Morgunblaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 27
V i n n i n g a s k r á
12. útdráttur 24. júlí 2008
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 9 5 9 3
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
9 8 2 3 3 0 3 5 7 4 9 5 2 3 7 5 6 1 7
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1876 29625 35585 37105 46583 63925
15659 32678 36075 41413 50512 68961
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
1 0 6 8 1 3 9 7 2 2 0 7 6 5 3 4 1 3 5 4 3 1 1 5 5 1 9 7 4 6 5 3 1 5 7 4 6 3 3
1 1 8 0 1 4 3 0 5 2 1 5 8 6 3 5 0 8 9 4 4 6 1 8 5 3 0 9 7 6 7 0 2 3 7 6 1 0 4
3 2 3 2 1 4 3 0 8 2 2 2 5 9 3 5 2 5 9 4 5 0 8 4 5 3 4 7 3 6 7 6 6 1 7 6 2 2 3
3 5 9 6 1 5 9 2 2 2 2 7 4 4 3 7 3 3 2 4 6 2 0 6 5 4 4 9 3 6 7 7 8 3 7 6 7 5 7
4 7 0 6 1 5 9 2 5 2 3 2 4 1 3 7 8 0 9 4 6 4 0 5 5 4 6 2 7 6 7 9 8 8 7 7 2 3 7
8 2 6 8 1 6 0 5 6 2 4 5 1 5 4 0 1 8 1 4 6 6 7 2 5 5 1 3 6 6 8 2 9 9 7 7 3 8 5
8 4 8 0 1 6 6 2 0 2 7 8 9 1 4 0 2 2 1 4 7 2 8 3 5 5 2 2 2 6 8 3 3 2 7 9 4 3 9
8 9 2 7 1 7 9 6 3 2 8 0 0 8 4 0 3 5 0 4 7 5 5 2 5 7 7 1 1 6 9 1 7 5 7 9 5 4 2
1 0 5 3 8 1 8 8 0 1 2 8 0 8 4 4 1 4 8 5 4 8 2 4 1 5 8 7 3 4 7 0 5 5 9 7 9 9 1 1
1 1 2 9 6 1 9 7 4 2 2 8 4 1 3 4 1 7 7 4 5 0 0 7 9 5 8 9 5 9 7 0 6 1 6
1 3 1 6 7 1 9 9 8 6 2 9 3 1 5 4 2 0 6 1 5 0 1 9 2 6 0 2 1 8 7 3 4 1 7
1 3 6 2 6 2 0 6 7 8 3 2 8 3 1 4 2 0 9 1 5 1 6 5 9 6 0 9 8 2 7 3 6 9 6
1 3 7 4 1 2 0 7 2 5 3 3 0 0 2 4 2 1 2 1 5 1 8 1 2 6 3 0 4 5 7 4 0 8 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 27
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
1 1 2 1 4 6 2 2 8 1 2 3 1 5 3 1 4 2 6 9 3 5 2 4 1 1 6 3 7 6 6 7 4 3 9 3
9 9 6 1 2 3 2 5 2 2 9 7 8 3 1 6 1 9 4 3 0 3 8 5 2 9 0 3 6 3 8 6 6 7 4 6 2 1
1 2 7 7 1 2 6 4 5 2 3 3 4 3 3 1 6 4 0 4 3 1 1 7 5 3 0 9 1 6 3 9 3 7 7 4 7 9 7
1 6 0 0 1 2 9 7 1 2 3 7 2 2 3 2 5 8 7 4 3 2 7 3 5 3 9 0 5 6 4 1 2 3 7 4 8 5 3
1 9 1 1 1 3 0 8 9 2 3 8 1 2 3 3 0 0 9 4 3 5 5 0 5 4 0 4 3 6 4 1 7 0 7 6 4 9 0
2 1 6 0 1 3 3 0 0 2 3 8 9 8 3 3 7 4 8 4 3 7 8 5 5 4 5 7 4 6 4 3 7 9 7 6 6 2 7
3 1 1 9 1 3 4 9 8 2 4 4 1 7 3 4 2 9 3 4 4 4 2 2 5 5 4 4 4 6 4 8 5 8 7 6 6 6 3
