Morgunblaðið - 15.07.2008, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
UNGLÆKNAR eru óánægðir með kjarasamning
sem undirritaður var nú fyrir helgi. Samning-
urinn tryggir læknum 4,14% launahækkun. Fyrir
nýútskrifaðan lækni þýðir það 12.000 króna
hækkun.
„Við lögðum sérstaklega áherslu á það að vinna
að grunnlaunahækkun […] með það að leiðarljósi
að keppa við verðbólguna,“ segir Ragnar Freyr
Ingvarsson, formaður Félags ungra lækna. Hann
vill meina að sú leiðrétting sem gerð var á kjörum
ungra lækna fyrir tveimur árum hafi orðið verð-
bólgunni að bráð og nú heltist þeir því úr lestinni
á nýjan leik.
„Þarna er verið að bjóða ungum læknum kjara-
skerðingu og raunverulega raunlækkun miðað við
verðbólgu,“ segir Ragnar Freyr og segist ekki
geta hvatt starfssystkin sín til að ganga að samn-
ingnum. Segir Ragnar Freyr vonina sem vaknaði
með kjarabótunum árið 2006 um að tími ung-
lækna væri kominn vera að engu orðna.
Upphaflega stefnt að 6% hækkun
Við samningaviðræðurnar var lagt upp með að
fá sömu hækkanir og þeir sem gert hafa samninga
að undanförnu. Upphaflega var því gerð krafa um
6% hækkun sem er ígildi krónutöluhækkunar fé-
laga Bandalags háskólamanna.
Gunnar Ármannsson, formaður samninga-
nefndar Læknafélagsins, segir að samninga-
nefndin hafi lagt áherslu á að ná fram prósentu-
hækkun og því fylgi misháar fjárhæðir til félags-
manna. Unglæknar hafi lægst laun og hafi því
fengið minnstar hækkanir. Hann bendir þó á að
þeir hafi fengið umtalsvert meiri hækkanir en
aðrir félagsmenn Læknafélagsins. Hann bendir
einnig á að verðbólgan hafi ekki aðeins rýrt kjör
unglækna, hún hafi gengið jafnt yfir alla stéttina.
„Með þessu er samt ekki verið að segja að kjör
unglækna séu góð, það er af og frá,“ segir Gunnar.
Formaðurinn mælist til þess að gengið verði að
samningnum þótt hann sé ekki sérlega ánægður
með hann. Kosið verður um samninginn á næstu
vikum en í millitíðinni verður haldinn kynningar-
fundur um hann. Gunnar segir að til að ná betri
samningi þurfi að grípa til aðgerða en nú sé ekki
rétti tíminn til þess. Samningurinn nú sé því
fyrsta skrefið af mörgum til betri kjara lækna.
Verðbólgudraugur reikar
enn um í launaumslaginu
Ungir læknar telja sig
hlunnfarna í samning-
unum frá því fyrir helgi
Morgunblaðið/Ásdís
Læknar að störfum Prósentuhækkun drýgir tekjur reyndari lækna mun meira en unglækna en byrj-
unarlaun þeirra nema nú 272.000 krónum og þykir þeim það ekki há laun fyrir störf sín.
Ragnar Freyr Ingvarsson segir unga lækna
gjarna bera skarðan hlut frá samningaborðinu.
Réttindi þeirra gangi kaupum og sölum í hrossa-
kaupum við gerð kjarasamninga. Sérstaklega
var að þeim vegið í næstsíðustu kjarasamn-
ingum þegar unglæknar voru sviptir frítökurétti
sínum með öllu. Aðrir læknar héldu sínum rétti
til hvíldar.
„Lögum samkvæmt hefði mátt láta menn
vinna svo dögum skipti án þess að veita þeim
nokkurt frí,“ segir Ragnar Freyr. „Eitthvað annað
fékkst fyrir aðra hópa í staðinn,“ bætir hann við
og segir unglækna ekki hafa fengið þetta bætt á
neinn hátt.
