Morgunblaðið - 23.08.2008, Side 14
14 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
SKEMMTIFERÐASKIP sækja í auknum
mæli í ævintýraferðir norður á bóginn. Fjöldi
þeirra skipa sem héldu áfram frá Íslandi til
Grænlands, Svalbarða og Jan Mayen tvöfald-
aðist frá árinu 2007 til 2008 og ekki ástæða til
að ætla annað en að fjölgunin haldi áfram.
Eftir því sem ísbreiðurnar dragast meira sam-
an gefst skipunum færi á að sigla lengra inn
firði og um fáfarnari slóðir en áður, en slíkar
ferðir eru hinsvegar ekki hættulausar, að
sögn Ásgríms Ásgrímssonar, yfirmanns vak-
stöðvar siglinga.
Landhelgisgæslan hefur um nokkurt skeið
haft áhyggjur af aukinni umferð skemmti-
ferðaskipa á hafísslóðum enda eru Íslendingar
ábyrgir fyrir stóru leitar- og björgunarsvæði í
Norður-Atlantshafi og því líklegt að Land-
helgisgæslan þyrfti að sinna björgunar-
aðgerðum ef sjóslys yrðu. Á þeim árstíma sem
skipin eru mest á ferðinni stafar mikil hætta af
borgarísjökum, jafnvel þótt ísbreiðurnar hopi,
auk þess sem þokuveður er algengt. Þá eru
hafsvæðin við strandlengju Grænlands að veru-
legu leyti ókortlögð og dýptarmælingar ekki til
ennþá, svo skipin renna þar blint í sjóinn í
orðsins fyllstu merkingu.
Í vikunni fór fram sameiginleg björgunar-
æfing strandgæslu Bandaríkjanna og Land-
helgisgæslunnar þar sem farið var yfir upp-
hafsviðbrögð eftir að neyðarkall berst. Ljóst er
að Íslendingar ráða ekki einir við slys af slíkri
stærðargráðu og hefur Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra beitt sér fyrir því að efla sam-
starf strandgæslustofnana á norðurslóðum.
Í kjölfarið verður farið yfir næstu skref í
björgunaraðgerðum. Skoða þarf nánar hvernig
þorp við Grænlandsstrendur eru í stakk búin
til að taka við þúsundum farþega skipanna ef
til slyss kæmi og eins hver viðbúnaður yrði á
Íslandi ef þeim sem tækju við farþegunum yrði
beint hingað. Ætlun Landhelgisgæslunnar er
að taka á þessu vaxandi verkefni af fullri al-
vöru.
Umferðin eykst í norðri
Fjölgun skemmti-
ferðaskipa gerir
meiri kröfur til Land-
helgisgæslunnar
ÁRIÐ 2007 voru stofnuð Samtök strandgæslna
við Norður-Atlantshaf. Mun Ísland taka við for-
mennsku á aðalfundi þeirra nú í september, en
hann verður einmitt haldinn á Grænlandi og verða
skemmtiferðaskip þar ofarlega á baugi.
Ásgrímur Ásgrímsson, yfirmaður vaktstöðvar
siglinga hjá Landhelgisgæslunni segir að vakning
sé að verða um öryggi skemmtiferðaskipa á norð-
urslóðum, m.a. séu hagsmunaaðilar úr ferðaþjón-
ustu orðnir meðvitaðari og vilji vera virkir í sam-
starfi strandgæslnanna. Ásgrímur segir
samstarfið afar mikilvægt, ekki síst þar sem Ís-
lendingar hafi ekki yfir að ráða jafnöflugum flug-
vélum og nágrannaþjóðirnar. Því sé nauðsynlegt
að Landhelgisgæslan hafi yfirsýn yfir það hvar
vélar með flugþol til leitar og björgunaraðgera
eru til staðar og hvernig hægt sé að kalla þær til
ef stórslys verður á sjó.
Tvö slys urðu í fyrra þar sem skemmtiferðaskip
rákust á ísjaka við Suðurskautslandið. Hætta á
slíku hefur aukist í norðri vegna aukinnar umferð-
ar skipa og aukinnar tíðni hafíssreks.
