Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT RÚSSAR lýstu því yfir í gær að þeir hefðu lokið brottflutningi hermanna frá Georgíu í samræmi við vopnahléssamkomulag sem náðist fyrir milli- göngu Evrópusambandsins. Rússneska varnar- málaráðuneytið sagði þó að um 2.500 hermenn yrðu áfram á „öryggissvæðum“ í grennd við sjálfstjórnarsvæðin Abkhasíu og Suður-Ossetíu til að annast friðargæslu. Stjórn Georgíu sagði að sú ákvörðun væri „óviðunandi“. George W. Bush Bandaríkja- forseti og Nicolas Sarkozy, forseti Frakklands, sem fer fyrir ESB, tóku í sama streng. Þeir sögðu að Rússar hefðu ekki enn farið eftir sam- komulaginu og yrðu að gera það þegar í stað. Fréttaritari breska ríkisútvarpsins, BBC, sagði að vestrænir stjórnarerindrekar óttuðust að Rússar hygðust túlka skilmála samkomulags- ins á eigin forsendum. Ágreininginn mætti m.a. rekja til þess að vopnahléssamkomulagið væri mjög óljóst og þar kæmi aðeins fram að Rússar gætu „gert frekari öryggisráðstafanir“ í „næsta nágrenni við Suður-Ossetíu“. „Næsta nágrenni“ er skilgreint sem „nokkrir kílómetrar“. Hundruð rússneskra hermanna fóru í gær á skriðdrekum og brynvögnum frá bæjunum Sen- aki í vestanverðri Georgíu, Gori í miðhluta lands- ins og eftirlitsstöð í bænum Igoeti, um 50 kíló- metra frá höfuðborginni Tbilisi. Rússneskir hermenn voru þó enn á að minnsta kosti þremur stöðum nálægt Senaki og hafnarbænum Poti við Svartahaf. bogi@mbl.is Segja að brottflutningi sé lokið  Rússnesk stjórnvöld segjast hafa fullnægt skilmálum vopnahléssamkomulags en Georgíumenn, Bandaríkjamenn og Evrópusambandið neita því  Deiluna má m.a. rekja til óljósra skilmála Í HNOTSKURN » Átökin hófust fyrir al-vöru 7. ágúst þegar Georgíuher gerði sprengju- og flugskeytaárásir á Tskhin- vali, höfuðstað Suður- Ossetíu, sem hefur notið verndar rússneskra frið- argæsluliða. » Sameinuðu þjóðirnaráætla að 158.000 manns hafi flúið heimkynni sín vegna átakanna. » Átökunum lauk meðvopnahléssamkomlagi og Rússar hétu því að flytja þorra hermanna sinna frá Georgíu. Reuters Á heimleið Rússneskir hermenn á leið til Rússlands frá Tskhinvali í Suður-Ossetíu í gær. Lahore. AP. | Pakistanska konan Saira Liaqat pírir góða augað og burstar hár viðskiptavinar í vinsælli snyrtistofu í borginni Lahore í Pak- istan. Andlit hennar leystist að mestu upp af völdum sýru. Skammt frá henni snyrtir Urooj Akbar neglur viðskiptavina. Andlit hennar er illa brunnið eftir eld sem brenndi um 70% líkamans. Liaqat og Akbar eru á meðal pak- istanskra kvenna sem hafa orðið fyr- ir íkveikju- eða sýruárásum karl- manna. Konurnar lifa oftast í örvilnun og einangrun það sem eftir er ævinnar. Konurnar tvær urðu hins vegar snyrtifræðingar og þótt þær komist ekki hjá því að sjá spegla og myndir af íðilfögrum fyrirsætum líta þær á snyrtistofuna sem annað heimili sitt. Þær voru ráðnar fyrir atbeina Depilex Smileagain-stofnunarinnar, sem helgar sig ýmiskonar aðstoð við konur sem hafa orðið fyrir sýru- eða íkveikjuárásum. Aðstoðin er rakin til þess að Mas- arrat Misbah, sem stjórnar pakist- önsku snyrtistofukeðjunni Depilex, rakst á stúlku með blæju fyrir and- litinu á götu fyrir fimm árum. Hún bað um hjálp og Misbah féll næstum í yfirlið þegar stúlkan tók af sér blæjuna: „Ég sá stúlku sem var and- litslaus.