Þetta var leiðrétt í kjarasamningunum árið
2006 en í þeim samningi vænkaðist hagur ung-
lækna töluvert. Með nýgerðum samningum telur
Ragnar Freyr þó stefna í gamla farið aftur.
Unglæknar bera skarðan hlut frá borði
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞRÝSTINGUR um fjárhagslegt að-
hald var á meðal orsakaþátta í flug-
óhappi TF-SYN, Fokker-vélar Land-
helgisgæslunnar, þegar búnaður við
nefhjólið brotnaði í lendingu á flug-
vellinum í Vágar, Færeyjum, í októ-
berbyrjun 2004. Ströngustu öryggis-
kröfum var ekki fylgt og ónothæfum
varahlut komið fyrir í lendingarbún-
aðinum vinstra megin, ásamt því sem
framlenging fyrir leyfi fyrir búnaðin-
um við nefhjólið hafi verið útrunnin.
Flugvélin hafi því verið óflughæf og
flugið ólögmætt.
Þetta kemur fram í harðorðri
skýrslu Rannsóknarnefndar flug-
slysa um atvikið, sem átti sér stað
einn föstudagsmorgun haustið 2004.
Framlengingin útrunnin
Atvikið bar þannig að að fimm
áhafnarmeðlimir og tólf farþegar
fundu högg við lendingu. Þegar vélin
var svo dregin að vallarhliðinu upp-
götvaðist að búnaður við nefhjólið
hefði brotnað. Skýrsluhöfundar fara
hörðum orðum um eftirlit með öryggi
vélarinnar og hvetja Gæsluna til að
fylgja ávallt eigin öryggisreglum.
Flugvélin hafi verið óflughæf og
lendingarbúnaður við nefhjólið kom-
inn fram yfir framlengingu Flugmála-
stjórnar, sem rann út 28. september.
Atburðarásin sem að ofan er rakin
átti sér langan aðdraganda og verður
hér stiklað á stóru.
Í sem stystu máli má rekja upphaf-
ið til þess að Gæslan gerði sér grein
fyrir að hluti lendingarbúnaðar væri
kominn fram yfir uppgefinn ending-
artíma og stefnt að viðgerð árið 2004.
Leitað var til varahlutafyrirtækis-
ins Lux Aerospace um lánsbúnað, og
það gerði aftur samning við flugþjón-
ustufyrirtækið Florida Aviation
Repair Services um viðgerð á upp-
runalega búnaðinum. Sá fyrirtækið á
Flórída jafnframt Gæslunni fyrir
varahlutum, lánsbúnaði sem yrði not-
aður þar til farið hefði verið yfir upp-
runalega búnaðinn.
Annað eintakið einnig ónothæft
Þegar lánsbúnaðurinn barst Gæsl-
unni frá Flórída var sá hluti hans sem
sneri að lendingarbúnaðinum vinstra
megin úrskurðaður ónothæfur, þrátt
fyrir fylgigögn um annað, og Flug-
málastjórn látin vita af því mati.
Um líkt leyti sótti Gæslan um fram-
lengingu fyrir notkun upprunabúnað-
arins til Flugmálastjórnar og var sú
umsókn veitt og svo í annað sinn í maí.
Því næst sendi Lux Aerospace annað
eintak af lánsbúnaðinum vinstra meg-
in, í gegnum fyrirtækið á Flórída, og
var það talið ónothæft.
Flugvirkjar Gæslunnar neituðu að
koma búnaðinum fyrir og leituðu yf-
irmennirnir þá ráða hjá utanaðkom-
andi aðila, áður en búnaðurinn var svo
settur undir vélina í júlí 2004.
Samkvæmt skýrslunni var Flug-
málastjórn ekki látin vita af því að
grunur léki á að seinna eintakið af
búnaðinum vinstra megin væri ónot-
hæft, en hún veitti framlengingu fyrir
notkun þess. Rann sú framlenging út
í desember 2004, en í september í til-
viki lendingarbúnaðarins sem gaf sig.
