Morgunblaðið - 15.07.2008, Page 8

Morgunblaðið - 15.07.2008, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MJÖG skiptar skoðanir hafa verið um hvort Íslendingar eigi þess raun- verulega kost að taka upp evru sem gjaldmiðil án þess að ganga í Evr- ópusambandið. Flestir sérfræðingar hafa haldið því fram að kostirnir séu aðeins tveir; að taka upp evru með því að ganga í Myntbandalagið og fá aðild að ESB eða búa áfram við óbreytt ástand í gengismálum. Af og til koma þó fram þau sjón- armið að unnt sé að taka evruna upp einhliða, án samþykkis ESB en sú skoðun hefur oftar en ekki verið gagnrýnd sem óraunhæf og gæti jafnvel sett framkvæmd EES- samningsins í uppnám. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra hefur nú viðrað hugmyndir um fjórðu leiðina. Hann bendir á að Íslendingar hafa valið þann kost, að tengjast ESB með EES-samn- ingnum og Schengen-samkomulag- inu. „Hvernig væri að láta reyna á það á markvissan hátt, hvort unnt sé að setja þriðju stoðina undir þetta samstarf, það er um evruna? Engin lagarök eru gegn því, að það verði gert,“ skrifaði hann um helgina. Tveir sérfræðingar við Háskóla Íslands, þeir Guðmundur Magn- ússon, fyrrv. prófessor, og Stefán Már Stefánsson prófessor, hafa farið mjög ítarlega yfir þetta mál í blaða- greinum. Fyrst í ítarlegri grein í Morgunblaðinu árið 2001, þar sem þeir héldu því fram að rétt væri að láta reyna á hvort ekki væri unnt að semja um aukaaðild að Mynt- bandalagi Evrópu með eða án breyt- inga á EES-samningnum. Stefán og Guðmundur hafa rökstutt þetta frekar í fleiri greinum, síðast í grein í Vísbendingu í lok seinasta árs og í Morgunblaðsgrein í mars sl. Með að- stoð EES-samningsins væri raun- hæfur möguleiki að óska eftir samn- ingum við Evrópusambandið um aukaaðild að Evrópska myntkerfinu (ERM II) að mati þeirra. „Í grein okkar bendum við á að aðild Íslands að Myntbandalagi ESB komi ekki til greina nema í tengslum við aðildarumsókn. Enn- fremur að óraunhæft sé að gera ráð fyrir því að heimiluð yrði aukaaðild að evrunni. Hins vegar kæmi auka- aðild að Evrópska myntkerfinu EMR II vel til greina í formi tvíhliða samnings milli ESB annars vegar og Íslands hins vegar.“ Telja þeir þetta rökrétta útfærslu EES-samningsins og fælist fyrst og fremst í styrkingu krónunnar sem gjaldmiðils. „Í tvíhliða samningi af þessu tagi gæti ESB m.a. gripið inn í með aðgerðum til styrktar krónunni gegn því að Íslendingar gengjust undir ákveðin skilyrði í hagstjórn með svipuðum hætti og á sér stað innan evrópska myntkerfisins. Bent var á og rökstutt að ESB hefur heimild til slíkrar samningsgerðar,“ segir í skrifum þeirra. Einungis tveir raunhæfir kostir Evrópunefnd fulltrúa allra flokka, undir forystu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, sem forsætis- ráðherra skipaði, komst að ólíkri niðurstöðu í fyrra: ,,Raunhæfir kostir Íslands í pen- ingamálum eru að flestra mati ein- ungis tveir, annars vegar núverandi fyrirkomulag og hins vegar upptaka evru samhliða aðild að ESB og EMU. Ísland gæti reyndar fræði- lega séð tekið upp evruna einhliða eða með sérstöku samkomulagi við ESB, en báðir þeir kostir verða í reynd að teljast óraunhæfir.“ Tveir prófessorar hafa ítrekað sagt að Ísland ætti að freista þess að semja um aukaaðild að ERM II Bankað upp á bakdyramegin? Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is UPPTAKA evru er ekki möguleg án aðildar að Evrópusambandinu. Þetta segir Percy Westerlund, sendiherra og yfirmaður fastanefndar Evrópu- sambandsins gagnvart Íslandi. Undrandi á skrifum Björns „Ég er nokkuð undrandi að heyra þetta frá dóms- málaráðherran- um, vegna þess að hann hefur áður sagt, eins og for- sætisráðherrann hefur líka gert, að upptaka evru geti eingöngu átt sér stað í tengslum við aðild að ESB,“ segir Westerlund. Hann bendir á að þessi spurning hafi verið rædd mjög ýtarlega á Íslandi í nokkurn tíma. ,,Skilaboðin frá Bruss- el hafa ávallt verið þau sömu, þ.e.a.s. að frá okkar sjónarhóli er upptaka evrunnar nátengd aðild.“ Dómsmálaráðherra hefur sagt að hugmynd hans sé ekki sú að upptaka evru yrði gerð einhliða af Íslands hálfu heldur á grundvelli samninga við ESB. Hann vísar til EES og Schengen-samkomulagsins í þessu samhengi. Westerlund segir þessa leið útilokaða. Meginreglan sem hafa verði í huga sé sú að bandalagið lítur á upptöku evrunnar eingöngu fyrir að- ildarríki. Það skipti engu máli í því samhengi hvort ríki vilji láta reyna á einhliða upptöku hennar eða fara ein- hvers konar samningaleið. Á endan- um þurfi alltaf samþykki ESB að liggja fyrir. Samþykki annarra EFTA-þjóða „Grundvallarvandamálið við þessa aðferð væri sú að hún sniðgengur al- gerlega þá staðreynd að ESB lítur á evruna sem gjaldmiðil bandalags- þjóðanna. Og jafnvel þó svo væri ekki þá gætu komið upp vandamál gagn- vart öðrum aðildarlöndum EFTA. Allar ákvarðanir á vettvangi EFTA byggjast á samkomulagi allra aðild- arþjóðanna þannig að þið þyrftuð þá að fá samþykki frá Liechtenstein og Noregi.“ Westerlund bendir einnig á að mik- ilvægast sé að hafa í huga að það sé aðeins ein leið til að taka upp evruna og það sé með aðild og Geir H. Haarde forsætisráðherra hafi ítrekað lýst því yfir. ,,Ég var viðstaddur þeg- ar hann átti fund með José Manuel Baroso [forseta fram- kvæmdastjórnar ESB] í Brussel og hann sagði með afdráttarlausum hætti að hann liti svo á að upptaka evru á Íslandi gæti eingungis átt sér stað í tengslum við aðild. Hann er ekki, a.m.k. á þessu stigi, hrifinn af aðild að ESB en tók skýrt fram að upptaka evru yrði ekki rædd nema í þessu samhengi,“ segir Westerlund. Að sögn hans er auðveldara fyrir ríki að taka upp einhliða Bandaríkjadal en evruna. Evran sé mikilvægt pólitískt tæki á vettvangi ESB og hún verði ekki aðskilin frá spurningunni um að- ild að bandalaginu. „Þetta hefur verið staðföst stefna ráðherraráðsins, framkvæmdastjórnarinnar og Seðla- banka Evrópu,“ segir hann. Útilokað án ESB-aðildar Percy Westerlund segir skilaboðin alltaf þau sömu, að evran er nátengd aðild Percy Westerlund Í HNOTSKURN »Björn Bjarnason skrifaði ípistli um helgina að Íslend- ingar hafi valið þann kost, að tengjast ESB eftir 2 meg- inleiðum: með EES-samn- ingnum og Schengen- samkomulaginu. »„Hvernig væri að látareyna á það á markvissan hátt, hvort unnt sé að setja þriðju stoðina undir þetta samstarf, það er um evruna? Engin lagarök eru gegn því, að það verði gert,“ sagði í pistli Björns. »Evrópski seðlabankinn tóktil starfa fyrir réttum tíu árum. Aðsetur hans er í Frankfurt. »Bankinn ber ábyrgð ástefnu í peninga- og geng- ismálum á evrusvæðinu. »Fastanefnd framkvæmda-stjórnar ESB gagnvart Ís- landi og Noregi er fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „VIÐ höfum talið þetta vera fjarlæg- an möguleika en hins vegar