Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 45

Morgunblaðið - 23.08.2008, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. ÁGÚST 2008 45 Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is É g man það bara ekki,“ segir Ragnar Ísleifur Bragason spurður um hvað hans fyrstu ljóð fjölluðu um. „En ég byrjaði að dunda mér við þetta þegar ég kom heim á kvöldin um helgar undir lok síðustu aldar, eftir Hlöllabát og Pepsi,“ bætir Ragnar við, en hann mun lesa upp í seinna ljóðapartíi Nýhils sem haldið verð- ur í Smíðaverkstæði Þjóðleikhúss- ins kl. 20 í kvöld. Ljóðin sem Ragnar Ísleifur flyt- ur þar eru þó mun nýrri. Hann stundar nám í Fræðum og fram- kvæmd við leiklistardeild LHÍ og þar reyndist einn kúrs sérstaklega dýrmætur við yrkingar. „Ég komst vel á skrið í vetur í kúrsi sem Þor- valdur Þorsteinsson og Sigurður Pálsson kenndu saman í skapandi skrifum. Þeir eru ólíkir og báðir ágætlega flippaðir. Ljóðin sem ég er að skrifa núna eru skrifuð síð- asta ár og byrjuðu að kvikna í þessum kúrsi. Þau eru oft skrifuð eftir einhvers konar leiðbeiningar eða í tengslum við verkefni í skól- anum, verkefnið hefur kannski veitt mér innblástur en svo hefur ljóðið byrjað að fjalla um eitthvað allt annað.“ Hann er þó ekki að skrifa inn í form. „Ég veit ekki hvað mun gerast þegar ég byrja að skrifa þau, ég veit ekki hvar það endar eða hvað næsta orð verður,“ segir Ragnar sem segist vera kom- inn með efni í ljóðabók þótt enn eigi eftir að slípa efnið til og finna því útgefanda. Bernskubrek á gamla ritvél Ragnar á ekki langt að sækja bókmenntaáhugann því foreldrar hans eru skáldkonan Nína Björk Árnadóttir heitin og Bragi Krist- jónsson fornbókasali og bræður hans, Ari Gísli og Valgarður, hafa báðir gefið út ljóðabækur. En hvernig var að alast upp hjá forn- bókasala og skáldi? „Yndislegt bara, margt misjafnt og skemmti- legt sem átti sér stað. Líflegt fólk sem átti líflega félaga, þetta var af- skaplega notaleg og gefandi æska,“ segir Ragnar og rifjar svo upp bernskubrek í fornbókabúðinni. „Ég hékk þar mikið og skrifaði á ritvél alls konar bull áður en ég lærði að lesa, þannig að ég skrifaði bara einhverja stafi – og bað pabba um að lesa það fyrir mig, sem hann gerði,“ segir hann og hermir eftir föður sínum lesa upp torkennilega stafarunu. „Þegar ég var svo að vinna í búðinni seinna langaði mig til að eyða laununum mínum í bækur með flottum káp- um, svona seríur til að hafa uppi í hillu, bara til sýnis. En þá sagði pabbi að það væri ekkert sniðugt að eyða laununum sínum í ein- hverjar flottar bækur sem væru bara til sýnis þannig að ég keypti bara hjólabretti í staðinn.“ Föður Ragnars líst vel á yrkingarnar en hvenær kemur bókin í hillurnar hjá Braga? „Vonandi aldrei því þá vill fólk eiga hana,“ svarar Ragnar Ísleifur. Morgunblaðið/hag Upphaf Fyrstu ljóðin komu eftir Hlöllabát og Pepsi. Af ljóðakyni Ragnar Ísleifur Bragason les upp á ljóða- hátíð Nýhils og er með bók í maganum Kenndu mér að troða marvaða Leyfðu mér að koma með þér þar sem er dýpst Komdu svo til mín Kafaðu undir mig og gríptu um iljar mínar Gríptu mig og taktu mig með þér í kaf Syndum saman Í kafi Óttalaus Lærð Marvaði óttans Önnur ljóðskáld sem lesa upp í kvöld eru: Sureyyya Evren, Ida Börjel, Nina Søs Vinther, Eiríkur Örn Norðdahl, Örvar Þóreyjar- son Smárason, Jón Örn Loðm- fjörð, Kristín Eiríksdóttir og Ingólfur Gíslason. Auk þess verður The Diversion Session með tónlistaratriði. Kl. 13 verður svo málþing um samtímaljóðlist í Norræna hús- inu undir titlinum Ljóðlistin í Ríki sjoppunnar. Það eru Ár- mann Jakobsson og Birna Björnsdóttir sem stýra um- ræðum. Norrænir gestir hátíð- arinnar lesa svo upp í norræna húsinu kl. 18. Hátíðinni lýkur á sunnudag með málþingi í Þjóð- minjasafninu kl. 14, Líf ljóða- bókanna, þar sem fjallað verður um óháða útgáfustarfsemi og ljóðabókaútgáfu á Íslandi sem og erlendis. Dagskrá hátíðarinnar FYRIR AFA OG ÖMMUR, PABBA OG MÖMMUR OG BÖRN – STÓR OG SMÁ „Besta barnasýningin sem í boði er” JVJ, Ísafold MUNIÐ! GEISLADISKURINN OG BÓKIN TIL SÖLU Í LEIKHÚSINU MIÐASALA: SÍMI 4 600 200 / MIDASALA@LEIKFELAG.IS / WWW.LEIKFELAG.IS Uppselt var á allar sýningar síðasta vetur. Ekki missa af þessari frábæru sýningu. Tilnefnd til Grímunnar 2008 sem Barnasýning ársins! FRUMSÝNING LAU. 30. ágúst kl. 20:00 NÆSTU SÝNINGAR SUN. 31. ágúst kl. 18:00 FÖS. 5. sept. kl. 20:00 LAU. 6. sept. kl. 20:00 SUN. 7. sept. kl. 15:00 LAU. 13. sept. kl. 20:00 FRUMSÝNT 30. ÁGÚST [öà•"tÜà™ÇÄx|~tÜ Sunnudagur 24. ágúst kl. 17.00 - fru mfl utn ing ur - HÖRÐUR ÁSKELSSON JÓN STEFÁNSSON J . S . B A C H : Kantata BWV 4 - Christ lag in Todesbanden Kantata BWV 80 - Ein feste Burg Þjóðkirkjukór, Kammersveit Hallgrímskirkju og einsöngvarar: HULDA BJÖRK GARÐARSDÓT TIR sópran JÓHANNA HALLDÓRSDÓT TIR alt ELMAR ÞÓRIR GILBERTSSON tenór HRÓLFUR SÆMUNDSSON bassi MIST ÞORKELSDÓT TIR: Hugleiðing um síðustu stundir Kolbeins Tumasonar Stjórnendur: Miðasala er í Hallgrímskirkju Miðaverð kr. 2000,- SÖNGMÁLASTJÓRI ÞJÓÐKIRK JUNNAR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.