Íslendingar í forystu strandgæslu við Norður-Atlantshaf
REYKJANESBRAUT verður lokuð
í dag, laugardag, vegna fram-
kvæmda á milli Hagasmára og Arn-
arnesvegar milli kl. 5 og 11.30.
Hagasmári er í brekkunni fyrir
ofan Smáralind. Þar er Ego-
bensínstöð og Lyfjaval-bílaapótek.
Arnarnesvegur er efst á hæðinni
við umferðarljósin.
Við lokunina verður vegfar-
endum leiðbeint og forgangsbílum
hleypt í gegn. Hjáleið verður um
Fífuhvammsveg, Smárahvamms-
veg, Hagasmára, Hæðasmára og
Arnarnesveg. Auðratað er þó fyrir
þá sem komið hafa í Smáralind.
Reykjanes-
braut lokuð
STUTT
N1 býður um helgina 6 kr. afslátt af
eldsneyti á öllum þjónustustöðvum
sínum, en fyrirtækið segir þetta gert
í tilefni af frábærri frammistöðu ís-
lenska karlalandsliðsins í handbolta
á Ólympíuleikunum í Peking. Slegið
er af verði bæði bensíns og dísilolíu,
jafnt í sjálfafgreiðslu sem í hefð-
bundinni þjónustuafgreiðslu. Til-
boðið tók gildi í gær og stendur til
miðnættis aðfaranætur mánudags.
Miðað við algengasta verð á elds-
neyti í sjálfsafgreiðslu kostar bens-
ínlítrinn því 159,70 kr. yfir helgina
hjá N1. Lítrinn af dísilolíu kostar
176,60 kr. skulias@mbl.is
Ólympíuafslátt-
ur á bensíni
FIMMTUDAGINN 21. ágúst sl. um
kl. 9.24 var umferðarslys á Skeið-
arvogi við Gnoðavog í Reykjavík.
Vegfarandi var á leið yfir Skeið-
arvog í átt að Vogaskóla þegar
fólksbifreið, svört að lit, var ekið
frá Gnoðavogi og norðaustur
Skeiðarvog. Ökumaður fólks-
bifreiðarinnar hélt för sinni áfram
án þess að gæta að vegfarandanum.
Er talið að um Porche Cayenne sé
að ræða.
Þeir vegfarendur sem kunna að
hafa orðið vitni að óhappinu eru
beðnir um að hafa samband við lög-
reglu í síma 444 1000.
Lýst eftir vitnum
STJÓRN Kvenréttindafélags Ís-
lands lýsir yfir fullum stuðningi við
kröfur ljósmæðra um leiðréttingu á
launum þeirra. Þau eru með því
sem lægst gerist innan BHM þótt
nám þeirra sé eitt það lengsta sem
krafist er af ríkisstarfsmönnum.
„Stjórn Kvenréttindafélags Ís-
lands telur þetta enn eitt lýsandi
dæmið þess hvernig launamisrétti
kynjanna er látið viðgangast hér á
landi,“ segir í tilkynningu.
Styðja ljósmæður
KARLAHÓPUR Femínistafélags Ís-
lands hefur undanfarin fimm ár
staðið fyrir átakinu „Karlmenn
segja NEI við nauðgunum.“ Mark-
mið þessa forvarnarstarfs er að
hitta og ræða við karlmenn, unga
sem aldna, um áhrif og alvarleika
nauðgana og hvetja karlmenn til að
taka virkan þátt í baráttunni gegn
kynbundnu ofbeldi.
Karlahópurinn leggur áherslu á
að umræðan um kynbundið ofbeldi
standi allt árið um kring. Í ár tekur
hópurinn þátt í menningarnótt
Reykjavíkurborgar.
NEI við
nauðgunum
!"
!
#
Flæmi Leitar- og björgunarhafsvæðið sem Ísland ber ábyrgð á er um 1.900.000 km². Það nær að aust-
urströnd Grænlands suður undir Hvarf og þaðan austur fyrir Færeyjar og norður fyrir Jan Mayen.
