Morgunblaðið - 23.08.2008, Page 38
38 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Vélavörður
Vélavörður óskast á neta- og línuveiðiskipið
Kristrúnu RE-177 frá Reykjavík. Þarf helst að
geta leyst af sem yfirvélstjóri. Góður kvóti og
góðir tekjumöguleikar. Uppl. í síma 520 7306.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Kríuhólar 4, 204-8994, Reykjavík, þingl. eig. Sævar Hólm Valdimars-
son, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf., aðalstöðv,
Tollstjóraembættið,Tryggingamiðstöðin hf. og Vörður tryggingar hf.,
miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 13.30.
Strandasel 9-11, 205-4610, Reykjavík, þingl. eig. Hildur Björnsdóttir,
gerðarbeiðandi Sparisjóðurinn á Suðurlandi, miðvikudaginn 27. ágúst
2008 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
22. ágúst 2008.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Dalvegi
18, Kópavogi, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Asparhvarf 22, ehl. gþ. (229-0894), þingl. eig. Asparhvarf ehf,
gerðarbeiðandi Dúkþak ehf, miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Auðbrekka 14, 01-0301 (205-8798), þingl. eig. Vistir ehf,
gerðarbeiðandi Stafir lífeyrissjóður, miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl.
10:00.
Álfkonuhvarf 21, 0205, ehl.gþ. (227-2763), þingl. eig. Rafn
Guðmundsson, gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf,
miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Bakkahjalli 7, ehl.gþ. (223-4406), þingl. eig. Kristín Bessa Harðardóttir,
gerðarbeiðandi Birtingur útgáfufélag ehf, miðvikudaginn 27. ágúst
2008 kl. 10:00.
Birkigrund 51, 01-0101, ehl.gþ. (205-8933), þingl. eig. Sveinn Kjartans-
son, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi, miðvikudaginn 27.
ágúst 2008 kl. 10:00.
Birkihvammur 18, 0101, ásamt bílskúr (205-8996), þingl. eig. Eygló
Hallgrímsdóttir, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Verkfræðinga,
miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Engihjalli 1, 0702 (205-9853), þingl. eig. Jón Ingi Þórarinsson,
gerðarbeiðendur Glitnir banki hf og Og fjarskipti ehf, miðvikudaginn
27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Fagrihjalli 10, 05-0101 (206-0275), þingl. eig. Eyrún Ingvaldsdóttir og
Sigurður Kristinn Gunnarsson, gerðarbeiðendur Frjálsi
fjárfestingarbankinn hf og Landsbanki Íslands hf,aðalstöðv,
miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Gnitakór 7 (227-4407), þingl. eig. Björk Baldursdóttir, gerðarbeiðandi
Landsbanki Íslands hf,aðalstöðv, miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl.
10:00.
Grænihjalli 19, 0101 (206-1114), þingl. eig. Ágúst Rafn Kristjánsson og
Ágústa Steinþórsdóttir Kroknes, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslu-
narmanna, miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Hafnarbraut 4, 0101 (206-1147), þingl. eig. Bryggjubyggð ehf,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf ogTollstjóraskrifstofa,
miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Hamraborg 24, 07-0303 (206-1295), þingl. eig. Hagur ehf,
gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 27. ágúst 2008
kl. 10:00.
Helgubraut 27, (206-1519), þingl. eig. Reynir Ingi Helgason,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi, miðvikudaginn 27. ágúst
2008 kl. 10:00.
Kjarrhólmi 26, 0402, ehl.gþ. (206-3311), þingl. eig. Jón Mýrdal
Harðarson, gerðarbeiðandi Borgun hf, miðvikudaginn 27. ágúst 2008
kl. 10:00.
Lindasmári 10 (222-7609), þingl. eig. Guðný María Guðmundsdóttir
og Magnús Árnason, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi,
miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Lækjasmári 17, 01-0101 (221-8865), þingl. eig. Sigurþór Ólafsson,
gerðarbeiðendur Glitnir banki hf, Íbúðalánasjóður og Sýslumaðurinn
í Kópavogi, miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Skálaheiði 3, 0102 (206-4843), þingl. eig. Vigdís Guðjohnsen,
gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl.
