipulag hafi áður verið jafn vel kynnt og framtíðarskipulag- ið í Kópavogi. Og það er nógur tími eftir til að þróa þessa hugmynd með fólkinu.“ „Á að kýla þetta í gegn“  Íbúasamtökin Betri byggð segja nýtt skipulag mjög umfangsmikið  Bæjarstjórinn segir nægan tíma til að þróa hugmyndirnar áfram Í HNOTSKURN »Á bæjarstjórnarfundi íKópavogi í dag verður tek- ið fyrir hvort auglýsa eigi til- lögu að nýju skipulagi í Kárs- nesi. » Íbúasamtökin Betri byggð,sem mótmæltu fyrri til- lögu harðlega í fyrrasumar, segja að nýja tillagan sé um- fangsmeiri en sú fyrri. »Þau harma einnig að ekkihafi verið haft samráð við þau um þróun skipulagsins líkt og bæjaryfirvöld höfðu lofað. Gunnar I. Birgisson Arna Harðardóttir VARLA geta íbúar Eskifjarðar kvartað mikið undan rigningunni, án hennar færum við á mis við það sjónarspil sem regnboginn er. Og allt bendir til að rigningin verði ekki þrálát að þessu sinni. Líkur eru á einhverri úrkomu á aust- anverðu landinu í dag en síðan á að létta til. Blessuð rigningin! Ljósmynd/Helgi Garðarsson Regnboginn tekur ekkert fyrir að ramma inn Eskifjörð FYRSTI fundur nýs meirihluta Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar í Grindavík fór fram í gær. Á honum var starfslokasamningur Ólafs Arnar Ólafssonar, fyrr- verandi bæjarstjóra, samþykktur líkt og ráðningarsamn- ingur nýs bæjarstjóra, Jónu Kristínar Þorvaldsdóttur. Jóna Kristín mun þiggja 20% lægri laun en forveri hennar í starfi – 985 þúsund krónur á mánuði. Einnig kom fram að kostnaður við bæjarstjóraskiptin sé um 19,5 milljónir króna, fyrir utan launatengd gjöld. „Ekkert nýtt í málefnasamningi“ Nokkrar umræður fóru fram um nýjan málefnasamn- ing meirihlutans. Fulltrúar sjálfstæðismanna létu m.a. bóka að það vekti undrun að ekkert væri minnst á at- vinnumál í samningnum, og ljóst að ef atvinnumál yrðu ekki sett í forgang yrði einungis stöðnun og samdráttur í bæjarfélaginu. Annars þótti þeim samningurinn kunn- uglegur. „Ekkert nýtt er í málefnasamningi B- og S-lista, einungis mál og framkvæmdir sem þegar eru í farvegi,“ segir í bókuninni. andri@mbl.is Þiggur 20% lægri laun en fyrri bæjarstjóri Ljósmynd/Víkurfréttir Fyrsti fundur Þrátt fyrir átök í bæjarstjórn Grindavík- ur gáfu fulltrúar allra flokka sér tíma til myndatöku. ÁTJÁN aðildarfélög af tuttugu greiddu atkvæði um nýgerða samn- inga Bandalags háskólamanna og samninganefndar ríkisins fyrir liðna helgi. Félagsmenn sautján fé- laga hafa samþykkt samninginn. Stéttarfélag lögfræðinga felldi hann hins vegar. Enn stendur yfir atkvæðagreiðsla hjá Félagi há- skólakennara og kennarafélagi Kennaraháskóla Íslands. Atkvæða- greiðsla þeirra stendur til mið- vikudagsins 16. júlí, á miðnætti. Guðlaug Kristjánsdóttir, formað- ur BHM, segir í tilkynningu að lík- lega hafi stuttur samningstími haft úrslitaáhrif á afstöðu meirihlutans. Bandalagið geri þá vissulega ráð fyrir því að ríkisstjórnin standi við orð sín þegar aftur verður sest að samningaborði næsta vor, og fram- koma samninganefndar ríkisins verði í samræmi við það sem fram komi í stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar, þ.e. um að menntun sé for- senda þróunar í landinu. Laun há- skólamanna verði að endurspegla það. Þátttaka í atkvæðagreiðslunni var mest hjá Stéttarfélagi háskóla- manna á matvæla- og næring- arsviði, eða um 47%. Minnst var hún hjá Félagi háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins, eða 23,1%. andri@mbl.is Sautján aðildarfélög BHM samþykktu Í HNOTSKURN »Stéttarfélag lögfræðingafelldi samninginn; 46,7% sögðu já, 50% nei og 3,3% skil- uðu auðu. FYRSTA uppskeran í ár af íslensk- um kartöflum er nú komin í mat- vöruverslanir. Nóatúni barst í gær fyrsta send- ingin af kartöflum frá Eyrarbakka og samkvæmt upplýsingum frá Halldóri Björnssyni, gæðastjóra Kaupáss, lítur uppskeran vel út í ár. „Þetta eru gullfallegar kartöflur. Þær eru mjög jafnar og líta mjög vel út.“ Markús Ársælsson, kartöflubóndi á Hákoti í Þykkvabæ, segir erfitt að segja til um hvernig kartöflurnar verði í sumar. „Tímabilið er rétt að byrja og maður veit svo sem aldrei hvað gerist. En núna er ástandið ágætt – svipað og í fyrra.“ haa@mbl.is Fyrsta upp- skeran komin Morgunblaðið/Golli 22 starfsmenn íslenska flugfélagsins JetX, sem flýgur fyrir Primera Tra- vel Group í Skandinavíu, fengu nýlega uppsagnarbréf. Jón Karl Ólafsson, forstjóri JetX, segir ástæðuna ein- ungis vera að fyrirtækið sé að skipta út MD-83 farþegaþotum fyrir Boeing 737-þotu. „Við sendum þeim uppsagnarbréf sem voru á MD-83 vélunum og erum að færa þá yfir á Boeing-þotuna. Á endanum verða vonandi allir komnir aftur með vinnu og ef til vill fleiri, þar sem við ætlum að bæta við tveimur, jafnvel þremur, nýjum vélum næsta sumar. Vonandi endum við með fleiri störf þá en við erum með á þessu ári.“ Hann segir jafnframt að það séu mögulega 10-12 manns sem þurfi að vera frá starfi í tvo til þrjá mánuði. „Það er þó ekki verra en svo, sem bet- ur fer. Við gerum þetta núna enda er alltaf meira að gera á sumrin og hag- kvæmara að losa okkur við vélina núna svo við þurfum ekki að sitja uppi með hana í vetur.“ haa@mbl.is Uppsagnir hjá JetX „Einungis verið að flytja starfsfólk í nýjar vélar“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.