Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 21

Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 21 peninga í skjóðum en hef litlar áhyggjur af því.“ Við erum sál Hvert er lykilatriði í þeirri and- legu leiðsögn sem þú veitir? „Það að við erum ekki hugsanir okkar. Við erum sál. Þegar við skiljum að við erum vitund getum við farið að veita hugsunum okkar athygli. Þá skiljum við að hugsanir okkar eru eins og gamlar seg- ulbandsspólur og hafa ekkert gildi í sjálfu sér. Þegar maður skilur það skilur maður líka að með- almanneskja hafnar sér 800 sinn- um á dag.“ Af hverju segirðu að við höfn- um okkur 800 sinnum á dag? „Við svíkjum, við prettum, við frestum. Um leið og við frestum hlutum erum við að draga úr verð- leikum okkar og viðhalda skort- inum. Við höfnum okkur að með- altali 800 sinnum á dag, sumir oftar, aðrir sjaldnar. Og á meðan við höfnum okkur 800 sinnum á dag erum við að virkja 85 prósent af orku okkar í sjálfsvorkunn og svo fara 15 prósentin sem eftir eru í réttlætingu okkar á því.“ Að uppgötva frjálsan vilja Alls konar fólk kemur til þín, þar á meðal einstaklingar sem hafa náð langt í viðskiptalífinu og eru hjá þér í einkatímum. Af hverju koma þeir til þín? „Ég hef reynslu í viðskiptum, ég hef reynslu sem manneskja. Ég hef laðað að mér menn sem eru með opið hjarta og eru tilbúnir að hlusta. Menn sem eru bæði hug- rakkir og sterkir og vilja að fram- lag þeirra í lífinu sé heilbrigt. Allt sem við veitum athygli vex og dafnar. Ef við veitum skort- inum athygli þá vex hann og ef við veitum velsældinni athygli þá vex hún. En þeir sem horfast ekki í augu við sjálfa sig geta ekki veitt neinu athygli. Þetta er ekki flókn- ara en það.“ Ertu þá að segja að maður komist þangað sem maður ætlar sér? „Já. En við erum alltaf að draga úr okkur kjark. Eins og Nelson Mandela sagði: Það er ekki myrkr- ið sem við óttumst heldur ljósið.“ Verður fólk að verða fyrir áföllum til að geta horfst í augu við sjálft sig? „Ég er ekki að segja að það sé nauðsynlegt en ég hef ekki hitt marga sem hafa ekki þurft dugleg kjaftshögg eða spark til að átta sig á því hvar þeir eru staddir og hvert þeir eru að fara. Það er hins vegar flestum gefið að skilja að maðurinn er ekki hugsanir sínar heldur er hann sál. Ég hef aldrei hitt manneskju sem skilur ekki þá umræðu.“ Ef við erum andar hver er þá tilgangurinn með þessari jarðvist? „Tilgangurinn er að uppgötva frjálsan vilja og skilja að við erum skaparar sem eigum að taka á okkur ábyrgð, fyrirgefa sjálfum okkur og vera ekki háð gærdeg- inum. Þegar við höfum öðlast frjálsan vilja áttum við okkur á að við höfum val, getu, orku og styrk til að fyrirgefa okkur sjálfum og losa okkur þannig undan ánauð þjáningar sem við erum sífellt að leggja á okkur. Við erum skap- arar, ákvörðum veruleikann í eigin lífi og erum frjáls.“ Er Guð til? „Hvert sem ég kem sé ég Guð, þannig að ég er ekki í nokkrum vafa um tilvist hans.“Morgunblaðið/Kristinn Tilgangurinn „Tilgangurinn er að uppgötva frjálsan vilja og skilja að við erum skaparar sem eigum að taka á okkur ábyrgð, fyrirgefa sjálfum okkur og vera ekki háð gærdeginum.“ Miðvikudaginn 27. ágúst kl. 9:00-15:30 í Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2 Að skrifa samkeppnishæfa umsókn í 7. rannsóknaáætlun ESB N Á M S K E I Ð H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Leiðbeinandi verður Dr. Sean McCarthy frá Hyperion sem er einn eftirsóttasti ráðgjafi á þessu sviði í Evrópu. Námskeiðið fer fram á ensku. Þátttökugjald er 20.000 kr. Innifalin eru námskeiðsgögn og veitingar. Athugið að fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Skráningarfrestur er til 25. ágúst 2008. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800. Dagskrá: l Yfirlit yfir 7. rannsóknaáætlun ESB l Markmið og forgangssvið l Tegundir verkefnastyrkja l Hvernig á að finna samstarfsaðila l Mat á umsóknum l Undirbúningur og hugmyndir l Áætlanagerð l Umsóknarskrif Rannsóknamiðstöð Íslands • Laugavegi 13 • 101 Reykjavík • Sími 515 5800 • www.rannis.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.