Morgunblaðið - 23.08.2008, Side 40
40 LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er laugardagur
23. ágúst, 236. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Jesús segir við hann: „Þú
trúir, af því þú hefur séð mig. Sælir
eru þeir, sem hafa ekki séð og trúa þó.“
(Jh. 20.)
Víkverji botnar ekkert í orðunumlágvöruverð, lágvöruverðs-
verslun og lágvöruverðskjarni. Orð-
ið lágvöruverð er ekki orð heldur
orðskrípi, nýtt af nálinni, sem ein-
hver sem rekur verslun þar sem
áhersla er lögð á lágt verð á vörum
hefur búið til. Ekki er nóg með að
þetta orðskrípi sjáist nú í auglýs-
ingum og utan á verslunum sem gefa
sig út fyrir að selja vörur á lágu
verði, heldur eru fjölmiðlamenn
farnir að bíta á agnið og tala um lág-
vöruverðskjarna og -verslanir. Þá er
líka talað um lágvöruverslanir, sem
er enn furðulegra orðskrípi.
x x x
Ef rýnt er nánar í orðskrípið lág-vöruverslun þá mætti halda að
til væri ákveðin vörutegund sem
kölluð væri lágvara. Mætti því halda
að Krónan, Bónus, Intersport og
Elko seldu vörur heldur lágar í loft-
inu. Í Bónus og Krónunni væru það
þá t.d. pönnukökur, flatkökur,
súkkulaði o.s.frv. og í Intersport
gætu það t.d. verið æfingadýnur og
svifdiskar. Í Elko væru það mynd-
diskar, tölvuleikir og DVD-spilarar,
t.d. Í ljósi þessa myndi þá lág-
vöruverðskjarni, eða lágvörukjarni,
líkt og sá sem nýverið var opnaður í
Kópavogi, aðeins selja lágar vörur.
x x x
Þarna er e.t.v. komin viðskipta-hugmynd án þess að höfundur,
eða höfundar, orðskrípisins hafi gert
sér grein fyrir því. Nú er Víkverji
enginn athafnamaður en vel má
ímynda sér að ódýrara sé að flytja
inn lágvörur af því þær taka svo lítið
pláss í gámum.
Það gæti orðið afar áhugavert að
skoða úrval í verslun þar sem allar
vörur eru að hámarki 5 sm háar.
„Sjáðu elskan hvað ég keypti í lág-
vöruversluninni! Þessa líka fínu
alpahúfu, sandala, flatkökur, pappa-
diska, einangrunardýnu og hræ-
ódýra kökubotna!“ gæti Víkverji t.d.
tilkynnt frú Víkverja eftir ferð í lág-
vöruverslun. Þá væri einnig hægt að
veita lágvöxnu fólki sérstakan afslátt
í lágvöruversluninni. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Danmörk Rúnar Karl fæddist
í Gentofte 9. maí. Hann vó 14
merkur og var 52 cm langur.
Foreldrar hans eru Þorvald-
ur Óskar Karlsson og
Branddís Jóna Garðarsdóttir.
Nýirborgarar
Krossgáta
Lárétt | 1 tilkynnir, 8
deigar, 9 nægir, 10 tala,
11 kind, 13 byggja, 15
hestur, 18 fljótin, 21
nam, 22 afturkallaði, 23
fiskar, 24 dásamlegt.
Lóðrétt | 2 umræða, 3
kroppa, 4 bál, 5 manns-
nafn, 6 digur, 7 ýlfra, 12
tíni, 14 bókstafur, 15
ástand, 16 amboðin, 17
stíf, 18 bæn, 19 ekki
gömul, 20 lélegt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bólga, 4 fölar, 7 rugls, 8 ljóst, 9 ask, 11 iðra, 13
vita, 14 rekki, 15 vont, 17 trúr, 20 gil, 22 liðna, 23 jafnt,
24 síðla, 25 taðan.