10:00.
Skemmuvegur 38, 0001 (206-4911), þingl. eig. Skemmuvegur 38 ehf,
gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn í Kópavogi, miðvikudaginn 27. ágúst
2008 kl. 10:00.
Trönuhjalli 9, 0202 (206-5644), þingl. eig. Guðjón Garðarsson,
gerðarbeiðendur Guðleifur Magnússon, Íbúðalánasjóður og Lands-
banki Íslands hf,aðalstöðv, miðvikudaginn 27. ágúst 2008 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Kópavogi,
22. ágúst 2008.
Tilkynningar
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
við Skólabraut, 210 Garðabæ, sími 520-1600, fax 565-1957
vefslóð: http:www.fg.is, netfang: fg@fg.is
Fjarnám: fg.is
Öflugt og gott fjarnám í boði.
Hagstætt verð.
Endurgreiðslur til þeirra
sem ljúka prófum!
Þarft þú hjálp við að skipuleggja nám þitt til
stúdentsprófs?
Hefur þú lokið einhverjum áföngum í framhaldsskóla?
Átt þú fáa áfanga eftir til að ljúka stúdentsprófi eða
öðru réttindanámi?
Skoðið heimasíðuna: www.fg.is
Umsóknarfrestur er til 29. ágúst nk.
Skólameistari.
Félagslíf
24.8. Esjan (E-5)
Þverfellshorn, 780 m -
Kerhólakambur, 851 m -
Smáþúfur
Brottför frá BSÍ kl. 09:30
V. 3100/3700 kr.
Vegalengd 15-16 km. Hækkun
800 m. Göngutími 6-7 klst.
29. - 31.8. Fjallabak - Jeppa-
ferð fyrir alla jeppa
Brottför: kl. 19:00
V. 7200/8300 kr.
0808JF02
Haustferð um Fjallabakssvæðið
þar sem gist verður í skálanum í
Strút ogskoðaðar ýmsar fallegar
náttúruperlur ásamt því að fara í
bað í Strútslaug.
Fararstj. Þórhallur Másson.
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú
getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem
þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag.
Besta aukavinna sem þú getur fundið
og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna og sæktu um
í síma 569 1440 eða á mbl.is!
Sæktu um blaðberastarf
– alvörupeningar í boði!
✝ Unnur Krist-jánsdóttir var
fædd á Þingvöllum
í Helgafellssveit 9.
júlí 1923. Hún lést
í St. Franciskus-
spítalanum í
Stykkishólmi 11.
ágúst síðastliðinn.
Hún var þriðja
barn hjónanna
Maríu Kristjáns-
dóttur frá Litla–
Langadal á Skóg-
arströnd, f. 10.8.
1889, d. 15.12.
1987 og Kristjáns Jóhannssonar,
Ytri-Drápuhlíð í Helgafellssveit,
f. 7.5. 1891, d. 3.8. 1984. Þau
giftust 1918 og hófu búskap á
Skógarströnd og bjuggu þar í
tvö ár en fluttu þaðan 1921 að
Þingvöllum í Helgafellssveit og
hófu búskap þar. Á Þingvöllum
bjuggu þau þar til þau fóru á
Dvalarheimili
Stykkishólms 1979.
Systkini Unnar
eru: 1) Kristján, f.
1919, d. 2002, 2)
Ingibjörg Sigríður,
f. 1922, 3) Hall-
varður Guðni, f.
1928, d. 1997. Unn-
ur fluttist ung til
Reykjavíkur og
starfaði í eldhúsi
Fæðingarheimilis
Reykjavíkur í um
aldarfjórðung. Hún
var félagslynd
kona og starfaði í Húsmæðra-
félagi Reykjavíkur í mörg ár.
Þegar hún hætti að vinna vegna
aldurs flutti hún aftur til heima-
haganna og bjó á Dvalarheimili
Stykkishólms til dauðadags.
Útför Unnar fer fram frá
Helgafellskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 12.
