Morgunblaðið - 25.07.2008, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á
Íslandi hækkaði lítillega í gær, eða
um 0,2%. Lokagildi vísitölunnar er
4.168 stig.
Mest hækkun varð í gær á hluta-
bréfum Bakkavarar Group, eða
1,2% og bréfum Kaupþings, 0,7%.
Mest lækkun varð hins vegar á hluta-
bréfum Eik Bank, 4,7%, og bréfum
Teymis, 3,1%. gretar@mbl.is
Lítils háttar hækkun
● EIK Bank tap-
aði 16 milljónum
danskra króna
eftir skatta á fyrri
helmingi þessa
árs eða um 270
milljónum ís-
lenskra króna.
Þetta er verulega
verri afkoma en á
sama tímabili í fyrra en þá var hagn-
aður bankans um 206 milljónir
danskra króna.
Í tilkynningu frá Eik Bank segir að
skoða beri afkomuna í ljósi þess að
um 52 milljónir danskra króna niður-
færsla á eigin bréfum er færð yfir
rekstrarreikning, samkvæmt fær-
eyskum lögum, en ekki færð sem
lækkun á eigin fé eins og víða sé
gert. gretar@mbl.is
Mun verri afkoma hjá
Eik Bank en í fyrra
● HAGNAÐUR bandaríska dagblaðs-
ins The New York Times á öðrum árs-
fjórðungi nam 21 milljón dala og
dróst saman um 82% samanborið
við sama tímabil í fyrra og varar blað-
ið við því að næstu mánuðir og miss-
eri gætu orðið því erfið.
Auglýsingatekjur hafa dregist
mjög saman undanfarið og má sem
dæmi nefna að í júnímánuði voru
slíkar tekjur 16,4% lægri en á sama
tíma í fyrra og í maí drógust þær
saman um 11,9%.
Til að mæta þessum tekjusam-
drætti ætlar blaðið að hækka smá-
söluverð á hverju eintaki úr 1,25 döl-
um í 1,50 dali. bjarni@mbl.is
Harðnar í ári fyrir
New York Times
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
ÚTLITIÐ fyrir evrópskan efnahag
er ekki bjart, ef marka má fjölda
nýrra tölulegra upplýsinga um efna-
hagsástandið og viðhorf almennings
og athafnafólks til framtíðarinnar.
Framleiðni í Evrópu í júní var
undir væntingum og væntingarvísi-
tala innkaupastjóra stærstu fyrir-
tækja evrópu lækkað úr 49,1 í maí í
48,3 í júní. Þá lækkaði væntingavísi-
tala þýskra fyrirtækjastjórnenda á
sama tíma.Í frétt Forbes segir að
fyrirtæki séu svartsýnari á efna-
hagsástandið nú og yfir næsta hálfa
árið en þau voru áður.
Hrun í Finnlandi
Þá bárust í gær fréttir af því að
smásala í Bretlandi hefði dregist
saman um 3,9% frá fyrri mánuði, en
það er mesta lækkun í einum mánuði
frá upphafi mælinga.
Þessar óskemmtilegu fréttir höfðu
eðlilega áhrif á hlutabréfamarkaði í
Evrópu í gær. Breska FTSE-vísital-
an lækkaði um 1,61%, þýska DAX
um 1,46% og franska CAC-vísitalan
um 1,38%. Lækkanirnar voru jafnvel
enn meiri á Norðurlöndunum, þar
sem finnska hlutabréfavísitalan féll
um 4,46% í gær. Mörg stór pappírs-
og stálfyrirtæki lækkuðu mikið þar í
landi, en mörg fyrirtæki birtu í gær
annaðhvort afkomuviðvaranir eða
mun verri uppgjör fyrir annan árs-
fjórðung en gert hafði verið ráð fyr-
ir. Þá lækkaði sænska vísitalan um
2,64% og samnorræna OMX-vísital-
an um 1,95%.
Meiri svartsýni með horf-
ur í evrópsku efnahagslífi
Finnska OMX-hlutabréfavísitalan lækkaði um 4,46% í gær
á þessu ári og að félagið telji að við-
skiptavild félagsins endurspegli
verðmæti þess.
Hjörleifur og Björgólfur benda
báðir á að örar breytingar á reglum
um viðskiptavild séu bagalegar.
„Áður fyrr var þetta afskrifað á
nokkrum árum,“ segir Björgólfur.
