Morgunblaðið - 23.08.2008, Page 10
10 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Svona hættu þessu væli, það verður engu lambi slátrað núna, hróið mitt. Þetta er ekki
„týndi sonurinn“.
VEÐUR
Áhugavert var að fylgjast með við-brögðum fulltrúa minnihlutans í
borgarstjórn Reykjavíkur við þeim
fregnum að framsóknarmaðurinn
Guðlaugur G. Sverrisson hefði verið
kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur.
Það kom skýrtfram að borg-
arfulltrúar minni-
hlutans þekktu
hvorki haus né
sporð á Guðlaugi.
Höfðu bara aldrei
heyrt hann nefnd-
an. Þurftu að
gúgla hann til að
vita eitthvað í sinn haus.
Samt vissu þeir mætavel að mað-urinn var gjörsamlega óhæfur
til að stýra starfi Orkuveitunnar.
Bitlingur. Einkavinavæðing. Það
var það sem þetta var.
Hann hefur enga sérþekkingu áorkumálum, sagði Svandís
Svavarsdóttir, oddviti VG.
Hafði stjórnarformaður OR í tíðREI-listans sérþekkingu á orku-
málum? Bryndís Hlöðversdóttir er
lögfræðingur og hefur unnið ýmis
skrifstofustörf. Hún varð stjórn-
arformaður OR af því að hún er í
Samfylkingunni og naut trausts þá-
verandi meirihluta.
Svona eins og Guðlaugur vélfræð-ingur fær embættið út á það að
vera framsóknarmaður – og að vera
treyst.
Eru borgarfulltrúarnir ekki komn-ir á ögn hála braut þegar þeir
vilja útiloka fólk frá stjórnarstörfum
í OR af því að það hafi ekki sérþekk-
ingu á orkumálum?
Eða hvað finnst málfræðingnumSvandísi Svavarsdóttur og mat-
vælafræðingnum Sigrúnu Elsu
Smáradóttur um það? Eru þær
vandanum vaxnar?
STAKSTEINAR
Guðlaugur G.
Sverrisson
Sérfræðingarnir
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
!
!
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
"#
$"$ %$ %
"#
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
!
"#
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
&% %
% %
&%
*$BC
! "
*!
$$B *!
'"( )$
$(
$ #*
<2
<! <2
<! <2
')
! $+!,$- !.
CDB
E
62
#
$
%
B
&
'
(
)
*
*
#
(+
,
, (
/0 $"$11
! $# "$2 #$+!
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
NÝLIÐUN rækju er enn mjög slök,
samkvæmt bráðabirgðaútreikningum
Hafrannsóknastofnunar að lokinni
árlegri stofnmæl-
ingu stofnunar-
innar á úthafs-
rækju fyrir
norðan og austan
land.
Samkvæmt
fyrstu útreikning-
um er heildarvísi-
tala stofnstærðar
úthafsrækju svip-
uð í ár og í fyrra.
Hún nálgast vísi-
töluna 1999, sem
var sú lakasta á tíunda áratugnum.
Vísitalan var lægst 2004 en hækkaði
lítillega til ársins 2007.
Mælingin fór fram á rannsókna-
skipinu Bjarna Sæmundssyni á tíma-
bilinu 11. til 24. júlí. Byrjað var fyrir
Austurlandi og haldið vestur fyrir.
Meira var af rækju á miðunum norð-
anlands miðað við undanfarin fjögur
ár en minna austanlands.
Niðurstöðurnar benda til þess að
afrán þorsks á smárækju gæti verið
talsvert á þessu ári eins og verið hefur
nokkur undanfarin ár.
steinthor@mbl.is
Nýliðun
rækju enn
mjög slök
Útlit fyrir mikið afrán
þorsks á smárækju
Stærð Rækjan var
svipuð og undan-
farin ár.