Lóðrétt: 1 byrði, 2 lógar, 3 ansa, 4 fólk, 5 ljóði, 6 rotta,
10 sukki, 12 art, 13 vit, 15 volks, 16 næðið, 18 rofið, 19
rotin, 20 gata, 21 ljót.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. f3 e5 7. Rb3 Be6 8. Be3
Rbd7 9. Dd2 b5 10. g4 b4 11. Rd5 Bxd5
12. exd5 Rb6 13. O–O–O Be7 14. Dxb4
Rfxd5 15. Bxb6 Rxb6 16. f4 O–O 17.
fxe5 a5 18. De1 a4 19. Rd4 Bh4 20. De2
Dg5+ 21. Kb1 Dxe5 22. Rf3 Df6 23. a3
Hab8 24. c3 Rc4 25. Dxc4 Dxf3 26. Bd3
Hfc8 27. De4 Dxe4 28. Bxe4 Hxc3 29.
Hd2 Hxa3 30. Bd5 He3 31. Ka2 Bf6 32.
Hc1
Staðan kom upp á alþjóðlegu at-
skákmóti Mainz. Viswanathan Anand
(2798) hafði svart gegn Alexander Mo-
rozevich (2788). 32… Heb3! 33. Bxb3
hvítur hefði einnig haft tapað eftir 33.
Hcc2 Hd6. 33… axb3+ 34. Ka3 Bg5!
35. Hcd1 Bxd2 36. Hxd2 Hb6 svartur
hefur nú léttunnið tafl. 37. Hd3 Kf8 38.
Ka4 Ke7 39. Hxb3 Hxb3 40. Kxb3 h5
41. gxh5 f5 42. Kc4 f4 43. Kd4 d5 44.
Kd3 Kd6 45. Kd4 Kc6 46. Kd3 Kc5 47.
Kc3 d4+ 48. Kd3 f3, hvítur gafst upp.
svartur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Engin leiðsögn.
Norður
♠ÁD8
♥D97642
♦D108
♣3
Vestur Austur
♠K65 ♠G97
♥Á1053 ♥G8
♦– ♦76
♣ÁDG952 ♣K108764
Suður
♠10432
♥K
♦ÁKG95432
♣–
Suður spilar 5♦.
Öll almennileg sagnkerfi segja af
mikilli nákvæmni til um hvernig melda
skuli á jafnskiptar hendur, en eftir því
sem skiptingin vex dregur úr leiðsögn
kerfisins. Er til dæmis einhver „rétt“
opnun til á suðurhöndina?
Möguleikarnir eru margir: 1♦, 3♦,
4♦, 5♦, jafnvel pass. Dæmið er frá
sumarspilamennsku BSÍ á miðvikudag
og þar gafst vel að opna á 5♦. Tólf
slagir fást með því að fría hjartað og
svína ♠D. Enginn sagði þó slemmu og
kosturinn við opnun á 5♦ fólst í því að
loka á andstöðuna – AV eiga nefnilega
fyrirtaksfórn í 6♣, sem náðist á tveim-
ur borðum. Það er þó vafasamt að
draga of miklar ályktanir af einu spili.
Eitt er alla vega víst: eftir opnun á 5♦
verða 3G ekki spiluð, sem er eftirlæti
sannra tvímenningshauka. Hjá þeim
fær opnun á 1♦ hæstu einkunn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Vinir þínir elska þig og hugsa mik-
ið um þig. Notaðu hvert tækifæri sem
gefst til að deila einhverju með þeim. Þú
kemst að því hversu mikið þú hefur að
gefa.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Ástúðin flæðir. Þú færð viðurkenn-
inguna sem þú þarfnast og endurgeldur
virðinguna. Það besta er að þú færð aðra
manneskju til að setja markmiðin sín mun
hærra.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Græneygt skrímsli öfundarinnar
nær tökum á þér. Það er ekki slæmt, sýn-
ir þér bara hvað þú vilt í lífinu. Láttu öf-
undsýkina hvetja þig til dáða.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það skiptir miklu að þú viljir taka
áskorunum núna. Þá þarftu líka að læra
ýmsilegt nýtt til að vera við öllu búinn.
Farðu á námskeið og í ferðalög.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú munt standa í samningum þér og
öðrum til góðs. hafðu ávallt í huga rétt-
lætisást þína. Ef hinn aðilinn er ósam-
vinnuþýður, skaltu ganga burt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þessa dagana kemur í ljós hversu
mikið þú kannt að meta fallega hluti. Ef
þú þarft að meta hluti á fagurfræðilegum
forsendum, er skemmtilegra að hafa ein-
hvern með sér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú þarft að kunna að skipta úr vinnu-
gír yfir í fjölskyldugírinn. Hættu að vinna
þegar þú segist ætla að gera það. Láttu
undirmeðvitundina um vinnuna eftir það.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þig þyrstir í einhverja spennu
núna, svo þú ert meira en til í að yfirgefa
þægindin fyrir brjálað ævintýri. Einhver
tekur eftir breytingu á þér.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú leggur á þig langt ferðalag
bara til að sjá eitthvað alveg nýtt. Ef eitt-
hvað skortir á fé í veskinu, er hagnýtt ráð
að ferðast í huganum. Góða ferð!
