Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 19 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF   '/' !0& 1%2# 1%20 ! !  3 /"#!3 '/3 4%2& 4%25 ! ! " #$ % & &&"5'' /"#3! 1&25 1&2! ! ! )*+, "- 5"3#0 3"'// 1%23 %2% ! !  4   5 '"/%0 $!! 1%23 1%2$ ! ! 6 .7  #$%&  ! '# " ! $%&  ()*  +  , -     89:;)$ $; : - %./  - 01 23/  0045 1 23/  ,6  /  1   0 /  7 , 80 3 9:;' <.%' 1 23/  =23> :0/  ?' 0 ;'/   %/  +@A& + 282 B2  C)C  /  D2 /  < 9# 6  -  .- # -  .@% %28@E) , 00 )F  &G/%  /  *%8 /  H 2 5 /  8  5  =  I% 2 -28 28I  71 ' /  783 /  >   $% 323$ 52%5 /3255 023% &52%5 &'2'% /%2&% 0%02%% /'2%% !32%% #23% $2&5 $%25% /%&2%% &3'%2%% //!2%% &3%2%% /&2$% &2$% !25% '&&%2%%                          H 0 3 ': *    0 =23+  B                   B   B B B  B B K K K K K K K K K K K K  K K K K K B B B K K B K K K K K K K   K K K K K   K K K K K  K K  K  K K K )5' 4 0 3  B B           B  B  B B B  B B ":%  4 04%                         -* -* Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is SEÐLABANKINN telur að það væri mikið óráð að túlka það svig- rúm, sem þolmörk veðbólgumark- miðs bankans bjóða upp á, með þeim hætti sem lagt hefur verið til, að sögn Arnórs Sighvatssonar, aðal- hagfræðings Seðlabankans. „Það myndi leiða til þess að verð- bólguvæntingar til lengri tíma myndu hækka og vextir lækka hæg- ar en gert er ráð fyrir í okkar spám,“ segir Arnór. „Það er ekki með nokkru móti hægt að saka Seðla- bankann um skort á sveigjanleika þegar við búum við verðbólgu upp á 14,5%. Verðbólgumarkmiðið er 2,5% og við ætlum að ná því árið 2010. Ég veit ekki hvernig menn fá út að þetta sé skortur á sveigjanleika.“ Greiningardeild Kaupþings hefur lagt til að Seðlabankinn nýti það svigrúm sem þolmörk verðbólgu- markmiðs bankans bjóða upp á, meðal annars í grein Ásgeirs Jóns- sonar forstöðumanns deildarinnar í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í fyrradag. Telur greiningardeildin að lykilatriði sé fyrir bankana að geta sýnt sveigjanleika án þess að glata trúverðugleika, sem sé það svigrúm sem vikmörkin eigi að gefa. Því væri að mati deildarinnar raunhæfara markmið fyrir Seðlabankann að ná verðbólgu niður fyrir 4% fyrir mitt ár 2010 í stað 2,5%. Tillögurnar ekki rétta leiðin Arnór segir að Seðlabankinn geri spár til langs tíma. Bankinn reyni að setja sér raunhæf markmið um það hvenær hægt sé að ná verð- bólgumarkmiðinu, þó þannig að það leiði ekki til þess að verðbólguvænt- ingar leiki algjörlega lausum hala. „Það er mikill misskilningur að seðlabankar geti sýnt mikinn sveigj- anleika, áður en þeir hafa áunnið sér traust með því að halda verðbólgu nálægt verðbólgumarkmiðum langa hríð. Þegar það hefur verið gert þá er auðveldara fyrir seðlabanka að sýna sveigjanleika, en tillögur grein- ingardeildar Kaupþings eru ekki leiðin til þess,“ segir Arnór. Óráðlegar tillögur um þolmörk Í HNOTSKURN » Arnór segir sjónarmiðgreiningardeildar Kaup- þings þversagnarkennt því að greiningardeildir bankanna hafi verið mun bjartsýnni um möguleika þess að ná verð- bólgumarkmiðinu fyrr og með minni tilkostnaði en sérfræð- ingar Seðlabankans hafa spáð.● BYR sparisjóð- ur þarf að greiða Samkeppniseftir- litinu eina milljón krónur á dag þar til sjóðurinn hefur skilað til eftirlits- ins upplýsingum sem farið var fram á í tengslum við rannsókn þess á samruna SPRON og Kaupþings. Þetta kemur fram í ákvörðun Sam- keppniseftirlitsins sem birt var í gær. Segir í ákvörðun Samkeppniseftir- litsins að við mat m.a. á stærð þess markaðar sem umrædd félög starfa á taldi eftirlitið nauðsynlegt að afla upplýsinga frá fjölda fjármálafyrir- tækja sem starfa á Íslandi. Byr hafi ekki svarað erindinu með fullnægj- andi hætti þrátt fyrir ítrekaða beiðni Samkeppniseftirlitsins um upplýs- ingar. gretar@mbl.is Samkeppniseftirlitið sektar Byr sparisjóð ● FASTEIGNAFÉLAGIÐ Eik hagnaðist um 357 milljónir króna á fyrri helm- ingi þessa árs samanborið við 1.962 milljónir á sama tímabili í fyrra. Arð- semi eigin fjár var um 30%. Heildar- eignir félagsins eru um 18,8 millj- arðar króna. Félagið segir í tilkynningu, að reksturinn hafi gengið vel fyrstu sex mánuði þessa árs. Leiguverð á markaði hafi hækkað og lítið af hús- næði þess sé ekki í útleigu. Eik er eitt stærsta fasteignafélag landsins og sérhæfir sig í leigu á at- vinnuhúsnæði, aðallega á höf- uðborgarsvæðinu. gretar@mbl.is Minni hagnaður hjá Eik fasteignafélagi ● GREINING Glitnis spáir því að íbúðaverð