3 5 5 1 1 3 5 2 0 2 4 4 6 8 3 4 3 6 7 4 4 4 5 9 5 5 6 5 3 6 5 0 7 7 7 6 9 4 5
3 8 8 9 1 3 5 7 0 2 4 4 9 4 3 4 5 4 9 4 4 7 0 9 5 5 8 9 3 6 5 1 5 0 7 7 2 0 1
4 4 9 9 1 3 7 9 4 2 4 5 8 7 3 4 6 8 1 4 4 8 2 8 5 6 2 6 2 6 5 4 2 5 7 7 2 4 1
5 2 4 9 1 4 3 6 0 2 5 1 1 1 3 5 6 9 3 4 5 2 1 0 5 6 4 7 6 6 5 4 7 1 7 7 2 7 4
5 7 7 1 1 4 4 9 0 2 5 4 9 7 3 5 9 4 8 4 5 2 6 6 5 6 7 6 4 6 5 5 3 0 7 7 3 2 6
5 9 3 8 1 5 2 2 9 2 6 1 1 3 3 6 1 2 0 4 5 6 6 3 5 6 7 7 3 6 5 9 0 6 7 7 3 6 8
6 1 8 2 1 5 7 2 7 2 6 3 8 4 3 6 8 7 2 4 5 8 9 7 5 7 7 3 3 6 6 3 9 8 7 7 6 1 1
6 4 7 0 1 6 2 1 2 2 7 2 2 5 3 7 0 3 6 4 5 9 2 7 5 7 9 5 3 6 6 4 6 8 7 7 6 7 8
6 4 8 0 1 6 6 6 0 2 7 3 3 4 3 7 9 0 8 4 6 2 3 2 5 8 2 8 7 6 6 7 0 3 7 8 0 3 1
6 6 0 0 1 6 8 3 9 2 7 4 9 7 3 8 5 4 5 4 6 3 6 9 5 8 3 0 2 6 7 0 4 4 7 8 0 4 3
7 0 7 4 1 7 5 2 3 2 7 5 8 1 3 8 6 6 2 4 6 4 7 8 5 8 8 1 9 6 7 0 4 6 7 8 2 2 8
7 1 1 2 1 7 7 4 9 2 8 0 1 8 3 8 9 2 6 4 6 5 4 6 5 8 8 5 3 6 7 5 6 9 7 8 4 3 7
7 1 5 9 1 7 7 8 8 2 8 7 9 8 3 8 9 4 9 4 6 5 5 5 5 9 4 2 3 6 7 8 0 5 7 8 8 2 6
7 9 6 0 1 8 0 5 5 2 9 0 7 1 3 9 1 3 1 4 6 8 8 5 5 9 6 8 5 6 8 8 0 6 7 8 9 2 2
8 1 8 2 1 8 4 5 4 2 9 3 2 1 3 9 6 5 9 4 7 3 9 6 6 0 1 7 4 6 9 4 6 3 7 9 0 5 5
8 4 0 9 1 8 4 8 7 2 9 7 2 5 4 0 3 6 8 4 7 6 6 5 6 0 5 1 5 6 9 6 9 7 7 9 6 8 1
8 6 6 4 1 9 2 7 6 2 9 7 5 5 4 0 7 4 7 4 7 7 9 4 6 0 7 6 5 6 9 9 7 4 7 9 8 0 3
8 8 1 6 1 9 4 2 9 3 0 1 6 6 4 1 1 2 7 4 9 1 2 5 6 1 0 6 0 7 0 2 3 8 7 9 8 8 9
9 5 4 2 2 0 6 3 9 3 0 2 3 4 4 1 2 0 4 4 9 6 4 9 6 1 2 2 9 7 2 0 7 1 7 9 9 2 6
9 6 9 8 2 0 7 2 0 3 0 6 2 2 4 1 4 7 7 4 9 6 5 9 6 1 2 9 9 7 2 4 0 8
9 7 6 8 2 1 4 0 2 3 0 8 2 8 4 1 5 8 2 5 0 3 2 4 6 1 4 2 9 7 2 5 2 3
1 0 6 5 8 2 1 4 0 8 3 0 9 9 5 4 1 6 0 5 5 1 4 5 5 6 1 6 2 9 7 3 2 8 5
1 1 1 1 6 2 1 4 8 8 3 1 0 3 4 4 1 9 8 3 5 1 5 8 3 6 1 7 3 1 7 3 3 8 6
1 1 7 2 9 2 2 2 6 0 3 1 2 4 6 4 2 7 1 6 5 1 8 9 3 6 2 8 4 9 7 3 5 1 2
1 1 8 5 7 2 2 4 5 6 3 1 3 4 1 4 2 8 6 7 5 2 1 0 5 6 3 0 7 0 7 4 0 7 9
Næsti útdráttur fer fram 31. júlí 2008
Heimasíða á Interneti: www.das.is
og yfirleitt allra þeirra sem kynntust
honum.