“ Eiginmaður hennar hafði hellt sýru yfir hana. Misbah setti auglýsingu í blað til að athuga hvort fleiri konur þyrftu á svipaðri hjálp að halda. 42 konur og stúlkur svöruðu. Um 240 skráð fórn- arlömb slíkra árása njóta nú að- stoðar stofnunarinnar. Mannréttindanefnd Pakistans segir að á síðasta ári einu hafi a.m.k. 33 konur verið brenndar með sýru og kveikt hafi verið í 45. Líklegt er þó að fórnarlömbin séu enn fleiri því ekki er skýrt frá öllum árásunum af ýmsum ástæðum. Að meðaltali þurfa konurnar að gangast undir 25-30 skurðaðgerðir. bogi@mbl.is Brenndum konum hjálpað AP Brennd Eiginmaður konunnar hellti yfir hana bensíni og kveikti í henni. Á ári hverju verða tugir kvenna fyrir sýru- eða íkveikjuárásum í Pakistan LÖGREGLAN í Bosníu hefur hand- samað bréfdúfu sem í ljós kom að notuð var til að smygla fíkniefnum í öryggisfangelsi. Lögreglan telur að litlir heróín- pokar hafi verið festir við fætur dúfunnar sem settist í glugga fang- elsins eftir að hafa flogið þangað frá bæ í um 70 kílómetra fjarlægð. Einum fanganna hafði verið heim- ilað að hafa dúfuna hjá sér í klefa sínum. bogi@mbl.is Dúfa tekin fyrir smygl Hraðfleygar Bréfdúfur fara létt með að fljúga hundruð km. BARÁTTUMENN á vegum umhverfisverndar- samtakanna World Wildlife Fund taka þátt í her- ferð í Jakarta í Indónesíu fyrir því að gerðar verði frekari ráðstafanir til að vernda Súmötru- tígra, þá undirtegund tígrisdýra sem er í mestri útrýmingarhættu. Umhverfisverndarsamtökin áætla að innan við 400 tígrar lifi í náttúrunni á Súmötru, einni af stærstu eyjum Indónesíu, en þeir voru um það bil þúsund á áttunda áratug aldarinnar sem leið. Fækkun tígranna er einkum rakin til ólög- legra veiða og eyðileggingar á kjörlendi þeirra, regnskógunum. Erfiðlega hefur gengið að stöðva veiðarnar vegna mikillar eftirspurnar eftir skinni, klóm og tönnum tígra í minjagripi. AP Reynt að bjarga Súmötru-tígrum BANDARÍKJASTJÓRN undirbýr að kalla hersveitir sínar úr íröskum borgum þegar í júnímánuði á næsta ári og síðan í kjölfarið allt herlið sitt frá Írak fyrir árslok 2011, að því gefnu að takast muni að tryggja stöðugleika í landinu. Þetta er haft eftir íröskum og bandarískum embættismönnum sem leggja áherslu á að hér sé fremur um markmiðssetningu að ræða en fastar tímasetningar. Þá þarf Nuri al-Malki, forsætis- ráðherra Íraks, og aðrir fulltrúar stjórnarinnar að samþykkja tillög- urnar áður en þær verða lagðar fyrir þingið til staðfestingar. Bandaríska dagblaðið The New York Times fullyrðir hins vegar að bandarískir, jafnt sem íraskir emb- ættismenn, séu hlynntir tímaáætl- uninni. Segir þar einnig að rík- isstjórn George W. Bush Bandaríkjaforseta sé nú reiðubúin að binda enda á meginhluta hern- aðarumsvifa sinna í Írak innan árs, eða töluvert fyrr en talið var raun- hæft að ætla fyrir aðeins nokkrum mánuðum. baldura@mbl.is Herinn kvaddur heim 2011 Bandaríkjaher fer úr borgum Íraks 2009

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.