Send óflughæf í loftið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fokker-vél Hluti lendingarbúnaðar TF-SYN brotnaði við lendingu í Færeyjum kl. 9:35 að morgni 1. október 2004.
Flugvél Gæslunnar, TF-SYN, flogið þrátt fyrir að hafa verið talin óflughæf
Flugvirkjar Gæslunnar neituðu að koma fyrir lendingarbúnaðinum
LÖGREGLAN á Suðurnesjum hafði
afskipti af leigubílstjóra sem stadd-
ur var við Keflavíkurflugvöll í gær-
morgun, í kjölfar þess að ábending
barst um að hann væri ölvaður.
Að sögn lögreglu var maðurinn
ekki staðinn að akstri, en hann við-
urkenndi fúslega að hafa ekið undir
áhrifum. Bílstjórinn sem býr í
Reykjavík greindi lögreglu frá því,
að hann hefði fengið sér nokkra
bjóra kvöldið áður, farið seint að
sofa og vaknað snemma til að taka
á móti farþegum við Leifsstöð.
Hann hafði ekki ekið með farþega.
Bílstjórinn má búast við hárri
sekt auk ökuleyfissviptingar.
Drukkinn
leigubílstjóri
FARÞEGAR sem komu með Boeing
MB-90/30-flugvél Iceland Express
frá Lundúnum urðu ekki varir við,
þegar sprakk á hjólbarða vélar-
innar. Vélin var þegar lent en í
þann mund sem hún var að nema
staðar sprakk hjólbarði á öðru
vænghjóli hennar.
Nokkrar tafir urðu af þessum
sökum, en þegar um leið og ljóst
var hvað hafði gerst, tók flugstjór-
inn þá ákvörðun að beygja af braut-
inni þar sem flugvélin var stöðvuð.
Flytja átti farþegana 148 með rútu
að flugstöðinni, en það reyndist
tímafrekt sökum þess að engin rúta
var til taks á flugvallarsvæðinu.
Var því gripið til þess ráðs að fá
rútur frá SBK í Keflavík, og tók það
um stundarfjórðung. Eftir að far-
þegar höfðu verið fluttir á brott var
skipt um hjólbarða og voru engar
frekari skemmdir. andri@mbl.is
Dekk sprakk
í lendingu
Ljósmynd/Víkurfréttir
JAFNFRAMT því sem flug-
virkjum Gæslunnar er hrósað
fyrir að neita að setja ólög-
mætan lendingarbúnað á TF-
SYN eru yfirmenn þeirra
gagnrýndir í skýrslu Rann-
sóknarnefndar flugslysa um
atvikið 2004.
Þessir sömu yfirmenn hafi
verið undir þrýstingi um að
lágmarka útgjöld fjárhagsárin
2003 og 2004. Viðhaldi hafi
verið slegið á frest vegna
þröngrar fjárhagsstöðu.
Ástæða þess að búnaðurinn
við nefhjólið brotnaði hafi ver-
ið sú að sökum tæringar hafi
málmurinn ekki þolað álagið
þegar á reyndi.
Margir komu að atburða-
rásinni og er Flugmálastjórn
átalin fyrir að hafa ekki geng-
ið nægilega vel úr skugga um
að allt væri með felldu og að
búnaðurinn væri nothæfur.
Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið fær einnig sinn skammt
af gagnrýninni, en það er talið
hafa brugðist Gæslunni með
ófullnægjandi framlögum til
reksturs og viðhalds flugvéla,
ásamt því að hafa ekki veitt
henni heimild til að uppfylla
nýjar evrópskar rekstrar- og
öryggisreglur (JAR).
Þá kemur fram að viðgerð
flugþjónustufyrirtækisins á
Flórída hafi verið álitin með
öllu ófullnægjandi, enda hafi
það ekki farið að reglum.
Málmurinn
lét undan