Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„GLÆNÝTT malarlag er á veginum og það eru
engin viðvörunarskilti þarna,“ segir Anna María
Björnsdóttir, 17 ára gömul stúlka sem velti bíl
sínum við Engidalsbrú í Skutulsfirði í fyrra-
kvöld. Bíllinn endaði í sjónum og er gjörónýtur.
Tvær vinkonur Önnu voru með henni í bílnum.
Það er mikil mildi að allar þrjár sluppu ómeidd-
ar.
Náði að opna báða gluggana frammi í
„Bíllinn byrjaði að rása til á veginum og ég
reyndi eftir fremsta megni að ná stjórn á honum.
Á endanum var skriðþunginn orðinn mjög mikill,
ég rétt steig á bremsuna og við það fórum við út
af,“ segir Anna. Á leið út í sjó tók bíllinn tvær
stunguveltur og við það brotnaði rúða aftur í.
Áður en bíllinn flaug í sjóinn tókst Önnu með
naumindum að opna báða gluggana frammi í.
Framhlið bílsins lenti í sjónum. Vinkonur Önnu
skriðu út um gluggann aftur í en Anna fór hins
vegar út gluggann bílstjóramegin. Þær syntu
svo í land.
Bíllinn fór á kaf og er gjörónýtur. „Þetta var
virkilega óþægileg lífsreynsla og við vorum
nokkuð skelkaðar. Sem betur fer lenti bíllinn í
réttstöðu því hann hefði alveg eins getað lent öf-
ugur í sjónum,“ segir Anna.
„Virkilega óþægileg lífsreynsla“
Mikil mildi að 17 ára stúlka og vinkonur hennar sluppu ómeiddar er þær misstu bíl sinn út
í sjó við Engidalsbrú Bíllinn valt tvívegis áður en hann endaði í sjónum og er gjörónýtur
Í HNOTSKURN
»Anna og vinkonur hennarvoru á leið heim eftir að
hafa verið á „rúntinum“.
»Anna virðist hafa misststjórn á bílnum á nýrri
klæðningu á veginum, en há-
markshraði á þessum stað er
60 km hraði á klukkustund.
»Bíllinn var að sögn Önnuekki á miklum hraða.
»Klæðningin var óvenju-lega þykk og laus í sér.
Klæðning sem þessi er í raun-
inni bara lausamöl sem er
þjöppuð saman með olíu.
Ónýtur Bíllinn er gjörónýtur eftir hrakfarir stúlknanna en þær sluppu ómeiddar.
Ljósmynd/Bæjarins besta
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„ÉG er mjög
ánægður. Þegar
ég fékk tíðindin
hoppaði ég um og
æpti af gleði,“
segir keníski
hælisleitandinn
Paul Ramses
Odour sem verið
hefur í flótta-
mannabúðum í
Róm síðan í júlímánuði.
Þá hafnaði Útlendingastofnun því
að taka mál hans til efnislegrar með-
ferðar og sendi hann aftur til Ítalíu,
fyrsta aðildarlands Dyflinnar-
reglugerðarinnar sem hann kom til
áður en hann leitaði hælis á Íslandi.
Í gær skar Björn Bjarnason dóms-
og kirkjumálaráðherra hins vegar úr
um, að mál Pauls skyldi tekið til efn-
islegrar meðferðar hjá stofnuninni, á
grundvelli nýrra upplýsinga sem
breyttu forsendum málsins. Ákvörð-
unin var tekin á grundvelli 2. mgr. 3.
gr. í reglugerðinni, sem heimilar
ríkjum að taka ábyrgð á umfjöllun
um hælisbeiðni þó þau beri ekki
ábyrgð á henni.
Paul segist hafa fengið að vita það
í gær að honum sé nú heimilt að
snúa aftur til Íslands á meðan mál
hans verður tekið fyrir. Hann hygg-
ur á ferðalagið eins skjótt og auðið
er og lætur ekki vel af aðstæðum
sínum á Ítalíu. Viðmót þeirra sem
fari með mál hælisleitenda þar sé
allt annað og verra en á Íslandi og
öllum fyrirspurnum eða beiðnum um
aðstoð sé svarað af fálæti. „Þeim er
alveg sama um hælisleitendur,“ seg-
ir Paul. Hann kveðst hafa verið í
reglulegu símasambandi við eigin-
konu sína, Rosemary Atieno
Athiembo. Þau hafi farið með bænir
saman í gegnum símann. Hann seg-
ist mjög þakklátur þeim sem hafa
talað máli hans fram til þessa.