Hinn 25. nóvember árið 1961
kvæntist hann. Sumarrós Lillian
reyndist honum sterk stoð í lífi hans
og öllu starfi. Hún var „Rósin“ í lífs-
garði þessa vinar. Heimili þeirra bar
vott um hlýja nánd hennar og list-
næmi. Margir áttu þar góðar stundir
og nutu gestrisni þeirra hjóna. Mun
það mörgum þakkarefni.
Við Katrín þökkum löng og ljúf
kynni. Við hugsum norður yfir heið-
ar og biðjum Rósu, Jóhönnu og Birgi
og öðrum ástvinum blessunar Guðs,
huggunar og styrks í Jesú nafni.
Það er bjart yfir minningu séra
Birgis Snæbjörnssonar. Genginn er
góður Íslendingur og vænn drengur,
sem í engu brást.
Bragi Friðriksson.
Sr. Birgir Snæbjörnsson birtist í
dalnum heima á góðu ári, söngglað-
ur og raddfagur kom hann til liðs við
karlakórinn, rabbaði við börnin í
messulok og fékk Sigurjón í Hólum
með sér í fyrstu húsvitjanirnar í
Blöndudal. Hann var nýkominn úr
guðfræðideildinni og kom inn í fá-
mennt samfélag með stórt og ein-
stakt verkefni sem var að reisa
Húnaver. Sr. Birgir var presturinn
sem vígði húsið 7. júlí 1957.
Hann fór í nýtt kall eftir allt of fá
ár en afar góð og kórmenn kvöddu
hann með minningabók sem þeir rit-
uðu allir ummæli í, vísur og heilla-
óskir. Hlýjan til hans og söknuður
félaganna eftir honum birtust í
þessu versi söngstjórans:
Seinna þá ertu sestur
sjálfur að helgum steinum
geti af þínum greinum
gefist prestur hér vestur.
(JT.)
Fjölskyldu sr. Birgis viljum við
Ártúnafólk votta samúð okkar og
senda þakkir fyrir samskipti á liðn-
um árum.
Ingi Heiðmar Jónsson.
Björt og hljómmikil rödd séra
Birgis fyllti litlu kirkjuna í Lög-
mannshlíð þegar hann söng Guði lof
og þakkargjörð með kirkjukór og
söfnuði. Lítil eyru hlýddu á af and-
akt en biðu þó með meiri spenningi
eftir sögunni sem presturinn krydd-
aði sérhverja predikun. Þá gerðum
við börnin hlé á því endalausa verk-
efni okkar að telja stjörnurnar í lofti
kirkjunnar. Prestsþjónusta séra
Birgis var afar umfangsmikil, enda
var hann lengst af sóknarprestur í
stóru prestakalli og því til viðbótar
prófastur um tíma. Ófáar eru þær
stundir sem hann og séra Pétur Sig-
urgeirsson, samstarfsmaður hans á
Akureyri í langan tíma, áttu með
okkur unglingunum í æskulýðsstarfi
Akureyrarkirkju, hvetjandi og þol-
inmóðir og ávallt reiðubúnir að
leggja lið. Séra Birgir kostaði kapps
um að skapa sátt og frið hvar hann
kom og í fermingarfræðslunni lagði
hann ríkt á við okkur unga fólkið að
taka ekki undir slúður og rógburð,
heldur þvert á móti að draga fram
allt hið besta sem hver maður hefur
að geyma og halda því á lofti.
Verið með sama hugarfari sem Jesús
Kristur var
skrifaði hann til mín á ferming-
ardegi, orð Páls postula sem honum
voru kær og hann hafði að leiðarljósi
í lífi sínu og starfi. Sá skari er afar
stór sem naut þjónustu séra Birgis í
gleði sem sorg og leitaði til hans á
nóttu sem degi, enda vinnudagur
prestsins oft mjög langur. Lengst-
um hafði séra Birgir ekki aðra skrif-
stofu en þá sem var á heimili hans,
og lagði Rósa kona hans honum lið í
þjónustunni með margvíslegum
hætti. Það skal einnig þakkað hér
þegar við kveðjum séra Birgi, minn-
umst góðra og gleðilegra samveru-
stunda með honum og þökkum ein-
læga þjónustu hans og það sem hann
var okkur og gaf með orðum sínum
og verkum.
