Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 43
Menningarnótt hefur vaxiðhratt frá því hún varfyrst haldin árið 1996.
Sumum finnst hún jafnvel vera
orðin úr sér vaxin og ofhlaðin og
maður heyrir fólk gjarnan fussa
og segja: Iss, þetta er bara orðið
eins og 17. júní, æpandi krakkar í
sykurkvoðuvímu og alltof mikill
troðningur! Ég hef reyndar sjálf
verið í hópi þeirra fýlupoka síð-
ustu árin og oftar en ekki setið
heima og rifjað upp með eftirsjá
fyrstu menningarnæturnar þegar
gestirnir skiptu þúsundum, en
ekki tugþúsundum. Í ár hef ég
hins vegar ákveðið að taka þátt í
menningarnótt af fullri einlægni,
með opnum hug og sólskinsbros á
vör. Fagnaðarlæti í kátum krökk-
um munu ekki trufla mig hið
minnsta og ég ætla að njóta þess
fram í fingurgóma að hitta nánast
alla íbúa borgarinnar á einu bretti.
Á heimasíðu Menningarnætur erhægt að setja saman eigin
dagskrá og velja úr þeim fjöl-
mörgu atriðum sem í boði verða.
Það er þó varla skynsamlegt að
hafa dagskrána of stífa, stór hluti
af sjarmanum við menningarnótt
er að rölta um, heilsa upp á vini
og kunningja og láta koma sér á
óvart á hverju götuhorni. Það eru
þó nokkur atriði sem ég ætla alls
ekki að missa af.
Það er passlegt að hefja leikinnupp úr hádegi með því að
heimsækja varðskipið Óðin sem
liggur nú við höfn og gegnir hlut-
verki safns. Þar ætla gamlir varð-
skipsmenn að segja sögur af bar-
áttunni við að verja miðin í
gegnum tíðina. Þaðan liggur leiðin
upp í Þingholtin þar sem nokkrir
íbúar bjóða gestum Menning-
arnætur í vöfflukaffi. Meðal þeirra
sem ætla að standa vaktina á
vöfflujárninu er einn úr sívaxandi
hópi fyrrverandi borgarstjóra í
Reykjavík, Dagur B. Eggertsson.
Eftir að hafa kýlt vömbina út af
vöfflunum hans Dags verða teknar
nokkrar kröftugar Müllersæfingar
og kannski einn stórfiskaleikur í
porti Miðbæjarskólans þar sem
skólasaga Reykjavíkur verður
kynnt.
Klukkan sex hefst æsispennandispurningakeppni í Listasafni
Reykjavíkur þar sem listunnendur
berjast um það hver er fróðastur
um byggingarlist, hönnun og
myndlist. Spyrlarnir Pétur H. Ár-
mannsson arkitekt, Halla Helga-
dóttir, framkvæmdastjóri Hönn-
unarmiðstöðvar, og Guðmundur
Oddur Magnússon, prófessor við
Listaháskóla Íslands, munu skera
úr um það hver er mesti menning-
arvitinn á þessu sviði.
Þegar úrslitin liggja fyrir verð-ur farið upp á Þjóðminjasafn
þar sem ástin verður í aðal-
hlutverki. Lesið verður úr ást-
arbréfum löngu liðinna elskenda
og ástir og örlög af sýningum
safnsins verða dregin fram í dags-
ljósið. Rómantísk ganga eftir
Tjarnargötunni og tónleikar Sig-
urðar Guðmundssonar og Memfis-
mafíunnar í Ráðhúsinu passa vel í
framhaldinu áður en haldið er á
hápunkt menningarnæturinnar,
stórtónleikana á Miklatúni. Ef
heppnin verður með tekst mér
kannski að leggja undir mig eitt af
hengirúmunum sem hönnuðurinn
María Sjöfn setur upp í garðinum
og get sveiflað mér í takt við Ný-
dönsk, Jet Black Joe, Hjaltalín,
Bloodgroup, Magnús og Jóhann og
Fjallabræður.
Samkvæmt hefðinni verðavaktaskipti á menningarnótt
þegar flugeldasýningunni er lokið.
Fjölskyldufólkið heldur heim á leið
með viðkomu í nokkrum umferð-
arhnútum og djammhundarnir
taka völdin í miðborginni. Ég er
ekki alveg búin að gera upp við
mig hvorum hópnum ég fylgi, en
ef ég ætla endanlega að hrista af
mér fýlupokastimpilinn dugir sjálf-
sagt ekkert annað en að dansa
fram á morgun. gunnhildur @mbl.is
Menningarnótt fyrrverandi fýlupoka
» Stór hluti af sjarmanum við menningarnótt erað rölta um, heilsa upp á vini og kunningja og
láta koma sér á óvart á hverju götuhorni.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vöfflubakari Dagur B. Eggertsson
er einn íbúanna í Þingholtum sem
bjóða í vöfflukaffi í dag.
