Morgunblaðið - 23.08.2008, Page 20

Morgunblaðið - 23.08.2008, Page 20
20 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ G uðni Gunn- arsson lífs- ráðgjafi flutti til Íslands frá Bandaríkjunum árið 2006 eftir að hafa þróað líkams- og hug- ræktarkerfið Rope Yoga. Eftir heimkomuna hófst Guðni handa við að stofna Rope Yoga-setur í Listhúsinu í Laugardal. Setrið tók til starfa árið 2007 og skömmu síð- ar opnaði Guðni, ásamt eiginkonu sinni, Guðlaugu Pétursdóttur, mat- sölustaðinn Gló í sama húsnæði. Starfsemin hefur vaxið og dafnað á skömmum tíma. „Ég vinn fyrst og fremst sem lífsráðgjafi við orkumiðlun,“ segir Guðni. „Manneskjan ver orku sinni annaðhvort í kærleik og umhyggju eða refsingu og ofbeldi. Flest okk- ar eru í andlegri leit og ég aðstoða fólk við að beina athyglinni í rétt- an farveg. Sjálfur nýt ég góðs af því að ekkert hefur hent mig í líf- inu sem ég hef ekki stofnað til sjálfur.“ Þegar Guðni er spurður hvenær andleg leit hans hafi hafist svarar hann: „Ég held að ég hafi aldrei komist undan henni. Ég vissi alltaf að ég væri orka og sál en ekki hugsanir mínar. Á tímabili voru hugsanir mínar að hræða úr mér líftóruna, ég réð ekki við þær og vissi að ég yrði að ná taki á huga mínum ef ég ætlaði einhvern tíma að öðlast ró.“ Eilíf nótt Á hvaða tímabili hræddistu hugsanir þínar? „Líf mitt hefur mótast af upp- eldi mínu. Ég ólst upp í Keflavík, faðir minn var sjómaður, vann mikið en þess á milli drakk hann. Móðir mín var heimavinnandi. Það voru erfiðleikar í kringum fjöl- skyldu mömmu, systkini hennar voru í mikilli neyslu og þeim var margoft bjargað af götunni. Ég var þrettán ára þegar mamma fór í neyslu, hún hrundi og í sjö ár horfði ég á hana veslast upp. Það var eilíf nótt. Hún var yndisleg kona en þoldi ekki við í þeirri til- vist sem hún hafði búið sér. Dag einn féll hún niður af svölum undir áhrifum og samkvæmt skilgrein- ingu lést hún af slysförum en í reynd fyrirfór hún sér. Þegar hún dó fyrirleit ég hana. Seinna skildi ég líf hennar. Sem unglingur ákvað ég að ég vildi ekki verða háður vímuefnum eins og foreldrar mínir en samt byrjaði ég í neyslu. Þrettán ára gamall drakk ég brennivín og reykti tóbak. Átján ára gamall vaknaði ég til meðvitundar um að áfengi færi illa í mig og gerði mig þunglyndan. Ég var fastur í þeim veruleika að verða eins og for- eldrar mínir. Ég var hræddur við sjálfan mig, leið illa og var orkulít- ill. Ég hætti allri neyslu. Öll mín hvatning snerist um það að verða ekki eins og mamma og pabbi. Ég ætlaði að verða töffari og sýna hvað ég gæti. Ég ætlaði að komast burt frá umhverfi mínu. Ég vann mikið og tvítugur var ég búinn að byggja tveggja hæða hús og stofnaði heildverslun og smá- sölu ásamt fyrri eiginkonu minni. Ég kunni ekki til verka en varð ekki gjaldþrota og hélt áfram að reyna að bjarga rekstrinum. Rúm- lega þrítugur var ég orðinn þreytt- ur og tættur. Allt mitt líf var sama ferlið, hlaup frá einu í annað, sí- felld leit. Ég bjó yfir miklum vilja og mikilli orku og áræði en hafði enga undirstöðu og því engan til- gang. Um leið var ég að reyna að halda jafnvægi og leita lausna með því að stunda jóga og líkamsrækt. Ég stofnaði Vaxtarræktina og starfaði sem líkamsræktarþjálfari. Að hluta til leið mér á þessum tíma eins og ég væri óheppinn, hefði orðið fyrir slysi. Ég var aftur byrjaður að drekka brennivín og reykja sígarettur. Skjólið var í lík- amsrækt, með henni hreinsaði ég til í tilvist minni, eins og þegar maður tekur til eftir veislu. Ég hafði enga orku, var hættur að taka ábyrgð og neitaði að horfast í augu við það sem ég var að gera. Ég var týndur, orðinn rekald, bú- inn að tapa gleði og áræði. Jú, ég mætti í vinnuna á morgnana en sýndi enga framsýni. Loks var mér ljóst að ég væri kominn í þrot. Ég varð að stíga afsíðis til að skilja að ég væri ábyrgur fyrir því hvar ég væri staddur og ef ég ætl- aði að breyta einhverju yrði ég að hafa stefnu. Ég sá ekki fram úr tilvist minni og sá ekki fram úr hjónabandinu. Ég ákvað að skilja og sex mán- uðum eftir að ég skildi var mér boðið að koma til Bandaríkjanna og kynna heilsuræktarhugmyndir mínar í Los Angeles. Ég fór þang- að.