„Þegar vel gengur þá er engin hætta
á afskriftum. Þegar þrengja fer að,
kemur sú spurning upp hvort þörf sé
að afskrifa og kemur þá inn á lang-
versta tíma fyrir öll fyrirtæki og all-
an rekstur.“
Hjörleifur bendir jafnframt á að
breytilegt sé hversu mikið af kaup-
verði fyrirtækja sé fært á afskrifan-
legar, óefnislegar eignir. Leikreglur
þurfi að vera skýrar.
Örar breytingar á
reglum bagalegar
Ákvörðun liggur hjá endurskoðendum viðkomandi fyrirtækja
Morgunblaðið/G.Rúnar
Eftir Snorra Jakobsson
sjakobs@mbl.is
FORSTÖÐUMENN fyrirtækja í
Kauphöllinni, sem haft var samband
við, vísa flestir á endurskoðendur
þegar þeir eru spurðir um afskriftir
á viðskiptavild og segja að ákvörð-
unin liggi hjá þeim. Virðisrýrnunar-
próf séu gerð einu sinni á ári sam-
kvæmt stöðlum.
„Við gerum upp eftir IFRS-stöðl-
um og gerum reglulega virðisrýrn-
unarpróf eftir þeim stöðlum,“ segir
Hjörleifur Pálsson, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs Össurar. „Við
förum algjörlega eftir bókinni í þeim
efnum. Samkvæmt síðasta virðis-
rýrnunarprófi vorum við ekki nálægt
því að þurfa að afskrifa viðskipta-
vild.“ Björgólfur Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandair Group, tek-
ur í sama streng og segir að virðis-
rýrnunarprófin séu byggð á rekstri
og rekstraráætlunum. Hann segir að
áætlanir fyrirtækisins hafi staðist og
ekki verið þörf fyrir afskriftir á við-
skiptavild.
Halldór Kristmannsson, fram-
kvæmdastjóri samskiptasviðs Eim-
skips, segir að félagið hafi afskrifað
viðskiptavild upp á 68 milljónir evra
ÞÓTT fasteignamarkaðurinn hafi þegar kólnað
töluvert má búast við því að kólnunin verði enn
meiri og að hún muni vara langt fram á næsta ár.
Þetta er mat Greiningar Glitnis, sem fram kemur í
Morgunkorni bankans í gær. Eins og fram hefur
komið spáði Seðlabankinn fyrr á árinu um 30%
raunverðslækkun á fasteignaverði á næstu árum
og tekur verðbólguspá bankans mið af þeirri spá
en fasteignaverð er einn af veigamestu þáttunum í
vísitölu neysluverðs.
„Þegar litið er til mælinga Hagstofunnar um
þróun íbúðaverðs á landinu öllu kemur í ljós að
íbúðaverð hefur lækkað um 0,5% frá byrjun árs en
tólf mánaða hækkun húsnæðisverðs á landinu
nemur 7,2% og hefur hægt mikið á árshækkun
húsnæðisverðs undanfarna mánuði. Til saman-
burðar nam árshækkun húsnæðisverðs á landinu
öllu 16,2% í byrjun árs,“ segir í Morgunkorni en
þar er jafnframt vísað til talna frá Fasteignamati
ríkisins sem í raun staðfesta tölur Hagstofunnar.
Samkvæmt gögnum FMR er árshækkun húsnæð-
is nú 3,2% sem er mikil breyting frá því í árs-
byrjun en þá nam árshækkunin 14%.
Mikið dregur úr umsvifum
„Fasteignamarkaðurinn á erfitt uppdráttar um
þessar mundir. Rýrnun kaupmáttar, aukin láns-
fjármögnunarkostnaður, versnandi horfur á
vinnumarkaði, hækkandi byggingarkostnaður og
brottflutningur erlends vinnuafls úr landi spilar
þar stórt hlutverk og dregur úr spurn eftir hús-
næði um þessar mundir,“ segir í Morgunkorni
enda hafa umsvif á fasteignamarkaði dregist mik-
ið saman að undanförnu. sverrirth@mbl.is
Erfitt uppdráttar
Kuldaskeið á fasteignamarkaði hafið og gæti varað
langt fram á næsta ár að mati Greiningar Glitnis
Morgunblaðið/G.Rúnar
Erfitt Fasteignamarkaðurinn á erfitt uppdráttar
um þessar mundir, að mati Greiningar Glitnis.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
LÍKLEGT er að
allt að fimmt-
ungur af öllum
þeim olíu- og
gaslindum sem
eftir er að finna í
heiminum í dag
séu á Norður-
heimskautssvæð-
inu. Þetta er nið-
urstaða rannsóknar bandarísku
jarðfræðistofnunarinnar (United
States Geological Survey, USGS)
sem birt var í fyrradag.