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
ÞEIR fjórir nemendur sem sóttu um
að hefja nám við tölvunarfræðideild
Háskólans á Akureyri á komandi
skólaári verða ekki innritaðir í skól-
ann. Samþykkti háskólaráð skólans
þetta í fyrradag. Var öllum kenn-
urum við deildina í kjölfarið sagt
upp. Einhverjum þeirra verður þó
boðin endurráðning næstu tvo vetur
til að ljúka kennslu þeirra nemenda
sem þegar hafa hafið nám.
Endurskoðað öðru sinni
Ráðið samþykkti einnig að skipu-
lag og forsendur námsins við skól-
ann yrðu tekin til athugunar. Til
stendur að breyta tilhögun námsins
og bjóða tölvunarfræðikennslu í
formi fjarnáms. Er það er í sam-
ræmi við stefnu háskólans um efl-
ingu þeirrar námstilhögunar. Í
fréttatilkynningu frá skólanum segir
að endurskoðun á náminu fyrir
þremur árum hafi ekki borið tilætl-
aðan árangur.
Þar er einnig haft eftir Þorsteini
Gunnarssyni rektor Háskólans á
Akureyri að hann harmi að til þess-
ara aðgerða skyldi þurfa að koma.
Skólinn hafi verið „nauðbeygður til
að grípa til þessara aðgerða vegna
þess hve fáir nemendur stundi þetta
nám.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Útskrift Þeir tölvunarfræðinemar sem þegar eru við nám í Háskólanum á
Akureyri munu fá að klára nám sitt og útskrifast þaðan.
Umsækjendur í tölvunar-
fræði ekki innritaðir í HA
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
Á FUNDI nefndar um þróun Evr-
ópumála, sem skipuð var fyrr á
árinu, var í gær rætt um hugmyndir
Björns Bjarna-
sonar dómsmála-
ráðherra um upp-
töku evru án
aðildar að Evr-
ópusambandinu
(ESB). Nefndin
skoðar málið, að
sögn Ágústs Ólafs
Ágústssonar,
annars formanns
hennar, frá laga-
legum, pólitískum
og hagfræðilegum sjónarhornum.
Í verkahring nefndarinnar er með-
al annars að fylgja eftir tillögum
Evrópunefndar Alþingis frá í fyrra
um aukna þátttöku í hagsmunagæslu
á sviði Evrópustarfs. Þá er henni fal-
ið að kanna hvernig framtíðarhags-
munum þjóðarinnar sé best borgið
gagnvart ESB.
Botn þarf að fást í málið
Ágúst Ólafur segir viðhorf ráða-
manna í Brussel til upptöku evru án
aðildar að ESB fremur neikvæð.
Hann reiknar með að hugmyndin um
evru án aðildar muni bera á góma
þegar nefndin heldur til Brussel í
september þar sem hún mun funda
með forsvarsmönnum ESB.
„Ég held að það sé mikilvægt að fá
botn í þessa umræðu svo við kom-
umst eitthvað áfram því ef ekki er
pólitískur vilji eða lagalegar forsend-
ur fyrir að fara þessa leið þá er tómt
mál að tala um hana,“ segir Ágúst
Ólafur. Skera þurfi úr um hvort
skynsamlegt sé og raunhæft að taka
upp evru án þess að ganga í sam-
bandið.
Einhliða upptaka möguleg
Nokkrar þjóðir hafa tekið upp
evru án aðildar að ESB og má þar
nefna Monakó og San Marínó. Ágúst
Ólafur segir að staða þeirra sé ekki
sambærileg við stöðu Íslands þar
sem þessi ríki hafi verið í sérstöku
sambandi við fyrri myntir Evrópu-
sambandslandanna.
Upptaka evru án samráðs við ESB
er möguleg að sögn Ágústs Ólafs en
Svartfjallaland, Kosovo og fleiri lönd
hafa farið þá leið. „En við höfum auð-
vitað fengið þau skilaboð að Evrópu-
sambandið er ekki ánægt með ein-
hliða upptöku,“ segir Ágúst Ólafur.
Evra án aðildar
að ESB í nefnd
Ágúst Ólafur
Ágústsson