Séra Birgir var einlægur trúmað-
ur, sem fól Drottni Jesú Kristi líf sitt
og sinna, og átti þá fullvissu að kær-
leikur Guðs umvefur okkur hverja
stund hér á jörðu og leiðir okkur inn
í dýrð himnanna þá líf okkar slokkn-
ar hér. Guð helgi minninguna um
séra Birgi Snæbjörnsson, trúfastan
Drottins þjón, og veiti Sumarrósu
eiginkonu hans, börnum þeirra,
Birgi og Jóhönnu, og öðrum ástvin-
um huggun og frið.
Jón Helgi Þórarinsson.
Hlýlegt viðmót og góður húmor
einkenndi persónuleika hans. Hann
var sannur vinur í raun og einstak-
lega gefandi í samskiptum. Það var
góð tilfinning að geta hugsað til hans
norður og að mega hitta hann og
Rósu á heimili þeirra. Andlát hans
er mér mikið áfall þótt ferðirnar
norður hafi orðið strjálli og styttri
með árunum. Mér finnst sem náinn
ættingi hafi fallið frá og enginn komi
í hans stað. Ég efa ekki að mörgum
sé innanbrjósts líkt og mér við and-
lát séra Birgis Snæbjörnssonar sem
í starfi sínu sem prestur um áratuga
skeið snart líf fjölmargra. Hann er í
huga mínum táknmynd fyrir það
besta í íslensku kirkjunni, nefnilega
mannskilning, umburðarlyndi og
hlýju.
Það var árið 1989 sem leiðir okkar
séra Birgis lágu saman þegar við
fjölskyldan fluttumst norður að
Möðruvöllum í Hörgárdal. Allt frá
fyrstu stundu fannst mér Birgir ein-
staklega skemmtilegur maður og
naut þess að hlusta á hann flytja mál
sitt sem oftast nær var kryddað
kímni þannig að unun var á að hlýða.
Hann var snillingur í að segja sögu á
þann hátt að maður veltist um af
hlátri, þótt atvikið hefði í sjálfu sér
verið smávægilegt. Árlega var boðið
til samveru á fallegu heimili þeirra
Rósu, prestum í prófastsdæminu og
mökum þeirra. Þar voru fram born-
ar ljúffengar veitingar bæði fyrir lík-
ama og sál og voru þessi kvöld ætíð
mikið gleði- og tilhlökkunarefni.
Sjaldan á ævinni hef ég hlegið jafn
mikið og þessi kvöld yfir prestasög-
um séra Birgis og stundum nægði
bara að horfa á svipinn á andliti hans
til að skella upp úr.
En það var ekki síður á alvöru-
stundum sem gott var að eiga hann
að. Hann reyndist mér ómetanlegur
vinur í raun og besti ráðgjafi þegar á
þurfti að halda. Fyrir það mun ég
ætíð vera þakklát. Þar réði mestu
eðlislæg góðvild hans og hæfileiki til
þess að sýna fólki tiltrú og virðingu.
Hann setti sig ekki í dómarasæti eða
lét sem hann hefði meira vit á hlut-
unum en viðmælandinn, heldur
hlustaði og lagði gott til málanna á
sinn ljúfa og elskulega hátt. Þannig
var eins og lausn vandamálsins
kæmi til manns.
Í auðmýkt og þakklæti kveð ég
góðan vin og bið Guð að blessa Rósu
hans, börn þeirra og fjölskyldu alla.
Kristín Magnúsdóttir.
Sr. Birgir var skemmtilegur mað-
ur. Það var bjart yfir honum og hann
var einlægur og góðgjarn. Hann var
maður sem gaf sig allan í lífsstarfið
og þjónaði kirkju og kristni af mikilli
alúð. Þjónusta hans á Æsustöðum,
Laufási og á Akureyri var öll undir
þeim formerkjum að hann gaf sig
allan í starfið. Daga sem nætur var
hann vakinn og sofinn um velferð
sóknarbarna sinna og hann þjónaði
þeim af gleði.