Í frétt New York Times segir að
þessi nýja rannsókn jarðfræðistofn-
unarinnar sé sú viðamesta sem
framkvæmd hafi verið á olíu- og
gasbirgðum Norðurheimskauts-
svæðisins til þessa. Stóru olíu-
fyrirtækin hafi lengi talið að mikla
olíu sé að finna á þessu svæði og
hafi varið háum fjárhæðum í að
komast yfir þær. Þá segir í fréttinni
að með þiðnun íss á norðurslóðum
og auknum möguleikum á ferðum
þar um sé nú hafið mikið kapphlaup
meðal þeirra ríkja sem eigi land
þar að um yfirráð yfir þessum auð-
lindum. Þar á meðal séu Bandarík-
in, Rússland og Kanada.
Um 90 milljarðar tunna
Jarðfræðistofnunin telur að sam-
tals sé að finna um 90 milljarða
tunna af vinnanlegri olíu á Norður-
heimskautssvæðinu og 1.670 billj-
ónir rúmfeta af jarðgasi. Miðað við
núverandi olíunotkun í heiminum
myndi þetta duga til að anna eftir-
spurninni á heimsvísu í nærri þrjú
ár.
Auðlindir
í norðri
'
!"#$%&"''(
(
))*
*
!
" #
$
%
&'()*
& + ,- ./-
01
2
+ )(,)-)
345
61
'
'7.
.8
1
*9
/
01,,
: ,
). )-)
/
; 1 ;
,/
0
1
*!
:,
0
, <
" & >3??54@
4A??>>@
??@35?@
>B4@43?4
C>?43??@@
+
+
>4BD4B@5B
C33?CB?35
>DA@A@
C>BA4?5
>@3D5D@>D
?>CB@@@
35AC?5
+
DD@54D
5>@>@A
D45344D
4DBD4>
+
+
+
>C3@@@@@
+
+
4EAB
5E5?
C5E35
4EC?
>?EB4
>?E>5
>4EB5
DC5E@@
CCEB@
A?EA@
3E@@
BECA
>E55
A5E5@
+
>B@E@@
>5@AE@@
C@3E@@
>?>E@@
+
+
+
?@D@E@@
>@E@@
+
4EB?
5E5D
C5E5@
4E3@
>5E@@
>?E3@
>DE@5
D3@E@@
CCEB5
A5E4@
3EC@
BE3C
>E5D
A4EC@
>E?B
>BCE@@
>5>@E@@
C@5E@@
>??E@@
C>EB5
+
AE5@
?>>@E@@
>@E5@
5E5@
./
,
C
4
?
B
>@
+
+
33
>@
>
D
B
D
C
+
C
C
4
3
+
+
+
>
+
+
F
, ,
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C3DC@@A
C3DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
BDC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
C?DC@@A
>4DC@@A
4>CC@@D
34C@@A
C?DC@@A
C3DC@@A
D3C@@A
)%G )%G
H
H
)%G 4 G
H
H
F
6 I
* H
H
.0&
F H
H
)%G 5>5
)%G .?@
H
H
● ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR (ÍLS) birti í
gær reglur um lán sjóðsins til fjár-
málafyrirtækja til tímabundinnar
endurfjármögnunar á íbúðalánum
sem þau hafa veitt gegn veði í íbúð-
arhúsnæði. Hvert fyrirtæki getur að-
eins sent inn eina umsókn.
Samkvæmt reglum ÍLS er heimilt
að lána að hámarki 30 milljarða
króna en hver umsækjandi á rétt á
1,5 milljörðum að lágmarki. Sjóður-
inn afhendir íbúðabréf til þriggja
mánaða gegn skuldabréfi með trygg-
ingu í undirliggjandi fasteignaveð-
bréfum. gretar@mbl.is
Reglur Íbúðalána-
sjóðs tilbúnar
Straumur er það fjármála-
fyrirtæki á Íslandi sem hefur
hæstar óefnislegar eignir, eða
viðskiptavild, í reikningum sín-
um sem hlutfall af eigin fé.
Ástæða viðskiptavildarinnar
skýrist að einhverju leyti af
kaupum Straums og Lands-
banka á Burðarási. Landsbank-
inn hefur að fullu afskrifað við-
skiptavildina vegna kaupanna
en Straumur hefur hins vegar
haldið viðskiptavildinni
óbreyttri.
Hæst hjá Straumi