Morgunblaðið - 23.08.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 17
NÝHERJI hf. sími 569 7700 www.nyherji.is
Fislétt, öflug og hagkvæm
Fljúgðu í gegnum námið
með ThinkPad
ThinkPad fartölva er frábær kostur
fyrir skólafólk. Hún er nett, létt og
ótrúlega öflug. Allt að 5 klukkustunda
rafhlöðuending, skarpur skjár og vef-
myndavél. Góð afköst á frábærum
kjörum.
ThinkPad fartölvur eru hugsaðar fyrir kröfuharða
notendur. Yfirburðatækni, gæði, lág bilanatíðni
og öryggi eru í fyrirrúmi. ThinkPad fartölvur hafa
unnið til 1200 verðlauna á heimsvísu fyrir hönnun
og virkni.
LENGRI
RAFHLÖÐUENDING
VÖKVAÞOLIÐ OG
UPPLÝST LYKLABORÐ
FALLVÖRN
GAGNABJÖRGUN
MEÐ EINUM TAKKA
INNBYGGÐ
VEFMYNDAVÉL
E
N
N
E
M
M
/S
ÍA
/N
M
34
93
3
Sölustaðir ThinkPad eru: Verslanir Nýherja í Reykjavík
og á Akureyri, verslanir Símans, Elko, TRS, Tölvun,
Omnis, Tengill, Netheimar, Martölvan, Ráðbarður og
Hrannarbúðin.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ÞAÐ var í kjölfar fyrri olíukreppunn-
ar árin 1973 til 1974 þegar samþykkt
voru lög á Bandaríkjaþingi um stofn-
un olíubirgðastöðva, einskonar olíu-
banka sem grípa mætti til þegar
sveiflur yrðu á framboðinu. Um líkt
leyti var Alþjóðaorkustofnunin (IEA)
sett á legg og gerir hún nú þá kröfu á
hendur aðildarríkjunum 27 að þau
hafi yfir að ráða birgðum sem nema
ígildi níutíu daga innflutnings.
Nú rúmum þremur áratugum síðar
eru uppi allháværar raddir um að
taka þurfi þetta baktryggingakerfi til
endurmats, í ljósi þeirrar óvissu og
hrinu hækkana sem einkennt hefur
olíumarkaðina síðustu misserin.
David G. Victor, prófessor við Stan-
ford-háskóla, og Sarah Eskreis-Win-
kler, ráðgjafi Bandaríkjastjórnar í ör-
yggismálum, gera þessa nýju stöðu að
umtalsefni í nýjasta hefti tímaritsins
Foreign Affairs, þar sem birgða-
stefna Bandaríkjastjórnar er rakin
allt aftur til áttunda áratugarins.
Rifja þau þar upp að í janúarmán-
uði 2007 boðaði George W. Bush
Bandaríkjaforseti að birgðastaðan,
sem aukin hefur verið jafnt og þétt í
gegnum árin, skyldi tvöfölduð, úr um
700 milljón tunnum í um 1,5 milljarða
tunna, eða upp í sem nemur núver-
andi olíuinnflutningi í 120 daga.
Að því gefnu að olíuverðið haldist
yfir 100 dali tunnan myndi slík aukn-
ing kosta á milli 70 og 100 milljarða
Bandaríkjadala, eða allt að um 8.000
milljarða króna á núverandi gengi.
Kínverjar byggja upp birgðir
Bandaríkin eru ekki eina stjórþjóð-
in sem hefur áhyggjur af birgðastöð-
unni. Kínverjar eru að byggja upp 100
milljón tunna birgðir, skref sem verð-
ur að telja aðeins upphaf frekari olíu-
söfnunar. Japanir, sem eru geysilega
háðir innfluttu jarðefnaeldsneyti,
ráða yfir ígildi 160 daga innflutnings.
Reynist sú greining Paul Stevens,
orkuhagfræðings og prófessors Em-
eritus við Dundee-háskóla, að alvar-
leg olíuframboðskreppa kunni að vera
á næsta leiti mun þrýstingurinn á
birgðastefnuna fara vaxandi og verða
í sífellt meira mæli settur í samhengi
við þjóðaröryggi ríkja heims.
Með hliðsjón af himinháu olíuverði
verður þessi birgðasöfnun einnig sí-
fellt dýrari og færa þau Victor og
Eskreis-Winkler rök fyrir því að sú
ákvörðun Bill Clinton, forseta 1992-
2000, að selja hluta birgðanna á fyrra
kjörtímabili sínu, þegar hagstæðara
var að kaupa olíu, og sú stefna Bush
forseta að auka birgðirnar eftir
hryðjuverkaárásirnar haustið 2001
kunni að hafa kostað bandaríska
skattborgara um 80 milljarða króna.