Í raun gaf hann líf sitt til þjónust-
unnar. Ég veit að Rósa og börnin
þurftu oftar en ekki að laga sig og
sínar þarfir að margbreytilegu starfi
prestsins. Sr. Bigir lét starfið hafa
forgang og hann vék aldrei af vakt-
inni.
Í boðun sinni var hann óendanleg-
ur brunnur dæmisagna sem hann
notaði í sínum ræðum. Hann var líka
ljóðrænn og ófeiminn að vitna í þjóð-
skáldin. Frásagnargáfa hans var oft
kitlandi fyrir hlátur og gleði.
Sr. Birgir var gefin góð og falleg
söngrödd, sem gaf honum sérstöðu
meðal kolleganna. Hann var líka
kórmaður og söngur hans í Smá-
rakvartettinum hefur glatt marga.
Söngurinn og stangveiðin var í
raun eitt af fáu ef ekki það eina, sem
hann gaf sér tíma til að sinna utan
kirkjustarfsins. Hann var lunkinn
veiðimaður og það eru margar
ánægjustundir að muna frá Fnjóská,
þar sem við áttum um árabil sömu
veiðidaga.
Starf hans með æskulýð á Akur-
eyri hafði mótandi áhrif á mörg ung-
menni. Sr. Birgi tókst allt í senn að
vera vinur og félagi um leið og hann
var fræðari og prestur. Mennska
hans réði för og oftar en ekki var
hann fyrstur manna til að klæða sig
úr þessu „prestslega“, sem liggur
þungt á mörgum. Hann kunni að
bregða á leik, vera hrókur alls fagn-
aðar og vera jafnvel á sömu stundu
kallaður til að styðja og leiða þar
sem þungi og sorg hafði lagst yfir.
Hann fór hratt yfir, og það þekkja
allir fyrir norðan þegar A 1600 birt-
ist og þá var eins gott að víkja. En
hann var lánsamur maður í lífi og
starfi. Þau hjónin voru samhuga og
samstillt. Saman gengu þau til þjón-
ustunnar og ég er þess fullviss að
Jóhanna Erla og Birgir Snæbjörn
hafa oft þurft að bíða og sýna þol-
inmæði þegar skylda kallaði á
pabba.
Við erum þakklát fyrir að hafa
fengið að eiga samleið með þessum
öðlingi sem sr. Birgir var. Hann var
góður kollegi og við þökkum honum
holl ráð og hvatningu. Það allt var til
staðar þegar við hittumst síðast fyr-
ir fjórum vikum og þá var líka spáð í
veiðina í Fnjóská.
Guð blessi minningu kollega, vin-
ar og frænda. Megi blessun Guðs
vera með eiginkonu hans börnum og
ástvinum öllum.
Unnur og Pálmi Matthíasson.
Í dag kveðjum við séra Birgi. Þó
andlát góðs vinar sé ætíð sorgarat-
burður er það svo að þegar hugsað
er til séra Birgis og hans lífsstarfs,
eru minningarnar um hann fyrst og
fremst bundnar gleði, jákvæðni og
þægilegri nærveru.
Við minnumst séra Birgis ekki
síður sem fjölskylduvinar en prests.
Í leik og starfi kom fram dugnaður
og framkvæmdagleði. En þrátt fyrir
annir í fjölmennri sókn og fjölbreytt
félagsstörf gat hann alltaf gefið sér
tíma fyrir fjölskyldu og vini.
Samverustundirnar með séra
Birgi voru margar og eftirminnileg-
ar, má þar nefna giftingar og skírnir
og önnur embættisstörf innan fjöl-
skyldunnar, ferðalög innanlands
sem utan, að ógleymdum afmælum
og þorrablótum sem hann setti
ávallt mikinn svip á með sögum og
söng. Hann átti gott með að færa
gleði og ánægju til fólks þar sem það
var saman komið og var sannkall-
aður gleðigjafi.
Um leið var ekki minna um vert
að eiga hann að þegar sorgaratburð-
ir kvöddu dyra. Þá gat hann ávallt
veitt huggun og hughreyst þá sem á
því þurftu að halda.
Fjölskyldur okkar sem hér rita
minnast séra Birgis með miklu
þakklæti. Öll tengsl við hann og fjöl-
skyldu hans voru mikil og góð, þar
sem fjöldi minnisverðra atburða
kalla á ljúfar endurminningar.
