Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Birki Fanndal Haraldsson
Mývatnssveit | Þeir höfðu storm og regn í fangið í
gær, gangnamennirnir sem smöluðu Austurafrétt.
Regn og stormur var á fimmtudagsmorgun en
stytti upp og létti til síðdegis í gær. Þeir komu
fénu í aðhald á Austaribrekku undir kvöld.
Í dag er hópadagurinn en þá reka gangnamenn
féð áleiðis í aðhald austan undir Námafjalli. Rétt-
að verður svo á morgun, sunnudag, í Hlíðarrétt og
eru kindurnar um 2.000 talsins sem þykir ekki
mikið. Á morgun verður einnig réttað á öðrum
stað í Mývatnssveit, í Baldursheimsrétt, og er hún
svipaðrar stærðar og Hlíðarrétt.
Flestar fjárréttir fara fram um miðjan sept-
ember en réttað verður á nokkrum stöðum um
næstu helgi, m.a. verður réttað í Fossrétt á Síðu
föstudaginn kemur.
Göngur hafnar hjá Mývetningum
Smalað á Austurafrétt í dag
Morgunblaðið/Birkir Fanndal Haraldsson
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„HELSTU ráðamenn þjóðarinnar
bæði í núverandi og úr fráfarandi
ríkisstjórn, [voru] því sem næst
klæðlausir á berangri þegar byl-
urinn skall á,“ sagði Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, á flokksráðsfundi flokksins
í Reykholti í gærkvöldi.
Átti Steingrímur þar við þá erf-
iðleika sem þjaka íslenskt efnahags-
líf. Í ræðu Steingríms kom fram að
Vinstri grænir hefðu allt frá árunum
2004-2005 varað við því hvert
stefndi.
Steingrímur benti á mistök í hag-
stjórn og rangar ákvarðanir frá um-
liðnum árum sem skýri stöðu okkar í
dag. Talaði Steingrímur þar um
áhersluna á „blinda stóriðjustefnu“
sem vakti upp miklar væntingar og
hrinti af stað þenslu. Hann nefndi
skattalækkanir lögfestar fram í tím-
ann við aðstæður mikillar þenslu,
glæfralega einkavæðingu og mistök
í peninga- og gjaldeyrismálum, þeg-
ar hátt gengi krónunnar og lágir
vextir á markaði voru ekki notaðir til
að styrkja gjaldeyrisvaraforðann.
Óhóflegur vaxtamunur
Steingrímur minntist einnig á
vaxandi misgengi í launum og lífs-
kjörum almennings og að gríð-
arlegum viðskiptahalla og vaxandi
verðbólguspennu hefði verið mætt
með því að keyra upp vexti og
mynda óhóflegan vaxtamun milli Ís-
lands og annarra landa. Hann talaði
líka um að algert andvaraleysi hefði
verið ríkjandi gagnvart ört vaxandi
skuldsetningu þjóðarbúsins.
Styrkja þarf gjaldeyrisforðann
Steingrímur sagði óumflýjanlegt
verkefni að styrkja verulega gjald-
eyrisvaraforða landsins. Hefja þyrfti
vinnu við að endurskoða lög um
Seðlabankann og taka til umræðu
hvort verðlags- og verðbólgumark-
mið væru ekki of þröng. Taka þyrfti
verkaskiptinguna innan stjórn-
arráðsins til endurskoðunar og
skoða kosti þess að eitt öflugt efna-
hags-, viðskipta- og ríkisfjármála-
ráðuneyti færi með efnahagsmál og
ríkisfjármál. Endurreisa þyrfti
Þjóðhagsstofnun og skapa skilyrði
til að auka þjóðhagslegan sparnað.
Jafnframt þyrfti að fjárfesta í öflugu
velferðarkerfi.
Steingrímur J. vill eitt öflugt efnahagsráðuneyti Óumflýjanlegt að styrkja verulega gjaldeyrisforða
Gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir mistök í gjaldeyris- og peningastefnu Segir skattalækkanir mistök
„Klæðlausir á berangri“
Morgunblaðið/Ómar
Formaður Steingrímur J. Sigfússon
var ómyrkur í máli á fundinum.
Bilun í
vökvabúnaði
ALLT gekk að óskum þegar þota
Icelandair lenti á Keflavíkurflugvelli
klukkan 17.20 í gær eftir að bilunar
varð vart í vökvabúnaði. Um 190
manns voru um borð. Vélin var ný-
lögð af stað til Kaupmannahafnar
þegar bilunarinnar varð vart og var
henni þá snúið við.