“ Hvernig kunnirðu við þig í Bandaríkjunum? „Ég var í Los Angeles, þar var alltaf hiti og hlýja og mikil birta sem fór vel í mig. Ég var svo lán- samur að laða að mér flott fólk og fór strax inn í umhverfi sem var fullt af hlýju og kærleik. Starfsemin hófst í bílskúr og með tímanum varð áherslan á lífs- færni sterkari. Ég vissi að ég myndi aldrei ná því að gera kenn- ingar mínar aðgengilegar og vin- sælar nema ég setti þær í heild- stæðan pakka, sem ég gerði með Rope Yoga. Árangurinn var góð- ur.“ Óhamingju viðhaldið Hvað er Rope Yoga? „Það má segja að Rope Yoga sé blanda af jóga, sálfræði, líkams- lestri, næringarfræði og nuddi. Einstök nálgun á huga, heilsurækt og velsæld. Í starfi mínu sem lík- amsræktarþjálfari á Íslandi sá ég að fólk sem kom í líkamsrækt var flest að viðhalda óhamingunni með því að draga örlítið úr henni í stað þess að fara í velsæld. Það er hægt að fara í líkams- og heilsu- rækt og lyfta lóðum en ef menn hafa ekki rétt hugarfar eru þeir alltaf að þjálfa skortinn.“ Hvað áttu við þegar þú talar um velsæld? „Velsæld er afskaplega einfalt fyrirbæri. Velsæld merkir að vera kominn inn í augnablikið þar sem maður nýtur sín, er hamingju- samur og er ekki að gagnrýna, hafna eða refsa. Um þetta snýst Rope Yoga að miklu leyti.“ Þú starfaðir í fimmtán ár í Bandaríkjunum, þér gekk vel þar. Af hverju ákvaðstu að koma heim? „Mér hefði ekki getað liðið betur en í Los Angeles. En það voru komin tímamót. Ég var búinn að fá útrás og hvíld og hafði þróað þetta kerfi, Rope Yoga. Ég spurði sjálfan mig: Hvað ætlarðu að gera? Hvert ætlarðu að fara? Ég sá að ég hafði viðað að mér mikilli þekkingu og vildi koma þessari nálgun á framfæri hér á Íslandi. Ég og kona mín vildum heldur ekki að ungt barn okkar myndi alast upp sem Bandaríkjamaður, með fullri virðingu fyrir þeirri þjóð, og fluttum því heim.“ Of mikil fæða Mataræði skiptir máli í kenn- ingum þínum. Hversu miklu máli skiptir mataræði fyrir andlega velsæld? „Manneskja sem er í neyslu er ekki í tengslum við eigið sjálf. Hún er fjarverandi, er háður neyt- andi. Þar er maturinn einn mesti skaðvaldurinn. Við neytum senni- lega þrisvar til fjórum sinnum meiri fæðu en við þörfnumst til að viðhalda líkama okkar, krafti og hamingju. Þessir þrír fjórðu þyngja mjög á okkur, ekki bara í holdi heldur einnig í huga. Við borðum ekki hreina fæðu sem er heilbrigð og næringarrík, við borð- um tilbúin efnasambönd úr pappa- kössum. Til að lifa heilbrigðu lífi er nauð- synlegt að nærast ekki á tilbúinni fæðu og efnasamböndum sem í eru geymsluefni, rotvarnarefni, lit- arefni og bragðefni sem eru iðn- aður sjúkdóma. Með því að næra sig á úrgangi dregur maður úr sér kraft og elju. Þegar maður hefur markmið og tilgang nærir maður þann ásetning með besta hráefni sem völ er á. Veitingastaður var alltaf hluti af hugmynd minni um Rope Yoga- setur. Á Gló er boðið upp á heil- brigða næringu. Gestir fá nóg að borða og maturinn er eins hollur og mögulegt er.“ Hefur Rope Yoga-starfsemin gert þig ríkan? „Ekki ennþá. Við hjónin lögðum í miklar fjárfestingar í sambandi við hönnum á Rope Yoga-kerfinu og húsnæði fyrir starfsemina hér heima. Við skuldum talsvert en er- um ekki í vandræðum með að borga af skuldunum. Ég á ekki Höfnum okkur 800 sinn- um á dag » Ég vissi alltaf að ég væri orka og sál en ekkihugsanir mínar. Á tímabili voru hugsanir mín-ar að hræða úr mér líftóruna, ég réð ekki við þær og vissi að ég yrði að ná taki á huga mínum ef ég ætlaði einhvern tíma að öðlast ró. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.