Morgunblaðið - 15.07.2008, Side 9

Morgunblaðið - 15.07.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 9 www.feminin.is • feminin@feminin.is Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Tilboðsslár 1000 kr. 2000 kr. 3000 kr. Str. 38-56 Mikill afsláttur Útimálning Viðarvörn Lakkmálning Þakmálning Gólfmálning Gluggamálning Innimálning Gljástig 3, 7, 20 Verð frá kr. 298 pr.ltr. Gæða málning á frábæru verði Allar Teknos vörur eru framleiddar skv. ISO 9001 gæðastaðli. Afsláttur af málningarvörum 20% Sætúni 4 Sími 517 1500 Sérhönnuð málning fyrir íslenskar aðstæður. Skútuvogi 13, S. 517 1500 www.teknos.com Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Opið mánud.-föstud. 10-18 Opið laugard. í Bæjarlind 10-15 10% aukaafsláttur af útsöluvörum LAGERSALA OUTLET LAUGAVEGI 51 ENN LÆKKA VERÐIN Hverfisgötu 6 101 Reykjavík, sími 562 2862 Sumarútsalan 2008 -40% Ef sú leið reynist fær, að Ísland semji um einhvers konar aukaaðild að Efnahags- og myntbandalagi Evrópu á grundvelli EES samnings- ins og tæki upp evru án aðildar að ESB, vaknar strax sú spurning, hvort í því fælist framsal á full- veldi þjóðarinnar. Þyrfti ekki að gera breytingar á stjórnarskránni áður en slík ákvörðun yrði tekin? Aðildarríki myntbandalagsins afsala sér peningalegu sjálfstæði til að takast á við efnahagsleg áföll. Það er Seðlabanki Evrópu sem framfylgir peningastefnunni í öllum grundvallaratriðum. Stefán Már Stefánsson prófess- or og Guðmundur Magnússon, fyrrv. prófessor, hafa nokkuð fjallað um þetta í blaðagreinum sínum um mögulega aukaaðild Ís- lands að evrópska myntkerfinu. Þeir benda á að frá og með 1. jan- úar 1999 þegar bandalagssvæðið varð eitt myntsvæði og gengi gjaldmiðla aðildarríkjanna var fest gagnvart evrunni, glötuðu aðild- arríki Myntbandalagsins fullveld- isrétti sínum á sviði myntmála. „Í þess stað kemur miðstýrt vald stofnana bandalagsins varð- andi sameiginlega mynt. Aðild- arríki myntbandalagsins hafa þó ekki sameiginlega stefnu í rík- isfjármálum heldur verða þau áfram í höndum einstakra ríkja,“ segir í Morgunblaðsgrein þeirra árið 2001. Mikil áhersla hafi verið lögð á að Evrópska seðlabanka- kerfið starfaði sjálfstætt. Yfir- stjórnin sé óháð öllu fyrirskip- unarvaldi frá aðildarríkjunum. Framselja fullveldi í myntmálum „BÆÐI þessi ummæli Björns og yf- irlýsingar, sem hafa komið að und- anförnu frá ýmsum samtökum í at- vinnulífinu, sýna að það er að færast mjög mikill þungi í þessa umræðu. Það er orðin mjög útbreidd skoðun að til framtíðar litið þurfi Ísland að gerast aðili að myntbandalag- inu, taka upp evru og fá þann bakstuðning frá evrópska seðla- bankanum sem því fylgir,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra. Hún segir athyglis- vert hversu útbreidd sú skoðun sé orðin. Hins vegar telur Ingibjörg þá leið að stökkva yfir Evrópusambandið og beint inn í myntsamstarf ekki færa. Hún hafi viljað kanna þá leið, enda viljinn fyrir henni greinilega meiri innanlands en fyrir fullri aðild. Hins vegar hafi hún alls staðar feng- ið sömu svör, um að það sé ekki hægt. Nefndin einhendi sér í hagsmunamat „Menn verða líka að hafa í huga að ef ESB ætti að taka upp tvíhliða viðræður við Ísland um að fá sér- meðferð og komast í myntbandalag- ið án fullrar aðildar, þá þyrfti fyrst að samþykkja það í Framkvæmda- stjórninni. Þar þyrfti 27 fulltrúa til að samþykkja að Ísland fengi sér- meðferð. Þar að auki þyrftu 27 að- ildarríki að veita framkvæmda- stjórninni þetta umboð. Menn geta rétt ímyndað sér það hvort ríki sem sjálf eru í aðlögunarferli að mynt- bandalaginu séu tilbúin til að sam- þykkja sérmeðferð fyrir Íslendinga. Af hverju ættu þau að fallast á að Evrópubankinn veiti Íslendingum einhverjar tryggingar sem þessar þjóðir fá ekki?