Morgunblaðið - 18.08.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 18.08.2008, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært stökktu tilboð á síðustu sætunum til Costa del Sol, 21. ágúst í 1 eða 2 vikur og 28. ágúst í viku. Þú bókar og tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið og tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjörum á vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Costa del Sol Allra síðustu sætin! Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. frá kr. 59.990 21. eða 28. ágúst Verð kr. 59.990 Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð í viku, 21. eða 28. ágúst. Aukavika kr. 15.000 (aðeins í boði í brottför 21. ágúst). Stökktu til Gegn hatursglæpum  Lagt er til í áfangaskýrslu um hatursglæpi að lögreglumenn fái fræðslu um slík afbrot  Refsimörk hegningarlaga vegna hatursglæpa verði hækkuð TILLÖGUR um ýmsar aðgerðir til að fækka hat- ursglæpum er að finna í nýrri áfangaskýrslu um stöðu og þróun hatursglæpa á Íslandi og innan að- ildarríkja Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE). Skilgreiningar á hatursglæpum geta verið mismunandi eftir löndum. ÖSE segir hatursglæp vera verknað sem skilgreinist sem brot eða afbrot samkvæmt hegningarlögum. Sá sem framdi brotið þarf að hafa valið fórnarlambið vegna þess að það tilheyrði ákveðnum hópi eða brotamaður taldi það tileyra ákveðnum hópi. Þótt talað sé um haturs- glæp þá er það mismunun, en ekki hatur, sem ligg- ur að baki afbrotinu. Skýrslan er birt á heimasíðu lögreglunnar. Í tillögunum, sem byggja á greiningu á stöðu mála á Íslandi og í nágrannalöndunum, kemur m.a. fram að löggæsluyfirvöld þurfi að mæta þróuninni á þessu sviði með því að efla þjálfun og fræðslu. Í skýrslunni er bent á að lögreglumenn hér á landi fái hvorki sérstaka kynningu né sitji námskeið um hatursglæpi eða hvernig bregðast eigi við slíkum brotum. „Ætla má að bæta þurfi þekkingu lög- reglumanna á þessum málaflokki í ljósi þess hversu fáir hatursglæpir eru skráðir á Íslandi,“ segir m.a. í skýrslunni. Því er talið að bæta þurfi skráningu hatursglæpa, bæði söfnun upplýsinga og flokkun. Þá er lagt til að aflað sé upplýsinga um stöðu mála sem tengjast hatursglæpum innan refsivörslukerfisins. Eins verði skráðar aðgerðir íslenskra stjórnvalda og annarra sem hafa það að markmiði að koma í veg fyrir eða fækka haturs- glæpum. Lagt er til að í VIII. kafla í almennum hegning- arlögum verði ákvæði um heimild til að þyngja dóm ef sannað þykir að sakborningur hafi mis- munað fórnarlambi. Eins er lagt til að refsimörk vegna brota á greinum 125, 180 og 223 a í hegning- arlögum verði hækkuð, og að breyting verði gerð á 65. grein stjórnarskrárinnar. Þar segir að allir skuli vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til ýmissa atriða sem talin eru upp. Lagt er til að þeim atriðum verði fjölgað. gudni@mbl.is SKÓGRÆKTARFÉLAG Íslands samþykkti á nýafstöðn- um aðalfundi ályktun um að skógrækt og skógarreitir fái sinn sess í skipulagslögum. „Við erum að þrýsta alvarlega á stjórnvöld til að koma í veg fyrir þann núning sem orðið hefur undanfarin ár vegna skerðingar á útivistarsvæðum og skóglendum,“ sagði Brynjólfur Jónsson, framkvæmda- stjóri félagsins. Þá ályktaði félagið einnig um að sett verði ný skógræktar- og landgræðslulög. Eins var samþykkt ósk um að komið verði upp steingervingasafni á Vestfjörð- um. Þar er að finna merkilegar menjar í jarðlögum um forna skóga. 73. aðalfundur Skógræktarfélagsins var haldinn 15.-17. ágúst sl. í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Auk venjulegra að- alfundarstarfa heimsóttu fundarmenn m.a. Sanda í Dýra- firði, þar sem afhjúpað var nýtt skilti. Toyota á Íslandi hef- ur styrkt skógrækt þar í um tvo áratugi og færði Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Toyota, Skógræktarfélagi Dýrafjarðar nestisborð fyrir skóginn og keðjusög að gjöf. Magnús Gunnarsson var kjörinn formaður félagsins og var formaður í fyrsta sinn kjörinn beinni kosningu. Skógræktin fái sinn fasta sess í skipulagslögum Skógræktarfélag Íslands vill fá sett ný skógræktarlög Ljósmynd/Skógræktarfélag Íslands Toyota-skógur Páll Samúelsson og Magnús Kristinsson við skiltið sem afhjúpað var í skóginum í Dýrafirði. Eftir Birki Fanndal Haraldsson Mývatnssveit | Mikið sólfar hefur verið við Mývatn í sumar og tíð á margan hátt gjöful. Þannig náðu bændur heyjum sínum á mettíma vel verkuðum. Sá hængur er þó á annars góðu sumri að mjög lítil úr- koma hefur verið lengst af og nú er svo komið að farið er að stórsjá á gróðri. Tún eru að hvítna upp, út- haginn sölnar og á rofsvæðum Austurfjalla og á Suðurafrétti rjúka moldarmekkir hátt til himins þegar bætir eitthvað í vind. Mikill þurrkur við Mývatn Morgunblaðið/Einar Falur SVO illa vildi til í gærdag að kona datt af hestbaki norðan við Skaga- strönd. Að sögn lögreglunnar á Blöndu- ósi hlaut hestakonan meiðsl í mjöðm og var þegar flutt á heil- brigðisstofnunina á Blönduósi til nánari skoðunar. Þaðan mun hún hafa verið flutt til Reykjavíkur til frekari aðhlynn- ingar. Meiddist við fall af hestbaki UNGIR sem aldnir skemmtu sér prýðilega um helgina á árlegri hátíð Prýðifélagsins Skjaldar, félags íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar. Að öðrum atriðum ólöstuðum var hápunkt- urinn fótboltakeppni barna, sem Pétur Marteins- son, meistaraflokksmaður í KR, stýrði af miklum myndarskap. Um kvöldið var svo komið að þeim fullorðnu, sem grilluðu og skemmtu sér fram eft- ir kvöldi. Hverfishátíð íbúa Skerjafjarðar sunnan flugvallar Prýðisgóður dagur í Skerjafirðinum Morgunblaðið/Frikki Morgunblaðið/Frikki SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð- isins fékk tilkynningu um eld í gas- kút kl. 12.30 í gærdag. Gaskúturinn var festur við gasgrill í heimahúsi við Álfatún í Kópavogi. Húsráðandi hafði sjálfur reynt að skrúfa fyrir gasið en eldurinn jókst við tilraunir mannsins. Að sögn slökkviliðs logaði talsverður eldur þegar að var komið. Var hann slökktur með vatni, skrúfað fyrir og kúturinn kældur. Talið er að ör- yggislok á kútnum hafi lekið. Talsverður eldur í gaskút

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.