Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 15.07.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 11 ORKUVEITA Reykjavíkur tók fyr- ir helgi í notkun sex nýja metanbíla og fljótlega munu níu til viðbótar koma á götuna. Í þessum bílaflota eru fimm Ford Focus C-Max og tíu Ford Transit-metanbílar og eru þeir fluttir inn frá Þýskalandi. OR hefur um nokkra hríð notað met- anbíla. Í tilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að við kaupin aukist hlutfall vistvænna ökutækja hjá fyrirtækinu úr 10% í 20% og stefnt sé að því að hlutfallið verði orðið 55% árið 2013. Þá segir að met- anbílar séu hagkvæmari en hefð- bundnir bensín- og díselbílar og bent á að verð á metani samsvari 85 kr./ltr. fyrir 95 oktana bensín. Metanbílarnir geta áfram gengið fyrir bensíni og eru með varatank sem nota má ef langt er í næstu gasáfyllingarstöð, en bílarnir kom- ast um 300 kílómetra á einni met- angasáfyllingu. Í dag er einungis ein metanstöð á Íslandi og er við N1 stöðina á Bíldshöfða. andresth@mbl.is Ljósmynd/Orkuveita Reykjavíkur Hagkvæmur Sjálfsagt vildu margir bíleigendur vera í sporum Orkuveitu Reykjavíkur, en verð á metani er sem svarar 85 kr./ltr. fyrir 95 okt. bensín. Fleiri metanbílar Orkuveitu Reykjavíkur á göturnar MARGIR hafa orðið varir við bág- borið ástand furu á suður- og vest- anverðu landinu nú í vor og óttast að á ferðinni sé einhvers konar hættulegur trjásjúkdómur. Dr. Að- alsteinn Sigurgeirsson, for- stöðumaður Skógræktar ríkisins á Mógilsá segir svo ekki vera í Fréttabréfi Skógræktarinnar. Hann segir að veðurfarið eftir áramót, einkum í marsmánuði skýri líklega að mestu ljótleika furanna. Skemmdirnar lýsa sér einkum í rauðu og skemmdu barri þeim megin sem snýr mót suðri, eða hjá ungum trjám sem standa á skjól- lausum berangri. „Furur hafa langar nálar sem gufar út um leið og umhverfishitinn fer upp fyrir frostmark. þegar jörð er frosin og sólfar mikið taka fururnar að gufa út öllu vatni sem tiltækt er og þorna upp vegna þess að rætur trjánna ná ekki að draga vatn upp úr frosnum jarðvegi. Afleiðing- arnar koma síðan fram þegar vor- ar og nálarnar fara að roðna,“ segir Aðalsteinn. jonhelgi@mbl.is Morgunblaðið/Jim Smart Vont ástand hjá furunni Í NÝJUM tillögum Evrópusam- bandsins er lagt til að styrkir til sjávarútvegs verði auknir í allt að 2 milljarða evra. Vakin er athygli á þessu á heimasíðu LÍÚ. Árlegir styrkir ESB til sjávarútvegsins í aðildarlöndunum eru nú um 84 milljarðar króna á ári. Mest af styrkjunum fara til Frakklands, Spánar og Ítalíu, en í löndunum eru stærstu fiskiskipaflotarnir. Í tillögunum er lagt til að lágmarks- olíustyrkur verði 30 þúsund evrur á fiskiskip. ESB vill auka styrki til sjómanna FRÉTTIR STANGVEIÐI Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is „LEIÐSÖGUMENNIRNIR segja þetta stærsta fluguveidda laxinn sem veiðst hefur í ánni, þeir vissu ekki um stærri. Hann vó 44 lbs eða 20 kíló,“ segir Þórarinn Sigþórsson tann- læknir sem var að koma frá Kola- skaga í Rússlandi þar sem hann veiddi sannkallað tröll í Yokanga- ánni. „Laxinn tók fluguna Cascade, númer sex. Þetta var hængur, ný- genginn, rosaleg skepna. Viðureignin var ógurleg, enda þeir báðir vanir sem voru hvor á sínum endanum! Laxinn var ekki að láta fara neitt með sig, leitaði út í strauminn og bakvið steina. Þegar maður hefur svona stórlax á verður að gæta þess að setja bremsuna ekki fasta heldur verður að gefa allt laust. Þú stoppar ekki svona fisk. Þegar menn eru að missa þessa stóru fiska, þá er það oft vegna þess að menn herða bremsuna of mikið. Fiskurinn heldur áfram þegar hann finnur viðnámið. Hann fer ekkert úr hylnum. Hann snýr við og kemur til baka. Það þarf að fá línuna til að liggja sem beinasta,“ segir Þórarinn. Hann segir viðstadda greina á um tímann sem viðureignin tók, en hann telur það hafa verið tæp klukkustund. „Ég setti í hann frá landi og landaði honum á svipuðum stað. Síðan var ég stumrandi yfir laxinum í á annan klukkutíma, til að vera viss um að hann væri örugglega búinn að ná styrk. Þegar ég sleppti af honum tak- inu tók hann roku út í ána. Hann var reiðubúinn í nýjan slag!