Morgunblaðið - 15.07.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 15.07.2008, Qupperneq 25
vildir að börnunum þínum og barna- börnum vegnaði vel í lífinu. Hvíl þú í friði og blessuð sé minning þín. Þinn elskandi sonur: Guðmundur Gils Guðmundsson. Það var á þriðja áratug síðustu aldar að ungur skraddari frá Kaup- mannahöfn, sigldur maður sem farið hafði um öll heimsins höf, kom að endingu til Íslands. Þar fangaði hjarta hans ung og dugmikil kona að vestan og saman settust þau að hér á landinu kalda. Þetta voru langafi Rudolf Theil og langamma Margrét. Börn þeirra urðu fimm, fjórar systur og einn bróðir, og var hún Halldóra amma mín næstelst. Þau voru ákaf- lega músíkölsk systkinin, sungu mikið og spiluðu á hljóðfæri. Ég mun líklega ætíð minnast ömmu minnar syngjandi, oft á dönsku – Lille som- merfugl eða eitthvað álíka. Hún var ákaflega hress og lífsglöð kona. Amma Dóra var sem sagt hálf- dönsk og óhætt að segja að fjöl- skyldubragurinn hafi borið því glöggt vitni. Á sunnudögum var dekkað á borð með vandlega brotn- um servíettum, súpa á undan matn- um og síðan „sóvs“ með steikinni. Puran varð að vera passlega stökk, það stóð allt og féll með því. Og við slettum dönsku – vorum dálítið öðruvísi en annað fólk. Ekki laust við að við værum aristókratar inni við beinið, eins og strand hérna úti í hafsauga. En við höfum nú sem bet- ur fer alltaf haft bara húmor fyrir því og ekki síst amma sjálf. „Það er svo kongelig hof hjá frú Hansen“, var stundum sagt og síðan hlegið dátt að. Amma Dóra settist á skólabekk þegar hún var komin yfir fertugt, lauk sjúkraliðanámi og starfaði eftir það við að annast nýfædd börn og mæður þeirra á fæðingardeildinni. Ég held að það hafi átt mjög vel við hana því hún var svo blíð og góð í sér. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar hún kom til að líta á fyrsta langömmubarnið sitt, hann Nikulás Nóa minn, nýfæddan. Við nýbakaðir foreldrarnir, Anna Lára og ég, þorð- um varla að anda á krílið og varð eig- inlega alveg um og ó þegar sú gamla þusti inn á stofuna, hóf strákinn á loft með vasklegum handtökum og skoðaði hann í krók og kring. Það var þó ekkert að óttast því þarna var jú atvinnumanneskja á ferð. Umönnum fór ömmu minni ein- staklega vel úr hendi. Og hún var trúuð kona. Trú hennar birtist ekki í neinum sérstökum heilagleika, held- ur í alveg einstöku æðruleysi. Það er ógleymanlegt hvernig hún annaðist afa Guðmund þegar hann veiktist og dó og síðan Ölmu systur sína á sama hátt nokkrum árum seinna. Hún var ekki mikið fyrir að tala um erfiðleika eða fortíðina, en verk hennar töluðu sínu máli og hún virtist alltaf halda í lífsgleði sína. Það er einstakur eig- inleiki og ótvírætt sá lærdómur sem mig langar mest að tileinka mér frá henni Halldóru, ömmu minni. Það var eftir því tekið þegar amma var að verða gömul hvað hún var alltaf hress. Næstum eins og hún yrði glaðari og kátari með hverju árinu. Anna Lára, konan mín, er afar þakklát fyrir að hafa eignast svona „tengdaömmu“ og er staðráðin í að verða eins og hún þegar hún verður gömul. Og strákunum, Nikulási Nóa og Kolbeini Tuma, þótti afskaplega vænt um langömmu. Við kveðjum hana öll með söknuð í hjarta, þakk- læti fyrir allar góðu stundirnar með henni og vonumst til að muna alla tíð hennar einlægu gleði og ást á lífinu. Bjarni. Elsku amma