Morgunblaðið - 25.07.2008, Síða 18
|föstudagur|25. 7. 2008| mbl.is
daglegtlíf
Morgunblaðið/Árni SæbergF
lestir eiga sér einhver
áhugamál og stunda þau
af mismiklum krafti. Til
eru svo aðrir sem taka
áhugamálin sín mjög al-
varlega og njóta þess sannarlega að
kafa dýpra í þau en Pétur og Páll.
Sveinbjörn Hrafnsson, sérlegur bíla-
áhugamaður, tilheyrir án efa síð-
arnefnda hópnum og hefur haft mik-
inn áhuga á bílum frá unga aldri.
„Krókurinn beygðist mjög
snemma. Þegar ég var tveggja eða
þriggja ára gutti þekkti ég næstum
alla bíla en það þótti óvenjulegt því
svoleiðis kunnátta þekktist varla í
ættinni og þekkist ekki enn.
Sveinbjörn hefur alltaf látið sig
dreyma um ákveðna bíla og er svo
lánsamur að hafa sankað að sér flest-
öllum draumabílunum í gegnum tíð-
ina. „Ég á hvítan BMW e30-blæjubíl
frá 1990, sem upprunalega var 325.
Hann var keyptur 2004 og var nú
ekki besta eintakið. Það fór hellings
peningur í að gera hann almennilega
ökuhæfan, svo leiddi eitt af öðru og
ég ákvað að taka hann allan í gegn.
Þegar það var búið bauðst mér und-
irvagn af M3-bíl og ég skellti mér á
hann. Þá var öllu breytt aftur í bíln-
um og ég setti meðal annars 3.8L ///
M5-mótor ofan í.“
„Það var ótrúlegt glópalán að ég
skyldi svo eignast gulan ALPINA
BITURBO ’92 módel nr. 346 af 507.
Hann hefur verið draumabíllinn minn
síðan um 1990 er ég las fyrst um bíl-
inn í erlendu tímariti,“ segir Svein-
björn. „Ég sá umræðu um hann á
BMWkraftur.is, hringdi í eigandann
úti og bað svo félaga minn að ná í
hann. Hann var í töluvert betra
ástandi en ég átti von á, alveg ótrú-
lega góður. Ég veit ekki betur en
hann sé einn af örfáum Alpina bi-
turbo í heiminum sem er keyrður
undir 85.000 kílómetrum. Einnig er
hann örugglega sé eini sem er Ferr-
ari-gulur. Ég þurfti að dytta að hinu
og þessu þar sem bíllinn hafði verið
óskráður í sjö ár en það var allt og
sumt.“
Þó að Lotus Omega sé ekki lengur
á dagskránni hjá Sveinbirni er hann
einnig búinn að sanka að sér BMW
M5 og Mercedes Benz 500 E sem
reyndar er seldur. Blaðamaður getur
ekki stillt sig um að spyrja Svein-
björn hvað sé svona heillandi við
BMW. „Góð spurning, þetta eru bara
einhver trúarbrögð. Hönnunin og út-
litið heillaði mig á sínum tíma og bíl-
arnir sem ég á eru einmitt frá þeim
tíma. Það er virkilega gott og gaman
að keyra þá því þeir eru yfirleitt þeir
öflugustu í sínum flokki. BMW-
bílarnir hafa ákveðinn persónuleika
sem ég heillaðist af.“
Gaman að keyra hratt
En hvernig skyldi standa á því að
Sveinbjörn og frú flytji bílana sína úr
landi og þeysist um á „autobahn“ í
Þýskalandi með íslensku einkanúm-
erin „ALPINA“ og „CABRIO“?
„Þjóðverjarnir eru heillaðir af einka-
númerunum, slíkt er ekki í boði í
Þýskalandi og því fá bílarnir gríð-
arlega athygli. Þessir bílar og minn
akstursstíll henta ekki íslenskum
hraðalögum enda leigjum við félagi
minn Þórður bílageymslu við Nür-
burgring. Ég og konan ætlum út í
ágúst og verðum rúma viku við Nür-
burgring Nordschleife. Ég er hepp-
inn því konan mín elskar þetta. Hún
hefur alla tíð haft áhuga á bílum og þó
hún sé ekki jafn sjúk og ég þykir
henni umhverfið í kringum þetta
mjög heillandi. Fólk þarf ekkert að
keyra á slaufunni til að heillast af
staðnum. Það er slíkur urmull af ofur-
græjum þarna og oft er ekkert mál að
sníkja rúnt með hinum og þessum
ökumönnum.“
Sveinbjörn segist keyra á Nürbur-
gring sér til gamans. „Ég er ekki í
kappakstri þarna á Nürburgring,
þetta er opinber þjóðvegur sem er
opinn næstum alla daga frá kl. 17-
19.30 og oft um helgar frá morgni til
kvölds. Þetta er nefnt Tourist-fahren
í daglegu tali og hefur verið við lýði
síðan brautin var opnuð árið 1927.
Allir sem eru með skráðan bíl geta
keyrt en kappakstur sem og vítaverð-
ur akstur er stranglega bannaður á
Tourist-fahren. Þeir sem keyra þann-
ig fá sekt og frávísun. Nürburgring
Gmbh gerir brautina út en þar fer
fram keppni, æfingar, þolakstur,
kennsla og svo eru bílaframleiðendur
með prófanir þarna líka en Formúlu
1-keppnir fara reyndar eingöngu
fram á GP-brautinni. Einn stærsti
viðburður ársins er samt sem áður al-
gjörlega óviðkomandi bílum en það er
Rock am Ring. Það er líklega stærsta
innkoma ársins á Nürburgring ásamt
24 hours Nürburgring-keppninni.