“ Laxinn var um 125 cm langur. Í fyrrasumar veiddi Þórarinn ná- kvæmlega jafn þungan lax í Altaánni í Noregi og sögðum við einnig frá þeirri viðureign. Þórarinn var hæstánægður með ferðina, enda „moldveiddi“ hann, alls 64 laxa, þar af 42 í seinni vikunni. „Þarna hrúguðust inn tuttugu pund- ararnir. Það dugði til að halda á manni hita í ferðinni,“ segir hann. Stór Þórarinn Sigþórsson með stórlaxinn, 20 kílóa skepnu sem hann sleppti aftur, við Yokanga-ána í Rússlandi. „Þetta var hængur, ný- genginn, rosaleg skepna“ kt. 540291-2259, hefur birt lýsingar vegna töku víxla til viðskipta á OMX Nordic Exchange Iceland hf. (OMX ICE) og gert aðgengilegar almenningi frá og með 15. júlí 2008. Eftirfarandi víxlaflokkar hafa verið teknir til viðskipta: • Flokkur að heildarfjárhæð ISK 20.000.000.000. Víxlar að fjárhæð ISK 100.000.000 voru gefnir út þann 20. júní sl. og verða teknir til viðskipta á OMX ICE þann 15. júlí 2008. Auðkenni flokksins á OMX ICE er LAIS 08 0903. Víxlarnir eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum með lokagjalddaga þann 3. september 2008. Víxlarnir bera ekki vexti. • Flokkur að heildarfjárhæð ISK 20.000.000.000. Víxlar að fjárhæð ISK 100.000.000 voru gefnir út þann 20. júní sl. og verða teknir til viðskipta á OMX ICE þann 15. júlí 2008. Auðkenni flokksins á OMX ICE er LAIS 08 1001. Víxlarnir eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum með lokagjalddaga þann 1. október 2008. Víxlarnir bera ekki vexti. • Flokkur að heildarfjárhæð ISK 20.000.000.000. Víxlar að fjárhæð ISK 100.000.000 voru gefnir út þann 20. júní sl og verða teknir til viðskipta á OMX ICE þann 15. júlí 2008. Auðkenni flokksins á OMX ICE er LAIS 08 1105. Víxlarnir eru í ISK 10.000.000 nafnverðseiningum með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2008. Víxlarnir bera ekki vexti. Lýsingarnar er hægt að nálgast hjá útgefanda Landsbanka Íslands hf., Austurstræti 11, 155 Reykjavík eða á vefsetri útgefanda, www.landsbanki.is, fram til lokadags víxlaflokkanna. Reykjavík, 15. júlí 2008 ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 43 00 4 07 /0 8 ÍS L E N S K A /S IA .I S /L B I 43 00 4 07 /0 8 Landsbanki Íslands hf. Rangt nafn í myndatexta Mistök voru gerð í myndatexta á bls. 11 í Morgunblaðinu í gær í frétt um gróðrarstöðina Heiðarblóm í Flóanum. Konan á myndinni heitir Margrét Magnúsdóttir garðyrkjufræð- ingur. Beðist er velvirðingar á mistökunum. 272 þúsund í byrjunarlaun Í frétt um kjarasamning lækna var röng tala nefnd um byrj- unarlaun ungra lækna. Byrj- unarlaunin eru 272 þúsund á mánuði, en ekki 217 þúsund eins og sagði í fréttinni. Virðulegt kaffihús Þau mistök voru gerð í Morg- unblaðinu á föstudag að sagt var að Gunnar Gunnarsson, íbúi við Laugaveg, vildi kristi- legt kaffihús. Hið rétta er að hann vill virðulegt kaffihús sem lokar á kristilegum tíma en vill síður fá krá við hliðina á sér. LEIÐRÉTT VIÐSKIPTAVINUR í byggingavöruverslun getur gert ráð fyrir því að í tæplega 30% tilvika vanti alfarið íslenskar varnaðarmerkingar á efnavöru. þetta sýnir könnun sem framkvæmd var á flestöllum heilbrigðiseftirlits- svæðum á landinu. Alls voru kannaðar 2.272 vörutegundir í 16 verslunum. Helstu nið- urstöður könnunarinnar voru að 55% vara voru rétt merktar á íslensku, í 28 % tilvika vantaði alfarið íslenskar merkingar, en í 17% tilvika voru vör- urnar merktar á íslensku en á ófullnægjandi hátt. Vanmerktar vörur voru í öllum verslunum sem kannaðar voru. Ólögleg eiturefni og bannvörur fund- ust í nokkrum verslunum. Byggingavöruverslanir hafa á boðstólum mikið úrval efnavöru en hátt hlutfall inniheldur efni sem flokkast hættulegt og þurfa því íslenskar varn- aðarmerkingar í samræmi við reglugerð. Röng meðhöndlun getur valdið slysi, örorku eða jafnvel dauða. jonhelgi@mbl.is Verslanir selja ólöglegt eitur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.