Morgunblaðið - 15.07.2008, Side 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Halldóra RagnaHansen fæddist
í Reykjavík 21. apr-
íl 1929. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi að kvöldi
9. júlí síðastliðins.
Foreldrar hennar
voru Rudolf Theil
Hansen klæð-
skerameistari frá
Kaupmannahöfn, f.
10. ágúst 1897, d.
21. nóv. 1982, og
Margrét Finn-
björnsdóttir Han-
sen húsfreyja úr Hnífsdal, f. 10.
apríl 1898, d. 20. okt. 1984.
Systkini Halldóru eru: 1) Anna
Christiane tónlistarkennari, f. 5.
mars 1927, 2) Steinunn Þuríður
sölustjóri, f. 9. sept. 1933, 3)
Alma Elísabet tónlistarmaður, f.
20. júní 1935, d. 22. mars 2000,
og 4) Gunnlaugur Hreinn bíl-
stjóri, f. 25. febr. 1939, d. 21. júní
1988.
Fyrri maður Halldóru var Jón
Víkingur Guðmundsson bóndi, f.
29. maí 1924, d. 11. jan. 2006.
Þau skildu. Börn þeirra eru: 1)
Arnbjörg Anna ritari, f. 2. jan.
1946, gift Gunnari Hermanni
hún um hríð í Danmörku og
starfaði hjá lyfjagerðinni Løven.
Á árunum 1955 til 1967 var hún
búsett á Selfossi, þar sem Guð-
mundur eiginmaður hennar var
organisti og skólastjóri tónlistar-
skólans. Eftir það fluttu þau til
Reykjavíkur, með stuttri við-
komu í Garðahreppi. Þegar börn-
in uxu úr grasi gafst Halldóru
ráðrúm til að mennta sig og út-
skrifaðist hún frá Sjúkraliða-
skóla Íslands árið 1976. Starfaði
hún lengst af sem sjúkraliði á
sængurkvennagangi Landspít-
alans við góðan orðstír. Halldóra
var mikill tónlistarunnandi, söng-
elsk og lék jafnframt á gítar.
Eftir að starfsferlinum lauk lét
hún til sín taka í líknarmálum,
meðal annars á vettvangi Hjálp-
ræðishersins í Reykjavík. Und-
anfarin ár hefur Halldóra Han-
sen haldið til suður á
Kanaríeyjum yfir vetrartímann.
Þar tók hún virkan þátt í fé-
lagsstarfi Íslendinga og þá nýtt-
ust tónlistarhæfileikarnir vel,
ekki síst þegar sungnir voru
sálmar við messur.
Útför Halldóru fer fram frá
Kópavogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
Sigurðssyni fram-
kvæmdastjóra, börn
þeirra eru Gréta og
Sigurður Gunnar. Af
fyrra hjónabandi á
hún soninn Bjarna.
2) Þorsteinn, f. 25.
febr. 1948, d. 27.
apríl sama ár. Síðari
eiginmaður Halldóru
var Guðmundur
Gilsson organisti, f.
22. júlí 1926, d. 6.
jan. 1992. Auk Arn-
bjargar Önnu, sem
var ættleidd, eru
börn Halldóru og Guðmundar: 1)
Guðný María geislafræðingur, f.
18. jan. 1955, gift Magnúsi Árna-
syni framkvæmdastjóra, börn
þeirra eru Halldóra Rakel og
Árni Snæbjörn. 2) Guðjón Rudolf
tónlistarmaður, f. 16. jan. 1959,
kvæntur Vigdísi Sveinsdóttur.
Sonur Guðjóns er Bjartur. 3)
Guðmundur Gils bílstjóri, f. 25.
júlí 1960. Langömmubörn Hall-
dóru eru sex talsins.
Halldóra Hansen ólst upp á
Siglufirði en flutti ung að árum
til Reykjavíkur, þar sem hún hélt
heimili og vann að auki ýmis
verslunarstörf. Um 1950 dvaldi
Það er svo skrítið að vera allt í
einu í þessum sporum að vera að
senda móður sinni hinstu kveðju og
rifja upp síðustu vikurnar með henni
í þessu lífi. Mig hefði ekki órað fyrir
því vegna þess að hún var ímynd já-
kvæðrar og duglegrar eldri konu
sem var staðráðin í að njóta hverrar
stundar, hvort heldur sem var í
faðmi fjölskyldunnar eða í góðra
vina hópi og þá oftast í sól og sumri á
Kanaríeyjum yfir vetrartímann. Ég
var svo stolt af henni og alltaf að
ítreka og vitna í hvað eldra fólk gæti
í raun haft það gott með jákvæðu
hugarfari, ekki er verra að góð
heilsa fylgi með og það virtist ekkert
skyggja á það hjá mömmu fyrr en
fyrir um það bil þremur vikum síðan.