“ segir hún. Ingibjörg Sólrún útilokar ekki að Evrópunefnd ríkisstjórnarinnar, sem Illugi Gunnarsson og Ágúst Ólafur Ágústsson leiða, geti skoðað þetta mál. En hún vill mun fremur að nefndin einhendi sér í hagsmuna- mat á því hvort aðildin að ESB henti hagsmunum Íslendinga eða ekki. „Bara að við séum ekki alltaf að elt- ast við einhver villuljós,“ segir hún. Málið hafi ekki verið rætt í ríkis- stjórn. Hún sé opin fyrir slíkum um- ræðum en vilji hugsa sig um tvisvar áður en farið sé af stað með slíkt mál, þegar allar vísbendingar og raddir segi að það sé ómögulegt. Horfast þurfi í augu við leikreglur Evrópusambandsins. „Við verðum bara að fara eftir þeim eins og aðr- ir.“ Frumkvæði Björns eru tíðindi Innganga í myntsamstarfið getur tekið nokkur ár, en á þeim tíma gæti núverandi kreppuástand gengið yf- ir. Ingibjörg segir viðbúið að hin þunga Evrópuumræða róist þegar það gerist. Hins vegar sé ekki hægt að búa við sveiflurnar í íslensku hag- kerfi og því eigi ekki að leggja málið til hliðar þegar samdrætti lýkur. Aðspurð segir Ingibjörg Sólrún það nokkur tíðindi að Björn Bjarna- son bryddi upp á hugmyndum um Evrópusamstarf. „Hann telur að okkar hagsmunum sé í framtíðinni best borgið í stærra myntsamstarfi. Það eru út af fyrir sig ákveðin tíð- indi.“ onundur@mbl.is Sérmeðferð er ekki í boði Stjórnvöld eltist ekki meira við villuljós Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Í HNOTSKURN »Ingibjörg segir umræðugærdagsins varpa ljósi á hversu brýnt sé að hags- munamat, með tilliti til að- ildar að ESB, fari fram. »Evrópunefnd ríkisstjórn-arinnar eigi að einhenda sér í að gera slíkt mat. Ekki þurfi til þess mikla papp- írsvinnu eða gagnasöfnun. »Málið segir hún snúastum val milli lítils fjármálakerfis og atvinnulífs sem þjónar innanlandsmark- aði … eða aðildar að alþjóð- legu efnahags- og atvinnu- lífi. »Eigi að velja hið síðaraþurfi íslenskt hagkerfi öflugan bakstuðning, t.d. frá Seðlabanka Evrópu. FRUMKVÆÐIÐ í Evrópuumræð- unni kom að þessu sinni frá Birni Bjarnasyni dóms- og kirkjumála- ráðherra, sem spurði í stjórnmála- pistli á vefsíðu sinni á laugar- dag, hvort ekki ætti að láta reyna á það á markvissan hátt hvort unnt væri að setja þriðju stoðina undir þátttöku Íslend- inga í Evrópu- samvinnu, þ.e. evruna. Í færslu hans segir m.a. að mun meiri sátt yrði um slíkt og að engin lagarök séu gegn því að það verði gert. Heimildir fyrir hendi hjá ESB Fyrirspurn Morgunblaðsins um nákvæmari útfærslu hugmynda sinna svarar Björn einfaldlega þannig að Evrópusambandið hefði lögheimildir til að semja við þriðju ríki um upptöku evru. Það hefði hann áður rætt um og þær heim- ildir væru fyrir hendi í Rómarsátt- málanum. „Fyrirkomulag er væntanlega samningsatriði eins og sést á þeim samningum, sem ESB hefur gert. EES-samningurinn veitir hina pólitísku forsendu fyrir því, að samið sé við Ísland, enda óski Ís- land eftir slíkum samningi,“ segir Björn. ESB vill ekki ný aðildarríki Í Evrópupistlinum á heimasíðu sinni fjallaði Björn um vandræða- gang hjá Evrópusambandinu, eftir að Írar höfnuðu Lissabon-sáttmál- anum. „Sé staðan svo stórfurðuleg hjá Brussel-valdinu eftir höfnun Íra, að minnir á afneitun, má segja enn undarlegra, að hér telji menn besta tímann nú til að taka upp við- ræður við þetta sama vald um aðild Íslands að ESB. Satt að segja ein- kennist sú afstaða einnig af afneit- un á vandræðunum innan Evrópu- sambandsins,“ sagði Björn þar. Í niðurlagi pistilsins sagði hann svo: „Evruleiðin kann auk þess að hafa meiri hljómgrunn í Brussel en að- ildarleiðin,“ sjónarmið sem aðrir viðmælendur Morgunblaðsins í gær deila ekki með Birni. Spurður hvað ráði þessu mati hans kveðst Björn telja að staðan sé þannig nú, að ekki sé áhugi á því hjá Evrópusambandinu að taka upp aðildarviðræður (um aðild að sambandinu sjálfu) við nokkurt ríki. onundur@mbl.is EES forsendan, óski Ísland eftir samningi Ekki áhugi í Brussel fyrir ESB-aðildarviðræðum við neitt ríki Björn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.