eitt af því sem nefndin sem Illugi Gunnars- son og Ágúst Ólafur Ágústsson stýra [Evrópunefnd ríkisstjórnarinnar] eigi að taka til skoðunar. Ég geri ráð fyrir því að þeir láti það verða eitt sitt fyrsta verk að láta á það mál reyna,“ sagði Geir H. Haarde for- sætisráðherra, þegar hann brást við hugmyndum Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra um mögulega að- ild Íslands að myntbandalagi Evr- ópu án aðildar að Evrópusamband- inu (ESB). Tekið skal fram að hugmynd Björns snýst ekki um svo- kallaða einhliða upptöku evru, held- ur með samningagerð við ESB. „Ég hef reyndar aldrei slegið þessa leið algerlega út af borðinu en ég hef sagt að mér finnst hún ólíkleg til að skila árangri. Nú, ef menn telja að hún geti hins vegar gert það þá náttúrulega mun það bara koma í ljós í nefndarstarfinu.“ „Nánari“ króna og evra Geir kvaðst enga ákvörðun hafa tekið um hvort hann viðraði slíkar hugmyndir við forystumenn í Bruss- el, en hingað til hefði þeim ekki verið vel tekið. Ekki væri líklegt að evru- aðild mætti byggja á tvíhliða samn- ingi við ESB, eins og Björn Bjarna- son vill láta reyna á. „Ég tel ekkert sérstaklega miklar líkur á því. Þessi leið byggist ekki endilega á því að taka upp evruna. það er líka hægt að hugsa sér þetta sem samstarf um að binda gjaldmiðlana saman. Hvernig almenningur eða pólitíkin í landinu hreyfist svo í því, það er of snemmt að geta til um það.“ Geir vildi ekki samþykkja að með slíkri ráðstöfun væri Ísland svo gott sem komið inn í ESB. „Þarna er ver- ið að tala um efnahagslegan þátt. EES er efnahagslegs eðlis. Þetta byggist á því að nýta sér upphafs- ákvæði EES-samningsins og taka það efnahagssamstarf skrefi lengra. ESB er miklu meira en samstarf um efnahagsmál. Þar er víðtækt póli- tískt samstarf,“ sagði Geir. Krónan besti kosturinn Hann kvaðst enn þeirrar skoðunar að í eðlilegu árferði og jafnvægi í efnahagslífi væri krónan besti kost- urinn fyrir Íslendinga. Spurður hvort þrýstingur á Evrópusamstarf innan Sjálfstæðisflokksins væri að aukast vildi hann lítið segja. Fyrst og framst hefðu hagsmunasamtök sett fram slík sjónarmið. „Fólk er fyrst og fremst að leita sér að skjóli fyrir vandamálum í atvinnurekstri eða efnahagserfiðleikum með því að einblína á Evrópusambandið og kenna síðan gjaldmiðlinum um.“ Evruaðild ólíkleg en verði skoðuð Efnahagsleg aðgerð en ekki pólitísk eins og ESB-aðildin sjálf Morgunblaðið/G. Rúnar Ólíklegt „Ég hef reyndar aldrei slegið þessa leið algerlega út af borðinu en ég hef sagt að mér finnst hún ólíkleg,“ var meðal þess sem Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði þegar hann tók á móti blaðamönnum í gær. Hvaða skilyrði fylgja evru? Aðild að Efnahags- og mynt- bandalagi Evrópu er skilyrði fyrir upptöku evru en nokkur smáríki nota þó evru sem gjaldmiðil án að- ildar. Halli á ríkissjóði má ekki vera meira en 3% af landsframleiðslu og heild- arskuldir hins opinbera ekki meiri en 60% af landsframleiðslu. Verðbólga má ekki vera meira en 1,5% hærri en meðaltal verðbólgu í þeim þremur löndum ESB þar sem hún er lægst. Langtímavextir mega ekki vera meira en 2% hærri en í þeim löndum ESB þar sem verðlag er stöðugast. Viðkomandi ríki þarf að hafa verið í gengissamstarfi Evrópu (Exchange Rate Mechanism, ERM II) í a.m.k. 2 ár án gengisfellingar og innan ákveð- inna vikmarka. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.