Að sjálfsögðu lenti hún eins og flest-
ir aðrir einhvern tíma í ýmsum
hremmingum eins og til dæmis þeg-
ar hún rann til í smá bleytubletti á
Kanarí, það getur gerst þar eins og
hér en þá er það sjaldan að það rign-
ir en ekki hálkan. Þá ökklabrotnaði
hún illa en hristi það nú af sér með
tíð og tíma. Árið eftir hnaut hún um
ójafna gangstéttarhellu og braut á
sér úlnliðinn. Ekki lét hún slík smá
óhöpp setja sig út af laginu heldur
hélt ótrauð áfram sínu striki að hafa
vetrardvöl þarna suðurfrá.
Mamma hafði ótvíræða umönnun-
arhæfni í sínu eðli og sögðum við oft
bæði í gríni og alvöru að hún væri al-
gjör „Florence Nightingale“ af guðs
náð. Enda vildi ég engan nálægt mér
ef einhver lasleiki plagaði annan en
mömmu, langt fram á fullorðinsár.
Sorgin knúði oft dyra hjá henni og er
þá skemmst að minnast þess þegar
hún missti pabba aðeins 65 ára
gamlan en þá hafði hún hjúkrað hon-
um heima meira og minna í fjögur
erfið ár áður en yfir lauk. Átta árum
síðar tók hún yngstu systur sína að
sér í veikindum hennar, hjúkraði
henni og hlúði að í um það bil ár, en
hún lést árið 2000. Hún hafði samt
sem áður létta og káta lund, spilaði á
gítar og söng þegar færi gafst og var
algjör gleðipinni í veislum og á
mannamótum. Ósjaldan lentum við
mæðgurnar í aðstæðum þar sem við
fengum óviðráðanlegt hláturskast
eins og tvær unglingsstelpur og þá
fann ég hvað aldur er afstæður.
Eitt get ég ekki látið ósagt sem
var svo sérkennilegt, en mamma
skrapp til Danmerkur í vor aðeins
tveimur vikum eftir að hún kom frá
Kanaríeyjum, til þess að heimsækja
bræður mína og mágkonu og vera
með þeim í mánaðartíma, þá fékk ég
svo sterka löngun til að vera með
henni þar, þó ekki væri nema í
nokkra daga í lok ferðarinnar. Það
var skyndiákvörðun sem ég sé ekki
eftir í dag. Við áttum saman fjóra
yndislega daga í sól og sumaryl, vor-
um ýmist í Nýhöfn eða á Strikinu,
þræða smurbrauðsstofurnar eða
borða í Tívolíinu svo eitthvað sé
nefnt. Það voru okkar síðustu góðu
stundir saman, en þá óraði okkur
ekki fyrir því að inn í henni leyndist
falinn eldur.
Elska mamma mín, takk fyrir allt
ástríki þitt í blíðu og stríðu.
Þín dóttir,
Guðný María.
Elsku mamma mín, eftir að þú
komst heim frá Danmörku fór heilsu
þinni hrakandi og ég var í símasam-
bandi við Guðnýju, systur mína, ann-
an hvern dag til að fá nánari fréttir
af þér. Það voru stöðugar mælingar
og röntgenmyndir í 25 vikur. Eftir
að mamma fékk að vita frá lækn-
inum að hún væri komin með
krabbamein og það hefði náð að
breiðast út og væri núna komið í lif-
ur og lungu hringdi hún strax í mig.
Það var svo sláandi tilfinning að
heyra hana sjálfa segja beint út,
elsku Gummi minn, ég var lögð inn á
lungnadeildina og ég er að deyja.
Meira var það ekki annað en hún
óskaði þess að ég hætti alveg að
reykja og myndi nota tímann vel
sem eftir væri.
Ég vonaðist til að geta komist
strax heim 11. júlí og kveðja hana, en
þá hringdi Guðjón Rúdólf, bróðir
minn, til mín 9. júlí um kvöldið og
flutti mér dánarfregnina. Ég gekk
um íbúðina mína hljóður og hugs-
andi og það kom sálmur upp í huga
minn úr söngbók Hjálpræðishersins
sem er eitthvað á þessa leið: „Ég er
hamingjubarn ég á himneskan arf,
hvað sem að mætir á ævinnar
braut.“ Það var eins og eitthvað
vantaði, einhver tómleiki fyrst eftir
andlátið en svo náði ég loks að átta
mig á því að Halldóra Hansen var
orðin mjög fullorðin kona og það
sem gladdi mig mest af öllu var það
að við gátum bæði gist hjá Kristjáni
Þorkelssyni frænda og verið saman
allan maímánuð 2008.
Ég hef verið að fara yfir fjöl-
skyldumyndir og séð hin ýmsu tíma-
skeið í lífi Halldóru Hansen, og það
gleður mig að sjá hve það fór vel um
hana á Ensku ströndinni á Kanarí.
Þar leið henni svo vel síðustu 13 árin
eða svo, og líf hennar var viðburða-
ríkt.
Halldóra Hansen trúði á algóðan
Guð, og var hlynnt því að ráða sókn-
arprest í hálfa stöðu á Gran Canaria.