Að þeirra mati ætti að færa stjórn
yfir birgðunum frá forsetanum og
þeim sérfræðingum sem hann hefur
skipað í ráðuneytum orku- og utan-
ríkismála yfir til óháðs birgðaráðs.
Á sínum tíma hafi verið litið svo á
að stjórn forsetans fæli í sér vissan
sveigjanleika. Reynslan sýndi hins
vegar að forsetarnir hefðu ekki haft
nægilega skýra stefnu.
Leggja þau jafnframt til að birgða-
staðan verði aukin í 1,2 milljarða
tunna, ígildi 90 daga innflutnings, en
samkvæmt bestu heimildum megi
áætla að Bandaríkjastjórn hafi yfir að
ráða helmingi meiri olíubirgðum en
einkaaðilar vestanhafs.
Kerfið ekki í takt við tímann
Tvímenningarnir gagnrýna einnig
George H.W. Bush, forseta 1988 til
1992, fyrir að heimila ekki að gengið
yrði á birgðirnar eftir að strand olíu-
skipsins Exxon Valdez raskaði dreif-
ingu á olíu frá Alaska, meðal annars
vegna þess að hann hafi samkvæmt
lögum ekki geta gert slíkt nema í
neyðartilfellum. Forsetinn hafi hins
vegar heimilað að gengið yrði á birgð-
irnar við upphaf Persaflóastríðsins
1991, en að aðrir þættir, svo sem lof-
orð Sádi-Araba um að auka vinnsl-
una, hefðu vegið þyngra í að tryggja
stöðugleika og lágt verð á mörkuðum.
Niðurstaða þeirra er sú að olíu-
birgðakerfinu hafi verið komið á þeg-
ar gengið var út frá því að fámennur
hópur fyrirtækja og olíuvinnsluríkja
gæti aukið framboð þegar þyrfti.
Staðan hafi hins vegar breyst og
markaðurinn og dreifikerfin orðið við-
kvæmari fyrir sveiflum í framboðinu.
Þau telja óvíst hversu mikið gagn
Alþjóðaorkustofnunin gæti gert
kæmi upp svipuð staða og á 8. ára-
tugnum og leggja því til að hún stuðli
að fjárfestingu aðildarríkja, á borð við
Suður-Kóreu, í birgðakerfum sínum,
einkum utan landamæra þeirra.
Olíubirgðastefnan
tekin til endurmats
Órói á mörkuðum dregur athyglina að birgðunum vestanhafs
Varaforði Brot af innviðum olíu-
birgðastöðvarinnar í New Orleans.
Í HNOTSKURN
»Neyðarbirgðirnar erugeymdar á fjórum stöðum
við Mexíkóflóa og er hluti
olíunnar geymdur í mann-
gerðum neðanjarðarhellum.
»Til þeirra var stofnað eftirfyrri olíukreppuna á ár-
unum 1973 til 1974.
»Næstu ár byggðu Banda-ríkin upp miklar birgðir,
söfnun sem hlé varð á í kjölfar
írönsku byltingarinnar 1979.
FIMMTÁN mínútna fegrunarblundur kostar fimmtán
evrur, um 1.800 krónur, og níu tíma næturleiga til sjö
að morgni 60 evrur, rétt rúmlega 7.000 krónur.
Svona má draga saman verðskrána fyrir leiguna á
hinum nýstárlega svefnklefa „Napcab“ á flugvellinum í
München, sem þýskir iðnhönnuðir hönnuðu fyrir sam-
keppni á vegum háskóla í borginni. Á næstunni mun
koma í ljós hvort klefinn nær útbreiðslu en vísast munu
þreyttir ferðalangar á flugvöllum heimsins taka því
fagnandi að geta lagst til svefns, eftir að hafa farið yfir
tölvupóstinn á skjánum yfir rúmgaflinum.
Þótt fyrstu fimmtán mínúturnar séu þannig í dýrari
kantinum fer verðið lækkandi eftir því sem lengur er
dvalið í klefanum og kostar stundarfjórðungurinn í
München eftir það um 480 krónur. Sú martröð þeirra
sem þurfa að fljúga langar vegalengdir að þurfa að
leggjast til svefns á bekkjum á löngum flugvallagöng-
um gæti senn heyrt sögunni til. baldura@mbl.is
Reuters
Fegrunarblundur á 15 evrur