Við leiðarlok þökkum við Unni
frænku allar góðar og hlýjar sam-
verustundir í gegnum tíðina. Þegar
við heimsóttum hana snemma í sum-
ar bar hún sig vel eins og venjulega
og var umhugað að geta boðið uppá
eitthvað gott.
Hún var svo stór þáttur í lífi okk-
ar, kom iðulega í Einholtið, enda bjó
hún ekki langt frá okkur.
Unnur og Kiddi bróðir hennar
voru miklir aufúsugestir á heimilinu
og fóru margar ferðir bæði innan-
lands og utan með foreldrum okkar í
gegnum tíðina.
Það var tilhlökkunarefni þegar
farið var í heimsóknir til hennar
hvort heldur sem var á heimili henn-
ar í Mávahlíðinni eða á Fæðingar-
heimilið við Þorfinnsgötu þar sem
hún starfaði í eldhúsinu til fjölda ára
enda nutum við góðs af þegar við lág-
um þar á sæng, þá var laumað til
okkar góðgæti.
Sú hefð skapaðist að Unnur var
alltaf með okkur á gamlárskvöld,
fyrst í Einholtinu og síðar á Mela-
brautinni. Hún hafði oft á orði hvað
hún hefði skemmt sér vel enda mikið
hlegið og haft gaman eins og svo oft
þegar við vorum saman.
Unnur fylgdist alltaf vel með,
hringdi til að heyra hvernig okkar
fólki vegnaði og þótti okkur vænt um
það.
Síðustu ár hefur Unnur frænka
búið í íbúðum aldraðra í Stykkis-
hólmi þar sem henni leið mjög vel og
taldi sig heppna að fá að vera þar
nærri skyldfólki sínu og þar fannst
henni hún vera komin heim enda
stutt í æskuheimilið á Þingvöllum
sem henni þótti alla tíð svo vænt um.
Við systur og mamma þökkum
langa og góða samveru liðinna ára.
Hvíl í friði elsku Unnur.
Guðrún Ína og Margrét
Einarsdætur.
Það er byrjað að hausta, fuglarnir
farnir að hópa sig saman og æfa flug
til hlýrri landa. Það var líka komið
haust í lífi Unnar frænku. Hún lést á
St. Franciskusspítala í Stykkishólmi
eftir mjög skamma sjúkdómslegu.
Ég minnist yndislegra samveru-
stunda með Unni þegar spjölluðum
um daginn og veginn, borðuðum
konfekt og drukkum glas af Bristol
Cream. Það var gott að koma til
hennar. Við áttum mikið sameigin-
legt þó að mikill aldursmunur væri á
okkur og gátum alltaf spjallað sam-
an. Hún var alltaf létt í lund og
fannst gaman að fá fólk í heimsókn.
Hún var afar frændrækin, ræktaði
tengslin við vini og ættingja og það
brást ekki að Unnur hringdi ef ein-
hver átti afmæli í stórfjölskyldunni
því hún var afar minnug á afmæl-
isdaga fjölskyldumeðlima. Hún
hringdi meira að segja oft daginn
fyrir afmælið „því þá var það búið“
eins og hún sagði, en ég held þetta
hafi verið hennar eðlislæga tillits-
semi að vera ekki að trufla afmæl-
isbarnið á afmælisdaginn. Unnur
hafði gaman af því að ferðast, bæði
innanlands og utan. Henni tókst að
ferðast þó nokkuð til útlanda og átti
hún góðar minningar um þær ferðir
og var nokkuð stolt af því að hafa
getað farið í þessi ferðalög.
Minningarnar um Unni fylgja
okkur um ókomna daga. Við munum
hana sem hægláta konu, sem öllum
vildi vel, var alltaf boðin og búin til
aðstoðar og ávallt glöð og sátt við líf-
ið og tilveruna. Ég og fjölskylda mín
erum þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast henni og átt hana að sem
vin.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir)
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir.
Unnur Kristjánsdóttir
MINNINGAR
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum
- mælt í Tools/Word Count). Ekki er
unnt að senda lengri grein. Hægt er
að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim
sem kvaddur er virðingu sína án þess
að það sé gert með langri grein. Ekki
er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst.
Minningargreinar