Ég kom að heimsækja mömmu í des-
ember 2005 og var hjá henni fram í
mars 2006. Þetta er mér ógleyman-
legur tími og mikið var myndað við
öll helstu tækifæri. Við fórum oft
niður á strönd, í hringferðir og
fjallaferðir, og hún útskýrði fyrir
mér allt sem skiptir máli í stöðugri
sól og blíðu.
Mamma gaf mér dagatal í jólagjöf
2007 sem heitir „Mottos for Success“
eftir Maríu Fountaine. Við 24. jan-
úar stendur: „Lífið er stutt og mun
brátt taka enda en kærleiksverkin
vara að eilífu“. Þegar ég kom að
rúmi móður minnar hinn 11. júlí var
samskonar dagatal á náttboði henn-
ar, en í þetta sinn fyrir 9. júlí 2008.
Þar stendur: „Ákafinn er eldsneyti
lífsins, hann drífur þig áfram þangað
sem þú ætlar að fara.“
Elsku mamma mín, takk fyrir
kærleika þinn og hlýju og hve þú
Halldóra Ragna Hansen
Ég hef sótt að okkar fundum
undarlegan styrk og mátt.
Augnablikin eiga stundum
ævilangan söguþátt.
(Guðmundur I. Kristjánsson.)
Blessuð sé minning þín,
elsku Dóra, hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Ágústa Rut Sig-
urgeirsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KARL BERGMANN GUÐMUNDSSON,
sem lést föstudaginn 4. júlí, verður jarðsunginn frá
Seltjarnarneskirkju miðvikudaginn 16. júlí kl. 13.00.
Halla Jóhannsdóttir,
Anna Karlsdóttir, Ómar Hannesson,
Auður Karlsdóttir, Sigurður Þór Hafsteinsson,
Jóhann Ármann Karlsson, Maria Jose Juan Valero,
Hildur Ómarsdóttir, Pétur Pétursson,
Rúnar Ómarsson, Aðalheiður Birgisdóttir,
Karl Bergmann Ómarsson, Hye Joung Park,
Ólöf Halla Sigurðardóttir,
Jóhanna Helga Sigurðardóttir,
Carlos Karlsson Juan,
Yasmin Karlsson Juan.
✝
Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar kæru
JÓNÍNU HALLDÓRSDÓTTUR,
Skúlagötu 40,
Reykjavík.
Hannes Ingibergsson,
Laufey Bryndís Hannesdóttir, Gísli Karel Halldórsson,
Hjördís Hannesdóttir, Hannes Gunnar Sigurðsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR EGILSDÓTTIR,
dvalarheimilinu Hlíð,
Akureyri,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn
17. júlí kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á dvalarheimilið Hlíð.
Sigþór Bjarnason, Guðríður Bergvinsdóttir,
Ingibjörg Bjarnadóttir, Sveinn Ingi Eðvaldsson,
Egill Bjarnason, Erna Jóhannsdóttir,
Þórdís Bjarnadóttir, Hreiðar Hreiðarsson,
Sigurður Bjarnason, Friðrika Árnadóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
RÓSA PÉTURSDÓTTIR
frá Norðurgarði,
Grænumörk 5,
Selfossi,
lést sunnudaginn 6. júlí.
Hún verður jarðsungin frá Selfosskirkju
föstudaginn 18. júlí kl. 15.00.
Jónas Guðmundsson, Sólveig Jóhannsdóttir,
Ragnheiður Eiríksdóttir, Gunnar Haraldsson,
Sigmar Eiríksson, Sigríður Ástmundsdóttir,
Pétur Eiríksson, Jóna Jónsdóttir,
Sævar Eiríksson, Inga Finnbogadóttir,
Valdimar Eiríksson, Guðbjörg Hrafnsdóttir,
Soffía Ellertsdóttir, Tómas Tómasson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir alla þá vinsemd, hlýhug og
samúð sem okkur hefur verið sýnd vegna fráfalls
elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa
og langafa,
JÓHANNESAR HALLDÓRS
BENJAMÍNSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Fríðuhúss
fyrir einstaka umönnun og alúð.
Ása Jóhanna Sanko,
Elín Helga Jóhannesdóttir, Hallbjörn Ágústsson,
Axel Hallkell Jóhannesson, Sigrún Edda Björnsdóttir,
Þórhildur Guðný Jóhannesdóttir, Guðmundur Pétursson,
Halldóra Jóhannesdóttir, Pétur Pétursson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa, langafa, bróður og mágs,
TÓMASAR VILHELMS ÓSKARSSONAR,
áður til heimilis á
Ránargötu 45,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sunnuhlíðar fyrir
frábæra umönnun.
Ísleifur Tómasson, Guðrún Ásta Kristjánsdóttir,
Karitas Jóna Tómasdóttir,
Tómas Haukur Tómasson, Hrafnhildur Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Vilhelmína Svava Guðnadóttir, Stefán Hólm Jónsson.