Morgunblaðið - 25.07.2008, Side 19

Morgunblaðið - 25.07.2008, Side 19
matur MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 19 V eitingahúsið Hala- stjarnan í Öxnadal á sér orðið öflugan aðdáenda- hóp. Veitingahúsið ann- ast hjónin Sonja Lind Eyglóardóttir og Pavle Estrajher sem búa á Dalvík. Halastjarnan er staðsett um 35 kílómetrum frá Ak- ureyri. Beint á móti staðnum er gisti- staðurinn Engimýri en Halastjarna er undir Hraundröngum, þeim sögu- fræga stað. Fyrir utan staðsetninguna veitir hráefnið einnig Halastjörnunni sér- stöðu: „Allt það sem við bjóðum upp á á matseðlinum, kjöt og fiskur, er unn- ið á staðnum, en við kaupum ekkert tilbúið,“ segir Sonja. „Einnig bjóðum við einungis upp á lífrænt ræktaðan mat og ræktum okkar eigið salat í salatgarðinum.“ Með því að gera út á þessa þætti hefur Halastjarnan komið niður á gull eins og blaðamaður fær að reyna. Staðsetningin er afskaplega falleg og úti er hljótt og kyrrt. Ekta sveitarómantík. Fyrir ofan Hala- stjörnu er Hraunsvatn, en það hefur verið vinsælt meðal gesta að ganga upp að vatninu til að bæta matarlyst- ina. Einnig veiða Sonja og Pavle í soðið úr vatninu. Forréttindi að vera í sveit Ég fæ að smakka dýrindis gæs með gæðavíni sem Halastjarnan flyt- ur inn. Vínið er lífrænt ræktað í Movia í Slóveníu. Bragðið er afar gott, en vínið er búið til úr þrúgum hvítvínsins með aðferð rauðvíns, seg- ir Pavle mér. Ég næ ekki að stoppa það lengi á Halastjörnunni að ég fái að prófa alla 5 réttina sem eru venju- lega á boðstólum. Ég fæ að eiga það inni, og kem eflaust aftur eins og svo margir aðrir hafa gert. En hefði ekki verið skynsamlegra að hafa Hala- stjörnuna nær bænum fyrir þá sem vilja koma aftur? „Ef við værum með staðinn nær Reykjavík væri sjálfsagt meira að gera,“ segir Sonja „En það sem er gaman við þetta núna er að fólk kem- ur af því það langar að koma. Það vill leggja eitthvað á sig fyrir að vera hérna.“ Áður en Sonja og Pavle fluttust til Dalvíkur bjó Sonja í Reykjavík og vann á veitingastaðnum Við tjörnina. Hún segist fjarlægjast borgina æ meira, eftir því sem hún er lengur í sveitinni: „Það eru forréttindi að fá að búa uppi í sveit og fá að vera sjálf- stæður og stjórna sjálfum sér.“ Í vetur var Halastjarnan opin í fyrsta skipti yfir vetrartímann. Það gekk að sögn Sonju vonum framar og var hún ánægð með hvernig til tókst. Veðurguðirnir voru hagstæðir, en þau Pavle brugðu einnig á það ráð að bjóða gestum frá Akureyri upp á far fram og til baka á staðinn og var vel tekið í þjónustuna. Menningarbragur í Öxnadal Á laugardaginn verður mikið um að vera í Halastjörnunni en þá opna Marta María Jónsdóttir og Arnaldur Máni myndlistarsýninguna Höfguð í Hlöðunni sem er áföst staðnum. Þar verða í framtíðinni ýmsir menningar- viðburðir en þessi nýlunda er partur af breytingum sem Pavle og Sonja gerðu á húsnæðinu í vor, þegar þau stækkuðu Halastjörnuna. Tónleikar, ljóðakvöld og myndlist verður í hlöð- unni. Sonja hefur sjálf komið nálægt tónlist en hún söng með hljómsveit- inni Fimmtu herdeildinni fyrir nokkrum árum. Og hún vill gjarnan fá rithöfundinn Andra Snæ Magna- son til að vera með ljóðakvöld: „Já, ég auglýsi hér með eftir Andra Snæ. Við erum reyndar ekki komin með skemmtigarð hérna ennþá, en það kemur næst. Við Pavle erum ein- mitt búin að panta að láta skjóta okk- ur upp í himininn frá Rússlandi eftir að við deyjum. Við stefnum á að brenna upp í himinhvolfinu fyrir ofan Hraundranga,“ segir Sonja og brosir út í annað. Halastjarnan Þar geta ferðalangar fengið reykta gæs með lífrænt ræktuðu meðlæti og slóvensku eðalvíni. Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Matselja „Ég auglýsi hér með eftir Andra Snæ,“ segir Sonja sposk á svip, „þótt enn vanti hérna skemmtigarð.“ Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson hsb@mbl.is Seiðandi sumarvín Reuters Eftir Steingrím Sigurgeirsson sts@mbl.is Við höldum okkur við Nýja heiminn í þessari viku ogþá aðallega Argentínu en vín þaðan njóta vaxandivinsælda víðast hvar og er Ísland þar engin undan- tekning. Finca Las Moras er nýtt vínhús hér á markaðnum en fyr- irtækið er staðsett á svæðinu San Juan við rætur Andes- fjalla. Las Moras Intis Sauvignon Blanc 2007 er um margt ótýpískur Sauvignon, í nefi sætur og sultaður ávöxtur, rifs- ber. Ávöxturinn heitur, örlítið kryddaður og þykkur með töluverðri sýru. 1.090 krónur. 86/100 Las Moras Chardonnay 2007 er hins vegar alldæmi- gerður Nýja heims Chardonnay, þarna er mikill hitabeltis- ávöxtur og sítrus í bland við möndlur, ferskt með þægi- legri ávaxtasætu og mildri eik. Tilvalið sumarvín. 1.190 krónur. 88/100 Las Moras Cabernet Sauvignon 2007 er kannski ekki „mikið“ vín en þetta er hreinn og beinn Cabernet með fín- um sólberjaávexti og örlitlum tannínum, vín sem er létteik- að og þægilegt. 1.190 krónur. 87/100 Trivento er annað argentínskt vínhús, í eigu chileska vínrisans Concha y Toro sem réðst í gífurlega mikla fjár- festingu hinum megin við Andesfjöllin. Rauðvínið Trivento Amado sur 2006 er ágætis blanda úr Malbec, Syrah og Bonarda þar sem jafnt frönsk og am- erísk eik hefur verið notuð til að ná fram fleiri blæbrigð- um. Dökkur ávöxtur, sólber og bláber, bjart, þétt og nokk- uð tannískt í lokin. 1.400 krónur. 89/100 Loks eitt hvítvín frá Ástralíu, nánar tiltekið frá Viktoríu en aðstæður þar eru töluvert frábrugðnar þeim í Suður- Ástralíu þaðan sem flest áströlsk vín sem hingað rata eiga rætur sínar að rekja. Alla jafna er loftslagið svalara og því betri aðstæður til framleiðslu hvítvíns en á hinum sjóð- heitu ræktunarsvæðum Suður-Ástralíu Green Point Chardonnay 2004 er vín sem framleitt er af fyrirtæki í eigu franska kampavínshússins Moet et Chandon. Í nefi rautt greip, límóna og hitabeltisávöxtur á borð við ananas, smjörkenndur og feitur. Hefur flotta skerpu og lengd. 1.980 krónur í sérpöntun. 90/100 vín Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is „ÉG ER búin að lenda í ýmsu og lífið hefur ekki alltaf verið auðvelt. En fyrir fimm árum tók ég upp pensil í fyrsta sinn og eitthvað gerðist. Ég fann mig í málaralistinni og hef verið að mála stanslaust síðan.“ Þannig segir Ragnheiður Guð- jónsdóttir blaðamanni frá því hvern- ig hún byrjaði að mála. Ragnheiður, eða Ranný eins og hún er oftast köll- uð, hefur opnað sýningu á verkum sínum í Kaffi Hljómalind þar sem gefur að líta 35 verk eftir listakon- una. „Þetta gerðist þannig að mig vant- aði eitthvað upp á veggina hjá mér. Ég fékk þá hugmynd að prufa að mála eitthvað sjálf og hef síðan ekki getað hætt,“ segir Ragnheiður. Verkin á sýningunni spanna þró- un hennar sem listamanns síðustu fimm árin en Ranný segir ekki mikl- ar meiningar í list sinni. „Gegnum myndirnar fæ ég útrás og ró. Mynd- efnið spannar vítt svið, allt frá róm- antískum myndum upp í abstrakt. Ég mála eitt í dag en annað á morg- un. Myndirnar sýna hvernig ég upp- lifi lífið í núinu,“ segir hún. „Það sem ég vil gera er bara að sýna af ein- lægni það sem ég er búin að vera að fást við síðustu fimm ár.“ Morgunblaðið/Frikki Rannveig Guðmundsdóttir Hefur ekki getað hætt að mála. Fær útrás og ró gegnum myndlistina Sýningin í Hljómalind er sölusýn- ing. Í september heldur Ranný sýningu í verslun Valhúsgagna. REYKT HALASTJÖRNUGÆS gæsabringa salt ólífuolía timjan pera hlynsíróp ferskur ananas graslaukur jarðarber/rifsber Gæsabringan er lögð í gróft salt í fjórar klukkustundir. Eftir það er saltið hreinsað af og gæsin lögð í ólífuolíu yfir nótt. Gæsin er tekin úr olíunni, þerruð og sett í reykofn. Í reykofninn eru settar tvær mat- skeiðar af sagi og hálf matskeið af timjan. Reykt í ofninum í ca 5 mínútur. Með þessu er borin fram lífrænt ræktuð pera, skorin niður í teninga og sett í hlynsíróp. Einn- ig ananas, sem er skorinn niður í matreiðsluvél. Að lokum er ferskt timjan, graslaukur og jarðarber/rifsber sett ofan á gæsina eftir smekk. Ótal stjörnur undir Hraundranga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.