AF LISTUM
Gunnhildur Finnsdóttir
Morgunblaðið/Ómar
Fyrir hengirúm Nýdönsk er ein þeirra hljómsveita sem sjá um að rugga fólki á Miklatúni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljósadýrð Flugeldasýning við höfnina.
Morgunblaðið/G. Rúnar
Mafíósinn Sigurður Guðmundsson.
Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl.12:30-18:00, aðra daga vikunnar frá kl. 12:30 til
20, og alltaf klukkustund fyrir sýningu ef um breyttan sýningartíma er að ræða.
Stóra sviðið
Skilaboðaskjóðan
Sun 7/9 kl. 14:00 Sun 14/9 kl. 14:00
Ath. aukasýn. 4. maí
Ástin er diskó - lífið er pönk
Lau 30/8 kl. 20:00 Lau 6/9 kl. 20:00 Sun 7/9 kl. 20:00
Sýningar haustsins komnar í sölu
Engisprettur
Lau 4/10 kl. 20:00 Fös 10/10 kl. 20:00
Kassinn
Utan gátta
Fös 17/10 frums. kl. 20:00 Lau 18/10 kl. 20:00
Kúlan
Klókur ertu - Einar Áskell
Lau 30/8 frums. kl. 15:00 Sun 31/8 kl. 11:00 Sun 31/8 kl. 12:15
Brúðusýning fyrir börn
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Fös 5/9 frums. kl. 20:00
Lau 6/9 2. sýn. kl. 19:00
Sun 7/9 3. sýn. kl. 20:00
Mið 10/9 aukas. kl. 20:00
Fös 12/9 4. sýn. kl. 19:00
Lau 13/9 5. sýn. kl. 19:00
Fim 18/9 aukas. kl. 20:00
Fös 19/9 6. sýn. kl. 19:00
Fýsn (Nýja sviðið)
Fös 12/9 frums. kl. 20:00
Lau 13/9 2. sýn. kl. 20:00
Sun 14/9 3. sýn. kl. 20:00
Fös 19/9 4. sýn. kl. 20:00
Lau 20/9 5. sýn. kl. 20:00
Sun 21/9 6. sýn. kl. 20:00
Gosi (Stóra sviðið)
Sun 7/9 kl. 14:00
Sun 14/9 kl. 14:00
Sun 14/9 kl. 17:00
Sun 21/9 kl. 14:00
Sun 21/9 kl. 17:00
Sun 28/9 kl. 14:00
Leikfélag Akureyrar
460 0200 | midasala@leikfelag.is
Óvitar (LA - Samkomuhúsið )
Lau 30/8 frums. kl. 20:00
Sun 31/8 kl. 18:00
Fös 5/9 kl. 20:00
Lau 6/9 kl. 20:00
Sun 7/9 kl. 15:00
Lau 13/9 kl. 20:00
Fjölskylduskemmtun
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Lau 23/8 kl. 15:00 Ö
Lau 23/8 kl. 20:00
Sun 24/8 kl. 16:00 Ö
Fös 29/8 kl. 20:00 U
Lau 30/8 kl. 15:00 Ö
Lau 30/8 kl. 20:00
Lau 6/9 kl. 15:00
Lau 6/9 kl. 20:00 U
Sun 7/9 kl. 16:00
Fös 3/10 kl. 20:00 U
Lau 4/10 kl. 15:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Þrjár tilnefningar til Grímunnar
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Cavalleria Rusticana og Pagliacci
Fös 19/9 frums. kl. 20:00 Ö
Sun 21/9 kl. 20:00
Fim 25/9 kl. 20:00
Lau 27/9 kl. 20:00
Lau 4/10 kl. 20:00
Sun 5/10 kl. 20:00
Fös 10/10 kl. 20:00
Sun 12/10 kl. 20:00
Forsala miða hefst 20. ágúst á www.opera.is!
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Mammamamma (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Sun 31/8 kl. 20:00 Ö
Fim 4/9 kl. 20:00
Sun 7/9 kl. 20:00
Fim 11/9 kl. 20:00
Sun 14/9 kl. 20:00
síðustu sýningar
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Duo (Litla svið)
Fim 16/10 1. sýn kl. 20:00
Fös 17/10 kl. 20:00
Fös 24/10 kl. 20:00
Lau 25/10 kl. 20:00
Sun 26/10 kl. 20:00
Frú Norma
4711166 | norma@frunorma.is
Fjársjóðsleit (Útisýning)
Lau 23/8 kl. 16:30
Mæting við Olís í Fellabæ
Kómedíuleikhúsið Ísafirði
8917025 | komedia@komedia.is
Pétur & Einar (EinarshúsBolungarvík)
Fim 4/9 kl. 20:00
Fim 11/9 kl. 20:00
Fim 18/9 kl. 20:00