Það sem beðið var um
Katrín Theodórsdóttir, lögmaður
Pauls segir umsóknina liggja fyrir
og viðbúið að málið taki nokkra mán-
uði héðan í frá. Hann gæti fengið
stöðu flóttamanns eða dvalarleyfi af
mannúðarástæðum.
Paul segist hafa tekið þátt í kosn-
ingabaráttu í Naíróbí í desember sl.,
verið handtekinn í kjölfarið og sætt
misþyrmingum í fangelsinu. Eftir
það segist hann hafa verið eltur af
öryggissveitum, síðast í maímánuði.
Sumt af þessu segir Katrín þegar
staðfest með gögnum en annað, svo
sem misþyrmingarnar í fangelsinu,
séu ekki til nein gögn um. „Þetta eru
atriði sem verða skoðuð núna. Það er
það sem beðið var um,“ segir hún.
Æpti af gleði við tíðindin
Paul Ramses kemur aftur til Íslands á meðan mál hans fær efnislega meðferð
Viðbúið að málið taki nokkra mánuði héðan í frá, segir lögfræðingur Pauls
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjölskyldan Rosemary Atieno og Fídel Smári bíða nú heimkomu Pauls.
Paul Ramses
„Staðhæfingar
um dvalarleyfi
Rosemary, eig-
inkonu Pauls, í
Svíþjóð hafa
ekki reynst á
rökum reistar.
Stangast sú nið-
urstaða á við það
sem Útlend-
ingastofnun var
kynnt við með-
ferð málsins, en Útlendingastofnun
kannaði ekki mál hennar sér-
staklega, þar sem hún sótti ekki
um hæli. Paul upplýsti Útlend-
ingastofnun um stöðu konu sinnar.
Án dvalarleyfis á Schengen-
svæðinu hefur Rosemary ekki
heimild til að ferðast á svæðinu og
þar með ekki til Ítalíu, yrði Paul
þar áfram í hælismeðferð,“ segir
Björn Bjarnason um úrskurðinn.
Ráðuneytinu bárust einnig gögn
um ættingja Pauls hér á landi, en
sá upplýsingaskortur skekkti mynd
stofnunarinnar af stöðu hans.
Heildarmat á aðstæðum hjónanna,
miðað við nýjar upplýsingar, réð
úrslitum. „Ráðuneytið fann ekkert
að málsmeðferð Útlendingastofn-
unar,“ segir Björn ennfremur.
Heildarmat
á aðstæðum
hjónanna
Björn
Bjarnason
LANDBÚNAÐARSÝNINGIN á Hellu var
sett í gær eftir örlitla seinkun vegna leiks
Íslendinga og Spánverja á Ólympíu-
leikunum í Peking. Gestir opnunarhátíðar
sýningarinnar nutu bráðskemmtilegs leiks
á breiðtjaldi í höllinni og að loknum glæsi-
legum sigri íslenska landsliðsins var sýn-
ingin sett að viðstöddu fjölmenni. Það má
því segja að sýningin hafi byrjað með stór-
kostlegum sigri.
Ágætlega viðraði á sýningargesti og var
veður skýjað en þurrt og stillt. Aðsókn á
sýninguna var góð í gær og að sögn Jóhann-
esar Hr. Símonarsonar, framkvæmdastjóra
hennar, er hún betri en vonir stóðu til.
Á landbúnaðarsýningunni er fjölmargt að
sjá og er veðurspá fyrir daginn í dag prýði-
leg.
Meðal þess sem sjá má á sýningunni er ís-
lenskt búfé, allt frá kúm til býflugna, vélar
og tæki, fólk og mannlíf auk þess sem nefna
má afþreyingu fyrir börnin. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Góð aðsókn á
Landbúnaðar-
sýninguna