Við andlát séra Birgis viljum við
færa Rósu, börnum hennar og öllum
afkomendum og ástvinum einlægar
samúðarkveðjur og þökkum allar
þær stundir sem við höfum átt með
þeim hjónum og fjölskyldunni allri á
liðnum áratugum.
Laufey og Sigurður,
börn þeirra og fjölskyldur.
Í dag kveð ég mikinn sómamann.
Birgi kynntist ég strax sem barn
enda fjölskyldutengsl okkar mikil.
Birgir var kvæntur annarri móður-
systur minni og samgangur fjöl-
skyldna systranna þriggja mjög ná-
inn. Reyndar hef ég á seinni árum
fundið hversu heppin við frænd-
systkinin vorum því slíkt er alls ekki
sjálfgefið. Oft var glatt á hjalla hjá
okkur og þolinmæði þeirra hjóna
Birgis og Rósu virtust engin tak-
mörk sett. Enda er óþrjótandi þol-
inmæði það fyrsta sem upp í hugann
kemur þegar ég hugsa til Birgis.
Minnisstæð eru mér hin mörgu
ferðalög fjölskyldnanna í veiðiferðir
og útilegur. Blár Volvo með hjólhýsi
í eftirdragi á holóttum og rykugum
þjóðvegi, þar voru Birgir, Rósa og
börn á ferð. Það var alveg sama
hvort skreppa átti í skóginn yfir
helgi, keyra hringinn í viku eða
þræða Vestfirðina í hálfan mánuð,
alltaf dró Birgir hjólhýsið þolinmóð-
ur og yfirvegaður, þrátt fyrir skelfi-
lega vegi sem oft á tíðum ætluðu að
hrista hjólhýsið í sundur. Á þessum
tíma voru hjólhýsi ekki eins algeng
og þau eru nú og sumstaðar þar sem
fjölskyldan fór um mátti sjá undr-
unarsvip og jafnvel tortryggni á
andlitum heimamanna, sem ekki
virtust alltaf gera sér grein fyrir
hvað þetta fyrirbæri væri sem
skrölti þarna eftir veginum.
Fyrir mér var Birgir í starfi sínu
ekki bara prestur, hann var hinn
sanni guðsmaður sem túlkaði guðs-
orð á mannamáli, laus við yfirborðs-
mennsku og oflæti. Fyrir mörgum
árum, í miklum erfiðleikum, missti
ég barnatrúna rétt eins og kannski
flest okkar þegar við upplifum mikið
óréttlæti að okkur finnst. Við rædd-
um þetta og hann vakti mig til um-
hugsunar og breytti viðhorfi mínu til
trúarinnar og Biblíunnar.
Birgir var mikill sögumaður og
hrein unun að heyra hann segja frá.
Hann tók sjálfan sig ekki of hátíð-
lega og var ófeiminn við að sjá
spaugilegar hliðar á sjálfum sér,
sem hann deildi síðan óspart með
okkur hinum. Birgir gerðist sveita-
prestur strax að loknu guðfræði-
námi og margar voru gamansögurn-
ar sem hann kunni af þessum unga
presti og glímum hans við sveita-
störfin. Sögur eins og þegar hann
flutti beljuna í rússajeppanum og
þegar hann veiddi óvart hænu á
stöng í hádeginu, vekja enn hjá mér
kátínu. Birgir var mikill gleðigjafi og
það var alltaf stutt í hláturinn þegar
hann var annars vegar. Slíkir guðs-
menn laða okkur að trúnni.
Síðustu samverustundir okkar
voru suður í Reykjavík réttum
tveimur vikum fyrir andlát hans.
Suður var hann kominn til þess að
ganga með mér síðasta spölinn með
drenginn minn. Ég fann að mikið var
af Birgi dregið og lýsandi fyrir hann
að leggja á sig þessa erfiðu ferð til
þess að ganga með okkur feðgunum
þennan spöl. Kynni mín af Birgi og
leiðsögn hans í gegnum árin hafa
verið mér mikill stuðningur í minni
sorg.
Nú hefur drottinn endurheimt
einn sinn dyggasta liðsmann. Og
fullvíst að Birgi er ætlað stórt hlut-
verk í húsi drottins. Ég bið guð að
styrkja fjölskyldu hans og vaka yfir
henni í sorg sinni.
Þráinn Lárusson.