muni lækka um 4% yfir þetta ár og einnig næsta ár en hækka um 3% árið 2010. Í Morgunkorni deildarinnar seg- ir að draga muni úr eftirspurn á íbúðamarkaði á næstu mán- uðum vegna lánsfjárþurrðar, minnkandi kaup- máttar, versn- andi stöðu á vinnumarkaði og vænt- inga um verðlækkanir íbúðarhúsnæðis. Allt þetta leggist á eitt og myndi töluverðan þrýsting til verðlækkunar. Ytri skilyrði batni hisn vegar 2010. gretar@mbl.is Spá 4% verðlækkun ÁHYGGJUR af stöðu danska bankakerfisins hafa aukist í kjöl- far yfirtöku danska seðlabankans á Hróarskeldubanka. Í frétt Berlingske Tidende segir að hálfsársuppgjör danskra banka sýni að þeir séu enn að takast á við afleiðingar lánastefnu undan- farinna ára. Segir í greininni að margir danski bankar hafi spennt bogann of hátt í útlánum sínum og að hlutfall útlána á móti innlánum sé hærra en eðlilegt geti talist. Þegar heildarupphæð útlána sé margföld á við eigið fé banka, auk þess sem þau séu mörg tengd fall- andi fasteignamarkaði, sé ástæða til að hafa áhyggjur, segir í frétt- inni. Gæði lánasafnanna séu hins vegar ekki í öllum tilfellum ljós og því sé í raun ómögulegt að vita hvaða bankar standi höllum fæti og hverjir ekki. Engum ætti hins vegar að koma á óvart lendi fleiri bankar í vand- ræðum eins og Hróarskeldubanki. Í Bandaríkjunum hafa yfirvöld gætur á 117 bönkum, sem óttast er að geti farið í þrot, en í fyrra var eftirlit með um 90 bönkum í hugsanlegum kröggum. bjarni@mbl.is Spenntu bogann of hátt Danskir bankar standa höllum fæti Seðlabanki Hróarskeldubanki lenti í alvarlegum vandræðum í sumar og svo fór fyrir skömmu að danski seðlabankinn tók hinn fyrrnefnda yfir. ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar lækkaði um 0,61% í gær og er loka- gildi hennar 4.207,48 stig. SPRON hækkaði um 2,86% og Eimskip um 1,41%. Exista lækkaði um 2,56% og Glitnir um 1,95%. Gengi krónunnar veiktist um 0,44% í gær en velta á milli- bankamarkaði nam 19,5 milljörðum króna. Lokagildi gengisvísitölu var 159,15 stig. Gengi Bandaríkjadals er 83,30 krónur og evru 122,20 krónur. bjarni@mbl.is Lækkun í Kauphöllinni TAP Stoða, áður FL Group, nam 59,5 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaður FL Group 23,1 millj- örðum króna. Tap eftir skatta nemur 11,6 milljörðum króna á öðrum árs- fjórðungi. Tapið er að mestu tilkomið vegna fjármagnskostnaðar og lækkunar á markaðsverðmæti eignarhlutar fé- lagsins í Glitni banka, sem lækkað hefur um 10,7% á öðrum ársfjórð- ungi, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Í lok annars ársfjórðungs var eigið fé Stoða 87 milljarðar króna og eig- infjárhlutfall í fjárfestingastarfsemi var 29,2%. Eignir félagsins við lok annars ársfjórðungs námu 352 millj- örðum króna. bjarni@mbl.is Mikið tap Stoða Tap á fyrri helmingi árs 60 milljarðar ● VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR í júlí var neikvæður um 17,5 milljarða króna, en á sama tíma í fyrra var jöfnuður- inn neikvæður um 15,6 milljarða. Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,1 milljarð króna og inn fyrir 51,6 milljarða króna. Fyrstu sjö mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 241 milljarð króna en inn fyrir 282,8 millj- arða króna. Vöruskiptajöfnuðurinn var 23,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. bjarni@mbl.is Vöruskiptahalli eykst TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN var rekin með 3,4 milljarða króna tapi eftir skatta á fyrri helmingi þessa árs. Á sama tímabili í fyrra var hagn- aður félagsins 2,4 milljarðar. Meginskýringin á þeim miklu breytingum sem urðu á afkomu Tryggingamiðstöðvarinnar milli ára er sú, að fjárfestingatekjur félagsins voru neikvæðar sem nemur 756 milljónum á fyrri helmingi þessa árs en jákvæðar um 4.074 milljónir á sama tímabili 2007. Það skýrist hins vegar að mestu af slæmri afkomu á fyrsta fjórðungi ársins þegar hluta- bréfaeign félagsins lækkaði mikið, enda voru fjárfestingatekjur félags- ins jákvæðar um 1.384 milljónir á öðrum fjórðungi þessa árs. Segir í tilkynningu Tryggingamið- stöðvarinnar að dregið hafi verið úr hlutabréfaeign félagsins á fyrsta ársfjórðungi og að þær aðgerðir hafi skilað sér í auknum vaxtatekjum á öðrum ársfjórðungi. Tap af vátryggingastarfsemi á fyrstu sex mánuðum ársins var 417 milljónir fyrir skatta samanborið við 337 milljóna hagnað á sama tímabili 2007. gretar@mbl.is Mikið tap TM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.