Morgunblaðið - 23.08.2008, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KÍNVERSK stjórnvöld hafa ákveðið að leita
eftir samstarfi við Íslendinga um að koma upp
viðvörunarkerfi í Kína vegna jarðskjálfta. Það
yrði byggt á kerfi sem notað er hér á landi og
var þróað af íslenskum
vísindamönnum og sérfræð-
ingum.
Þetta kom fram á fundi
Ólafs Ragnars Grímssonar,
forseta Íslands, með Hu
Jintao, forseta Kína, í gær.
Einnig var rætt um að sam-
starf þjóðanna tveggja væri
mikilvægur vitnisburður um
hvernig smáar sem stórar
þjóðir gætu unnið saman á
árangursríkan hátt. Nú þegar hefði samstarf
um nýtingu jarðhita til húshitunar skilað ár-
angri og væri áhugi fyrir hendi að byggja hita-
veitur í samvinnu við Íslendinga í fleiri kín-
verskum borgum. Mun Ólafur Ragnar funda
með stjórnendum eins stærsta orkufyrirtækis
Kína að Ólympíuleikum loknum.
Á fundinum kom einnig fram mikil ánægja
með þróun viðræðna um fríverslun en Ísland er
fyrsta Evrópuríkið sem vinnur að gerð slíks
samnings við Kína. Þá rifjaði Ólafur Ragnar
upp að á fundi forsetanna fyrir réttu ári hefði
verið rætt um að auka samskipti og viðræður
milli verkalýðsfélaga og almannasamtaka land-
anna. Afar mikilvægt væri að fylgja því eftir
næstu misserin. Þá bar gott gengi íslenska
landsliðsins í handbolta á góma en kínverski
forsetinn fagnaði sérstaklega árangri þess.
ylfa@mbl.is
Kína vill nýta íslenskt hugvit
Hu Jintao, forseti Kína, og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, funduðu í gær
Ræddu m.a. nýtingu íslensks jarðskjálftakerfis og gott gengi íslenska handboltalandsliðsins
Í HNOTSKURN
»Á fundinum þakkaði for-seti Kína fyrir þá samúð
sem Íslendingar sýndu kín-
versku þjóðinni nýlega vegna
jarðskjálfta þar í landi.
»Ólafur Ragnar vék aðheimsókn sinni í
Ólympíuþorpið í fyrradag og
hversu ánægðir íslensku
þátttakendurnir hefðu verið
með allan aðbúnað og þjón-
ustu.
»Forsetarnir ræddu einnigum Special Olympics sem
haldnir voru í Sjanghæ í
fyrra og Paralympics sem
haldnir verða í Peking í
næsta mánuði.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Góður Á fundi forseta Íslands og Kína bar árangur handboltalandsliðsins m.a. á góma.
Hu Jintao
Sandgerði | Sandgerðingar fögnuðu
í gær nýrri sundlaug ásamt sund-
laugargarði og viðbót við íþrótta-
miðstöð bæjarins. Framkvæmdin
kostaði um 300 milljónir kr., að
sögn Sigurðar Vals Ásbjarnarson-
ar bæjarstjóra.
Nýja sundlaugin er 25 metra
löng og leysir af hólmi helmingi
styttri laug. Í sundlaugargarðinum
eru einnig heitir pottar, renni-
brautir, gufubað og annað tilheyr-
andi. Í nýrri byggingu eru bún-
ingsklefar fyrir sundlaugina og
aðstaða fyrir starfsfólk hennar og
íþróttahússins. Þar er einnig leik-
fimisalur og þreksalur sem er vel
búinn tækjum. Íþróttahúsið stend-
ur eitt eftir af eldri byggingunum.
Áfram haldið á skólalóð
Hjalti Guðmundsson verktaki
byggði mannvirkið fyrir Eignar-
haldsfélagið Fasteign ehf. og Sand-
gerðisbæ. Sandgerðisbær tekur að-
stöðuna á leigu og rekur.
Sigurður Valur segir að upp-
bygging íþróttaaðstöðunnar sé
fyrsti hluti uppbyggingar á skóla-
lóðinni. Sami verktaki er byrjaður
á mikilli byggingu sem tengja mun
saman íþróttamannvirkin og skóla-
bygginguna. Þar verða kennslu-
stofur og ýmis aðstaða. Áætlað er
að sú bygging muni kosta um 800
milljónir kr., að sögn bæjarstjór-
ans. helgi@mbl.is
Stinga sér í nýja laug
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Opnun Ungmenni úr sunddeild Reynis stungu sér fyrst í nýju laugina.
Fljótsdalshérað | Ormsteiti á Fljóts-
dalshéraði lýkur á morgun, sunnu-
dag, með svokölluðum Fljótsdals-
degi. Skyndilega er kominn á
dagskrána úrslitaleikur í hand-
knattleik á Ólympíuleikunum.
Í dag verður bæjarhátíð Egils-
staða. Þar verður meðal annars
dagskrá í tjaldinu og opið hús í
Sláturhúsinu. Í kvöld er boðið til
hreindýraveislu í tjaldinu og kvöld-
vöku.
Dagskrá sunnudagsins hefst
snemma hjá Fljótsdælingum. Úr-
slitaleikurinn í handknattleik karla
á Ólympíuleikunum verður sýndur
á breiðtjaldi í félagsheimilinu Vé-
garði.
Á Skriðuklaustri hefst aðal-
dagskrá Fljótsdalsdags kl. 14 með
stórtónleikum þar sem hljómsveitin
Múgsefjun leikur. Hin fljótsdælska
bítlahljómsveit Fljótsmenn hitar
upp en 40 ár eru liðin frá því hún
var stofnuð. Þá verða haldnir Þrist-
arleikar þar sem keppt verður í
fjárdrætti, steinatökum, poka-
hlaupi og rabarbarakasti auk ann-
ars.
Keppt í
fjárdrætti
á Fljóts-
dalsdegi
ÝMSIR aðilar undirbúa handbolta-
veislu vegna úrslitaleiks Íslendinga
og Frakka á ÓL á morgun, sunnu-
dag. M.a. býður Hafnarfjarðarbær
bæjarbúum og öðrum handbolta-
áhugamönnum að fylgjast með
leiknum á risaskjá í íþróttamiðstöð
Hauka að Ásvöllum. Húsið opnar
klukkan 7.15 f.h. og boðið verður
upp á kaffi.
Þá setur Nýherji upp risaskjá á
vegum Bylgjunnar og Vodafone í
Vodafone-höllinni að Hlíðarenda.
Húsið tekur um 3000 manns og að-
gangur er ókeypis á meðan húsrúm
leyfir.
Einnig verður bein útsending hjá
RÚV á breiðtjaldi í Vetrargarð-
inum í Smáralind. Útsending hefst
kl. 7.15 og veitingastaðir Smára-
lindar verða opnir.
Söfnunarsími HSÍ
Handknattleikssamband Íslands
hefur opnað söfnunarsímann
9072800 og er hægt að hringja í
númerið og styrkja landsliðið.
Undirbúa
handbolta-
veislur
Hægt að sjá úrslita-
leikinn á risaskjám