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
FRYSTITOGARINN Venus HF kom til hafnar í
Reykjavík í gær eftir 40 daga veiðitúr í rússnesku
lögsöguna í Barentshafi. Afli upp úr sjó var tæp-
lega 700 tonn og frystar afurðir námu tæplega 290
tonnum. Aflaverðmætið í veiðiferðinni er um 162
milljónir króna. Þetta kemur fram á heimasíðu út-
gerðarinnar HB Granda.
Samkvæmt kjarasamningum má úthald frysti-
togara ekki fara yfir 40 daga og þar sem ákaflega
löng sigling er til og frá rússnesku miðunum náði
Venus aðeins að vera rúmlega 28 daga á veiðum.
,,Það er alveg fimm sólarhringa sigling á miðin
og reyndar tafði það okkur aðeins á útsiglingunni
að rússneski sjóherinn var með heræfingar í Bar-
entshafinu. Fyrir vikið var siglingaleiðinni næst
ströndinni – og reyndar allt út á 250 mílur frá landi
á sumum stöðum – lokað fyrir almennri skipaum-
ferð. Við urðum því að fara norðar og austar en
ætlunin var, segir Haraldur Árnason, 1. stýrimað-
ur og afleysingaskipstjóri á Venusi HF.
Lengst var farið norður og austur undir Novaja
Semlja-eyjaklasann. Hann er í um 1.500 mílna
fjarlægð frá Íslandi. Venus HF var eina íslenska
skipið í rússnesku lögsögunni en nokkru áður
hafði Sigurbjörg ÓF verið þar á ferðinni.
,,Aflinn var svo til aðallega þorskur og ýsa. Við
vorum með um 570 tonn af þorski upp úr sjó og
113 tonn af ýsu. Aukaaflinn náði e.t.v. 10 tonnum
og uppistaðan í þeim afla var steinbítur og hlýri.
Fiskurinn var frekar smár og reynslan sýnir að
það er hægt að fá skárri fisk á þessum slóðum
fyrri hluta sumars,“ segir Haraldur. HB Grandi á
enn eftir nokkuð af afla í rússnesku lögsögunni.
Aflaverðmætið 162 milljónir króna
Venus HF snýr aftur úr 40 daga veiðitúr í rússnesku lögsögunni í Barentshafi
NÁMSMÖNNUM og fólki undir 25
ára aldri býðst nú að kaupa áskrift-
arkort í Borgarleikhúsið á hálfvirði.
SPRON og Borgarleikhúsið und-
irrituðu í gær samstarfssamning
þess efnis. Í samningnum felst einn-
ig að SPRON styrkir sýningarnar
Fólkið í blokkinni og Fýsn.
Samningurinn er töluverð búbót
fyrir Borgarleikhúsið en hann er
metinn á þriðja tug milljóna. Samn-
ingurinn gildir í eitt ár en í honum
eru ákvæði um frekara samstarf.
Þröskuldum rutt úr vegi
Magnús Geir Þórðarson leik-
hússtjóri segir að eitt helsta áherslu-
atriði í nýrri stefnu Borgarleikhúss-
ins sé að laða ungt fólk að
leikhúsinu. Hann er því að vonum
ánægður með að fá SPRON til liðs
við leikhúsið með þessum hætti. „Við
teljum að með þessum samningi sé
verið að ryðja úr vegi stærsta þrösk-
uldinum fyrir ungt fólk, verðinu á
leikhúsmiðum.“ Hann bendir á að
með niðurgreiðslum SPRON sé
álíka dýrt að fara í leikhús og í bíó.
Biðraðir mynduðust í miðasölunni
í gær þegar hún var opnuð. „Við-
brögð við kortunum voru með ólík-
indum og þetta er stærsta opnun á
leikári í sögu Borgarleikhússins,“
segir Magnús. skulias@mbl.is
Morgunblaðið/Valdís Thor
Röð Löng biðröð myndaðist við miðasölu Borgarleikhússins í gærdag.
Leikhúsmiðar á verði
bíómiða fyrir námsmenn