mín, mikið er búið að vera sárt að þurfa að kveðja þig svona skyndilega. Ég er þakklát fyr- ir allan þann góða tíma sem við átt- um saman, þú leist eftir mér þegar ég var lítil. Mikið var ég heppin að eiga ömmu sem vann á fæðingar- deildinni, ég fékk áreiðanlega alveg sérstaka meðferð og eru til margar myndir til vitnis um það. Þegar ég varð eldri leyfðirðu mér að taka allt út úr neðri skápunum, potta, pönnur og piparkökuform, að leika með og það var mikið sport. Þú varst alltaf svo dugleg að passa okkur Árna bróður og Bjart frænda og virtist aldrei fá nóg af okkur sama hvað gekk á, ef það var eitthvað vesen þá kunnir þú alltaf ráð, þú settir Tomma og Jenna í vídeótækið. Þú gafst mér ferð til Danmerkur í ferm- ingargjöf og það var mikil upplifun að fara saman að heimsækja Gauja frænda í Århus og fleiri vini og vandamenn í Kaupmannahöfn. Þá fórum við saman í Tívolíið, ég í fyrsta sinn og fékk að fara í öll tækin í grenjandi rigningu en skemmti mér alveg konunglega á meðan þið Gerða vinkona þín húktuð undir regnhlíf. Það er gott til þess að hugsa að þú hafir ekki látið neitt stoppa þig í því að láta drauma þína rætast og njóta þess að vera í sólinni á Kanarí yfir vetrartímann og þar naust þú lífsins síðastliðna 7 vetur í góðum fé- lagsskap, lífsglöð og oftast kát. Fyr- ir rúmu ári þá fékk ég undarlega sterka tilfinningu fyrir því að ég yrði að drífa mig út til Kanarí í heimsókn og eyða mér þér góðum tíma og þú hvattir mig til þess því ég gæti alveg eins stundað fjarnám þar í sólinni eins og að sitja föst í skafli hér heima. Þá hefði mig ekki órað fyrir því að það yrði aðeins þetta eina skipti. Ég hef alltaf verið mikil ömmu- stelpa og mikið var gott að koma til þín og fá ektaömmumat, og þá að sjálfsögðu súpu á undan. Seinustu þrjár vikurnar þínar voru okkur öll- um ofboðslega erfiðar en þú varst samt svo þakklát fyrir allt sem ég gat gert fyrir þig, en það var því miður ekki mikið meira en það sem skyldan stóð til. Maður er svo van- máttugur þegar að svona alvarlegir sjúkdómar banka á dyrnar. Nú ertu farin til afa og við hin minnumst ykkar með hlýhug. Þær eru svo margar minningarnar en alltaf þótti mér skemmtilegt þegar þú varst að fíflast og herma eftir samferðafólki og pólitíkusum, þá settirðu upp svipi og breyttir rödd- inni um leið og þú lékst eitthvað fyndið viðstöddum til mikillar kát- ínu, en allt var þetta nú ósköp sak- laust. Takk fyrir samveruna og ánægjustundirnar okkar. Þín dótturdóttir, Rakel. Elsku amma, okkur datt ekki í hug að þú kæmir ekki heim aftur þegar Stefanía skutlaði þér á spít- alann. Þú varst alltaf svo hress og alltaf tilbúin að bjóða okkur í mat sem endaði oftast með því að ég stillti fyrir þig sjónvarpið, kenndi þér að spila DVD-disk og hringja á Skype úr tölvunni. Það voru góð skipti, aspassúpa í forrétt og eitt- hvað gott að borða. Skemmtilegast var þegar þú bauðst bara okkur krökkunum í mat, Bjartur reytti af sér brandaranna um eilífðarelixír og við borðuðum heimsins súrasta sí- trónuís í eftirmat, þá var mikið hleg- ið. Minningarnar eru jafnmargar og þær eru góðar. Ég gæti farið eins langt aftur og ég man eftir mér, þeg- ar ég kom í pössun og þú varst búin að taka upp Tomma og Jenna-þætti, þá var sko gaman, það var alltaf gott að koma til ömmu. Guð geymi þig, elsku amma. Árni Snæbjörn Magnússon, Stefanía Ásgeirsdóttir. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 25 Atvinnuauglýsingar Aðstoð á tannlæknastofu Aðstoð óskast í 70% starf á tannlæknastofu í Reykjavík. Viðkomandi þarf að geta byrjað um miðjan ágúst. Umsóknir sendist á box@mbl.is merktar ,,AT - 21645”. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Heilsa Léttist um 22 kg á aðeins 6 mánuðum LR-kúrinn er ótrúlega einfaldur og auðveldur. Engin örvandi efni. Uppl. Dóra 869-2024, www.dietkur.is Húsnæði í boði Til leigu 2ja og 3ja herbergja íbúðir miðsvæðis. www.leiguibudir.is S: 552-3366. Húsnæði óskast 100% maður! Rólegur, reglusamur og reyklaus ,,strákur" í HÍ, óskar eftir lítilli, ódýrri íbúð/stúdíó, gjarnan í 101/105 Rvk. 100% umgengni. Eyjólfur: ebe5@hi.is eða 865 8704. Sumarhús Sumarhús - orlofshús. Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Til sölu Ævintýralega létt stígvél Aðeins 440 g parið. Stærðir 38-46. S - XL Einstaklega þægileg til að hafa í bílnum, sumarbústaðnum eða í útileguna. Verð 3.710 kr. Jón Bergsson ehf. Kletthálsi 15, 110 Rvk. Sími. 588 8881. Viðskipti Skelltu þér á námskeið í netviðskiptum! Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk- ingu til að búa þér til góðar tekjur á netinu. Við kennum þér nákvæmlega hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com og kynntu þér málið. Þjónusta Sólpallar og girðingar Smíðavinna úti og inni. Parketlagnir. Þjónusta við sumarbústaðaeigendur. Íslenskir fagmenn. Vinnusvæði: Höfuðborgarsvæðið og Suðurland. Halur og sprund verktakar ehf., sími 862 5563, www.lipurta.com Hitaveitur/vatnsveitur Þýskir rennslismælar fyrir heitt og kalt vatn. Boltís sf., símar 567 1130 og 893 6270. Byggingavörur www.vidur.is Harðviður til húsbygginga. Vatns- klæðning, panill, pallaefni, parket o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði. Sjá nánar á vidur.is. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Ýmislegt Teg. 6258 - létt fylltur og flottur í BC skálum á kr. 2.950,- buxur í stíl á kr. 1.450,- Teg. 72560 - létt fylltur, saumlaus í BC skálum kr 2.950,- buxur í stíl á kr. 1.450,-- Teg. 66430 - létt fylltur, sætur og sumarlegur í BC skálum á kr. 2.950,- buxur í stíl á kr. 1.450,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán-fös 10-18, Lokað á laugardögum. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Bílar Til sölu Nissan Terrano 2004, ekinn aðeins 32000, Fallegt eintak. Sími 866 9266. Einkamál Stefnumót.is Nýr stefnumótavefur og tengslanet: "Þar sem íslendingar kynnast". Líttu við og tryggðu þér gott notanda- nafn til frambúðar. Stefnumót.is Nýr samskiptavefur: "Þar sem Íslendingar kynnast". Líttu við og tryggðu þér gott notandanafn til frambúðar. Þjónustuauglýsingar 5691100 Jeep árg. '96 ek. 190 þús. km Jeep Grand Cherokee Laredo, ´96 árgerð, ekinn 190.000 km. Í ágætis standi. Verð aðeins 200 þús. kr., langt undir listaverði. Sími 694 7777. Íslenskur fjárhundur Hreinræktaðir íslenskir fjárhunds- hvolpar leita að góðu framtíðarheim- ili, með ættbók frá HRFÍ, heilsufars- bók, örmerktir og tryggðir hjá VÍS, tilbúnir til afhendingar. Uppl. gefur Helga í síma 861-4489 eða sindra@simnet.is Dýrahald Til sölu vasi eftir Guðmund frá Miðdal Þröstur og kuðungur frá sonarsyni hans. Upplýsingar í síma 821 4756.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.