Eftir að brautin kom í Top Gear-
þættinum sprakk allt á svæðinu, það
er allt að gerast þarna núna og mikil
aðsókn hjá fjárfestum að kaupa lóðir
og slíkt í kringum brautina,“ segir
Sveinbjörn.
Formúla 1 á Íslandi?
Það er af illri nauðsyn sem Svein-
björn flytur bílana úr landi en hann
lifir í voninni um að Íslendingar not-
færi sér fyrr en síðar aðstæður hér á
landi og byggi almennilega aksturs-
braut. „Ég er einn af þeim sem eru
mjög hrifnir af því að keyra greitt en
íslenskt vegakerfi býður auðvitað
ekki upp á það þó að bílar séu orðnir
mjög fullkomnir. Þessa dagana er
reyndar verið að gera hörkugóða
hluti á rally cross-brautinni og von-
andi að það farnist vel. Hugmyndin
að Iceland Motopark var góð hug-
mynd sem fór illa. Þetta voru gríðar-
legir draumórar og pælingin ljós-
árum á undan veruleikanum, eins
konar Einar Ben-útfærsla.“
„Mótorsport snýst auðvitað ekki
bara um Formúlu 1 en að mínu mati
eru hér einstakar aðstæður því hér er
hægt að vera í köldu loftslagi en með
háan brautarhita. Það er jú fræðilega
hægt að setja heitt vatn í brautina. Ef
við berum saman Ísland og Spán, þar
sem mikið er keyrt á veturna, þá fer
minni tími fyrir Formúlu 1-lið að
fljúga hingað.
Verði brautin byggð á suðvestur-
horninu er mun styttra að keyra
þangað frá Keflavíkurflugvelli en frá
flugvellinum á Spáni. Nóg er til af
heitu vatni og byggingarefni á
Reykjanesinu en þetta eru jú hug-
myndir sem hafa verið viðraðar og
heyrst áður. Með því að fá hingað
kappaksturs- og keppnislið, auk ann-
arra alvöru fyrirtækja er tilheyra
kappakstri, til þróunar og æfinga
kæmu auðvitað gríðarlegir peningar
inn í landið og hugmyndin því alveg
meistaraleg,“ segir Sveinbjörn að
lokum. liljath@mbl.is
BMW e30 Blæjubíllinn er með M5-mótor.
Keyrir draumabíl-
ana á Nürburgring
Það eru ekki allir bílaáhugamenn sem láta húðflúra á sig akstursbrautir og merki
bílaframleiðenda. Lilja Þorsteinsdóttir spjallaði við Sveinbjörn Hrafnsson sem
ferðast reglulega til Þýskalands til að keyra bílana sína á Nürburgring.
Alpina Sá guli er nú vel merktur með „ALPINA“ einkanúmeri.
Spurður um húðflúrin segir Sveinbjörn: „Hesturinn kemur frá Ferrari
sökum Formúlu 1 sem ég lifði og hrærðist í á sínum tíma. Þegar ég var
með félaga mínum á F1-keppni niðri á Monza á Ítalíu árið 2000 fékk ég
mikil viðbrögð við hestinum, Ítalirnir hreinlega biluðust þegar þeir sáu
hann.“ M-merkið fékk ég mér eftir að ég átti /// M-mótor og Mercedes-
merkið þegar ég átti 500 E-bílinn. Stóra Alpina-merkið fékk ég mér
auðvitað út af gula bílnum.
„Fólki þykir þetta dálítið steikt en það er svo sem alveg sama hvað ég
hef tekið mér fyrir hendur í gegnum tíðina, það er yfirleitt frekar öfga-
kennt í allar áttir. Þau verða örugglega fleiri húðflúrin, bílatengd.“
„Fólki þykir þetta dálítið steikt“
Kristján Bersi Ólafsson fylgdist meðveðurfréttum:
Í vændum er vindaterta
sem vekur með fisléttum hroll,
því fellibylurinn Berta
blæs þeim fljótlega um koll.
Pétur Stefánsson orti að bragði:
Sé ég regnvot skrugguský
skríða um norðurhjara.
Stígvélin við eflaust í
ættum nú að fara
Hjálmar Freysteinsson læknir á Akur-
eyri gekk á Kaldbak og orti á leiðinni:
Fjallgöngur eru ferlegt puð,
fyllilega segja má,
óleik okkur gerði Guð
að gera fjöllin svona há.
Hann segist auðvitað vera var um sig í
gönguferðum nú um stundir:
Spurningin sýnist sanngjörn
er sé ég í fjarska mynd:
Er þetta lítill ísbjörn
eða stórvaxin kind?
VÍSNAHORNIÐ
Af veðri og ísbirni
pebl@mbl.is
LISTAMAÐUR leggur hér loka-
hönd á styttu af fílaguðinum Ga-
nesha við vinnustofu sína í ind-
versku borginni Chandigarh.
Styttunum er ætlað að setja svip
sinn á Ganesh Chaturthi, 12
daga löng hátíðahöld sem hindú-
ar halda til heiðurs Ganesha,
einum vinsælasta guði hind-
úatrúarinnar – enda talið gott
að heita á hann til að fjarlægja
þær hindranir sem á vegi manns
verða.
Til heiðurs
Ganesha
Reuters
Í HNOTSKURN
» Nürburgring er aksturs-braut í Nürburg, Þýska-
landi.
» Brautin var byggð á þriðjaáratug 20. aldar.
» Slaufan (Nordschleife) ervíða talin vera erfiðasta og
mest krefjandi tilbúna braut í
heimi.
» Það stendur til að byggjahraðskreiðasta rússíbana
heims hjá Nürburgring árið
2009.
www.123.is/alpina