Ekki var mikill viðbúnaður á vell-
inum vegna lendingar vélarinnar þar
sem flugstjórinn hafði gert ráð fyrir
að um eðlilega lendingu yrði að
ræða.
Steingrímur sagði málflutning
og skrif „stóriðjutrúboðanna“
minna á „ópíumtökur örvingl-
aðra manna“. Hann benti á að
nettóvirðisauki af álframleiðsl-
unni væri mun minni en tekjur af
sjávarfangi, þótt öðru væri stöð-
ugt haldið fram. Á móti hverju
útfluttu áltonni þyrfti að flytja
inn dýr aðföng, súrál, rafskaut
o.s.frv. og virkjanir væru byggð-
ar fyrir erlent lánsfé. Á móti
seldri orku kæmu því vaxta-
greiðslur til útlanda. Því væri ál
ekki nema hálfdrættingur á við
sjávarútveginn í nettótekjum.
„Álvæðingin“
„RÍKISVALDIÐ
fylgist gaumgæfi-
lega með ástand-
inu á vinnumark-
aði og inn á okkar
borð fáum við
reglulega tölur
frá Vinnumála-
stofnun,“ segir
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir,
starfandi for-
sætisráðherra, um fjöldauppsagnir
síðustu daga. Hún segir nauðsynlegt
að kortleggja hversu mörgum út-
lendingum er sagt upp og hvort þeir
fara úr landi.
Þorgerður segir ríkið hafa mjög
sveigjanleg stjórntæki sem það mun
beita ef aðstæður verða metnar
þannig að þörf sé á. „Það er til dæm-
is hægt að auka framkvæmdir, s.s. í
samgöngumálum auk þess sem við
erum að fara í samvinnu við Listahá-
skólann.“ Auk þess nefnir Þorgerður
tónlistarhúsið sem verið er að reisa á
hafnarbakkanum.
Höldum hjólunum gangandi
Efnahagsmálin eru eina málið á
dagskrá framhaldsfundum Alþingis
sem hefjast 2. september nk. auk
þess sem fjárlögin verða tekin fyrir
þegar nýtt þing hefst í október. „Og
þau verða að endurspegla að við ætl-
um að halda hjólum atvinnulífsins
gangandi,“ segir Þorgerður en vill að
öðru leyti ekki tjá sig um fjárlaga-
frumvarpið sem er í vinnslu um þess-
ar mundir. Sú vinna gengur vel að
sögn hennar. andri@mbl.is
Fylgjast
vel með
ástandinu
Ríkið mun bregðast
við ef þurfa þykir
Þorgerður K.
Gunnarsdóttir
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
UNGUR karlmaður beið bana í
slysi í botni Mjóafjarðar í Ísafjarð-
ardjúpi um miðjan dag í gær. Mað-
urinn missti stjórn á litlum jeppling
sínum með þeim afleiðingum að
hann hafnaði úti í á. Farþegi, ung
kona, komst af sjálfsdáðum út úr
bifreiðinni, en tveir ökumenn óku
framhjá henni. Tildrögin eru til nán-
ari rannsóknar lögreglu á Ísafirði.
Veður var vont á þessum tíma,
rigning og afar hvasst. Svo virðist
sem maðurinn hafi ekki náð að
beygja inn á brú í botni fjarðarins,
og var bifreiðinni ekið á brúarstólpa
og hentist hún í kjölfarið út í ána.
Bifreiðin lenti á hvolfi ofan í ánni.
Látinn þegar aðstoð barst
Konan náði að komast út úr jepp-
lingnum og á þurrt land. Hún
reyndi að stöðva bíla sem óku
framhjá. Tveir ökumenn keyrðu
framhjá vettvangi án þess að stöðva
samkvæmt upplýsingum frá
Slökkviliði Ísafjarðarbæjar. Öku-
maðurinn virðist hafa fengið tölu-
vert högg en hann komst ekki út úr
bílnum og var látinn þegar vegfar-
endur komu að og til hjálpar.
Slökkvilið Ísafjarðar var kallað út
til aðstoðar og einnig Slökkvilið
Hólmavíkur. Þegar slökkviliðsmenn
frá Ísafirði komu á vettvang var bú-
ið að ná manninum út úr bílnum.
Bíllinn var síðar hífður upp úr ánni.
Maðurinn var búsettur á Ísafirði.
Ekki er unnt að birta nafn hins
látna að svo stöddu.
Ökumenn óku framhjá slysstað
Ungur karlmaður lést í umferðarslysi í botni Mjóafjarðar
Farþegi komst úr bílnum og reyndi að stöðva vegfarendur