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Sumum finnst skemmtilegra að
fá hugmyndir og gera áætlanir en að
framkvæma þær. Njóttu samræðnanna
þó þú verðir sá eini sem fylgir þeim eftir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Hentu tossalistanum. Haltu
skylduverkunum í algjöru lágmarki. Þú
þarft að hvíla þig og verður 10 sinnum öfl-
ugri á mánudaginn ef þú nærð því.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft ekki að vera einhver ann-
ar en þú ert. Kannski er þrýstingurinn
sem þú finnur fyrir til að ganga í augun á
öðrum bara kominn frá þér sjálfum.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
23. ágúst 1932
Víkingaskipið Roald Amund-
sen kom til Reykjavíkur eftir
þriggja vikna siglingu frá Ný-
fundnalandi. Skipið var á leið
til Noregs, en þar hófst ferðin
þremur árum áður.
23. ágúst 1946
Gunnar Huseby „vann það ein-
stæða afrek að verða Evr-
ópumeistari í kúluvarpi með
allmiklum yfirburðum“, eins
og Morgunblaðið orðaði það.
Gunnar kastaði 15,56 m og
varð fyrsti Evrópumeistari Ís-
lendinga.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist þá …
Áslaug Sól-
björt Jensdóttir,
húsfreyja á Núpi
í Dýrafirði, til
heimilis á Bú-
staðavegi 73 í
Reykjavík, er ní-
ræð í dag, 23.
ágúst. Áslaug
verður í faðmi
fjölskyldunnar á afmælisdaginn.
90 ára
Hjónin Kristján Sveinbjörnsson,
forseti bæjarstjórnar Álftaness, og
Kristín S. Sigurleifsdóttir kennari
halda upp á sameiginlega 50+50
ára afmælið í dag, laugardaginn 23.
ágúst, kl. 17-20, í söngskólanum
Domus Vox, Laugavegi 116. Vinir
og félagar boðnir velkomnir.
50 ára afmæli
ÁSDÍS María Ægisdóttir býr á Ólafsfirði ásamt
foreldrum sínum Guðnýju Ágústsdóttur og Ægi
Ólafssyni. Hún ætlar að halda upp á þennan lang-
þráða áfanga á sportbarnum Dátanum á Akureyri
og mun skemmta sér þar í faðmi nánustu vina.
Kærasti hennar, Jón Þórarinsson, verður þó fjarri
góðu gamni þar sem hann er staddur á sjó.
Ásdís María vann í sumar sem flokkstjóri hjá
Fjallabyggð. Hún hafði umsjón með 10. bekk-
ingum og var það að hennar sögn afskaplega gam-
an. Í vetur ætlar hún að vinna hjá Grunnskóla
Ólafsfjarðar. Þar mun hún starfa í skóladagvist-
uninni en þangað mæta nemendur í 1.-.3. bekk þegar skóladeginum
lýkur og dvelja þar til foreldrarnir ljúka störfum.
Aðspurð segist Ásdís María lítið hafa gert í sumar annað en að
vinna og vera með vinum sínum. Áhugamál hennar eru að eyða tíma
með fjölskyldu sinni og vinum og hafa gaman af lífinu auk þess að
fara á snjóbretti. Ásdís María segir að á veturna farið hún reglulega
upp í fjall, annað hvort á Ólafsfirði eða á Akureyri, en áhugamálið á
hún sameiginlegt með mörgum vinum sínum, þó fleiri kjósi að setjast
á bak snjósleða eða jafnvel fara á svokallaðan krossara. Ásdís María
segist hafa prófað slíkt farartæki nokkrum sinnum en hún kunni þó
lítið á það. Aðspurð segir Ásdís María haustið leggjast vel í sig og
hlakki hún til að fá snjóinn. ylfa@mbl.is
Ásdís María Ægisdóttir tvítug
Fagnar afmæli á Dátanum
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is